Morgunblaðið - 30.10.1997, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997 49
FRÉTTIR
Forseti
Heimssam-
bands KFUK í
heimsókn
FORSETI Heimssambands KFUK,
Anita Anderson, sækir ísland heim
þessa dagana. Markmið heimsókn-
arinnar er að styrkja tengsl við
KFUK félög og konur hér. A laug-
ardag er boðið til opins fundardags
KFUK á íslandi í húsi KFUM og
KFUK við Holtaveg.
Dagskráin hefst með skráningu kl.
9.30 og stendur til kl. 15. Anita And-
erson flytur erindi um starf KFUK
víða um heim. Síðan verða málin
rædd í hópum. Fundurinn er opinn
öllum konum sem áhuga hafa á að
kynna sér starf KFUK. Anita flytur
einnig ávarp á almennri samkomu við
Holtaveg kl. 17 á sunnudag.
Aðildarfélög Heimssambands
KFUK starfa í 92 löndum heims og
25 milljónir kvenna tilheyra hreyf-
ingunni. Markmið þeirra er að leiða
ungar konur til trúar á Jesú Krist,
veita þeim samfélag, uppörva þær
og styrkja.
Rannsóknir í
ferðaþjónustu
FÉLA.G háskólamenntaðra ferða-
málafræðinga (FHF) stendur á
morgun, föstudag, og laugardag fyr-
ir ráðstefnu í Þjóðarbókhlöðunni í
samvinnu_ við Rannsóknarþjónustu
Háskóla íslands og Ferðamálasam-
tök íslands. Þetta er sjötta norræna
ráðstefnan um rannsóknir í ferða-
þjónustu en hún er nú í fyrsta sinn
haldin á Islandi.
Þijú aðalerindi verða á ráðstefn-
unni. Þau halda Ágúst_ Ingþórsson,
Rannsóknarþjónustu HÍ, um „Uni-
versity Communities and Tourism",
Gordon Adams, deildarstjóri áætl-
ana- og þróunarsviðs hjá Ferðamála-
ráði Skotlands, um „The growing
Importance of the Environment for
European Tourism“ og Georg Kam-
fjord frá Norska viðskiptaháskólan-
um í Ósló um „Tourism distribution
into the next Century, New Opport-
unities for small Players".
Auk aðalerindanna verða 28
styttri erindi um markaðssetningu,
náttúru og umhverfi, áætlanir og
skipulag og menningu. Ráðstefnan
er opin öllu áhugafólki.
Kvikmynda-
iðnaður á
íslandi
FRAMLEIÐENDAFÉLAGIÐ og Fé-
lag kvikmyndagerðarmanna boða til
opins fundar í Komhlöðunni fímmtu-
daginn 30. október kl. 21.
Agúst Einarsson, alþingismaður,
flytur erindi sem nefnist Kvikmynda-
iðnaður á íslandi - Staða og úrbæt-
ur, þar sem koma m.a. fram nýjar
upplýsingar byggðar á nýrri úttekt
og tillögur um breytingar á skatta-
löggjöf til eflingar kvikmyndaiðnaði.
Ahugafólk um kvikmyndagerð er
velkomið meðan húsrúm leyfir.
Söfnun til
styrktar
Hallbirni
STARFSFÓLK íslenska útvarpsfé-
lagsins gengst fyrir söfnun til styrkt-
ar Hallbirni Hjartarsyni fímmtudag-
inn 30. október.
„Eins og kunnugt er varð Hall-
björn fyrir miklu tjóni þegar eidur
kom upp í Kántríbæ á Skagaströnd
nú á dögunum. Plötusafn hans er
illa farið og ljóst er að það mun
kosta umtalsverða fjármuni að
byggja aftur upp þessa kántrímiðstöð
íslands," segir í fréttatilkynningu frá
íslenska útvarpsfélaginu.
Jafnframt segir: „Stefnt er að því
að útvega Hallbirni nýtt safn kántrí-
platna og verður tekið á móti plötum
frá almenningi í afgreiðslu íslenska
útvarpsfélagsins frá kl. 9-19 á
fimmtudag."
Ekki verið að efla starf-
semi sjómannaskólanna
Haustfundur
garðyrkju-
bænda
HAUSTFUNDUR Sambands garð-
yrkjubænda verður haldinn föstu-
daginn 31. október kl. 11 á Hótel
Islandi.
Undanfarin ár hefur Samband
garðyrkjubænda haldið árlegan
haustfund þar sem tekin hafa verið
fyrir þau mál sem brenna mest á
garðyrkjunni á hveijum tíma. Að
þessu sinni verða til umfjöllunar
mennta- og tilraunamál Garðyrkju-
skóla ríkisins að Reykjum auk þess
sem Jan Hassing, framkvæmdastjóri
dönsku garðyrkjusamtakanna DEG
kemur sérstaklega til fundarins til að
ræða um rekstrarskilyrði danskrar
garðyrkju m.a. með tilliti til GATT.
Gróska með
ky nningar fundi
GRÓSKA, samtök jafnaðarmanna og
félagshyggjufólks heldur dagana 30.
október til 4. nóvember 18 fundi á
jafnmörgum stöðum.
Samhliða fundaherferðinni verður
haldinn miðstjórnarfundur samtak-
anna en þar verður til umræðu Hin
opna bók Grósku sem inniheldur
stefnu samtakanna.
Fimmtudaginn 30. október verða
haldnir fundir í Sjómannastofunni
Vör, Grindavík, kl. 17 og í Ásbergi,
Hafnargötu 26, Keflavík, kl. 20.30.
Á föstudaginn 31. október verða
fundir á Hótel Barbro, Akranesi, kl.
12, Hyrnunni, Borgarnesi, kl. 17 og
í Verkalýðsheimilinu Stykkishólmi
kl. 21.
Föstudagsfyr-
irlestur Líf-
fræðistofnunar
NÆSTI föstudagsfyrirlestur Líf-
fræðistofnunar verður 31. október í
húsakynnum Líffræðistofnunar að
Grensásvegi 12 í stofu G-6. Erindið
hefst kl. 12:20 og ber heitið Ensím
úr hitaþolnum bakteríum.
í erindinu verða kynntar niður-
stöður einangrana, raðgreininga og
ofurtjáningar afurða gena úr hita-
kæru bakteríunni Rhodothermus.
Brottfluttir
Hólmarar hittast
FYRRVERANDI Stykkishólmsbúar
er búa á Reykjavíkursvæðinu ætla
að hittast og skemmta sér í Félags-
heimili Fóstbræðra v/Langholtsveg
109-111 laugardaginn 8. nóvember
frá kl. 21.30.
í tilkynningu segir að vonast sé
til að fólk á öllum aldri sem hefur
áhuga á að stofna félag brottfluttra
Hólmara mæti.
Málstofa um
rætur hagkerfa
ÞRÁINN Eggertsson prófessor held-
ur fyrirlestur á málstofu Samvinnu-
háskólans fimmtudaginn 30. október
nk. Nefnir hann fyrirlestur sinn
„Kerfishagfræði og rætur hag-
kerfa“.
Málstofan fer fram í Hátíðarsal
Samvinnuháskólans á Bifröst og
hefst kl. 15.30. Eru allir boðnir vel-
komnir.
Aðalfundur
LAUFS
AÐALFUNDUR Laufs verður
haldinn fimmtudaginn 30. október
kl. 20 að Laugavegi 26, gengið inn
Grettisgötumegin.
Á dagskrá verða venjuleg aðal-
fundarstörf.
■ AÐALFUNDUR Samstarfs-
hóps um vefjagigt og þreytu verð-
ur haldinn í húsakynnum Gigtarfé-
lags íslands, Ármúla 5,2. hæð, laug-
ardaginn 1. nóvember kl. 14. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa verða
önnur mál rædd.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Kennarafé-
lagi Vélskóla Islands:
„Menntamálaráðuneytið hefur
gert tillögu um flutning Stýrimanna-
skólans í Reykjavík og Vélskóla ís-
lands úr Sjómannaskólanum í verk-
smiðjuhúsnæði að Höfðabakka 9 í
Reykjavík. Sjómannaskólahúsið hef-
ur lengi sett svip sinn á höfuðborg-
ina. Það var tekið í notkun fyrir
rúmum fimmtíu árum og er vitnis-
burður um skilning þáverandi ráða-
manna þjóðarinnar á því að íslend-
ingar byggja afkomu sína og vel-
megun á sjávarútvegi og siglingum.
Ljóst er að önnur sjónarmið hafa
verið uppi hjá þeim sem gert hafa
tillögu um slíka ósvinnu til ráðherra
menntamála.
Þessi tillaga hefur þegar mætt
mikilli andstöðu og verið mótmælt
af ýmsum aðilum sem málið er skylt.
Kennarafélag Vélskóla íslands vill
hér taka undir þau mótmæli og
benda á nokkur atriði:
1. Það er ekki verið að flytja skól-
ana í hentugra húsnæði og tilgangur-
inn er ekki að efla starfsemi þeirra.
Sjómannaskólamir eiga einungis að
fara úr Sjómannaskólahúsinu til að
rýma fyrir annarri starfssemi.
SÝNING verður opnuð á frí-
merkjum, póstkortum, minnis-
peningum o.fl. frá fyrrum Sov-
étríkjum, í dag, fimmtudag kl.
18, í Sýningarsal MÍR, Vatns-
stíg 10.
Sýningarefnið er að megin-
hluta til fengið úr miklu safni
Guðbjörns Ingvarssonar mál-
arameistara af frímerkjum frá
Rússlandi og Sovétríkjunum.
Guðbjörn, sem nú er kominn
hátt á níræðisaldur (f. 1908),
hefur safnað frímerkjum lengi
2. Sjómannaskólahúsið var byggt
af mikilli framsýni og stórhug yfir
sjómannamenntunina í landinu.
Þeirrar framsýni verður nú ekki vart
í áformum um að flytja skólana í
óhentugt verksmiðjuhúsnæði sem af
tilviljun hefur rekið á fjörur ríkisins.
3. Væru ráðamenn að hugsa um
hag sjómannamenntunar hefði verið
staðið öðruvísi að málum: Þá hefði
þessu fallega húsi verið haldið betur
við og því sýndur meiri sómi. Einnig
væri þá meira fé varið til starfsemi
skólanna, þannig að þeir gætu sinnt
sínu hlutverki sem best, þ.e. að búa
Sovésk frímerki
á sýningu MIR
og lagt sérstaka áherslu á söfn-
un rússneskra og sovéskra frí-
merkja og póstumslaga.
Auk frímerkja Guðbjörns
Ingvarssonar eru á sýningunni
sýnishorn af sovéskum minnis-
peningum og barmmerkjum,
póstkort sem gefin voru út í
Moskvu 1934 í tilefni björgun-
ungt fólk undir vinnu við hátækni-
búnað í nútíma skipakosti.
4. Það hefur verið talað með lítils-
virðingu um að tilfinningar megi
ekki spila inn í ákvörðun af þessu
tagi. Kennarar skólans bera hlýjan
hug til Sjómannaskólahússins og
þess búnaðar sem þeir hafa tekið
þátt í að byggja upp, oft af vanefn-
um. Við lítum svo á að Sjómanna-
skólahúsið, sem kennslustaður fyrir
sjómenn, sé hluti af sögu þjóðarinn-
ar og fastur punktur í tilveru henn-
ar. Og það má spyija: Hvað er saga
þjóðar án tilfinninga?
ar áhafnar rannsóknarskipsins
Tsjéljúskins, og sitthvað fleira.
Sýningin verður opin fram
eftir kvöldi á fimmtudag en
síðan á föstudaginn, 31. októ-
ber, kl. 16-22, laugardag og
sunnudag kl. 14-18, en þá lýk-
ur henni. Aðgangur er ókeypis.
Frímerkjasýningin tengist
dagskrárliðum sem efnt verð-
ur til í félagsheimili MÍR í til-
efni 80 ára afmælis Október-
byltingarinnar í Rússlandi
1917.
TILKYNNING UM ÚTBOÐ MARKAÐSVERÐBRÉFA
JÖKULL HF.
HLUTAFJÁRÚTBOÐ
Heildarnafnverð nýs hlutafjár: Kr. 100.000.000.-
Sölugengi: 4,95 til forkaupsréttarhafa en getur eftir það
breyst eftir markaðsaðstæðum.
Sölutímabil: Til forkaupsréttarhafa frá 31. október til
14. nóvember 1997. Almenn sala hefst 17. nóv.
og stendur til 28. nóvember 1997 verði
eitthvað óselt að forkaupsréttartimabili loknu.
Greiðsla hlutafjár: Greiðsluseðlar verða sendir áskrifendum jafn-
skjótt og yfirferð áksriftarblaða er lokið og er
gjalddagi þeirra hinn 28. nóvember 1997.
Umsjón með útboði og skráningu: Landsbréf hf., Suðurlandsbraut 24, 108 Rvk.
og Strandgötu 1, 600 Akureyri.
Skráning: Áður útgefin hlutabréf Jökuls hf. eru skráð á
Verðbréfaþinpi Islands. Jafnframt sölu hluta-
bréfanna er sott um skráningu þeirra á
Verðbréfaþingi íslands.
Skráningarlýsing liggur frammi á skrifstofu Jökuls hf.
og hjá Landsbréfum hf. í Reykjavík og á Akureyri.
j»
Jökull hf.
fll
LANDSBREF HF.
J{ fH t t'
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 535 2000, bréfsími 535 2001,
Strandgötu 24, 600 Akureyri, sími 460 6060, bréfsími 460 6050, landsbref.is.
LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI, AÐILI AÐ VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS.