Morgunblaðið - 17.02.1998, Side 37

Morgunblaðið - 17.02.1998, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 37 fræðina í skólanum. „Við helguðum eina stoíuna stærðfræði og söfnuð- um tölvunum saman í henni og ýmsu öðrum sem tilheyrir kennsl- unni,“ segir hún og að hlutbundin kennsla fari fram þar. Búðarhorn er í stofunni og geta nemendur sett upp tilbúna verslun og reiknað vörur á ýmsan máta. Einnig hefur skólinn verið að festa kaup á sérstökum legókubbum sem eru hannaðir sem kennslu- tæki. Kubbamir heita dacta og fylgja kennsluleiðbeiningar sem nemendur nota til hliðsjónar. Nemendur voru við ýmsa iðju í stofunni þegar Morgunblaðið heimsótti þá. Nokkrir voru að setja saman farartæki úr legókubbunum og að reikna áhrif hjólastærðar á hraða. Aðrir sátu við tölvuskjái og gátu valið sér stærðfræðiforrit. Tvær stúlkur voru í slönguspili, aðrar tvær í tölvubúðarleik sem kennir og æfir nemendur í metra- kerfinu. Tölvukarl vildi kaupa 2 km af neti og hann fékk það ekki af- greitt fyrr en nemendur höfðu reiknað út fjölda metra, þannig gengur það áfram eftir ýmsum mælieiningum og alltaf þarf að breyta í metra. f stærðfræðistofunni í Álftanes- skóla voru tíu ára nemendur að reikna ýmislegt sem hefðbundið er að kenna eldri krökkum. Alftanesskóli leggur sérstaka áherslu á stærðfræði en í skólanum eru 220 nemendur og 17 kennarar. í annarri stofu í skólanum voru 12 ára nemendur að glíma við pró- sentureikning með kennara sínum Svövu Rós Sveinsdóttur og voru þau með glænýtt kennsluefni frá Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar sem einungis er leyfi til að nota til til- raunar í Hafnarfirði og nágrenni. Það er byggt á efni frá Freundent- halstofnuninni og Wisconsin-há- skólanum. Skemmtilegur prósentureikningur Hugmyndafræðin á bak við námsefnið er eins og áður að tengja dæmin lífi barna, gefa þeim valmöguleika og láta þau tjá niður- stöður sínar með orðum, því efast má um að fólk skilji það sem það getur ekki útskýrt. „Hvers vegna?“ er nefnilega mikilvæg spuming. Dæmin gefa þeim einnig færi á að uppgötva aðferðirnar sjálf og fyrir vikið verður námið dýpra, að mati kennara þeirra. „Þau sýna þessu mikinn áhuga og eru dugleg í tím- um,“ segir Svava Rós. „Þetta er gaman, ekki svo erfitt,“ segir Alti Þór Asgeirsson nemandi hennar. Þennan fostudag, 13. febrúar, voru þau að glíma við dæmi um fjölnotasal í Hólaskóla. Salurinn rúmar ýmsar uppákomur og eru sumar vinsælli en aðrar. Þrennt er nefnt til að byrja með; popptónleik- ar, sögulegt leikrit og tískusýning. Myndarammar eru sýndir og svo stendur: „Merktu inn á myndirnar hér og sýndu hve mörg prósent salarins þú heldur að verði upptek- in á hverri samkomu." Svo heldur dæmið áfram á næstu síðum og nemendur eru beðnir um að út- skýra svör sín líka. Nýja kennsluefnið virðist vera laust við að vera leiðinlegt eins og því staðlaða hættir til að verða. Stærðfræði og mannkynið Reiknað er með að ef starf kenn- ara með breytta stærðfræði- kennslu heppnast og með nýrri að- alnámskrá að viðhorfið til stærð- fræði verði nýtt. í tillögum for- vinnuhóps að endurskoðaðri námskrá stendur m.a. um loka- markmið stærðfræðináms: „Að nemandi hafi öðlast jákvætt við- horf til stærðfræðinnar; sér i lagi að hann geri sér grein fyrir nyt- semi hennar, bæði fyrir sjálfan sig og aðra; hafi sjálfstraust til að takast á við skilning stærðfræði- legra hugtaka og lausn stærðfræði- legra verkefna; kunni að meta skemmtigildi stærðfræðinnar; geri sér grein fyrir mikilvægi stærð- fræðinnar fyrir þjóðfélagið og mannkynið í heild.“ Morgunblaðið/Ásdís Framhaldsskólanemar þurfa að fylla skólatöskurnar í ágústmánuði. Kennsla hefst í ágúst FRAMHALDSSKÓLAR verða almennt settir 20. ágúst í haust og reiknað er með að kennsla hefjist 24. sama mánaðar. Þetta er gert til að jafna haustönn og vor- önn í skólastarfinu og er í samræmi við kjarasamninga framhaldsskólakennara. Bæði Menntaskólinn í Kópavogi og Fjölbrautaskól- inn við Armúla verða settir 20. ágúst og eiga nemendur að sækja stundatöflur þá, en kennslan hefst svo í þessum skólum á mánudeginum. Bogi Ingimarsson aðstoðar- skólastjóri FÁ segir að byrj- að sé að búa nemendur undir þessa breytingu. Fyrirhugað er að skóla- starfínu á vorönn ljúki fyrr af þessum sökum, en breyt- inguna þarf að hafa í huga þegar sumarfrí er skipulagt og einnig sumarvinna. PHILIPS á lágu verði 69.900 PHILIPS 28" sjónvarp rmura myndbandstæki a SÆTUN8 SIMI 569 1500 http.//www.ht.l s Umboðsmenn um land allt Philips PT4423 er nýtt 28" gæða sjónvarpstæki á ótrúlegu verði. Philips PT4423: Nicam Stereo Blackline D myndlampi Einföld og þægileg fjarstýring íslenskur leiðarvísir Gerðu hörðustu kröfur til heimilistækja. Fjárfestu í Philips! 27.900 Tveggja hausa myndbandstæki frá Philips á sérlega hagstæðu verði. Einfalt í notkun og áreiðanlegt. íslenskur leiðarvísir. PHILIPS fhrCll -alltaf ódýrast hjá okkur! Heimilistæki hf Œ BHÆGJUflBYRGÐ Sé kaupandi ekki ánægður með vöruna má hann skila [? j hennl Innan 10 dagal

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.