Morgunblaðið - 17.02.1998, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BENÓNÝ Ásgrímsson flugstjóri fór í sitt síðasta þyrluflug hjá Landhelgisgæslunni, um sinn a.m.k., með TF-
LÍF í gær. Á myndinni má sjá áhöfn þyrlunnar nýkomna úr fluginu, f.v. Hannes Petersen læknir, Hilmar Þór-
arinsson flugvirki, Páll Geirdal stýrimaður, Sigurður Ásgeirsson flugmaður og Benóný Ásgrúnsson flugstjóri.
Benóný Ásgrímsson til Atlanta eftir 30
ára starf hjá Landhelgisgæslunni
Langar til að
takast á við ný
verkefni“
Reykja-
borg leit-
ar enn
smygls
REYKJABORG RE hélt í
gær áfram að kanna hafsvæði
út af Garðskaga í leit að hugs-
anlegum smyglvarningi. Skip-
ið, sem er á vegum embættis
sýslumanns í Keflavík, notar
dragnót við leitina.
Svæðið sem leitað er á nær
frá Gerðum í Garði og út á
Garðskagaflös og leikur grun-
ur á að þar sé að finna vaming
sem kastað hafi verið frá skipi
sem komið hafi frá erlendri
höfn. Jón Eysteinsson sýslu-
maður segir fátt að frétta af
leitinni enn sem komið er, en
ekki viðraði vel íyrir leitina á
fóstudagskvöld og laugardag.
„Það er verið að rannsaka
ákveðinn hlut og það er ótíma-
bært að upplýsa nokkuð um
málið á þessu stigi. Við getum
ekki fullyrt nákvæmlega um
hvaða smyglvaming kynni að
vera að ræða,“ segir Jón.
Hann kveðst telja að
Reykjaborg henti vel til leitar-
innar, en um er að ræða 29
brúttólesta snurvoðarbát með
fimm manna áhöfn.
BENÓNÝ Ásgrímsson, þyrluflug-
sljóri hjá Landhelgisgæslunni,
hefur fengið þriggja ára launa-
laust leyfi hjá Landhelgisgæsl-
unni og stefnir að því að taka við
flugmannsstarfi hjá Atlanta flug-
félaginu, „ef mér tekst að ljúka
prófum og stend mig í þjálfun-
inni,“ segir Benóný hógvær, en
hann byijar á bóklegu námskeiði
fyrir þotuflugmenn hjá Atlanta í
dag. I framhaldi af því tekur svo
við verkleg þjálfun utanlands.
Benóný var á sinni síðustu
vakt hjá Landhelgisgæslunni í
gær. Hann sagði að það yrðu að
sönnu mikil viðbrigði að söðla
um úr þyrlufluginu og heíja störf
sem þotuflugmaður eftir 30 ára
starf hjá Landhelgisgæslunni.
Undanfarin 10-12 ár hefur Ben-
óný verið þyrluflugstjóri hjá
Gæslunni.
Að hrökkva eða stökkva
„Mig langar til að takast á við
ný verkefni. Ég er á þeim aldri
að það er annaðhvort að hrökkva
eða stökkva núna,“ segirlíenóný
aðspurður um ástæður þess að
hann hefur ákveðið að skipta um
starf. „Mér er efst í huga þakk-
læti til starfsfélaga minna fyrir
samstarfið á undanförnum árum.
Ég mun sakna þeirra," segir
hann.
Benóný kveðst ekki geta sagt
fyrir um hvort hann muni snúa
aftur eftir þijú ár. Hann er ekki
fyrsti þyrluflugmaðurinn hjá
Landhelgisgæslunni sem heldur
til starfa hjá Atlanta flugfélaginu
því Bogi Agnarsson hóf þar störf
á síðasta ári.
Benóný var í hópi tíu manna í
áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar TF-LIF sem fengu afreks-
merki íslenska lýðveldisins í maí
á síðasta ári. Voru þau veitt
vegna björgunar 36 skipveija af
þremur skipum, Víkartindi, Dís-
arfelli og Þorsteini GK, með
nokkurra daga millibili. Benóný
var flugsljóri á LÍF við frækilega
björgun mannanna af Víkartindi
og Dísarfelli.
Umhverfísráðuneytið vill aðgerðir
vegna hávaða við Miklubraut
Krefst úr-
bóta án tafar
Umhverfisráðuneytið hefur sent
borgarstjóranum í Reykjavík bréf
þar sem því er beint til borgaryfir-
valda að þau hlutist til um „án taf-
ar“, eins og komist er að orði, að
dregið verði úr óþægindum íbúa
við neðanverða Miklubraut sem
rekja má til mikillar umferðar um
götuna. Aðgerðimar miðist við að
draga úr óþægindum íbúa þar til
endanlegar úrbætur hafa verið
gerðar.
Bréf ráðuneytisins er ritað
vegna ítrekaðra kvartana sem
borist hafa frá íbúum við Miklu-
braut. Guðlaugur Lárusson, sem
býr við Miklubraut 13 og hefur í
u.þ.b. sjö ár barist fyrir rétti íbú-
anna, krafðist þess að ráðuneytið
léti málið til sín taka eftir að Holl-
ustuvernd ríkisins hafði kannað
áhrif hávaða og mengunar á íbúa
við götuna. Niðurstaða Hollustu-
vemdar var að hávaðamengun við
Miklubraut 13 væri yfir viðmiðun-
armörkum sem kveðið er á um í
mengunarreglugerð og að ástandið
við íbúð Guðlaugs „sé óviðunandi
ogjþað þurfi að bæta“.
I bréfi umhverfisráðuneytisins
til borgarstjórans segir að um-
ræður um mál þetta og nauðsyn
lagfæringar hafi ekki leitt til þess
að ástandið batnaði. Ráðuneytið
vill að strax verði gripið til ein-
hverra aðgerða meðan unnið er að
endanlegum úrbótum á vandamál-
inu.
„Ráðuneytinu er kunnugt um að
Reykjavíkurborg hefur gert áætl-
un til úrbóta á hávaðamálum á
næstu áram. Ráðuneytið óskar
upplýsinga um hvar í þeirri áætlun
neðanverð Miklabraut lendir,
hvaða árangri sé ætlað að ná og
tímasetningu framkvæmda. Jafn-
framt beinir ráðuneytið þeim til-
lögum til Reykjavíkurborgar að
borgaryfirvöld hlutist til um án taf-
ar, að dregið verði úr óþægindum
íbúa við neðanverða Miklubraut
eins og frekast er unnt þar til end-
anlegar úrbætur ná fram að
ganga,“ segir í bréfi ráðuneytisins.
Morgunblaðið/Þorkell
HÓLMGEIR Jónsson og Sævar Gunnarsson frá Sjómannasambandinu
komu til fundar við kvótanefndina í gær, en hana skipa Jóhann Sigur-
jónsson, Árni Kolbeinsson og Ólafur Davíðsson.
Deiluaðilar hitta
kvótanefndina
NEFND sem vinnur að tillögum um
breytingar á verðmyndun á fiski og
viðskiptum með veiðiheimildir er
farin að ræða við fulltrúa sjómanna
og útvegsmanna. í gær gengu full-
trúar Sjómannasambandsins á fund
nefndarinnar og kynntu henni af-
stöðu sína til ágreiningsefna.
Nefndin stefnir að því að ljúka
störfum á sem skemmstum tíma, en
henni ber að skila tillögum eigi síðar
en 10. mars. Á meðan nefndin vinn-
ur að tillögum halda fundir áfram
hjá ríkissáttasemjara. í gær rædd-
ust fulltrúar vélstjóra og útvegs-
manna við. Fjallað var um endur-
menntunarmál, hlutaskipti og hækk-
un kauptryggingar. í dag koma full-
trúar annarra sjómanna til fundar
við útvegsmenn. Kristján Ragnars-
son, formaður LÍÚ, hefur ekki setið
þá tvo fundi með vélstjórum sem
haldnir hafa verið frá því verkfalli
var frestað. Lögfræðingarnir Jónas
Haraldsson og Jón H. Magnússon
eru fulltrúar LÍÚ í viðræðunum.
Þriggja maaaa tal
* tt R
Þarftu að ná sambandi við
tvo í einu?
Með einfaldri aðgerð get-
urðu komið á símafundi með
þremur þátttakendum sem
geta verið staddir hvar sem er
á landinu eða erlendis.
Nánari upplýsingar um verð
og sérwónustu Landssímans
færðu í síma 800 7000 eða
SÍMASKRÁNNI.
LANDS SfMINN
Samtökin „Frelsið Willy Keiko“ í Bandaríkjunum
Umsókn
um flutning í mars
Newport, Oregon. Morgunblaðið.
STJÓRNENDUR stofnunarinnar
Free Willy Keiko Foundation
hyggjast sækja formlega um leyfi
til að flytja háhyminginn Keiko til
íslands í mars og vonast til að geta
komið með hann til landsins í haust.
„Best væri að koma með hann til
íslands í ágúst,“ sagði Dave
Phillips, stofnandi Free Willy Keiko
samtakanna, í gær. „En flutningur-
inn mætti ekki eiga sér stað síðar
en í október.“
Keiko er nú í sædýrasafni í
Newport i Oregon á vesturströnd
Bandaríkjanna. Hann hefur verið
undir reglulegu eftirliti og líffræð-
ingar eru þeirrar hyggju að nú
þegar væri hægt að ílytja hann.
Phillips kom til íslands í lok lið-
ins árs til að ræða hugmyndir um
flutning Keikos til Eskifjarðar með
það fyrir augum að hvalnum verði
sleppt þar sem hann var fangaður
árið 1979. Hann hyggst snúa aftur í
mars til að sækja um leyfi til að
koma með hvalinn til íslands. Fáist
leyfið er ætlunin að hafa Keiko í
kví í Eskifirði sem yrði á stærð við
háifan fótboltavöll. Phillips kvaðst
vonast til þess að hægt yrði að
hleypa Keiko úr kvínni tæpu ári __
eftir að komið yrði með hann til ís-
lands, en ósennilegt væri að hann
gæti bjargað sér á eigin spýtur fyrr
en síðar.
Náið hefur verið fylgst með
Keiko í sædýrasafninu í Newport
og hefur hvalurinn meðal annars
þyngst um tonn frá því hann kom
frá skemmtigarði í Mexíkóborg í
Mexíkó.
Keiko, sem merkir „sá heppni",
vakti heimsathygli eftir að hann
var notaður í myndinni „Frelsið
Willy“. Myndin fjallar um lítinn
dreng, sem bjargar hval úr
skemmtigarði í eigu óprúttinna
glæframanna.