Morgunblaðið - 17.02.1998, Page 26

Morgunblaðið - 17.02.1998, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Þorpsbúar myrtir í Litháen ÁTTA saklausir borgarar þorpsins Drauchiu í Litháen, um 50 km norður af höfuðborg- inni Vilnius, féllu síðdegis á sunnudag fyrir hendi byssu- manns sem virtist hafa ætlað að drepa alla nági'anna sína. Morð- inginn, Leonard Zavistanovitsj, var síðan barinn til dauða af mönnum sem tókst að afvopna hann. Fórnarlömb mannsins voru fjórar konur og fjórir karl- ar, á aldrinum 17-65 ára. „Mér var mjög brugðið við fréttina af harmleiknum í Drauchiu,“ sagði Algirdas Brazauskas, forseti landsins, í gær. „Þessi hræði- legi glæpur sti-íðir gegn hefðum lands vors og grundvallarregl- um siðmenntaðs samfélags." Dauðadæmd- ur á lífsvon ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL í Iran, sem dæmdi þýzkan kaup- sýslumann fyrir skömmu til dauða fyrir að hafa átt vingott við íranska konu, hefur ekki síð- asta orðið varðandi örlög hins dæmda. Þetta sagði æðsti yfir- maður íranska dómskerfisins, Ayatollah Mohammed Yazdi, á fréttamannafundi í Teheran í gær. Þjóðverjinn, Helmut Hofer frá Hamborg, áfrýjaði dómnum yfir sér, en samkvæmt honum átti hann að grýtast til dauða. Belgar mótmæla ÁÆTLAÐ var að um 25.000 manns hafi á sunnudag tekið þátt í þögulli kröfugöngu fyrir utan dómhúsið í Brussel, þar sem Belgar mótmæltu meintu aðgerðaleysi dómskerfisins við að upplýsa morð á tugum barna og unglinga í Belgíu á síðustu árum. Skipuleggjendur voru foreldrar og ættingjar bai-na sem hafa horfið sporlaust og að- standendur annarra Belga, hverra morð hafa ekki verið upplýst. Vinnuvikan í 30 stundir HERBERT Mai, forseti stærsta verkalýðsfélags Þýzka- lands, ÖTV, lýsti því yfir í gær að stefna bæri að því að stytta vinnuvikuna í 30 stundir, sem lið í aðgerðum gegn atvinnuleysi. Gert ráð fyrir falli allt að fimmtán hundruð Iraka Washington, Bagdad. Reuters. Daily Telegraph. HENRY Shelton hershöfðingi, höf- undur hemaðaráætlunar sem hugs- anlega verður beitt gegn Irak, hefur beðið bandaríska ráðamenn að vera viðbúnir því að hernaðaraðgerðhTiar gætu leitt til falls 1.500 óbreyttra ír- askra borgara og hermanna ásamt „nokkrum fjölda“ bandarískra flug- manna. Hann sagði að við undirbún- ing loftárása væri gífurleg áhersla lögð á að „hitta það sem hæfa bæri“. Að sögn þingmanna öldungadeildai' Bandaríkjaþings er það forgangs- verkefni vamarmálaráðuneytisins að komast hjá því að atburður á við árás- ina á A1 Firdos neðanjai-ðarbyrgið í Bagdad í Persaflóastríðinu endurtaki sig. Bandai-iska leyniþjónustan (CIA) hafði réttilega komjst að því að þar var njósnahreiður Iraka en vissi þó ekki um að þangað hafði aukinheldur verið stefnt óbreyttum borgumm í stríðinu. Fómst a.m.k. 204 manns er risasprengja hæfði byrgið. Heimildir í Washington herma að í upphafi standi væntanlegar loftárás- ir á Irak í þrjá til fimm daga og að farnar verði um 300 sprengjufiug- ferðir á sólarhring. Gera megi ráð fyrir að lagt verði upp skömmu eftir miðnætti og að sex torséðar omustu- þotur, sem nú era í Kúveit, yrðu undanfarar. Ber hver þeirra nokkrar þúsund kílóa sprengjur sem beint yrði að mannvirkjum þai' sem talið er að stjóm Saddams Hússeins feli eitur- og lífefnavopn og loftvamar- stöðvum. I kjölfar torséðu flugvélanna kæmu svo EA-6B og FA-18 omustu- þotur af flugmóðurskipum á Persaflóa. Þá yrði Harm-flugskeyt- um skotið á ratsjárstöðvar. Enn- fremur er ráðgert að senda B-52 sprengjuvélar búnar leysistýrðum GBU-28 „byrgjakljúfum“ frá herstöð í Missouri í Bandai'íkjunum. F-15E þotur geta borið þær einnig en þess- ar sprengjur leita djúpt í jörð eða langt inn í viðkomandi mannvh'ki áð- ur en þær springa. Meðal skotmarka em 170 svonefndar forsetahallh' og rafveitukerfi. Einnig herstöðin í Tik- rit, virki Saddams, og herflugvellirn- ir í A1 Asad, A1 Taqaddum og Balad. Óljóst er hvort flugvélunum er ætlað að varpa nýjum sprengjum sem eiga að geta kveikt í og brennt eiturefni. Sömuleiðis hefur banda- ríski flotinn yfh' að ráða sprengjum sem einangra byrgi frá umhverfinu um leið og þau hrynja og leggjast saman við sprenginguna. Óvíst er að þess þurfi því sérfræðingar segja að hylki með bakteríum í næringar- vökva myndu eyðileggjast sam- stundis og hefðbundnar sprengjur eyðilegðu mannvirkin sem þau væru geymd í. Komu vopnum undan til Súdans, Jemens og Líbýu Yossef Bodansky, formaður nefndar fulltrúadeildar Bandaríkja- þings um hryðjuverk og óvenjubund- inn hernað, skýrði frá því um helgina að komið hefði í ljós að írakar hefðu komið hluta gerðeyðingarvopna sinna undan til arabaríkja sem þeir njóta samúðar hjá. Hefðu þeir sent um 400 Seud-flaugar, sem borið geta eitur- eða sýklavopn, til Súdans og Jemens eftir innrásina í Kúveit í ágúst 1990. Sömuleiðis réðu þeir vegna sérstakra samstarfsverkefna við Súdani og Jemena yfir þekkingu og tækni til framleiðslu gerðeyðinga- vopna af því tagi. Niðurstöður þess- ar sagði Bodansky byggjast á upp- lýsingum sem fengist hefðu hjá ar- abískum andspyrnuhreyfingum og leyniþjónustum Bretlands, Þýska- lands og Israels. í nýjasta hefti bandaríska viku- ritsins U.S. News and World Report er því haldið fram að írakar hafi komið kjarnavopnum undan til geymslu í Alsír, en utanríkisráðu- neytið þar í landi sagði þá frétt „hug- arburð" frá rótum. Reuters BANKASTARFSMAÐUR í Jakarta tekur við stafla af rúpíum til inn- lagnar í ríkisbankann í gær. Víðtæk andstaða við umbótaáætlun Suhartos Singapore, Jakarta. Reuters. ASÍSKIR gjaldmiðlar urðu í gær fyrir barðinu á sveiflum á gengi indónesísku rúpíunnar vegna auk- innar andstöðu á alþjóðavettvangi við áætlanir þarlendra stjórnvalda um að koma á gjaldeyrisbindingu með svonefndu gjaldeyrisborði. Rúpían féll í verði gagnvart Banda- ríkjadollar í gær í kjölfar þess að bandarískir fjárfestingabankar seldu dollara. Þótt stöðugleiki hafi komist á gengi rúpíunnar áður en yfir lauk í gær telja fjármálasérfræðingar að útlitið sé dökkt vegna óróa í þjóðfé- laginu, væntanlegs kjörs Jusufs Habibies til embættis varaforseta og sífelldrar gagnrýni á fyrirætlan- ir um að binda gengi rúpíunnar við gengi Bandaríkjadollars. Um helg- ina bárust fregnir af því að Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn (IMF) hefði hótað að draga til baka fjárhagsað- stoð við Indónesíu ef gjaldeyris- borðinu yrði komið á. Fyrir helgi ræddi Suharto forseti við bandaríska hagfræðinginn Steve Hanke, einn helsta hug- myndasmið gengisborðsins sem komið hefur verið á í nokkrum löndum. Hanke sagði Suharto fylgj- andi hugmynd sinni um fastbind- ingu rúpíunnar. Gengisborð er eins konar gang- virki til að fastbinda gengisskrán- ingu þannig að gjaldeyrisvarasjóð- ur ríkis, í þessu tilviki Indónesíu, sé ætíð jafnmikill og peningar í um- ferð, í þessu tilviki rúpíur. Frétta- skýrendur segja líklegt að rúpían verði bundin Bandaríkjadollar á genginu fimm til sex þúsund. Gengi rúpíunnar fór niður fyrir tíu þúsund gagnvart dollar á mörk- uðum í gær og voru miðlarar var- færnir af þeim sökum. „Við viljum ekki sitja uppi með eitthvað um 10 þúsund ef stjórnvöld festa [gengið] skyndilega við 5.000,“ hafði Reuters eftir bankastarfsmanni í Jakarta. Bandaríska dagblaðið Washington Post greindi frá því í gær að fram- kvæmdastjóri IMF, Michel Cam- dessus, hefði ritað Suharto bréf og látið í Ijósi eindræga andstöðu við áætlanir stjórnvalda, og að ef gjald- eyrisborðinu yrði komið á „við nú- verandi kringumstæður" yrði ekki hægt að halda núverandi áætlun í samskiptum IMF og Indónesíu. Gjaldmiðlar annarra Suðaustur- Asíuríkja féllu einnig nokkuð í verði í gær, en þó lítið í samanburði við rúp- íuna. Sögðu kaupmenn öðram gjald- miðlum vera að aukast þanþol gagn- vart gegni rúpíunnar. SPD reynir að kveða niður orð- róm um klofning TALSMENN þýzka jafnaðar- mannaflokksins, SPD, reyndu í gær að kveða niður orðróm um að innan flokksins sé djúpstæður ágreiningur um hver skuli fara fyr- ir kosningabaráttu flokksins fyrir kosningar í haust og etja kappi við Helmut Kohl um kanzlaraembætt- ið. Innanflokksdeilur jafnaðar- manna um kanzlaraefni þeirra, tveimur vikum fyrir þýðingarmikl- ar kosningar til þings Neðra- Saxlands, hafa glatt menn í her- búðum Kohls, en hann hyggst sækjast eftir endurkjöri til setu í kanzlarastólnum fimmta kjörtíma- bilið í röð. Imyndarsmiðir hans og aðstoð- armenn reyndu að takmarka skað- ann sem ný skoðanakönnun olli um helgina, en samkvæmt niðurstöð- um hennar eru mun fleiri af flokks- mönnum hans meðal Kristilegra demókrata (CDU) þeirrar skoðun- ar að þingflokksformaðurinn Wolf- gang Schauble væri heppilegra kanzlaraefni fyrir flokkinn en Kohl. Könnunin sýndi að 49% stuðn- ingsmanna CDU töldu Schauble, sem er bundinn við hjólastól eftir banatilræði sem honum var sýnt 1990, betri frambjóðanda en Kohl, sem 44% sögðu enn vera sinn mann. I síðustu sambærilegu könn- un í desember töldu 56% Kohl bezta kanzlaraefni flokksins en 38% Schauble. Talsmenn CDU sögðu þessa niðurstöðu ekki breyta neinu. Hver verður keppinautur Kohls um embættið fyrir hönd stærsta flokks stjómarandstöðunnar, SPD, er hins vegar ekki enn ljóst, en sú spurning heldur jafnaðarmönnum mjög uppteknum þessa dagana. Áróðursslagur milli fylkinga Áskoranir um einingu í flokknum voru áberandi í ljósvakamiðlum Þýzkalands í gær, þegar stuðnings- menn þeiira Gerhards Schröders, forsætisráðherra Neðra-Saxlands, og flokksformannsins Oskars Lafontaines héldu áfram áróðurs- slag sem staðið hefur í nokkra mánuði. SPD hefur verið í uppnámi frá Reuters GERHARD Schröder, forsætis- ráðherra Neðra-Saxlands, hlýð- ir þungur á svip á Oskar Lafontaine, formann SPD og keppinaut sinn um útnefningu til kanzlaraefnis flokksins. því fyrir helgi, eftir að hópur manna á vinstri væng flokksins spillti „vopnahléi“ sem verið hafði í gildi milli þeirra Schröders og Lafontaines er stefnumarkandi vinnuplagg vinstrimanna, þar sem efasemdum er lýst yfir því að gott gengi Schröders í skoðanakönnun- um muni skila sér í atkvæðum í haust, komst í hendur fjölmiðla. Að skýrsla vinstrivængsmanna skyldi komast í hámæli opnaði aft- ur fyrir deilur milli vinstri- og hægrivængs flokksins. Stjórnmála- skýrendur telja að stuðningsmenn Lafontaines hafi lekið skýrslunni í því skyni að grafa undan Schröder, sem vill færa stefnu SPD nær miðjunni og meira í átt til vinsam- legs samstarfs við athafnalífið. Skoðanakannanir hafa ítrekað sýnt að SPD sé líklegri til að vinna sigur yfir CDU ef Schröder er kanzlara- efni flokksins frekar en Lafontaine. Hvor þeirra það verður kann að ráðast í kosningunum í Neðra- Saxlandi 1. marz, en Schröder hef- ur lýsti því yfir að tapi hann meira en tveimur prósentustigum frá síð- ustu kosningum sé hann úr leik í keppninni um útnefningu til kanzl- ai’aefnis. Um miðjan marz hyggst svo SPD loks taka af skarið um út- nefninguna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.