Morgunblaðið - 17.02.1998, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
Líflegt hjá
• Húnvetn-
ingum
HESTAMENNSKAN í
Húnvatnssýslum er með
líflegasta móti um þessar
mundir. A Þingeyrum þar
sem hjónin Helga
Thoroddsen og Gunnar
Ríkharðsson reka hesta-
miðstöð er boðið upp á
fjölbreytta dagskrá af
fræðslu og skemmtiefni
fyrir hestamenn. Er þar
um að ræða ýmiskonar
námskeið og kennslu og
keppni og sölusýningu.
Námskeiðin flest hver eru
samvinna Þingeyrarbúsins
og Hólaskóla en sölusýn-
ingin er í samvinnu við
hrossabændur í Austur-
Húnavatnssýslu.
Dagskráin hófst um síð-
ustu mánaðamót með helg-
arnámskeiði með Benedikt
Þorbjörnssyni sem kallast
sýningar og keppnisþjálf-
un og spannar þrjár helg-
ar. Onnur helgin verður 6.
til 8. mars og námskeiðinu
lýkur helgina 24. til 26.
apríl. Magnús Lárusson
byrjaði fyrstu helgina í
febrúar með frumtamn-
inganámskeið sem kallast
„Samspil manns og hests“
og um næstu helgi verður
hann á Þingeyrum þar sem
mönnum stendur til boða
að koma með með hross
A sem hann reynir og ráð-
leggur varðandi þjálfun og
tamningu.
Fyrsta mótið af þremur
verður svo haldið í reið-
skemmunni á Þingeyrum
28. febrúar þar sem keppt
verður um farandbikar.
Sölusýningin verður á
skírdag 9. apríl og úrtaka
fyrir reiðhallarsýningu 18.
til 19 apríl. Að síðustu
verður boðið upp á reið-
námskeið fyrir börn og
unglinga í A-Hún. Sem
sagt í nógu að snúast hjá
húnvetnskum hestamönn-
um það sem eftir lifir vetr-
* ar og fram á vor.
Murneyrar-
mótið flutt
fram í júní
MÓTASKRÁ sem nýlega
var birt í hestaþætti inni-
hélt meinlega villu sem
nauðsynlegt er að leiðrétta.
Þar segir að hestamót
Smára og Sleipnis verði
haldið 24. til 25. júlí sem _
ber upp á sömu helgi og Is-
landsmótið sem haldið
verður í ár að Æðarodda
við Akranes. Þetta er ekki
rétt, því Murneyrarmót
þeirra Sleipnis og Smára-
manna verður haldið helg-
ina 27. til 28. júní.
Samkvæmt heimildum
hestaþáttar eru þessir aðil-
ar að hugleiða alvarlega að
flytja Murneyrarmótin al-
farið á þennan tíma því
þetta er ekki í fyrsta sinn
sem íslandsmót eru sett of-
_. an í Murneyrarhelgina sem
löng hefð er fyrir. Það eina
sem menn eru hræddir við
er að mótssvæðið sem er á
bökkum Þjórsár verði ekki
alltaf í nothæfu ástandi eft-
ir flóð árinnar í vorleysing-
um á þessum tíma.
Valdiraar Kristinsson
Hægri
umferð
í hesta-
mennsk-
unni
MorgunblaðiðA^ aldimar Kristinsson
SIGRÚN Sigurðardóttir reiðkennari hefur getið sér gott orð í reiðkennslu barna og unglinga og hefúr hún ver-
ið ráðin til Harðar í vetur og mun fylgja þeim krökkum, sem hyggjast keppa í vor og sumar, fram yfir landsmót.
fþrótta- og tómstundaskóli Mosfellsbæjar
Hestamennska liður
í forvarnarstarfi
MIKIÐ líf er í hestamennskunni í
Mosfellsbænum þessa dagana. Ekki
síst hjá bömum og unglingum. Fyrir
skömmu hófust reiðnámskeið fyrir
6-9 ára böm á vegum Iþrótta- og
tómstundaskóia Mosfellsbæjar og
era þau liður í að kynna bömum í
þessum aldursflokki sem flestar
íþrótta- og tómstundagreinar. Til-
gangurinn með starfínu er að auð-
velda börnunum að velja sér tóm-
stundaíþrótt við 10 ára aldur. Gerður
var samstarfssamningur við ýmis fé-
lög og samtök í bænum, þar á meðal
hestamannafélagið Hörð. Að sögn
Sigurðar Guðmundssonar íþróttafull-
trúa í Mosfellsbæ felst í samningnum
viðurkenning á barna- og unglinga-
starfi félagsins. Þar segir m.a.:
„Samningi þessum er ætlað að efla
samstarf milli bæjaryfirvalda í Mos-
fellsbæ og hestamannafélagsins
Harðar og tryggja öflugt gæðakerfi í
íþrótta- og tómstundastarfi fyrir
böm og unglinga í Mosfellsbæ sam-
kvæmt stefnu bæjaryfirvalda þar
um. Er samningnum ætlað að
tryggja enn frekar starfsemi félags-
ins enda er bæjarstjóm Mosfellsbæj-
ar þeirrar skoðunar að það sinni öfl-
ugu og viðurkenndu forvarnarstarfi.“
í samningnum er einnig ákvæði
um að félagið skili inn skýrslu um
starfið og geri það sýnilegt fyrir íbúa
Mosfellsbæjar. Gert er að skilyrði að
góðir og vanir þjálfarar sjái um starf-
ið í öllum íþróttagreinunum og hefur
Sigrún Sigurðardóttir reiðkennari
verið ráðin til að sjá um námskeið í
hestamennsku.
Sigurður segir að litið sé á þetta
starf sem fyrsta skrefið í forvamar-
starfi fyrir börn og unglinga og
greiðir bærinn námskeiðin niður.
Þannig þai-f hver þátttakandi að
greiða 2.500 krónur fyi-ir fjóra mán-
uði. Bæjaryfirvöld verja á þessu ári
um 1,5 milljónum króna til starfsins.
Námskeiðin hófust í byrjun janúar
sl., fyrst í skák, fimleikum og bolta-
íþróttum og fyrir rúmri viku hófust
námskeið í hestamennsku og körfu-
bolta.
„Stefnan er sú að það verði jafn
sjálfsagt að stunda íþrótta- og tóm-
stundastarf eins og að ganga í skóla,“
sagði Sigurður. „Sem dæmi má nefna
að þau börn sem byrja að kynnast
hestamennskunni núna 6 ára geta
farið aftur á námskeið á hverju ári til
9 ára aldurs og þegar þau eru 10 ára
eiga þau auðveldara með að gera upp
við sig hvort þetta sé tómstundagrein
sem hentar þeim. Með því að kynnast
jafnframt fleiri greinum ætti það að
auðvelda þeim valið.“
Guðný Ivarsdóttir formaður hesta-
mannafélagsins Harðar sagði að mik-
ill áhugi væri á námskeiðum þessa
dagana og mikið um að vera. Nám-
skeið fyrir börn og unglinga hafa
aldrei verið jafn vinsæl og núna. Sig-
rún Sigurðardóttir hefur, auk þess að
vera með námskeiðin á vegum
íþrótta- og tómstundaskólans, verið
ráðin til að halda námskeið fyrir ung-
linga á vegum félagsins. Milli 50 og
60 vora búnir að skrá sig, en eftir að
námskeiðin hófust bættust enn fleiri
við. Krökkunum er skipt niður í hópa
eftir getu, allt frá byrjendum upp í
keppnisfólk og hefur verið ákveðið að
Sigrún muni þjálfa keppnisfólkið
áfram og fylgja því fram yfir lands-
mótið í sumar.
„Það er mikil vakning hjá Herði og
um 80 nýir félagar hafa bæst við á
nokkrum mánuðum, stór hluti þeirra
er ungt fólk. Félagar era því að nálg-
ast 500,“ sagði Guðný. Aðspurð um
skýringu sagðist hún ekki vita með
vissu hvað væri á ferðinni, en líklega
væri fólk ánægt með það sem verið
væri að gera.
En félagar í hestamannafélaginu
Herði era ekki eingöngu úr Mosfells-
bæ, heldur einnig af Kjalarnesi og úr
Kjósinni. Félagið hefur boðið ungu
fólki þaðan að sækja hestana þess á
hestaflutningabíl og flytja þá í Mos-
fellsbæinn til að komast á námskeið
og njóta aðstöðunnar sem er mjög
góð svo sem reiðvellir og reiðhöll auk
skemmtilegra reiðleiða. Þetta er gert
einu sinni í viku og hafa 15-16 börn
notfært sér þessa þjónustu.
Guðný sagði að félagið ætti lóð
undir félagshús og til tals hefur kom-
ið að byggja hús m.a. til að bjóða
bömum, unglingum og ellilífeyris-
þegum aðstöðu til að hafa hesta sína
þar. Enn hefur þó ekkert verið
ákveðið í þeim efnum.
AÐ GEFNU tilefni þykir full
ástæða til að taka undir ábend-
ingar sem hestaþættinum hafa
borist um að hestamönnum beri
að fylgja almennum umferðar-
reglum. I bréfi sem barst segir:
„Það gerist alltof oft að einn og
einn knapi komi á þeysireið á
vinstri helmingi reiðvega og
splundri allt að 10 manna
(hesta) höpi sem virðir lög og
reglur og ríða á hægri helmingi
reiðvegar. Þessir vinstri sinn-
uðu knapar eiga það svo til að
bölsótast og formæla þeim sem
ekki víkja undan yfirgangi
þeirra.“
I framhaldinu má vitna hér í
nokkrar greinar gildandi um-
ferðarlaga. í 3. gr. segir meðal
annars: „Ákvæði um umferð
ökutækja gilda, eftir því sem
við á, einnig um reiðmenn." og
áfram í íjórðu grein: „Vegfar-
andi skal sýna tillitssemi og
varúð svo eigi leiði til hættu
eða valdi tjóni eða óþarfa
óþægindum og þannig að eigi
trufli eða tefji umferð að
óþörfu. Að síðustu segir í 14.
gr. „Ökumaður skal vera með
ökutæki sitt eins langt til hægri
og unnt er með tilliti til annarr-
ar umferðar og aðstæðna að
öðru Ieiti.“ og rétt er að minna
á að þetta gildir einnig um
reiðmenn og reiðskjóta þeirra.
Einnig má minna á að það eru
rúmir þrír áratugir síðan
breytt var yfir í hægri umferð
á Islandi en ætla má að í hug-
um alltof margra hestamanna
hafi þessi breyting ekki náð
fram að ganga.
Valdimar Kristinsson
MorgunblaðiðA^aldimar Kristinsson
TAMNINGMAÐURINN kunni Elías Þórhallsson réðst á haustdögum í byggingu á nýju tuttugu hesta húsi á
Varmárbökkum og tók inn um miðjan janúar. Húsið er hið glæsilegasta að allri gerð. Eins og tveggja hesta
stíur, flugrúmar og eikarklæddar eins og vinsælt er um þessar mundir og mun fara vel um hrossin í þessu.
Að vísu mun rétt vera að Elías byggði heila lengju og var gert ráð fyrir tólf hesta húsi í endanum sem hann
hyggst jafnvel selja. Elías og kona hans Kolbrún Haraldsdóttir eru að vonum ánægð með húsið sem að vísu er
ekki fullfrágengið að innan og eru þau hér ásamt syni sínum Sigurði sem situr gæðinginn Vála frá Nýjabæ.
NÝ OG ENDURBÆTT hesthús hafa
verið vígð eða tekin í notkun með við-
höfn á undanförnum mánuðum.
Eysteinn Leifsson og faðir hans Leifur
Jóhannesson skiptu úr átta hesta húsi í
ríflega tuttugu hesta hús á Varmár-
bökkum í Mosfellsbæ. Með þeim á mynd-
inni er eiginkona Leifs og móðir Ey-
steins, María S. Gísladóttir og unnusta
hans, Guðleif B. Leifsdóttir, en myndin
var að sjálfsögðu tekin í vígsluteiti sem
þau héldu vinum og velunnurum í til-
efni vistaskiptanna.