Morgunblaðið - 17.02.1998, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 45
MINNINGAR
höndum bar. Er við rifjum upp
minningar sem hugurinn geymir,
birtist ástúð þín til alls sem lifir og
gefur tilverunni gildi sitt. Aldrei
heyrðist þú halla á nokkra mann-
eskju í orði. Þú dróst fram það
besta hjá hverjum og einum. Þótt
vegferð þinni sé lokið í þessum
heimi, standa verk þín eftir og hin
órjúfanlega tryggð, sem varðveitist
í minningunni og er það huggun
harmi gegn. Við vottum Valda,
börnum ykkar, tengdabörnum og
afkomendum dýpstu samúð og
biðjum Guð að styrkja þau í sorg-
inni.
W Drottinn, átt það allt,
sem öðlumstvér á jörð.
Hver gjöf og fóm, sem færum vér,
er fátæk þakkargjörð.
(Sigurbjöm Einarsson.)
Við þökkum þér, elsku systir,
mágkona og frænka, fyrir ógleym-
anlegar samverustundir. Guð
blessi minningu þína.
Gísli, Guðbjörg og börn.
Með nokkrum fátæklegum orð-
um vil ég minnast föðursystur
minnar, Sigríðar Guðbrandsdóttur,
sem er látin eftir stutta sjúkdóms-
legu.
Aður er farin einn föðurbróðir
og einn móðurbróðir úr stórum
hópi fóður- og móðursystkina
minna og nú Sigga frænka. Þetta
fólk sem maður man frá fyrstu tíð
og hefur alltaf verið til staðar og
borið okkur börnin sín og síðan
barnabörn á höndum sér. AJlmörg
síðari ár hafa Sigga og Valdi komið
í sumarbyrjun til okkar í Borgar-
nes til að fara í kirkjugarðinn og
hlúa að þeim leiðum er að okkur
standa. Sigga hafði orð á því í
fyrra að yngri kynslóðin þyrfti að
taka við, þau hin væru farin að lýj-
ast.
Sigga mín, nú skal ég taka við og
reyna að hafa natni þína og alúð að
leiðarljósi.
Hún Sigga var glæsileg kona og
hún var góð frænka. Þannig mun
ég minnast hennar. Hafðu þökk
fyrir allt og allt.
Sigríður Helga.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför, bróður okkar, mágs og fraenda,
SIGURFINNS KLEMENZSONAR,
Vestri -Skógtjörn,
Álftanesi.
Fyrir hönd vandamanna,
Guðlaug Klemenzdóttir,
Sveinn Klemenzson,
Sigurður Klemenzson, Sigurrós Grímsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður
minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUNNHILDAR JÓNSDÓTTUR,
áðurtil heimilis
í Háagerði 57,
Reykjavík,
Guðrún Yrsa Sigurðardóttir, Jón Tómas Erlendsson,
Sigurður Jónsson, Rebekka Gylfadóttir,
Inga Dröfn Jónsdóttir,
Gunnhildur Jónsdóttir,
Kristín Dögg og Jón Tómas.
Frágangur afmælis-
og minningargreina
MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun-
inni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg íyrir tvíverknað. Þá
er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvu-
pósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu,
ekki sem viðhengi.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali era
nefndar DOS-textaskrár. Þá era ritvinnslukerfin Word og WordPerfect
einnig nokkuð auðveld úrvinnslu.
Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-
4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25
dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt
til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinunum.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auösýndu okkur samúð og vinarþel
vegna andláts og útfarar
HREINS STEINGRÍMSSONAR,
Holtsgötu 41,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á deild L-1 Landakotsspítala.
Þóra Hreinsdóttir og dætur,
Steinþór Steingrímsson,
Sigurður Örn Steingrímsson,
Sigrún Steingrímsdóttir.
A TILBOÐI
LEMnfinirfl
TIL ALLT AÐ 36 MÁNABA
LEGSTEINAR
Graníl
HELLUHRAUN 14
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2707
10-30% afsláttur
ef pantað er
í febrúar.
15% afsláttur
af skrauti.
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Matreiðslumaður
Okkurvantar vanan matreiðslumann til okkar
á veitingahúsið Rána í Keflavík. Þarf að geta
byrjað í apríl. Getum útvegað 3ja herb. íbúð.
Upplýsingar í síma 421 4601.
Bifvélavirkjar
Óskum eftir að ráða bifvélavirkja eða menn
vana þungavélaviðgerðum.
Einnig óskast vanir „trailer"-bílstjórar.
JVJ verktakar,
sími 555 4016.
Laust embætti
er dómsmálaráðherra veitir.
Embætti varalögreglustjóra i Reykjavík er laust
til umsóknar.
Embættið verður veitt frá 1. apríl 1998.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu, Arnarhváli, fyrir 15. mars 1998.
Umsóknir þar sem umsækjandi óskar nafn-
leyndar verða ekki teknar gildar.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
13. febrúar 1998.
Starfskraftur
óskast í bíó
Góð manneskja óskast í sælgætis- og miðasölu
í bíó í Reykjavík.
Umsóknir óskast sendar á afgreiðslu Mbl.
merktar: „Bíó — 3511".
Lögreglumenn
— laus staða
Staða lögreglumanns við embættið er laus
til umsóknar. Umsækjendurskulu hafa lokið
námi við Lögregluskóla ríkisins.
Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að gegna
tollgæslustörfum.
Laun fara eftir kjarasamningi fjármálaráðhera
f.h. ríkissjóðs og Landssambands lögreglu-
manna.
Umsóknum verði skilað fyrir 1. mars nk. til
undirritaðs, Suðurgötu 8, Seyðisfirði, sem gef-
ur nánari upplýsingar. Skipað verður í stöðuna
frá og með 1. apríl 1998.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði,
17. febrúar 1998.
FJÓHÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
A AKUREYRI
Sjúkraþjálfarar
Sjúkraþjálfari óskast til starfa við öldrunar-
lækningadeild FSA, Kristnesspítala. Um er að
ræða stöðu yfirsjúkraþjálfara 4. Laun eru sam-
kvæmt kjarasamningi sjúkraþjálfara í ríkisþjón-
ustu. Starfshlutfall er 100%. Starfið veitist frá
1. júní eða eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 15. mars.
Umsóknir sendist yfirsjúkraþjálfara, Lucienne
ten Hoeve, sem jafnframt veitirfrekari upplýs-
ingar í síma 463 0844 eða 463 1387 (heima)
Öllum umsóknum um starfið verður svarað.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
— reykiaus vinnustaður —
Verðandi hjúkrunar-
fræðingar!
Okkur á Sjúkrahúsi Akraness vantar hjúkrunar-
fræðinga til starfa á
• handlækningadeild
• lyflækningadeild
• öldrunardeild
„Starfsþjálfunarár" skipulagt að óskum hvers
og eins. Aðlögun með reyndum hjúkrunar-
fræðingum. Hringið og kynnið ykkur kjörin!
Hjúkrunarfræðinemar!
Viljum ráða hjúkrunarfræðinema til starfa á
allar deildir sjúkrahússins í sumar. Hjá okkur
fáið þið góða reynslu fyrir framtíðina!
Hringið og fáið upplýsingar um hvað í boði er.
Hjúkrunarfræðingar!
Okkurvantar hjúkrunarfræðinga sem allra fyrst
á handlækningadeild og lyflækningadeild.
• Á Sjúkrahúsi Akraness fer fram mjög fjöl-
breytt starfsemi.
• í sumar þegar Hvalfjarðargöngin verða tekin
í notkun, verðuraðeins30 mín. aksturtil
Reykjavíkur.
• Þið eruð velkomin að koma og skoða stofn-
unina og fá frekari upplýsingar um starfsem-
ina.
Upplýsingar gefur Steinunn Sigurðardóttir,
hjúkrunarforstjóri, í sima 431 2311 og 431 2450
(heima).