Morgunblaðið - 30.10.1997, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
LISTIR
•......... a
MORGUNBLAÐIÐ
HAMLET, mynd Kenneths
Branaghs, er opnunarmynd
kvikmyndahátíðarinnar.
Kvikmynda-
hátíð
hefst í dag
KVIKMYNDAHÁTÍÐ í Reykjavík
hefst í dag, 30. október, og lýkur 9.
nóvember. Á hátíðinni verða sýnd-
ar þrjátíu og fjórar myndir. Fimm
franskar, þrjár danskar, tvær ástr-
alskar, og ein rússnesk en stærstur
hluti myndanna kemur frá Banda-
ríkjunum og Bretlandi. Hátíðin
hefur verið haldin síðan árið 1978
og er elsta kvikmyndhátíð á Norð-
urlöndum.
Hátíðin verður opnuð með mynd
Kenneths Branaghs, Hamlet, kl. 18
í Regnboganum. Fyrir utan Ham-
let verða sýndar þrjár aðrar mynd-
ir byggðar á verkum Shakespeares
á hátíðinni, Þrettándakvöld,
Óþelló, og í leit að Ríkharði.
Einn stærsti viðburður hátíðar-
innar í ár er sýning á dönsku
myndinni „Riget 11“ (Lansinn II)
eftir Lars von Trier laugardaginn
1. nóvember kl. 17. Sýningin á
Lansanum II tekur fjóra og hálfa
klukkustund, og verður boðið upp á
veitingar að dönskum hætti. Miðar
á sýninguna kosta eitt þúsund
krónur og er forsala aðgöngumiða
hafin í verslun Máls og menningar
við Laugaveg og í Regnboganum.
Leikarinn Henning Jensen, sem
leikur Bob, stjórnanda sjúkrahúss-
ins í Lansanum, verður viðstaddur
sýninguna. Aðrir væntanlegir gest-
ir hátíðarinnar eru danski leik-
stjórinn Nicolas Winding Refn og
ieikarinn Kim Bodnia en þeir ætla
að fylgja myndinni „Pusher“ úr
hlaði. Einnig kemur ástralski leik-
stjórinn Monica Pellizzari en mynd
hennar „Fistful of Flies“ verður
sýnd á hátíðinni.
♦ ♦♦
(5)millifs: Tjarnarbíó
I TJARNARBÍÓI kl. 20.30 verður
danssýning þar sem fram koma sex
dansskólar og stúdíó með fjöl-
breytta dagskrá með klassísku-,
djass- og módernívafi. Leiðbein-
andi er Sveinbjörg Þórhallsdóttir.
Þeir skólar/stúdíó sem koma fram
eru: Verkstæðið, Kramhúsið, List-
dansskóli íslands, Nýi klassíski
skólinn, Dansskóli Jóns Péturs og
Köru, Jazzballettskóli Báru.
Kakóbarinn Geysir
Á kakóbarnum Geysi í Hinu hús-
inu kl. 12 verður Fjölbrautaskólinn í
Breiðholti með listakvöld.
Urslitin í myndlistarmaraþoninu
verða kynnt laugardaginn 1. nóvem-
ber klukkan 16. Veitt verða verð-
laun fyrir 1., 2. og 3. sæti.
Hrollvekjandi
sápuópera
á sjúkrahúsi
Danski leikstjórinn Morten Arnfred gerði
dönsku framhaldsmyndina Lansann 2 í
samvinnu við Lars von Trier en hún er
sýnd á Kvikmyndahátíð Reykjavíkur.
Hann segir Arnaldi Indriðasyni frá mynd-
inni, samstarfínu við von Trier og fleiru.
Kemur fram í samtalinu að þriðji og síðasti
hluti Lansans verði tilbúinn um árið 2000.
EINS og mörgum er kunnugt
veitir danski leikstjórinn
Lars von Trier, sem nú síð-
ast sendi frá sér sápuóperuhroll-
vekjuna Lansann 2, en hún er á
dagskrá Kvikmyndahátíðar
Reykjavíkur, ekki viðtöl, hreyfir
sig helst ekki frá heimili sínu og
þjáist af margskonar fælni. Hann
er einn eftirtektarverðasti kvik-
myndaleikstjóri Norðurlanda í dag
ef ekki allrar Evrópu og því er
mikill akkur að því að fá hans
nýjasta verk, Lansann 2 eða „Riget
2“, hingað á kvikmyndahátíð þótt
hann sjálfur sé ekki fáanlegur eitt
né neitt.
Lansinn 2 gerist, líkt og fyrri
myndin, á stóru sjúkrahúsi í Kaup-
mannahöfn og hefst þar sem frá
var horfið í fyrsta hlutanum. Með
aðalhlutverkin fara sem fyrr marg-
ir helstu leikarar Danaveldis, Ghita
Nörby, Kirsten Rolffes, Holger
Juul Hansen og sænski leikarinn
Emst Hugo Jaregard. Einstaka
nýjar persónur koma við sögu í
öðrum hlutanum en annars er flest
með sama hætti og áður á Ríkis-
spítalanum í Kaupmannahöfn.
Vinnur með leikurunum
ég ræð því sjálfur hvað ég geri.
Þetta er mitt val. Við erum mjög
ólíkar persónur en við vinnum
mjög vel saman. Ef við hefðum
gert þættina í hvor í sínu lagi, hann
tvo og ég tvo, hefði útkoman orðið
önnur. Gæði þáttanna spretta úr
samstarfi okkar tveggja."
- Hvemig er að vinna með Lars
von Trier?
Engin sýndarfælni
„Lars þjáist af allri þessari
fælni. Það jákvæða er að hann
brúkar fælnina í myndirnar sínar.
Neikvæða hliðin er sú að hún gerir
honum erfitt fyrir. Hann getur
ekki ferðast. Hann getur ekki farið
inn á sjúkrahús. Hann þolir ekki að
sjá blóð, þolir enga hæð, vill vera á
jörðinni. Þess vegna var Lars að-
eins með okkur í anda þegar við
gerðum margar senurnar i Lans-
anum og „Breaking the Waves“.
Hann er mjög viðkvæmur maður
og hugarheimur hans brothættur
og því er að mörgu leyti erfitt fyrir
hann að vera leikstjóri. Hann er að
vinna með fælni sína og hún er
engin sýndarfælni. Hún er mjög
raunveruleg. Stundum hefur hann
aðeins verið í tíu mínútur á töku-
Lars von Trier er ekki einn um
að leikstýra myndinni, sem er
næstum því fimm tímar að lengd
eða sem samsvarar fjómm þáttum
í sjónvarpi. Með honum vann
danski leikstjórinn Morten Am-
fred og hann veitir viðtöl og ferðast
og þjáist ekki af neinni fælni.
Blaðamaður Morgunblaðsins hitti
hann fyrir skemmstu í Noregi og
kom þar fram að samstarfíð á milli
hans og von Triers hófst fyrir ein-
um fjórum eða fimm árum. „Hann
var beðinn um að gera auglýsingu
fyrir franskt tryggingarfyrirtæki,"
segir Morten Arnfred, „sem var
mjög flókin tæknilega og í henni
komu fram margir karakterar og
hann bað mig að hjálpa sér með
leikarana á meðan hann sæi um
tæknihliðina. Síðar þegar ég heyrði
að hann ætlaði að gera Lansann,
fyrsta hlutann, sagði ég við vini
mína að hann þyrfti að hafa góðan
leikstjóra með sér í verkið_________
og var auðvitað ekki að
hugsa um sjálfan mig í
það hlutverk. Ég var
staddur í Los Angeles _____
þegar hann hringdi í mig —
og bauð mér starfið, sem aðallega
fólst í því að vinna með leikurun-
um. Það hefur ekki verið aðal Lars
hingað til. Síðar bað hann mig að
gera það sama þegar hann gerði
„Breaking the Waves“ og loks
Lansann 2. Auðvitað spurði ég
sjálfan mig: Hvers vegna að vinna
með Lars? Hann tekur allan heið-
urinn. Ég veit það og stundum læt
ég það hafa áhrif á mig. En ég var í
raun aldrei í vafa. Ég gæti hafnað
boði um að vinna með honum svo
Spítalalífið
lýsir þjóðfélagi
í hnotskurn
stað þegar hann segist ekki þola
við lengur og ég verði að taka við.“
- En er ekki fælnin og þetta að
veita ekki viðtöl og koma ekki fram
aðeins partur af markaðssetning-
unni á Lars von Trier?
„Þegar þú vinnur með persónu-
leika eins og Lars og við hann bæt-
ast hverskonar fóbíur getur það vel
litið út eins og tilbúningur. En
vegna þess að ég þekki hann vel
get ég fullyrt að það er ekkert fals
við það sem Lars gengur í gegnum.
Þetta er mjög erfitt fyrir hann.
Stundum þarf hann að snúa við
heim aftur á leið í vinnuna. Hann
er kannski kominn kílómetra frá
heimili sínu þegar hann verður að
keyi’a út í kant og þar situr hann í
bílnum í klukkustund og snýi’ svo
aftur heim. Þetta gerir enginn sér
til gamans.“
Sápuópera og gamanmynd
________ - En að Lansanum 2.
Hvernig mundir þú sjálf-
ur lýsa fyrirbærinu?
„Þetta er íyrst og
fremst sápuópera og
gamanmynd og inniheld-
ur margar ólíkar sögur m.a.
draugasögu. En með spítalalífinu
er líka verið að lýsa þjóðfélaginu í
hnotskum og valdabaráttunni inn-
an þess, átökum á milli góðs og ills,
milli þess sem þú hefur stjórn á og
hefur enga stjórn á, vísindahyggju
og andlegs lífs. Allir í Lansanum
eiga sér leyndarmál og vilja fá eitt-
hvað fyrir ekkert. Sá eini sem ekki
er þannig vaxinn er gamla,
skyggna konan sem Kirsten Rolf-
fes leikur. Hún er sú eina sem er
KIRSTEN Rolffes í hlutverki skyggnu konunnar á Ríkisspítalanum í
J Kaupmannahöfn í framhaldsmyndinni Lansanum 2.
LARS von Trier á tali við leikarana í „Breaking the Waves“ en myndin
er úr heimildarmynd um Ieikstjórann.
hrein og heiðarleg ásamt parinu
sem sér um uppvaskið á spítalan-
um. Það er hægt að setja allt í
myndina sem maður vill og það
fylgir henni engin notendahandbók
enda held ég að hún sé auðskilin."
Myndatakan í Lansanum fór í
taugarnar á mörgum og sami stíll
er á framhaldinu, handstýrð
myndavél er á sífelldri hreyfingu
milli leikaranna. Hver er tilgangur-
inn?
„Tilgangurinn er margskonar. I
fyrsta lagi veitir þessi tegund
myndatöku leikaranum eins mikið
frelsi og hægt er að hafa við upp-
tökur. Þetta er stíll og starfsaðferð
sem hentar leikurum sérstaklega
vel. Þeir þurfa ekki að hugsa um
ljós eða merkingar á gólfum þar
sem þeir eiga að stoppa eða stöðu
myndavélarinnar. Þeir þurfa að-
eins að hugsa um leikinn og aðra
leikara í kringum sig. Venjulega
eru myndirnar skornar í búta en í
þessu tilviki er það ónauðsynlegt.
Við sköpum umhverfi fyrir leikar-
ana þar sem þeir geta gert allt sem
þá lystir. Myndatökustíllinn hefur
það í för með sér að leikararnir eru
alltaf mjög þreyttir, þeir vita aldrei
hvort þeir eni í mynd eða ekki,
þeir geta aldrei slappað af. Þannig
þreytast þeir auðveldlega en þeir
finna líka til frelsisins og eru áfjáð-
ir að hefja störf aftur næsta dag.
Það ríkti mjög góður andi í hópn-
um og það var skemmtilegt að
vinna við myndina, bæði með þeim
sem voru fyrir framan myndavél-
arnar og þeim sem voru fyrir aftan.
Við gátum tekið allt upp í______
átta mínútur á dag. Það
var mjög ögrandi. Við
vildum losna við hið hefð-
undna tungutak kvik-
myndamálsins til þess að
komast að kjama góðrar sögu og
gera jafnframt tilraunir með kvik-
myndamálið. Venjulega á klipping-
in að vera ósýnileg en við vildum að
hún sæist vegna þess að hún er
partur af hrynjandi myndarinnar.
Samvinna leiks og klippingar er
hjartslátturinn í myndinni."
- En dregur myndatakan ekki
athyglina of mikið að sér, er hún
ekki of áberandi, er ekki of mikið
áreiti fólgið í sjálfri myndatökunni?
„Ég held að áhorfandinn hugsi
Leikur og
klipping eru
hjartslátturinn
ekki um það þegar hann hefur
meðtekið tóninn í sögunni. Stund-
um getum við vakið hann og ögrað
með verulega illskeyttum klipping-
um en ég held ekki að það hafi
áhrif á söguna sjálfa. Þegar þú
finnur lykilinn að henni getur þú
notið hennar eins og hverrar ann-
an-ar sögu. Við sögðum í upphafi
að sápan gæti verið meðhöndluð á
marga ólíka vegu. Hún gæti verið
„slap-stiek“ en önnur leið væri að
skapa raunsannar persónur sem
áhorfendur hafa trú á og setja þær
í spaugilegt umhverfi. Þannig verð-
ur Lansinn kómedía, öðruvísi
ekki.“
- Hver er helsti munurinn á
Lansanum 1 og Lansanum 2?
„I fyrsta hlutanum var áherslan
lögð á draugasöguna en í þessum
öðrum hluta er áherslan á hið
gróteska, hið ljóta. Einnig er
kannski meiri húmor í þessum öðr-
um hluta. Lansinn 2 er mjög eðli-
legt framhald og markmiðið með
Lansanum 3 er að ná enn lengra.
Ég veit ekki hvað númer þrjú verð-
ur um en það er lokahluti sögunnar
og verður líklega tilbúinn í lok árs
1999 eða jafnvel ekki fyn- en árið
2000. Það líða þrjú ár á milli mynd-
anna.“
- Spaugilegasta persónan í
Lansanum 1 og 2 er Svíinn sem
vinnur í Kaupmannahöfn og hatast
út í Dani og allt sem danskt er.
„Hann er mjög athyglisverð per-
sóna. Leikarinn, Ernst Hugo
Járegárd, lék fyrir Lars í myndinni
Evrópu. Lars hefur líkað við andlit
_________hans. Hann virðist vera
ákaflega vondur maður
og þeir vildu skapa per-
sónu sem væri lýsandi
_________fyrir samband Svía og
Dana. Svíar hafa alltaf
talið sig hafna yfir Dani. Svíar hafa
iðnaðinn. Danir hafa ekkert. Lars
vildi skopast að því og flytja Sví-
ann, sem ekki getur búið lengur í
landi sínu vegna fortíðarvanda-
mála, til Danmerkur og þegar hann
kemur til Danmerkur lætur hann
eins og hann sé eitthvað sérstakur.
Við í Danmörku elskum þennan
egóista. Ég held að Ernst Hugo sé
vinsælli í Danmörku en í Svíjojóð.
Hann er hetja.“
1