Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Ferdinand Þetta er grein um skóla og Hér stendur að litlir Ef ég væri heima menntun ... bekkir séu betri... væri bekkurinn okkar jafnvel minni... BREF TIL BLAÐSINS Ki-inglan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Greiðum Sjöfn atkvæði okkar Frá Einari Ólafssyni: I DAG og á morgun fara fram for- mannskosningar í Starfsmannafélagi Reykjavikurborgar. Formaður fé- lagsins, Sjöfn Ingólfsdóttir, gef- ur kost á sér áfram en Grétar Jón Magnússon býður sig fram gegn henni. Þegar félagar í Starfsmannafé- lagi Reykjavíkur þurfa nú að velja milli þessara tveggja frambjóð- enda hljóta þeir að spyrja sig: Af hverju býður Grétar Jón sig fram á móti Sjöfn? Er ástæða til að lýsa yfír vantrausti á hana? Er ástæða til að taka Grétar Jón fram yfir hana? Tökum fyrst aðra spurninguna. Það er ljóst að almennt eru félagar í Starfsmannafélagi Reykjavíkur heldur illa launaðir. Forystu félags- ins hefur sem sagt ekki tekist að semja við Reykjavíkurborg um þau laun sem allir geta verið ánægðir með. En ef við lítum í kringum okkur sjáum við að þetta á almennt við um opinbera starfsmenn og yfirleitt eru þeir launataxtar sem stéttarfélögin hafa samið um alltof lágir. Hér getur ekki verið við einstaka formenn stéttarfélaga að sakast. Sjálfur hef ég verið í samninganefnd Starfs- mannafélags Reykjavíkur undir for- ystu Sjafnar við þrjá kjarasamninga. Ég var ekki fullsáttur þegar ég skrifaði undir þessa samninga en það var ekki vegna slakrar framgöngu og forystu Sjafnar. Hún er jafnháð ytri aðstæðum og aðrir. Kannanir hafa vissulega sýnt að laun félaga í St.Rv. eru að jafnaði lægri en gerist hjá mörgum öðrum sveitarfélögum. Þessi launamunur er arfur frá fyrri tíð og í allri formanns- tíð Sjafnar hefur verið unnið að því að fá þetta leiðrétt. Róðurinn hefur sannarlega verið þungur en borgar- yfirvöld hafa þó látið í Ijós vilja til að leiðrétta þennan mun og er nú í gangi vinna varðandi það. Kjarasamningar snúast ekki bara um laun og ýmislegt annað hefur áunnist. Það ber líklega hæst ákvæði um starfsmenntunarmál í kjara- samningi sem gerður var 1995. En kjarabætur nást ekki bara gegnum þessa opinberu samninga. Allt samn- ingstímabilið er verið að vinna að málum einstaklinga og einstakra hópa bæði til sóknar og vamar. Það gengur misjafnlega en þó næst ýmis- legt fram sem skiptir máli en lítið ber á. Þar reynir mikið á formanninn og mér er til efs að aðrir mundu standa sig betur við það en Sjöfn. I jafnstóru og fjölbreyttu félagi og Starfsmannafélagi Reykjavíkur er í ótal horn að líta og það fer ekki hjá því að þar megi setja út á eitthvað. En er það þess eðlis að réttlæti van- traust á formanninn? Lítum á aðra spurninguna: Er ástæða til að taka Grétar Jón fram yfir Sjöfn? Hann hefur haft sig sára- lítið í frammi í félaginu að undan- skildu framboði hans til formanns fyrir tveimur árum. Hann hefur ver- ið í fulltrúaráði félagsins en á full- trúaráðsfundum hefur hann ekki komið fram með neina bitastæða gagnrýni á störf formannsins eða forystu félagsins. Hann hefur ekki bent á neinar aðrar leiðir eða bar- áttuaðferðir og ég hef aldrei séð hann brýna félagsmenn til baráttu. Það er af hinu góða að tekist sé á um stefnu og baráttuaðferðir. Það hefur mótframbjóðandi Sjafnar ekki gert svo neinu máli skipti. Þeir sem hafa eitthvað út á störf og stefnu Starfs- mannafélags Reykjavíkur og for- manns þess að setja ættu að nota næsta kjörtímabil til að ræða það málefnalega. Fyrsta spurning mín var: Af hverju býður Grétar Jón sig fram til formanns? Það er mér alveg hulið. Ég hvet alla félaga í Starfsmannafé- lagi Reykjavíkur til að fylkja liði og greiða Sjöfn Ingólfsdóttur atkvæði sitt. EINAR ÓLAFSSON, bókavörður. Hversu lágt kemst lágkúran? Frá Jóhanni Má Hektorssyni: YFIRLEITT kippir maður sér ekki upp við karpið í stjórnmálamönnum. Kannski vegna þess að deilumálin snerta mann ekki beint. En þegar stjórnmálamaður á borð við Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur leggur á borð jafn mikla lágkúru og raunin er í umferðarmálum Grafarvogs, þá getur maður ekki orða bundist. Þessi borgarstjóri Reykjavíkur frá 1994 hefur nákvæmlega ekkert gert til að flýta fyrir úrlausn á þeirri samgöngumartröð sem Grafarvogs- hverfið er. Samt hefur hún komið á fjölda funda með íbúunum og sagst skilja vandamálið. Síðustu misserin hefur Ingibjörg Sólrún reynt að klína sökinni á Hall- dór Blöndal samgönguráðherra. En hann hefur upplýst að borgin ráði sjálf hvernig fjármunum er varið til vegagerðar í þéttbýli. Borgaryfir- völd hafa hins vegar ekki einu sinni sett Grafarvoginn á verkefnalistann. Svo einfalt er það nú. Það væri nú einu sinni stórmann- legt af Ingibjörgu Sólrúnu að viður- kenna að hún hefur enga áherslu lagt á að liðka fyrir umferðinni í Grafarvogi. Það er óttalega lágkúru- legt af henni að þykjast núna gera „tilboð“ og bjóðast til að lána ríkinu fjármuni til að gera þetta. Sjálfstæð- ismenn lögðu þetta til í borgarstjóm í fyrra, en borgarstjórinn lét fella þá tillögu. Þá bendi ég á að samkvæmt „til- boði“ borgarstjómar til ríkisins verður framkvæmdum við Gullinbrú dreift á tvö ár. Þannig verður brúin sjálf ekki tekin í notkun fyrr en á ár- inu 1999. Því verðum við Grafar- vogsbúar að sætta okkur við einn vetur til viðbótar með samgöngur í iamasessi. Alveg er það furðulegt hvað stjórnmálamenn geta stundum lagst lágt þegar styttast fer í kosningar. Em valdastólarnir virkilega þess virði að fórna sæmdinni fyrir þá? JÓHANN MÁR HEKTORSSON, Vesturhúsum 4, Reykjavik. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt i upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.