Morgunblaðið - 30.10.1997, Síða 64
Fyrstir meö
HP Vectra PC
HEWLETT
PACKARD
Sjáðu meira á www.hp.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1, 103 REYKJAVW, SÍMI569 UOO, SÍMBRÉF 6691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ&MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Tíðin hag-
stæð til úti-
vinnu
UM ÞESSAR mundir er verið að
leggja grunninn að Náttúrufræði-
húsi Háskóla íslands í Vatnsmýr-
inni í Reykjavík. Maggi Jónsson
arkitekt sagði að verkið væri ekki
langt komið, en gengi samkvæmt
áætlun. Nú væri verið að steypa
undirstöður og leiðsluganga undir
gólfi. Verktakinn hefði góðan
tíma og tíðin væri mjög góð fyrir
steypuvinnu.
Brynjólfur Sigurðsson, prófess-
or og formaður bygginganefndar
Háskólans, sagði að nú væri verið
að vinna að öðrum áfanga verks-
ins og hafist hefði verið handa í
ágúst. Þessi áfangi ætti að kosta
537 milljónir króna og lyti að upp-
steypu húss og frágangi að utan.
Þessum áfanga ætti að Ijúka 1.
mars árið 2000.
Sala SH á físki til Rúss-
lands hefur margfaldast
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna hefur margfaldað útflutn-
ing sinn á sjávarafurðum til
Rússlands á þessu ári. Fyrstu 10
mánuði ársins nemur þessi út-
flutningur tæpum 7.000 tonnum,
en á sama tíma í fyrra hafði SH
aðeins selt Rússum rúmlega 700
tonn af loðnu. Stefnt er að sölu
9.000 tonna af sjávarafurðum á
þessum markaði fyrir árslok.
SH opnar formlega nýja sölu-
skrifstofu í Moskvu í dag að við-
stöddum fjölmörgum gestum,
meðal annarra sendiherra Is-
lands í Moskvu, Gunnari Gunn-
arssyni. Jón Ingvarsson, formað-
ur stjórnar SH, segir að Sölu-
miðstöðin vænti mikils af starf-
Flutt út
til Rússlands
r\C
f janúar til október
Tonnaf 1996 1997
Þorski 0 2
Karfa 0 57
Síld 0 1.713
Loðnu 734 4.818
Gulllaxi 0 227
SAMTALS 734 6.816
semi söluskrifstofunnar. „Hér er
stór markaður, vaxandi kaup-
geta og Rússar borða mikið af
fiski,“ segir Jón Ingvarsson.
Seldu áður 600.000 tonn
Frá því Sölumiðstöðin hóf að
selja fisk til Rússlands og lýð-
velda Sovétríkjanna gömlu nem-
ur salan alls um 600.000 tonnum.
Með upplausn Sovétríkjanna ár-
ið 1990 féllu þau viðskipti alveg
niður, en eru nú að komast á
skrið á ný.
Forstöðumaður hinnar nýju
söluskrifstofu í Moskvu er Páll
Gíslason.
■ Stefnt að/19
Morgunblaðið/Kristinn
Frumvarp um starf-
semi lífeyrissjóða
Dagsektir
hlíti sjóðir
ekki kröfum
í DRÖGUM að frumvarpi um starf-
semi lífeyrissjóða er gert ráð fyrir
að lögfest verði að munur á eignum
og skuldbindingum lífeyrissjóða
megi ekki vera meiri en 10% og
munurinn má ekki hafa verið meúi
en 5% í 5 ár samfleytt. Ekki upp-
fylla allir starfandi lífeyrissjóðir
þetta ákvæði í dag.
Gert er ráð fyrir að ef munur á
eignum og skuldbindingum sjóð-
anna er umfram þessi mörk verði
stjórnir þeirra að gera breytingar á
samþykktum þeirra. Þær geta falið
í sér skerðingu réttinda, auknar ið-
gjaldagreiðslur eða sameiningu
sjóða. Ef eign sjóðanna er umfram
þessi mörk ber stjórnum sjóðanna
einnig að bregðast við, væntanlega
með því að auka réttindin.
Samkvæmt frumvarpinu fær
bankaeftirlit Seðlabankans heimild-
ir til að setja lífeyrissjóði skilyi-ði ef
það telur að hann brjóti lögin og til
að beita dagsektum ef lífeyrissjóður
hlítir ekki kröfum þess.
■ Felur í sér/33
..-..♦♦♦------
Bandarískt fyrirtæki
vili samstarf við P&S
Þjónusta um
gervihnetti
FULLTRÚI bandarísks fyrirtækis
ræddi nýlega við samgönguráðu-
neyti og Póst og síma. Fyrirtækið
hyggst bjóða breiðbandsþjónustu
um allan heim um gervihnetti.
Pétur Reimarsson, stjórnarfor-
maður Pósts og síma hf., segir þetta
kerfi geta orðið áhugaverðan kost
til að tengja saman stórfyrirtæki.
■ Teledesic/Bl
Sameining sveitarfélaga víða á döfínni næstu mánuði
Kosningar næsta
vor herða heldur á
Tveir hnúfubakar
spilltu loðnutúr
KOSIÐ verður um sameiningu
sveitarfélaga á fimm stöðum á land-
inu í næsta mánuði en það sem af er
árinu' hefur sameining verið sam-
þykkt á fjórum stöðum. Víðast hvar
er um að ræða nokkuð mikla sam-
einingu. I Austur-Skaftafellssýslu
og Vestur-Húnavatnssýslu verður
kosið um sameiningu allra sveitar-
félaga sýslunnar og í Skagafjarðar-
sýslu verður kosið um sameiningu
allra sveitarfélaga að einu undan-
skildu.
^ Unnar Stefánsson, ritstjóri Sveit-
arstjómarmála, segir að sveitar-
stjórnakosningar næsta vor herði
heldur á undirbúningi sameiningar.
„Menn vilja samþykki íbúanna núna
til þess að hægt verði að kjósa sveit-
arstjóm í sameinuðu sveitarfélagi á
næsta ári,“ segir hann. í flestum til-
fellum er gert ráð íyrir að samein-
. ing öðlist gildi um leið og kosningar
til sveitarstjórna fara fram næsta
vor. Á einum stað er sameining þó
áætluð frá og með næstu áramót-
um, verði hún samþykkt.
Á laugardag greiða íbúar Gríms-
nes- og Grafningshreppa í Ames-
sýslu atkvæði um sameiningu hrepp-
anna tveggja. Þá verður kosið um
sameiningu á Neskaupstað, Eskifirði
og Reyðarfirði 15. nóvember.
Kosið á þremur stöðum
29. nóvember
29. nóvember verður kosið um
sameiningu á þremur stöðum. I
Austur-Skaftafellssýslu verða
greidd atkvæði um sameiningu allra
sveitarfélaga í sýslunni; Hofs-
hrepps, Borgarhafnarhrepps, Bæj-
arhrepps og Hornafjarðarbæjar, en
Höfn, Mýrahreppur og Nesjahrepp-
ur sameinuðust 1994 í eitt sveitarfé-
lag, Hornafjarðarbæ.
í Vestur-Húnavatnssýslu verður
kosið um sameiningu allra hreppa
sýslunnar; þ.e. Staðarhrepps, Ytri
Torfustaðahrepps, Fremri Torfu-
staðahrepps, Hvammstangahrepps,
Kirkjuhvammshrepps, Þverár-
hrepps og Þorkelshólshrepps.
Þá verða greidd atkvæði um
sameiningu sveitarfélaganna ellefu
í Skagafjarðarsýslu, að Akrahreppi
undanskildum. Þar er um að ræða
Sauðárkrókskaupstað, Skefils-
staðahrepp, Skarðshrepp, Staðar-
hrepp, Seyluhrepp, Lýtingsstaða-
hrepp, Rípurhrepp, Viðvíkurhrepp,
Hólahrepp, Hofshrepp og Fljóta-
hrepp.
Auk þessara atkvæðagreiðslna er
víða verið að ræða og undirbúa
sameiningu, að sögn Unnars. í Ár-
nessýslu er t.d. rætt um sameiningu
Selfossbæjar, Eyrarbakka, Stokks-
eyrar og Sandvíkurhrepps.
LITIÐ varð úr loðnutúr skipverja
á bátnum Gullbergi VE í fyrrnótt
eftir að tveir hvalir komu í nót
hans með þeim afleiðingum að
hún eyðilagðist og sigla varð til
hafnar á Siglufirði.
Báturinn var við veiðar um 50
mflur vestur af
Kolbeinsey um
klukkan tvö í
fyrrinótt þegar
skyndilega voru
tveir hvalir í
nótinni.
„Þetta voru
tveir hnúfubak-
ar og það var sama hvað við
gerðum, þeir hreyfðu sig ekki
neitt,“ sagði Eyjólfur Guðjóns-
son, skipstjóri á Gullbergi VE.
„Þeir voru líka í góðri torfu og
höfðu nóg að borða.“
Hann sagði að það kæmi nokk-
uð oft fyrir að hvalir kæmu í
nætur, en yfirleitt styngju þeir
sér út þegar farið væri að draga
nótina og skildu eftir sig misjafn-
lega stór göt. f júlí hefðu komið
hvalir í nótina hjá Gullbergi og
fyrir nokkru hefðu komið há-
hyrningar í sfldarnót bátsins.
„En þessir veltu sér bara og
flæktust í garninu," sagði skip-
stjórinn. „Það endaði með því að
þegar við vorum
farnir að lyfta
þeim upp úr
sjónum þá rifn-
aði hjá okkur og
við urðum að
sturta þeim út.“
Það hefði hins
vegar ekki
gengið þrautalaust að losa hval-
ina. Annar liefði verið fastur á
bægsli og kominn upp í blökk.
Þegar loks tókst að losna við þá
var nótin ónýt og þurfti að sigla
í land til að láta laga veiðarfær-
in.
Eyjólfur sagði að sennilega
hefðu skipveijar misst tvö hundr-
uð tonna kast og heill túr hefði
farið forgörðum.