Morgunblaðið - 17.02.1998, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 23
ÚR VERINU
Tvö þús-
und vinnu-
stundir
í nótina
EITT færeyskt loðnuskip,
Saksaberg, er komið á miðin.
Það kom til Seyðisljarðar fyrir
helgina til að takA nót, sem
sett var upp hjá Fjarðarneti á
Seyðisfirði. Það telst til tiðinda
að nætur séu settar upp hér á
landi og ekki síður að svo sé
gert til útflutnings.
Um 2.000 vinnustundir hafa
farið í uppsetningu nótarinnar
og kostar hún uppsett um 16
milljónir króna. Þetta er
grunnnót, 50 faðmar á dýpt og
185 faðmar að lengd. Efnið í
nótina kemur frá Morenot í
Noregi, sem jafnframt er sam-
starfsaðili Fjarðarnets.
Björn Asgeirsson, verkstjóri
hjá fyrirtækinu, teiknaði nót-
ina.
--------------
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
FÆREYSKA loðnuskipið Saksaberg kom til Seyðisfjarðar fyrir helgi til að sækja loðnunót,
sem sett var upp hjá Fjarðarneti hf.
Lítill afli
í janúar
FISKAFLINN í janúar síðastliðn-
um varð 60.000 tonnum minni en í
sama mánuði í fyrra. Minna veidd-
ist af öllum helztu nytjategundun-
um, en mestu munar um loðnuna.
Aðeins 10.500 tonn af loðnu bárust
nú á land, en tæplega 57.900 tonn í
fyrra. Þá veiddust aðeins 6.400
tonn af síld sem er um helmingur
þess sem veiddist í janúar í fyrra.
Þorskafli í janúar varð tæp
16.000 tonn, sem er um 400 tonnum
minna en í fyrra og var bátaflotinn
drýgstur í þeim gula með um 9.000
tonn, togarar voru með um 3.800
og smábátar 3.100. Botnfískaflinn
varð samtals 26.800 tonn á móti
30.000 tonnum í fyrra og mestur
samdráttur í karfaveiðum. Nú
veiddust aðeins 2.250 tonn, en tvö-
falt meira í fyrra. Mikill samdrátt-
ur varð einnig í úthafsrækjuveið-
um. Nú bárust tæplega 1.800 tonn
á land, en rúmlega 3.200 tonn í
fyrra.
Sé litið á fiskveiðiárið, sem hófst
íyrsta september, er einnig um
samdrátt í afla að ræða. Alls hafa
veiðzt 429.000 tonn nú, en 486.500
tonn í fyrra. Minna hefur veiðzt af
öllum helztu tegundunum nema út-
hafsrækju. Mestu munar um meira
en 30.000 tonna samdrátt í síldar-
afla, en úthafsrækjuaflinn er nú
orðinn um 24.700 tonn á móti
21.500 tonnum.
Aðalfundur
Aðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hf. vegna
starfsársins 1997 verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu
þann 3. mars n.k. og hefst kl. 15.00.
Dagskrá fundarins samkvæmt samþykktum félagsins er þessi:
1. Skýrsla stjómar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
2. Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvemig fara
skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
3. Kosning stjómar félagsins.
4. Kosning endurskoðanda.
5. Breytingar á samþykktum: Grein 2.01. Orðalagsbreyting vegna hluta.
Grein 5.01. Breyting til samræmis við hlutafjárlög um rétt hluthafa til
að óska eftir hlutfalls- eða margfeldiskosningum við stjómarkjör.
6. Önnur mál, sem borin hafa verið löglega fram, eða sem fundurinn
samþykkir að taka til meðferðar.
Tillögur um breytingar á samþykktum og ársreikningur
félagsins ásamt skýrslu stjórnar og endurskoðenda
mun liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til
sýnis 7 dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við
upphaf fundar.
SÖLUMIÐSTÖÐ
HRAÐFRYSTIHÚSANNA HF
fíomdu
elskunni
pinni u
Ovurt...
oo harou
gjOfina OOiuvfsi!
NÝ NÁTTÚRULEG
SNVRnVÖRULÍIMA
FYRIR DÖMUR OG HERRA
afsláttur
í nokkra daga
LYFJA
Lágmúla 5
FLUGLEIÐIR
Traustur íslenskur ferðafélagi