Morgunblaðið - 17.02.1998, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Yfírmaður Evrópuherafla NATO þakklátur íslenzkum stjórnvöldum
Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson
FÖRUFÁLKINN settíst um borð í skipi suðvestur af landinu síðastliðið haust og var síðan um tíma í vörslu
Náttúrufræðistofnunar þar sem hann var merktur. Honum var sleppt við Ulfarsfell í nóvember og hefur und-
anfarið gert sig heimakominn í háhýsi í Heimahverfi. Förufálkar eru sjaldgæfir hér á landi, en í N-Ameríku
gera þeir sér oft hreiður í háhýsum.
FÖRUFÁLKI hefur frá áramót-
um haft bækistöð í þrettán hæða
fjölbýlishúsi við Sólheima. Hírist
hann aðallega á norðursvölum á
elleftu og tólftu hæð hússins en
stundum að vestanverðu þegar
þannig viðrar og kemur þá að
húsinu síðdegis en fyrri hluta
dags ver hann til veiða og könn-
unarferða.
Förufálkinn er aðeins smærri
en íslenski fálkinn og öðru vísi á
litinn, auk þess sem svartur
taumur liggur niður vangann og
er það kallað skegg. Talið er víst
að þarna sé á ferðinni sami fugl
og settíst á skip undan Islands-
ströndum í haust, en þessi deili-
tegund förufálkans verpir á
Grænlandi.
Aðeins er vitað um örfáa föru-
fálka sem komið hafa hingað til
lands og hafa þeir flestir sest
fyrst á skip suðvestur af landinu.
Fálkinn var um tíma í haust í
vörslu fuglafræðinga hjá Nátt-
úrufræðistofnun og þar var hann
merktur með hring á fæti áður
en honum var sleppt við Úlfars-
fell í nóvember. I N-Ameríku er
algengt að önnur deilitegund
förufálka verpi á háhýsum.
„fbúar hér hafa ekki amast við
honum en þó verður að viður-
kennast að fálkanum fylgir
endemis sóðaskapur því auk
dritsins, sem lendir á svölum og
gangstéttum, skilur hann eftir
fiður og hálfétin hræ. Maður þarf
að taka sig til og skúra eftir
hann. Hann slítur hausana af
fuglunum og virðist hafa sérstakt
dálætí á þröstum, en ef hann
missir hins vegar fugl ofan af
svölum hirðir hann ekki um að
sækja hræið heldur eltist við nýj-
an. Hann veiðir á flugi og er eins
og tundurskeyti á eftir þrestin-
um, auk þess sem í honum heyr-
ist mikið ýl og læti þegar hann
hremmir bráðina,“ segir Bragi
Halldórsson húsvörður í háhýs-
inu við Sólheima.
íbúar í húsinu hafa margir
hverjir fylgst grannt með fuglin-
um auk þess sem fuglaáhuga-
menn hafa fengið að fara inn í
húsið til að berja hann augum í
návígi. „Stundum hverfur hann í
einn eða tvo daga, einkum þegar
veður er mjög slæmt, en oftast
situr hann á húsinu seinni hluta
dags og fær sér að éta,“ segir
Bragi.
Vinnslustöðin
selur Breka
GENGIÐ hefur verið frá samningi
um sölu Vinnslustöðvarinnar í
Vestmannaeyjum á togaranum
Breka með 1.700 tonna aflaheim-
ildum til nýs almenningshlutafé-
lags í Vestmannaeyjum, sem verið
er að stofna um þessar mundir.
Ekki fæst uppgefið að sinni hvert
kaupverð skipsins og aflaheimild-
anna er, en samkvæmt heimildum
blaðsins er það 8-900 milljónir
króna.
Hlutafélagið hefur ekki verið
stofnað formlega, en þegar hafa
safnazt um 200 milljónir króna í
hlutafé og stefnt er að því að safna
allt að 300 milljónum króna. Góðar
undirtektir hafa verið í Vest-
mannaeyjum við hlutafjársöfnun-
inni og eru nánast öll hlutafjárlof-
orðin frá heimamönnum. Ekki hef-
ur verið gengið frá samningum um
kaup á fleiri skipum en ljóst er að
reynt verður að halda öllum afla-
heimildum sem til sölu eru í Eyjum
í bænum. Hið nýja hlutafélag mun
gera Brekann og væntanlega fleiri
skip út og samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins verður lögð á það
áherzla að aflinn komi til vinnslu í
Eyjum. Stofnfundur félagsins
verður haldinn innan fárra daga.
Míllilent í Keflavík komi
til aðgerða við Persaflóa
WESLEY K. Clark, yfírmaður
sameiginlegs herafla Atlantshafs-
bandalagsins í Evrópu og æðsti
hershöfðingi hersveita Bandaríkja-
hers í álfunni, sagðist, eftir viðræð-
ur við íslenzka ráðamenn í Reykja-
vík í gær, hafa fengið vilyrði ís-
lenzkra stjómvalda fyrir fullum
stuðningi við aðgerðir Bandaríkja-
manna ef ákvörðun verður tekin
um að gera hemaðarárás á írak.
Clark sagði of snemmt að full-
yrða um það hvemig herstöðin á
Keflavíkurflugvelli geti komið að
gagni í mögulegum hemaði við
Persaflóa, en með tilliti til reynsl-
unnar úr Persaflóastríðinu 1991
megi ganga út frá því sem vísu að
einhverjar flugvélar sem tengjast
slíkum aðgerðum muni þurfa að
millilenda hér.
„Ég er mjög þakklát-
ur íslenzkum stjóm-
völdum fyrir að lýsa yf-
ir stuðningi sínum hvað
þetta varðar," sagði
Clark á blaðamanna-
fundi í Ráðherrabú-
staðnum áður en hann
settist að hádegisverði í
boði ríkisstjómarinnar.
Clark, sem kom hingað
í boði Halldórs As-
grímssonar utam-íkis-
ráðherra, átti auk Hall-
dórs viðræður við Da-
víð Oddsson forsætis-
ráðherra og utanríkis-
málanefnd Aiþingis.
Hann hélt aftur af
landi brott síðdegis í gær.
„Eins og allir vita hafa
ríkjamenn og banda-
menn þeirra verið að
safna herstyrk á
Persaflóasvæðinu,"
sagði Clark á blaða-
mannafundinum. „Við
vonum sannarlega að
samningaumleitanir
megni að skila árangri
og Saddam Hussein
muni uppfylla allar
kröfur Sameinuðu
þjóðanna. En það leik-
ur enginn vafi á því að
misheppnist samning-
ar verður mögulegt að
Wesley K. grípa til annarra ráða.“
Clark Auk íraksdeilunnar
ræddi Clark hér þróun
mála í Bosníu-Herzegovínu, en sem
Banda- yfirmaður sameiginlegs herafla
NATO í Evrópu er hann æðsti yfir-
maður friðargæzlu og þess upp-
byggingarstarfs sem NATO sér
um framkvæmdina á þar í landi í
nafni Sameinuðu þjóðanna og fleiri
alþjóðastofnana.
íslenzkir læknar
og lögreglumenn
Clark þakkaði stuðning íslands
við þetta vandasama verkefni, sem
hefur falizt í pólitískum stuðningi
auk þátttöku íslenzkra lækna og
lögreglumanna í uppbyggingar-
starfi á vettvangi. í sumar rennur
umboð SFOR-sveita NATO í Bosn-
íu út og ákvörðun hefur ekki verið
tekin enn um framhald á því, sem
allar ríkisstjórnir NATO-ríkjanna
16 þurfa að samþykkja á vettvangi
N orður-Atlantshafsráðsins.
Morgunblaðið/Kristinn
VALA Flosadóttír, heimsmethafinn ungi, áritar leikskrár á ÍR-mótinu
í vetur. Síðan hefur hún tvívegis bætt heimsmetið í stangarstökki.
Ráðherra býður
Völu til íslands
VALA Flosadóttir, heimsmethafi í
stangarstökki kvenna innanhúss,
og Stanislav Szczybra, þjálfari
hennar, eru væntanleg hingað til
lands 3. mars nk. í boði mennta-
málaráðuneytisins. Þetta kom fram
í svari Björns Bjarnasonar
menntamálaráðherra á Alþingi í
gær við fyrirspum Hjálmars Ama-
sonar, þingmanns Framsóknar-
flokks, um það hvort ráðherra
hygðist sýna hinum nýja heims-
methafa Islendinga einhvem virð-
ingarvott.
Ráðherra sagði að Vala og þjálf-
ari hennar myndu dvelja hér í eina
viku og að á þeim tíma myndi hann
sýna henni þann sóma sem völ væri
á. Hann sagði jafnframt að afrek
Völu hefðu verið mikil og eftirtekt-
arverð og tók undir orð Hjálmars
um að þau minntu menn á mikil-
vægi þess að efla hlut kvenna í
íþróttum. Sagði hann að tillögur
þess efnis lægju fyrir af hálfu
menntamálaráðuneytisins.
■ Aldrei fyrir Svíþjóð/B3
Snjóflóð í
Bárðardal
SNJÓFLÓÐ féll á útihús við
Stóruvelli í Bárðardal aðfara-
nótt laugardags. Að sögn Garð-
ars Jónssonar bónda var lítill
sem enginn snjór í brekkunni
fyrir utan hengjuna sem fór af
stað á tveggja km kafla.
Húsið var byggt sem minka-
hús árið 1987 en hefur verið
notað sem vélageymsla. Sá
hluti hússins sem varð fyrir
flóðinu virðist mikið skemmdur
en Garðar sagðist í gærkvöldi
ekki geta gert sér grein fyrir
tjóninu. Þau hjónin hafi verið
að fikra sig áfram við nýtingu
hússins og m.a. tekið húsvagna
og annað slíkt í geymslu og svo
vel hafi viljað til að það hafi
verið í hinum enda hússins og
því sloppið óskemmt.
Danir unnu
Flugleiðamót
í brids
DANSKT lið vann Flugleiða-
mótið, sveitakeppni Bridshátíð-
ar, sem lauk í gærkvöldi. Dan-
irnir enduðu með einu stigi
meira en sveit skipuð íslensk-
um og bandarískum spilurum.
Danska liðið fékk 191 stig og
var sldpað hjónunum Jens og
Sabine Auken, Morten Ander-
sen og Sören Christiansen. í 2.
sæti með 190 stig var sveit Sam-
vinnuferða-Landsýnar sem Guð-
mundur PáU Amarson, Þorlákur
Jónsson, Helgi Jóhannsson,
Guðmundur Sv. Hermannsson,
Fred Hamilton og Roger Bates
skipuðu. I 3. sæti var sveit
Strengs með 186 stig, sem var
skipuð Hrannari Erlingssyni,
Júlíusi Siguijónssyni, Rúnari
Magnússyni og Kristjáni Blön-
dal. Alls tóku 92 sveitir þátt.
Sex bflar
skemmdust
SEX bílar skemmdust á Ægi-
síðu á sunnudagsmorgun.
Tildrög voru þau að um
klukkan sex um morguninn var
bifreið á leið suður Ægisíðu ek-
ið á kyrrstæða bifreið sem stóð
í stæði. Við höggið köstuðust
bílamir hvor um sig á tvo aðra
bíla. AIls vom það því sex öku-
tæki sem skemmdust og eigna-
tjón var mikið.
Ökumaðurinn sem óhappinu
olli slasaðist í andliti og á hendi
og er grunaður um ölvun sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu.
Förufálki í þrett-
án hæða blokk
i
i
>
>
>
>
>
i
>
L