Morgunblaðið - 09.12.1997, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HITACHI
Kr. 69.900 stgr.
• 28" Black Line D myndlampi
• 40w Nicam Stereo magnari
• Textavarp með íslenskum stöfum
• Valmyndakerfi með öllum
aðgerðum á skjá
• Sjálfvirk stöðvaleitun
• Svefnrofi 15-120 mínútur
• Tvö Scart-tengi og AV inngangur
framan á tækinu
• Fullkomin fjarstýring
Heimabio
CP2976
Kr. 109.900 stgr.
• 29" Super Black Line myndlampi (svartur og flatur)
• Digital Comb filter, aðgreinir línur og liti betur
• 140W Nicam heimabíómagnari (DolbySurround Pro Logic)
með 5 hátölurum sem tryggir fullkomib heimabíóhljóðkerfi
• Einföld fjarstýring sem gengur við öll myndbandstæki
• Valmyndakerfi með öllum abgerbum á skjá
• Textavarp með íslenskum stöfum
• Tvö Scart-tengi I ir I
• Fjölkerfa móttaka LJWJ p R Q
DOLBY SURROUND
Siúnvarpsmiðstððin
Umbobsmenn um land allt:
VESTURLAND: HlpsR Akraneii. Kplélag Bomfirfiinga. Borgamesi. Blómsturvellir. Hellissandi. Euðni Hallgrímsson. Grundarfiröi.VESTflRÐIR: Ralbúð Jónasar Wrs, Patreksfiröi. Póllina Isalirii. HDRHURIAHD: TT Steingrimsfjarðar. Hóimavik.
Ki V-HAnvetninga. Hvammsranga. (f Húnvetninga. Blönduósi Skagfiröingabúð. Sauðárkróki KEA Dalvik. Bókval Aktireyri. Ljósgíafínn. Akureyrí Önrggi. Húsavík. kf Pingeyinga. Húsavík. Urð. Raufarhófn.AUSIURLAHDJI Héraðsbúa. Egilsstöðum.
Verslunin Vik, Heskaupsstað. (augtún. Vopnatitði. Lf Vopnfirðinga, Vopnafirði. (F Héraðsbúa. Seyðisfirði. Tumbrzður. Seyðísfirði.Kf Fáskrúðsfjarðar. Fáskrúösfjrði. KASK. Djúpavogi. (ASK. Höfn Homafitðí. SUBURLAHD: Rafmagnsverkstæði KR,
Hvolsvelli. Mnslell. Hellu. Heimsizkni, Sellossi. (A. Sellossi. Rás. Mákshnln. Btimnes. Vestmannaeyjum. HEYKJANES: Rafborg. Grindavík. Hallagnavinnust. Sig. Ingvatssnnat. Gatfii Ralmætti. Halnarfirði.
CP2856
Barnakuldaskór
Loðfóðraðir, St. 25-34, mjög vatnsheldir.
3lbv0milrlfiMb
- kjarni málsins!
sérverslun með barnaskó i bláu húsi vtð Fákafen.
Rauðir og bláir.
Verð frá kr. 3.990.
'11
ERLENT
Reuters
DAANTJIE Siebert við yfirheyrslu sannleiksnefndarinnar í Suður-
Afríku vegna dauða blökkumannaleiðtogans Steves Bikos.
Dauða Bikos
lýst sem slysi
Port ,Elizabeth. Reuters.
HVITUR lögreglumað-
ur, Daantjie Siebert,
kom fyrir sannleiks- og
sáttanefndina í Suður-
Aíríku í gær og kvaðst
hafa tekið þátt í árás á
blökkumannaleiðtogann
Steve Biko fyrir tveim-
ur áratugum en sagði að
dauði hans hefði verið
slys.
Siebert og fjórir aðrir
lögreglumenn hafa ósk-
að eftir því að sannleiks-
nefndin veiti þeim sak-
aruppgjöf vegna máls
Bikos, sem var þrítugur
þegar hann beið bana
eftir yfirheyrslur á lög-
reglustöð í Port Elizabeth árið 1977.
„Þrír okkar náðu taki á Biko og við
færðum hann í átt að horni klefans
og rákumst utan í vegg,“ sagði
Siebert þegar sannleiksnefndin tók
upp mál Bikos að nýju eftir þriggja
mánaða hlé. „Höfuð hans rakst lyrst
utan í vegginn, með þeim afleiðingum
að hann hneig niður og lenti á gólf-
inu.“
Þegar Siebert var spurður frekar
um atburðinn sagði hann að Biko
hefði veitt mótspyrnu og lögreglu-
mennirnir barið hann til að reyna að
yfirbuga hann. Þeir hefðu þá hrasað
með þeim afleiðingum að höfuð Bikos
hefði rekist utan í vegg.
Siebert kvaðst síðan hafa hand-
jámað Biko og hlekkjað
hann við fangelsisrimla
þótt blökkumannaleið-
toginn hefði ekki veitt
frekari mótspymu. Biko
hefði verið haldið í
hlekkjunum, í nærbux-
um einum fata, án þess
að læknir hefði verið
fenginn til að hlynna að
fanganum. Honum var
síðan ekið 1.200 km leið
frá Port Elizabeth til
Pretoríu þar sem hann
lést 12. september 1977.
„Þetta var slys,“
bætti Siebert við. „Ef
við hefðum séð þetta
fyrir hefði það ekki
gerst.“
Foringi lögreglumannanna, Har-
old Snyman, sagði þegar yfirheyrsl-
urnar hófust í september að Biko
hefði rekið höfuðið í vegg eftir að
hafa ráðist á lögreglumennina.
Fjölskylda Bikos andvíg
sakaruppgjöf
Fjölskylda Bikos hefur lagst gegn
því að lögreglumönnunum verði veitt
sakaruppgjöf og krafist þess að þeir
verði ákærðir fyrir manndráp. Hún
sakar lögreglumennina um að hafa
barið Biko af ásettu ráði og orðið
honum að bana. Niðurstaða opin-
berrar rannsóknar á þessum tíma
var að dauði Bikos hefði verið slys.
Steve Biko
Nánara tollgæzlu-
samstarf ESB-ríkja
SAMSTARF Evr-
ópusambandsríkj-
anna á sviði toll-
gæzlu mun innan
skamms verða
styrkt til muna, en
með því er ætlun-
in að ná rneiri ár-
angri í baráttunni
gegn viðskiptum með eiturlyf og al-
þjóðlegri smyglstarfsemi.
Umfangsmiklu og nánu samstarfi
evrópskra tollyfirvalda er ennfremur
ætlað að opna fyrir tollgæzluaðgerðir
sem ná yfir landamæri, þar með talið
eftirlit tollgæzlumanna frá einu ESB-
landi innan landamæra nágranna-
landa. Þessir nýju möguleikar eru
hluti samnings, sem var undirritaður
á fundi dóms- og innanríkisráðherra
ESB-landanna í síðustu viku.
Samningurinn er ekld hluti af „yfir-
þjóðlegu" kjamasamstarfi ESB, heldur
byggir hann á hefðbundnu milliríkja-
samstarfi, sem á sviði dóms- og innan-
ríkismála er skipulagt innan hinnai’
svokölluðu „þriðju stoðar" ESB. Þar
eru allar ákvarðanir teknar með sam-
hljóða samþykki og umræddur samn-
ingur mun því ekki taka gildi fyrr en
að fengnu samþykki allra ráðherr-
anna fimmtán og þjóðþinga þehra.
Samningurinn byggir á samningi frá
1973, sem opnaði í íyrsta sinn fyrir toll-
gæzlusamstarf innan Evrópubanda-
lagsins, EB, eins
og það hét þá.
Samningurinn
hefur verið til end-
urskoðunar frá
1994 í þeim til-
gangi að taka fast-
ar á skipulagðri
glæpastarfsemi og
peningaþvætti.
Samkvæmt frásögn danska blaðs-
ins Jyllandsposten munu ákvæði hins
endurskoðaða samnings opna fyrir að
aðilar sem sæta tollrannsókn séu eltir
yfir landamæri og að sameiginlegum
tollrannsóknarsveitum nágrannaríkja
sé komið á fót.
Schengen-reglur til grundvallar
Reglur Sehengen-samningins eru
lagðar til grundvallar þeim aðgerðum
sem ná yfir landamæri. Samkvæmt
þeim getur lögregla elt einn eða fleiri
einstaklinga yfir landamæri sem hafa
verið staðnir að verki við lögbrot.
Tollgæzlumenn fá hins vegar víðtæk-
ari heimildir, þar sem í nýja samn-
ingnum er skilgreining Schengen á
landamærum færð út til lögsögunnar
á sjó og í lofti. Agreiningur um þetta
atriði hefur tafið samkomulag, en
þeim ríkjum sem ekki eru tilbúin til
að samþykkja þessar reglur er gef-
inn kostur á að halda sig utan við
þennan hluta samstarfsins.
evrópa^