Morgunblaðið - 09.12.1997, Síða 60

Morgunblaðið - 09.12.1997, Síða 60
"V 60 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÖRN ÁRNASON, Furubergi 3, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 10. desember kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Systrasjóð St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Erla Jónsdóttir, Ámi Arnarson, Borghildur Vigfúsdóttir, Gunnar Arnarson, Kristbjörg Eyvindsdóttir, Aldís Arnardóttir, Ólafur Þór Jóhannesson, Sigrtður, Öm, Þórdis Erla og Eyvindur Hrannar. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and- lát og útför ástkærrar móður okkar, tengda- móður og ömmu, SELMU ÁSMUNDSDÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Eir. Sérstakar þakkir til starfsfólks á 3. hæð, suður- gangi, á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir góða umönnun. Halldór Á. Arnórsson, Þórarinn Arnórsson, Sjöfn Arnórsdóttir, Dúna Haildórsdóttir, Nína Brá Þórarinsdóttir, íris Hrund Þórarinsdóttir, Marion Arnórsson, Rannveig Þorvarðardóttir, Kristinn Bergsson, Úlfur R. Halldórsson, Styrmir Snær Þórarinsson, Amór Bergur Kristinsson, Kristinn Kriistinsson. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og tengdasonar, RAGNARS OTTÓS ARINBJARNAR læknis, Sunnubraut 26, Kópavogi. Gréta Pálsdóttir, Arnar Arinbjarnar, Arnfríður Tómasdóttir, Guðrún Arinbjarnar, Halldór Ottó Arinbjarnar, Johan Petersen, Jóhanna Jóhannesdóttir. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tendgdamóður, ömmu og langömmu, ERLU GUÐJÓNSDÓTTUR frá Patreksfírði, síðast til heimilis á Kleppsvegi 62, Reykjavik. Friðrik Vagn Guðjónsson, Hermann Guðjónsson, Guðjón J. Guðjónsson, Björgvin Guðjónsson, Dýrleif Guðjónsdóttir, Kristín S. Árnadóttir, Bertha S. Sigurðardóttir, Vivienne Iveson, Hjördís Hjartardóttir, Óðinn Þórarinsson, barnabörn og barnabarnabarn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR MAGNÚSDÓTTUR, Bolungarvík. Anna Lára Gísladóttir, Valdimar L. Gíslason, Kristný Pálmadóttir, Magnea Hulda Gísladóttir, Einar Helgason, Kristín Þóra Glsladóttir, Kristján S. Kristjánsson, Herdís Þuríður Gísladóttir, Heiðar Hermannsson, Lára Björk Gísladóttir, Jakob Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. ÁLFHEIÐUR KJARTANSDÓTTIR + Álfheiður Kjart- ansdóttir fædd- ist í Hafnarfirði 8. október 1925. Hún lést 28. nóvember síðastliðinn. Álf- heiður var dóttir Kjartans Ólafssonar frá Hafnarfirði, lög- regluþjóns og lengi bæjarfulltrúa þar, f. 16. maí 1894, d. 1971, og konu hans Sigrúnar Guð- mundsdóttur, f. 8. ágúst 1894, d. 1980. Eldra barn þeirra var Magnús, rit- sljóri og ráðherra, f. 25. febrúar 1919, d. 1981. Álfheiður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum i Reykja- vík 1945 og innritaðist í nor- rænu þá um haustið. Hún lauk prófi í forspjallsvísindum um vorið en hélt þá til náms í Kaup- mannahöfn. Þar giftist hún 2. apríl 1947 fyrri manni sínum, Guðna Guðjónssyni grasafræð- ingi, f. 18. júlí 1913, d. 1948. Alfheiður giftist 27. nóvember 1954 eftirlifandi manni sínum Jóhannesi Jóhannessyni listmál- ara og gullsmið, f. 27. maí 1921. , Árið 1977 hóf Álfheiður nám í málvisindum og lauk BS gráðu í þeim frá Háskóla Islands 1983. Þegar í menntaskóla þýddi hún sína fyrstu bók, sem gef- in var út, en þýðing- ar gerði hún að ævistarfi, fyrst með verslunarstörfum, blaðamennsku og barnauppeldi, en síðar alfarið. Hún var félagi í Rithöf- undasambandi ís- lands. Börn hennar eru: 1) Sig- rún, f. 1948, maki Ingimar Sig- urðsson, þeirra dætur eru þrjár og barnabörn þrjú. 2) Kjartan, f. 1955, maki María Guðmunds- dóttir, þeirra börn eru þrjú. 3) Sigurður, f. 1959, maki Sóley Reynisdóttir, þeirra börn eru fjögpir. 4) Egill, f. 1961, maki Elín María Guðjónsdóttir, þeirra börn eru þrjú. 5) Halla, f. 1965, maki Andri Lárusson, þeirra börn eru tvö. Útför Alfheiðar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Undanfarin 15 ár hefur fyrsta jólakortið alltaf borist snemma hing- að á Brekkugötuna, þó nokkru fyrr en næstu kort þar á eftir og tals- vert áður en heimilismenn hér á bæ fóru að huga að sínum. Á umslaginu gaf að líta nafnið mitt og þar fram- an við fleiri og merkilegri lærdóms- og stöðutitla en ég mun nokkurn tíma vinna til eða fá risið_ undir. Þetta var kortið frá henni Álfheiði og titlamir flestir orðnir til í hennar frjóa huga. Þessi ár sem við þekkt- umst töluðum við afar sjaldan sam- an í síma - aldrei nema nauðsyn bæri til - skrifuðumst frekar á þeg- ar mikið lá við. Titlatogið var okkar einkaskemmtun og Iþrótt sem við iðkuðum þegar færi gáfust. Þetta árið er útlit fyrir að ég þurfi að bíða ögn lengur eftir fyrsta jólakort- inu en áður; Álfheiður vínkona mín kvaddi rétt áður en aðventan gekk í garð. Brottförin var svolltið I stíl við persónuleika hennar; hér var ekki frekar en áður neitt verið að tvínóna við hlutina. Hún bara fór. Kýnrii okkar Álfheiðar hófust I málvísindadeild Háskóla Islands haustið 1981. Þar vorum við báðar I námi og náðum fljótlega vel sam- an. Þótt það hafí aldrei hvarflað að okkur á þeim árum höfum við áreið- anlega verið svolftið skondið vinkon- upar I hópí bráðungra stúdenta; ég farin að nálgast fertugt og Álfheið- ur 20 árum eldri. Aldurinn kom þó ekki I veg fyrir að við kynntumst skólasystkinum okkar vel og mætt- um I málvísundapartý og á rann: sóknaræfmgar rétt eins og þau. í mörg ár eftir að námi lauk töltum við Álfheiður saman á jólarann- sóknaræfingar og fannst alltaf jafn- gaman. Það er I rauninni sama hvar er boríð niður' I minningasjóðnum; allt sem tengist Álfheiði er bjart og skemmtilegt. Ýmislegt mætti þar tína ti! og úr ólíkum áttum. Eftir- minnilegir eru sanskrítartfmamir hjá Jóni Gunnarssyni þar sem orð- heppni Álfheiðar og hæfíleiki til skjótra og hnyttinna andsvara áttu H H H H H H H H H H Erfidrykkjur H H H H H H H H H H u Sími S62 0200 rTiiiiiiiiixl sinn þátt I því að gera kennslustund- ir á dimmum vetrarmorgnum til- hlökkunarefni. Stundum var mest gaman I frímínútum, ekki síst þegar Alfheiður lýsti fyrir okkur þeim furðuheimum sem hún ferðaðist um I þýðingum sínum; hún var ýmist sérfræðingur I meðferð skotvopna eða stofuplantna, sálarlífí kvenna eða frönskum súpum. Aldrei þreytt- umst við heldur á því að rifja upp veisluna góðu á Brekkugötunni þeg- ar við stöllur héldum upp á sam- anlagt 100 ára afmæli okkar. Þeirri veislu lauk ekki fyrr en sólin gægð- ist jnn um stofugluggann. Á þessum tímamótum er mér þó eftirminnilegust stUnd sem ég átti á heimili Álfheiðar og Jóhannesar fyrir nokkrum árum, Ég kom á Háteigsveginn rétt um hádegisbilið, fékk mér bita með þeim hjónum og var síðan boðið til stofu þar sem sest var að kaffídrykkju og spjalli. Jóhannes var á leið á vinnustofuna, Álfheiður rneð hálfþýdda; bók inni í vinnuþerbergi og það stóð hreint ekki til að staldra lengi við; Þegáf við höfðum spjallað um hríð fannst mér kominn tími til að kveðja, ég leit á klukkuna og trúðjekki mínum eigin augum; hún var að verða 6! Okkur þótti þetta gjörningum líkast - það þykir mér reyndæ* ennþá - en er líklega til marks um að stund- in fljúgi hratf þegar félagsskapurinn er góður. Og vissulega var mapur í góðum félagsskap með þeim Álf- heiði og Jóhannesi, hann gerist ekki betri. Nú skilja leiðir okkar Álfheiðar. Ég vil með þessum orðum kveðja kæra vinkonu og þakka fyrir að hafa fengið að ganga með henni um stund. Jóhannesi sendum við hjónin hlýjar kveðjur svo og skyldu- liði öllu. Þórunn Blöndal. Við fráfall Álfheiðar Kjartans- dóttur er okkur sem áttum samleið með henni á skólaárunum þakklæti I hug fyrir góð kynni og ævilanga vináttu. Hún ólst upp I Hafnarfírði en bættist I hóp okkar sem sátum I 3. bekk Menntaskólans I Reykjavík árið 1941 og bar með sér ferskan og hressandi blæ I skólalífíð. Létt 3lóinabiáðim öa^ðsKom v/ Possvogsla^kjwgeuA Sími, 554 0500 lund hennar, gott skopskyn og já- kvætt hugarfar einkenndi fas henn- ar, enda átti hún strax vinsældum að fagna meðal skólafélaga. En hún var ekki síður eftirlæti kennaranna fyrir frábæra náms- hæfileika. Þau fjögur ár sem eftir voru af menntaskólaárunum skipaði hún dúx-sætið I okkar árgangi af reisn og virtist fara létt með það. Ég held að Álfheiður hafí I raun verið jafnfær I öllum námsgreinum en bókmenntir voru henni hugstæð- astar. Hún var gerkunnug öllu sem markaði spor á þeim vettvangi hér- lendis og gerði sér jafnframt far um að kynnast fagurbókmenntum ann- arra þjóða. Góð þekking á grund- vallaratriðum íslenskrar tungu og smekkvísi I málfari gerði henni auð- velt að fást við þýðingar sem urðu hennar ævistarf hin síðari ár. En jafnframt þeirri vinnu sótti hún sér frekari menntun I Háskóla íslands þegar tækifæri gafst og hafði sínar prófgráður að lokum. Ég held að um Alfheiði megi segja að hún virtist aldrei fá fullnægt menntunarþrá sinni og sótti fast þann róður allt fram á síðustu ár öðrum jafnöldrum til fyrirmyndar. Hefðbundin skólaár okkar voru miklir umbrotatímar hér á landi sem annars staðar I Evrópu. Heimsstyij- öldin setti á þau sinn svip með mörgum válegum atburðum. En þegar litið er til baka um rúm 50 ár, er eins og eftir sitji fyrst og fremst minningar um mikla sam- heldni skólasystkina, sanna vináttu og bjartar stundir sem gott er að minnast. Við sem kynntumst Álfheiði Kjartansdóttur á skólaárunum átt- um hana að góðum vini alla tíð síð- an. Með þakklæti I huga vil ég fyr- ir hönd bekkjafélaga úr MR senda fólkinu hennar öllu einlægar sam- úðarkveðjur. Hulda Valtýsdóttir. Elsku amma. Það er komið kvöld, sólin er að: setjast, það eru að koma jól. Ég' heyri ekki I neinum fuglum. En ég: veit þó að einhveijir eru hérna enn- þá, þeir eru einhvers staðar úti í kalda hausloftinu skrapandi I jarð- . veginn í leit að mat. Þeim er kalt,- rétt eins og mér. Þegar ég skrifa þessar línur er rúmur sólarhringur síðan þú yfír- gáfst þennan heim. Síðan þú flaugst á vit betri og hlýrri staða eins og fuglarnir, Margt hefur breyst og þó syo lítið.'.Sólin mun halda áfram að koma upp, dagarnjr munu koma og fara á víxl við riæturnar. Trén munu blómgast og fella laufin og vatnið mun streyma sína venjulegu hrin- grás, en þig mun vanta. Innan I mér bærast minningarnar um þig. Þær eru ekki eins margar og ég hefði viljað hafa þær-en þær eru góðar, fallegar og hreinar og ég vona að ég glati þeim aldrei. Min besta og dýrmætasta minn- ing um samveru okkar var daginn sem ég hélt ræðuna í ráðhúsi borg- arinnar. Það hafði tekið mig margar vikur að semja hana og þú hafðir hjálpað mér við að leggja lokahönd á verkið. Þú hafðir alltaf svo gott lag á svona hlutum, mér fannst allt- af eins og þú værir alvitur. Þú komst með mér þegar ég hélt hana og þú varst svo stolt af mér. Sagðir öllum að þú værir amma mín. Og ég var svo hamingjusöm, ekki af því að ég hefði staðið mig vel heldur af því að þennan dag fannst mér þú virki- lega vera amma mín. Ekki bara móðir stjúpföður míns heldur alvöru amma mín. Þennan dag fannst mér þú viðurkenna mig sem barnabarnið þitt. Þennán dag mynduðust á milli okkar tengsl sem aldrei verða rofin sama hversu langt bilið á milli okk- ar mun verða. Elsku amma á Hátó, það er kom- ið að kveðjustund. Þakka þér fyrir að hafa leyft mér að kynnast þér, þakka þér fyrir öll kvöldin sem við áttum saman I faðmi fjöldskyldunn- ar. Þangað til við hittumst á ný. „Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig.“ (Sálmarnir 23:4) Halldóra Jónsdótt.ir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.