Morgunblaðið - 12.11.1997, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 1997 17
VIÐSKIPTI
*
Armannsfell og Völur hf. sameinast í alhliða verktakafyrirtæki
Áætluð ársvelta um
2,3 milljarðar
TVÖ verktakafyrirtæki, Ármanns-
fell hf. og Völur hf., munu samein-
ast frá og með næstu áramótum.
Hið nýja fyrirtæki mun hafa um 200
starfsmenn í vinnu og er gert ráð
fyrir að velta þess á næsta ári verði
vel yfír 2 milljarðar króna. Sam-
komulagið var handsalað síðastliðinn
laugardag og undirritað af forsvars-
mönnum beggja fyrirtækja í gær.
Samruni fyrirtækjanna á sér stað
Dreifing
Baby-Benz
stöðvuð
Stuttgart. Reuters.
DAIMLER-BENZ AG hefur stöðvað
afhendingu A-gerðar Mercedes bif-
reiða (,,Baby-Benz“) vegna nauðsyn-
legra breytinga til að auka öryggi.
Talsmaður Daimler-Benz sagði
að kostnaður vegna breytinganna
mundi minnka rekstrarhagnað um
hér um bil 100 milljónir marka á
þessu ári og um 200 milljónir marka
á því næsta. Hins vegar muni
vandamálið ekki hafa áhrif á sölu-
hagnað.
Þegar sænskt bifreiðatímarit próf-
aði bíl af A-gerð í síðasta mánuði
valt bíllinn og einn farþeganna slas-
aðist.
með þeim hætti að Ármannsfell kaup-
ir Völ að fullu og greiðir eigendum
fyrirtækisins kaupverðið með 48 millj-
óna króna hlut í Ármannsfelli að nafn-
virði. Viðmiðunargengi bréfanna í
þessum viðskiptum verður 1,25.
Vegna kaupanna verður hlutafé
Ármannsfells aukið um 50 milljónir
króna að nafnvirði og hafa nokkrir
stærri hluthafar í félaginu þegar af-
salað sér forkaupsrétti til að tryggja
að eigendur Valar geti eignast hlut
í hinu sameinaða félagi. Verði minna
en 48 milljónir eftir að afloknum for-
kaupsrétti verður það sem eftir stend-
ur af kaupverði greitt út.
Mynda nýtt og öflugt alhliða
verktakafyrirtæki
Framkvæmdastjórar fyrirtækj-
anna tveggja sögðu að lokinni und-
irskrift að hagræði af þessari sam-
einingu væri talsvert. Þar væri bæði
hægt að samnýta fjárfestingar svo
sem húsnæði, auk þess sem nokkurt
hagræði gæti náðst í yfirstjóm og
almennu mannahaldi.
Ármann Öm Armannsson, fram-
kvæmdastjóri Ármannsfells, segir
þessi fyrirtæki hafa starfað á ólíkum
sviðum innan verktakageirans. Ár-
mannsfell hafi fyrst og fremst starfað
í byggingariðnaði en Völur væri aftur
á móti jarðvinnufyrirtæki. Það væri
því ljóst að sameining kæmi báðum
fyrirtækjum til góða og skapaði sterkt
alhliða fyrirtæki á sviði verktöku.
„Það hefur aukist að boðin séu út
blönduð verkefni og nánast í öllum
verkefnum sem við höfum unnið að
undanfomu þá höfum við verið með
byggingarverktaka með okkur. Það
er því fyrst og fremst þessi j)róun sem
menn hafa í huga,“ segir Olafur Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri Valar.
Ármann Örn bætir því við að þó
menn séu ekki að líta til fortíðar þá
sé það mjög sennilegt að fyrirtækið
hefði t.d. fengið verkefni við Sultart-
angavirkjun í vor hefði sameiningin
verið komin til sögunnar. „Þetta
styrkir því samkeppnisstöðu okkar
verulega."
Ármann segir að þegar hafí tekist
að tryggja hinu nýja fyrirtæki verk-
efni fyrir um 2,3 milljarða króna á
næsta ári. Verkefnastaða þess sé
því mjög góð.
Á Verðbréfaþing á næsta ári
Ármannsfell hefur að undan-
förnu unnið að gæðastjómun fyrir-
tækisins og er stefnt að því að hið
nýja félag fái vottun samkvæmt
ISO 9001 staðli á næsta ári.
Þá hefur verið ákveðið að stefna
að skráningu félagsins á Verðbréfa-
þingi íslands _svo fljótt sem auðið
er og segir Ármann að það gæti
jafnvel orðið á fyrri hluta næsta
árs. Ármannsfell hefur undanfarin
sjö ár haft auðkenni á Opna tilboðs-
markaðnum og eru hluthafar nú
vel á annað hundrað talsins.
BTfær 7 millj-
arða dala
fyrir liliit í MCI
London. Reuters.
BREZKI fjarskiptarisinn British
Telecommunications Plc kveðst
hafa samþykkt að selja 20% hlut
sinn í bandaríska samstarfsaðilan-
um MCI Communications Corp fyr-
ir 7 milljarða dollaran - sem er 2,25
milljarða dollara hagnaður miðað
við upphaflega fjárfestingu.
BT sagði einnig í yfírlýsingu, sem
kom sérfræðingum á óvart, að fyrir-
tækið fengi 465 milljóna dollara
greiðslu, meðal annars vegna kostn-
aðar, þar sem hætt hefði verið við
árs gamalt samkomulag við MCI
um samruna - sem BT hafði lagt
til grundvallar áætlun um útþenslu
í heiminum.
MCI hafði áður samþykkt 37
milljarða dollara samruna fyrirtæk-
isins og WorldCom Inc, fjórða
stærsta símafélags Bandaríkjanna.
WorldCom olli BT fyrst erfíðleik-
um í síðasta mánuði með óumbeðnu
30 milljarða dollara tilboði í verð-
bréfum. Því boði svaraði bandaríski
risinn GTE tveimur vikum síðar
með 28 milljarða dollara tilboði í
reiðufé.
Sérfræðingar höfðu búizt við að
WorldCom hækkaði tilboð sitt. Aðr-
ir töldu að GTE mundi einnig bjóða
betur til að ná yfírráðum yfír MCI.
Eftir viðræður við yfirmenn GTE,
WorldCom og MCI sagði BT aðeins
að margir aðrir möguleikar væru á
samvinnu á hinum 200 milljarða
dollara fjarskiptamarkaði í Banda-
ríkjunum. BT mun halda yfírráðum
yfír sameigarfyrirtæki BT og MCI
- Concert Communications Services
- og hefur forkaupsrétt á 24,9%
hlut MCI í því.
Breytingar hjá Apple
Cupertino, Kaliforniu.
APPLE tölvufyrirtækið í Cupert-
ino í Kaliforníu hefur kynnt veru-
legar breytjngar á hönnun, smíði
og sölu á tölvum, sem fyrirtækið
framleiðir.
Apple sagði jafnframt keppinaut-
inu Dell Computer Corp stríð á
hendur um leið og bein sala til við-
skiptavina hefst.
Jafnframt kynnti Apple næstu
kynslóð Power Macs, sem kallast
Power Macintosh G3 og er byggð
á hraðvirkustu PowerPC örgjörv-
um, sem fáanlegir eru.
Breytingamar voru kynntar á
blaðamannafundi á sama tíma og
andrúmlsoft vakningarsamkomu
ríki í nálægum háskóla.
Glœtilegc
ei d kminfn réttingar!
DANICA
Eigum mikið úrval af fallegum og vönduðum
eldhúsinnréttingum. Bjóðum glæsilegar
fulningainnréttingar á sérstöku tilboðsverði.
Innanhússarkitektinn okkar veitir faglega ráðgjöf.
I T7L*'36 MÁNADA
RADGREIOSLUR
TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA
HARÐVIÐARVAL EHF.
Krókhálsi4 llOReykjavík Sími:567 1010
Opið laugardag frá kl. 10 -16