Morgunblaðið - 29.01.1998, Síða 19

Morgunblaðið - 29.01.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1998 19 NEYTENDUR Korthafar strandaglópar í útlöndum? Lokað á kortin ef úttekt er ógreidd í tvo mánuði Ef MÁNAÐARLEG úttekt korthafa, sem fallin er í gjalddaga, er ógreidd við næsta gjalddaga á eftir eiga fjármálafyrirtæki að stöðva notkun kortsins. Sá fyrirvari er þó á að ef ósk berst frá kort- hafa um notkun korts- ins að nýju sem staðfest er með skriflegu sam- þykki ábyrgðarmanns má heimila frekari notkun. Þetta kemur fram í sérákvæði í sam- komulagi um breyttar vinnureglur í notkun sjálfsskuldarábyrgða sem undirritað var í vikunni og tekur gildi hinn 1. maí næstkomandi. Þar kemur einnig fram að sjálfs- skuldarábyrgð sem sett er til trygg- ingar úttekt með kreditkorti megi ekki vera hærri en tvöfóld mánaðar- leg útttektarheimild korthafa þegar ábyrgðin er veitt. „Fram til þessa hafa fjármálafyr- irtæki í lengstu lög ekki lokað á korthafa ef tryggingarvíxill hefur legið fyrir,“ segir Þór Gunnarsson sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði Hafn- arfjarðar. „I fyrra féll dómur í máli þar sem ábyrgðarmenn voru ekld skuld- bundnir nema fyrir tveimur úttekt- um korthafa og þessar nýju reglur byggja eflaust á þeim dómi. Sam- komulagið tekur gildi strax 1. maí næstkomandi og því verður farið að vinna eftir þessum reglum strax og komið er að júní gjalddaga." Þór bendir á að þessar nýju regl- ur kunni að koma sér illa fyrir þá sem fara t.d. í langt ferðalag. „Fari korthafi til útlanda í byrjun maí og ætli ekki að borga korta- reikninginn fyrr en heim er komið í júní getur hann lent í vandræðum. Fjármálafyrirtæki geta lokað kort- inu að korthafa fjarstöddum t.d. meðan hann er í útlöndum. Það kann að þýða að viðkomandi verði strandaglópur, geti ekki borgað hót- elreikninginn né annað sem hann þarf að greiða." Þá segir Þór að margir séu með fastar afborgamir á kortinu sínu sem lenda þá í vanskil- um komi til lokunar kortsins. „Ef bankar og sparisjóðir vilja halda kortinu opnu eftir að tveir gjalddagar eru liðnir eru ábyrgðar- menn lausir allra mála nema þeir gefi skriflegt samþykki sitt fyrir áframhaldandi notkun kortsins." AUÐUR Kristinsdóttir, eigandi Garnbúðarinnar Tinnu, afhend- ir Berglindi Ósk gullprjónana. Gullprjónar ársins 1997 GARNBÚÐIN Tinna hefur veitt viðurkenninguna „Guilpijónar árs- ins 1997“. í fréttatilkynningu frá versluninni kemur fram að Berg- lind Ósk Guðjónsdóttir hafi fengið pijúnana en hún er sextán ára gömul. Viðurkenninguna hlaut hún fyrir vandvirkni og góðar út- færslur á prjónaflíkum. Gullprjón- arnir eru gefnir af þýska pijóna- framleiðandanum ADDI. Reikningar borgaðir um leið og keypt er inn Sparisjóður Hafnarfj ar ðar opnaður í Fjarð- arkaupum FYRIRHUGAÐ er að Sparisjóður Hafnarfjarðar opni á næstu vikum afgreiðslu í Fjarðarkaupum. Þetta er í fyrsta sinn sem banki opnar af- greiðslu í stórmarkaði en um skeið hafa hraðbankar verið í slíkum versl- unum. Að sögn Þórs Gunnarssonar spari- sjóðsstjóra hefur hraðbanki á vegum bankans verið um árabil í verslun- inni. „Nú stendur til að ganga skrefi lengra og opna þai- litla afgreiðslu. Afgreiðslutíminn verður rýmri en tíðkast og fylgh’ opnunartíma versl- unarinnar að einhverju leyti. Það má segja að þetta sé aukin þjónusta við viðskiptavini okkar og við náum með þessu móti einnig til fleiri Hafnfirð- inga en ella.“ Þór bendir á að afgreiðsla spari- sjóðsins í Fjarðarkaupum verði ein- fóld, þar verði hægt að stofna til við- skipta, borga reikninga og greiða af skuldum, leggja inn og taka út pen- inga. „Þá geta viðskiptavinir okkar einnig komið á framfæri flóknari málum, lagt t.d. inn beiðni um lána- fyrirgreiðslu sem síðan yrði þá af- greidd annars staðar." ÚR VERINU AUÐBJÖRG SH á Breiðafirði. Skipveijar hafa ekki sinnt tilkynningarskyldunni í meira en þijú ár. Hafa ekki sinnt tilkynn- ingarskyldu í rúm 2 ár VERULEGUR misbrestur er á því að stjómendur skipa og báta fari að lögum um tilkynningarskyldu ís- lenzkra skipa. Dæmi erum það að skip sem stunda reglulega róðra hafi ekki tilkynnt um ferðir sínar í um tvö og hálft ár. Heimilt er að beita sektum komi það í ljós að skipstjómarmenn sinni ekki þessari skyldu sinni, en því ákvæði hefur ekki verið beitt samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins. Jafnframt virðist vera óljóst hver eigi að fram- fylgja því að lögin séu virt. Landhelgisgæzlan fór um borð í tvo báta á Breiðafirði nú í vikunni, Auðbjörgu SH og Friðrik Berg- mann SH. Við athugun kom í ljós að Auðbjörg hafði ekki sinnt tilkynn- ingarskyldu síðan 16. ágúst 1995 og Friðrik Bergmann tilkynnti sig síð- ast 21. júlí 1996. Samkvæmt upplýs- ingum frá Tilkynningarskyldunni em þetta ekki einsdæmi. Öllum ber að tilkynna sig Samkvæmt lögum um tilkynning- arskyldu íslenzkra skipa ber að til- kynna brottför skips úr höfn til Til- kynningarskyldunnar, staðsetningu skips að minnsta kosti einu sinni á sólarhring og komu skips til hafnar. Landssími Islands skal sjá um að A Akvæðum laga um sektir virðist ekki beitt strandstöðvar séu til móttöku þess- ara tilkynninga og áframhaldandi sendingar þeirra til eftirlitsstöðvar. Slysavamafélag íslands fer með yfirstjóm Tilkynningarskyldunnar og eftirlitsstöðvarinnar í Reykjavík. Brot gegn lögum þessum varða sektum sem fara hækkandi við ít- rekuð brot. Sektarfé skal renna til ríkissjóðs. Óvissa um eftirlit? Ekki er að sjá í lögunum hver skuli fara með eftirlit með því að til- kynningarskylda sér virt og fylgja eftir brotum með kærum og sekt- um. Hjá Landhelgisgæzlunni feng- ust þær upplýsingar að það væri hvorki í verkahring hennar að hafa eftirlit með því að skyldan væri virt, né beita sektum fyrir brot á lögun- um. Hjá Tilkynningarskyldunni feng- ust þær upplýsingar að þar á bæ væri reynt að fylgjast með því að tilkynningarskyldan væri virt og oft 36.000 íslendingar hafa leigt sölubós og selt í Kolaportinu. Samkvœmt könnun Gallup er meðalsala á dag kr. 20.000,- Það kostar kr. 3100 á dag að leigja sölubás fyrir kompudót. Teklð er á móti pöntunum á sölubásum f síma 562 5030 alla KOLAPORTIÐ virka daga kl. 10-16 Hctgkvœmt og skemmtilegt væri auglýst eftir bátum, sem ekki hefðu sinnt henni. Dæmi væru einnig um það að mönnum hefði verið veitt tiltal fyrir trassaskap og að lögreglu á viðkomandi stöðum hefði verið skýrt frá brotum af þessu tagi. Frekara vald til afskipta eða aðgerða hefðu starfsmenn Til- kynningarskyldunnar ekki. Öryggismál Lögin um tilkynningarskyldu ís- lenzkra skipa eru eingöngu hugsuð til öryggis fyrir sjófarendur. Þannig sé ekki aðeins hægt að fylgjast með því hvort viðkomandi skip eru á sjó, heldur einnig hvar þau eru að veið- um á kveðnum tíma sólarhrings. Verði eitthvert óhapp um borð, eða skipið skili sér ekki til hafnar í slæmu veðri, er hægt að beina leit að því til þess staðar, sem það til- kynnti sig á síðast. Þannig er hægt að afmarka leitarsvæðið verulega og flýta fyrir mögulegri björgun, sé hennar þörf. Sterkur í oröi og verki Árríi Þór fremstu n HAGKAUP cTþ LYFIABDÐ Mosfellsbæ Nicorette nikótín á heildsöluver 9fflo 15 stk. af 2 mg myntutyggjói fylgja fritt meö. Tilboðið gildir til 1. febrúar r, HAGKAUP E PLYFIABÚD i-l ^kírifnnni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.