Morgunblaðið - 30.10.1997, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997 51
i
I
(
i
<
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Áskorun til íslenskra stjórn
valda og alþingismanna
Frá Ástþórí Magnússyni:
ALÞJÓÐLEGA átakinu um bann við
jarðsprengjum (ICBL) og aðalstjórn-
anda átaksins, Jody Wiiliams, voru
10. október sl. veitt friðarverðlaun
Nóbels 1997 fyrir að samhæfa al-
þjóðlegt átak til að eyða jarðsprengj-
um. ICBL er samstarf meira en eitt
þúsund félagasamtaka í meira en
60 þjóðlöndum. Friðarverðlaunin eru
veitt til ICBL og aðalstjórnanda
átaksins, Jody Williams, frá Víetnam
Veterans of America Foundation.
Þó svo að þetta sé mikilvæg við-
urkenning og áfangi í samstarfinu
um bann við jarðsprengjum, er það
mikla starf að banna og eyða jarð-
sprengjum rétt að byija. Búist er
við að meira en eitt hundrað ríkis-
stjómir skrifi undir samninginn í
Ottawa, Kanada 3-4 desember nk.,
en nokkrar af helstu hergagnafram-
leiðsluþjóðunum styðja ekki bannið
enn sem komið er.
„Þá sem ekki skrifa undir samn-
inginn ætti að smána á alþjóðlegum
vettvangi," sagði Jody Williams, „og
þeim sem halda áfram að nota jarð-
sprengjur ætti að útskúfa frá alþjóð-
legu samfélagi. Staðfesting Nóbels-
stofnunarinnar á mikilvægi þessa
átaks ætti að gera öllum ljóst að
ríkisstjórnir sem neita að undirrita
bannið við jarðsprengjum í desember
eru útlagar í mannlegu samfélagi."
Þær ríkisstjórnir er hafa ekki viljað
lýsa yfir stuðningi við bannið eru:
Bandaríkin, Rússland, Kína, Indland
og Pakistan. Þeir sem hafa ekki tek-
ið afstöðu eru Japan og Ástralía.
í dag eru meira en 100 milljón
jarðsprengjur grafnar í jörðu í meira
en 60 þjóðlöndum. 26.000 manns
verða fyrir jarðsprengjum á hveiju
ári, nær allt saklausir og óbreyttir
borgarar sem látast eða eru gerðir
að öryrkjum eftir að stríðsátökum á
viðkomandi svæði er lokið.
ICBL hefur unnið í nánu sam-
starfi við Alþjóðlega Rauða Krossinn
og ríkisstjórnir Kanada, Austurríkis,
Mexíkó, Belgíu, Suður-Afríku og
Noregs. „Nóbelsverðlaunin eru einn-
ig viðurkenning á því að samstarfið
um bann við jarðsprengjum boðar
nýja tíma í alþjóðlegum stjórnmál-
um, þar sem meðalstór og lítil ríki
taka forystuna í baráttumálum al-
mennings fyrir mannúð og mann-
réttindamálum í samvinnu við óháð
félagasamtök," sagði Jody Williams.
„A margan hátt er starf okkar
rétt byrjað," sagði Jody Williams.
ICBL hefur lagt drög að aðgerðum
til að bannið gangi hratt yfir, og
hreinsun á jarðsprengjusvæðum og
aðstoð við fórnarlömb verði stórauk-
in.
Samhliða fundi ríkisstjórna í
Ottawa 3-4 desember nk. mun fjöidi
fulltrúa frá aðildarfélögum ICBL
halda ráðstefnu. Meðal aðalfram-
sögumanna er Ástþór Magnússon
fyrir hönd Friðar 2000 sem mun í
erindi sínu kynna tillögu að sér-
stakri stofnun sem sjái um hreinsun
jarðsprengjusvæða með samvinnu
frjálsra samtaka og þeirra ríkis-
stjórna er styðja bannið. Stofnunin
starfi í samvinnu við hin ýmsu varn-
armálaráðuneyti, hersveitir og her-
gagnaframleiðendur er leggi til fjár-
magn, mannafla og tæki með hlið-
sjón af sögu þessara aðila við fram-
leiðslu, dreifingu og notkun jarð-
sprengja auk núverandi umsvifa í
hernaði.
Fyrr á árinu sótti Friður 2000 um
aðstöðuna í Reykholti í Borgarfirði
fyrir rannsóknarstofnun og háskóla
þar sem m.a. yrði ij'allað nýjar leiðir
til friðar í heiminum.
Friður 2000 skorar nú á íslensk
stjórnvöld og alþingismenn að styðja
átakið gegn jarðsprengjum á eftir-
farandi hátt:
1. Með opinberum stuðningi við
tillögur Friðar 2000 um sérstaka
stofnun er sjái um hreinsun jarð-
sprengjusvæða og samstarf við sam-
tökin um þetta mál.
2. Með því að leggja til aðstöðu
hér á íslandi undir starfsemi hinnar
nýju stofnunar.
Oskað er eftir viðræðum við Is-
lenska ráðamenn um þetta mál á
næstu dögum þar sem erindi Friðar
2000 sem verður flutt á ráðstefn-
unni í Ottawa er í undirbúningi, og
framsagan gæti mótast af jákvæðri
eða neikvæðri stefnu íslenskra
stjórnvalda til málsins.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON,
Alþjóðastofnunin
Friður 2000.
Gefum nagladekkjunum frí
Frá Hróbjarti Erni Guðmundssyni:
ER EKKI orðið tímabært að lands-
menn eða a.m.k. höfuðborgarbúar
gefi nagladekkjunum frí. Þvílíkt
rugl myndu einhveijir segja en áður
en við afgreiðum málið með þessum
orðum skulum við aðeins skoða kosti
og ókosti þess að nota nagladekkin.
Kostir nagladekkjanna eru litlir
umfram venjuleg vetrardekk og enn
minni ef þau eru borin saman við
harðkornadekk sem er það nýjasta
á markaðnum. Harðkornadekk voru
reynd af SVR á ákveðnum leiðum
og voru niðurstöðurnar þær að þau
væru sambærileg við nagladekk en
höfðu það þó fram yfir þau að hliðar-
skrið var minna skv. umfjöllun á
Rás 2 síðastliðinn vetur. Nagladekk-
in eru einnig varasöm skv. Umferð-
arráði vegna þess að þau hafa mjög
lítið grip á blautum götum en það
eru einmitt þær aðstæður sem al-
gengastar eru á höfuðborgarsvæð-
inu. Ekki bætir úr skák þegar not-
endur nagladekkja eru búnir að
plægja upp skurði eftir endilöngum
götunum sem vatn safnast svo í.
Þetta skapar ekki aðeins hættu í
umferðinni á veturna heldur skapar
gífurlegan kostnað og hættu á
sumrin vegna fræsinga með tilheyr-
andi lokunum gatna sem verður til
þess að stór hluti gatnakerfisins er
ófær á sumrin. Verst er þó að vita
til þess að margir bileigendur bijóta
lög með því að aka á nagladekkjun-
um langt fram á sumarið eða allt
árið og ekki virðist vera mannskap-
ur hjá iögreglunni til að sinna þessu
máli. Væri ekki ráð að fá stöðu-
mælaverði til að sinna því að sekta
þessa menn þannig að trassarnir
eigi erfitt um vik ef þeir vilja leggja
í gjaldskyld bílastæði á sumrin.
Annar ókostur við nagladekkin er
sá að þau rífa upp blöndu af tjöru
og salti úr malbikinu sem sest svo
á rúður og lakk bíla, þannig að út-
sýni minnkar og ryðmyndun verður
mun hraðari auk þess sem þessu
fylgir mengun. Ef einhver efast enn
um að vert sé að gefa nagladekkjun-
um frí má benda á að í Morgunblað-
inu þann 7. janúar síðastliðinn er
grein á forsíðu um það að Norð-
menn hyggist banna nagladekk í
fjórum stærstu borgum landsins.
Forsendurnar voru sagðar þær að
nagladekk valdi mengun auk þess
sem snjódekk séu orðin svo góð að
ástæðulaust sé að negla þau.
HRÓBJARTUR ÖRN
GUÐMUNDSSON,
áhugamaður um bætta
umferðarmenningu,
Grandavegi 36, Reykjavík.
Enn 1 egg ég til...
Frá EIsu B. Valsdóttur:
í MORGUNBLAÐINU hinn 17.
október sl. beindi Bergþóra Sigurð-
ardóttir til mín nokkrum spurning-
um í tilefni af pistlaflutningi mínum
í morgunútvarpi Rásar tvö. Ég
ætla að reyna að svara þeim í stuttu
máli. Eftir því sem ég get best
skilið er það aðallega tvennt sem
vefst fyrir bréfritara. I fyrsta lagi:
Af hveiju vil ég lækka skatta? Og
í öðru lagi: Af hveiju vil ég láta
selja Ríkisútvarpið?
Af hverju lægri skatta?
í kynslóðareikningum, sem ný-
lega voru kynntir, kemur fram að
hver nýr íslendingur sem fæðist
mun þurfa að bera þyngri skatt-
byrðar en við sem lifum í dag. Af
hveiju? Vegna þess að við höfum
safnað svo miklum skuldum ríkis-
sjóðs með því að eyða um efni fram,
að við erum þegar búin að veðsetja
framtíð barnanna okkar. Auðvitað
er það mjög huggulegt að láta rík-
ið bjóða okkur upp á „ókeypis"
menntun og heilbrigðisþjónustu en
það er of dýru verði keypt þegar
næstu kynslóðir þurfa að borga
reikninginn. Slík eigingirni er ekki
bara óréttlát, heldur siðlaus. Þar
að auki leiða aukin ríkisútgjöld
ekki sjálfkrafa til betri skóla og
bætts heilbrigðiskerfis, nema síður
sé. Við höfum búið til svokallað
velferðarkerfi úr sameiginlegum
sjóðum landsmanna. Þessu kerfí
hefur ekki aðeins mistekist að
rækja það hlutverk sitt, að nota
skattana okkar til að hjálpa þeim
sem í raun eru bágstaddir, heldur
er skattpíning kerfisins að sliga
efnahag þjóðarinnar. Lægri skattar
og nýjar leiðir til að veita nauðsyn-
lega þjónustu eru því ekki aðeins
tímabærar, heldur nauðsynlegar.
Af hverju að selja
Ríkisútvarpið?
Það er ekki hlutverk hins opin-
bera að reka fyrirtæki. Þó ríkis-
fyrirtæki séu gömul og gróin og
við berum mörg hlýjar tilfinningar
til sumra þeirra, þá eru þær tilfinn-
ingar betur sýndar í verki með því
að losa viðkomandi fyrirtæki úr
sinnuleysi ríkiseignar og kaupa
hlutabréf í þeim. Þannig má hafa
bein áhrif á rekstur þessara fyrir-
tækja í stað þess að horfa upp á
þau veita stöðugt verri þjónustu
fyrir sífellt hærra verð. Þeir sem
halda að með því að fela einkaaðil-
um rekstur Ríkisútvarpsins verði
það „lagt í eyði“, sýna Ríkisútvarp-
inu og fjölmörgum hlustendum þess
ótrúlega lítilsvirðingu. Þessi hlust-
endahópur mun að sjálfsögðu leita
þangað sem þörfum hans er full-
nægt, hér eftir sem hingað til.
Miðað við þá grósku sem nýfengið
frelsi til útvarpsreksturs hefur þeg-
ar leitt til, eru vafalaust margir
tilbúnir að keppa á jafnréttisgrund-
velli við einkavætt RÚV um hlust-
endur þess. Það er jafn fáránlegt
að ríkið eigi útvarpsstöð eins og
að ríkið eigi dagblað eða bókaút-
gáfu.
Nokkur orð um frelsi
Að lokum nokkur orð um frelsi.
Orðið frelsi er að verða skammar-
yrði í munni þeirra sem vilja mið-
stýringu og skertan rétt fólks til
að ráða lífi sínu sjálft. Gleymum
því ekki að án frelsis glatar maður-
inn frumkvæði sínu og sköpunar-
gáfu, en það eru einmitt þeir eigin-
leikar sem hvetja mannkynið sífellt
til dáða. Frelsi er einnig forsenda
allrar raunverulegrar samhjálpar.
Það er engin gæska fólgin í að
veita fé til „góðra“ mála ef veitand-
inn á ekki féð sjálfur og spurði
eigendurna ekki álits á gjöfinni.
Frelsið er því okkar dýrmætasta
eign og þess virði að standa um
það dyggan vörð. Að lokum þakka
ég góðar kveðjur Bergþóru - og
legg til að Ríkisútvarpið verði selt.
ELSA B. VALSDÓTTIR,
læknir og pistlahöfundur á Rás 2.
VÖKVABUNAÐUR
IVINNUVÉLAR
VÖKVAMÓT0RAR
Út er komið upplýsingarit um starf og
stefnu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks.
Ritið liggurframmi um allt land,
á bensínstöðvum, pósthúsum, bæjar- og
s ve ita rstj ó rn a rs krif stof u m;
í ráðuneytum, verslunum og víðar.
Einnig er hægt að fá ritið sent í pósti
ef hringt er í síma 560 9000.
Allurtexti upplýsingaritsins er á vefsíðu
Stjórnarráðsins: http://www.stjr.is
Ríkisstjórn fslands
DÆLUR
PVG GAMSVARANDI
STJ0RNL0KAR 0G
FJARSTYRINGAR
GÍRAR 0G BREMSUR
GOTT VERÐ - GÓÐ ÞJÓNUSTA
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260