Morgunblaðið - 17.02.1998, Side 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
ÞRÖSTUR Ingimarsson og Þórður Björnsson sigruðu í tvímennings-
keppninni með miklum yfirburðum.
Glæsilegur árangur
íslensku paranna
BRIDS
Hótel Loftleiðir
BRIDSHÁTÍÐ -
TVÍMENNINGUR
136 þátttökupör - 13.-14. febrúar.
Aðgangur 200 kr.
, ÞRÖSTUR Ingimarsson og Þórð-
ur Bjömsson sigruðu með miklum
yfirburðum í tvímenningnum sem
lauk á Hótel Loftleiðum sl. laugar-
dagskvöld. Guðmundur Páll Arnar-
son og Sverrir Kristinsson urðu í
öðru sæti og Aðalsteinn Jörgensen
og Jakob Kristinsson í því þriðja.
Þetta er í 17. sinn, sem hátíðin er
haldin og hefir árangur Islendinga
aldrei verið betri í tvímenningnum.
Ef litið er á feril sigurvegaranna í
mótinu er hann afar glæsilegur og
merkilegur. Þeir byrjuðu leikinn
niðri í kjallara í fyrstu tveimur set-
unum en þá fór Monrad-fyrirkomu-
lagið að virka og þeir komust upp á
9. borð. Þaðan fóru þeir upp á 1.
borð þar sem þeir héldu sig í sömu
sætunum nær allan tímann. Til
þeirra mættu öll efstu pör keppn-
innar og flest urðu að sætta sig við
skarðan hlut eða nauman sigur.
Eftir íyrri dag keppninnar eða 10
umferðir af 23 voru Þröstur og
Þórður með 888 stig eða 66,6% skor
en Guðmundur Páll og Sverrir með
777 og 64,5% og þá strax eina parið,
sem veitti sigurvegurunum ein-
hverja keppni. Norðmennimir
Grötheim og Aa voru þá í þriðja
sætinu með 500 stig og 59,3%.
* Þeir félagar Þröstur og Þórður
héldu uppteknum hætti á laugardag-
inn, spiluðu sinn brids en þeir spila
gulrótarlaufið að undirritaður best
veit. Þeir bættu skor sína í 1.300 stig
sem þeir héldu síðustu umferðimar
og sigruðu með miklum yfirburðum.
Lokastaðan í mótinu:
Þröstur Ingimarss. - Þórður Bjpmsson 1345
GuðmundurPáIlAmars.-SvaTÍrAmiannss. 974
AðalsteinnJörgensen-JakobKristinsson 778
Glenn Grötheim - Teije Aa 659
Ólafur Lárusson - Hermann Lárusson 645
SabineAuken-JensAuken 642
Haukurlngason-JónÞorvarðarson 603
Öm Amþórss. - Guðlaugur R. Jóhannss. 544
Morten Andersen - Sören Christiansen 537
Roger Bates - Fred Hamilton 537
Ásmundur Pálsson - Sigurður Sverrisson 533
Erik Sælensminde - Boye Brogeland 522
Mikil ferð var á Aðalsteini Jörg-
ensen og Jakobi Kristinssyni í síð-
ari hluta mótsins, en þeir vom í 30.
sæti eftir fyrri daginn. Þeir mættu á
efsta borðið til Þrastar og Þórðar í
einni af síðustu umferðum mótsins.
Spiluð vom 4 spil milli para og í
spili 84 setti Þröstur mikla pressu á
Aðalstein með útspili sínu. Skoðum
spilið nánar:
Vestur
AKG962
V95
♦ K7
+8432
Norður
+ -
VKG102
♦ 1096542
+D65
Austur
+ KG962
VÁD7
♦ ÁG3
+ÁG
Suður
+ D54
¥8643
♦ D8
+K1092
Jakob Kristinsson sat í austur og
keyrði félaga sinn Aðalstein Jörg-
ensen í 6 spaða. Nokkuð hörð
slemma en Jakob þekkir handbragð
Aðalsteins.
Þá var komið að því að Þröstur
spilaði út. Hjartagosinn flaug á
borðið eftir litla umhugsun og Að-
alsteinn spurði um útspilsreglur.
„Þriðja hæsta eða annað frá brot-
inni,“ var svarið. Aðalsteinn drap á
hjartaás og lagði síðan niður
spaðakónginn. Þar með hafði hann
farið rétt í tromplitinn. Hann tók
trompin af Þórði, endaði heima,
tók tígulkóng og nú þurfti bara að
svína tígulgosa til þess að slemm-
an væri í húsi eða var það ekki
svo? Með hlutlausu útspili hefði
Aðalsteinn eflaust unnið sitt spil.
Staðan er margþekkt í bridssög-
unni. Fyrst em tveir efstu í tígli
teknir og ef drottningin kemur
ekki er hjarta svínað. Skemmtilegt
spil brids.
Einvalalið var við keppnisstjóm.
Keppnisstjórar vom Sveinn R. Ei-
ríksson, Matthías Þorvaldsson og
Stefán Jóhannsson. Reiknimeistari
var Þórir Magnússon og frú Stefan-
ía Skarphéðinsdóttir var móts-
stjóri.
Arnór Ragnarsson
SVIPMYND frá mótinu. Silfurparið í mótinu, Guðmundur Páll Amar-
son og Sverrir Ármannsson, spila gegn heimsþekktum Bandaríkja-
mönnum, Roger Bates og Fred Hamilton.
VELVAKAMH
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Sauðkindin
eyðir grððri
TIL forna var stórbýli að
Skógum undir Eyjafjöll-
um. Þá hét þessi staður
Fossárskógur. Þá mun
Skógaheiðin hafa verið
skógi vaxið land, og gróð-
urinn sennilega náð upp á
Fimmvörðuháls. Éftir
meira en 1100 ára beit
búfjár er lítið orðið eftir
af þessum gróðri. Stór
hluti svæðisins er upp-
blásnir melar, sem
stækka ár frá ári, en gró-
ið land minnkar að sama
skapi. Síðustu hríslur
birkiskóganna hafa fram
til þessa verið sjáanlegar
í hólma í Skógará, og í
klettum þar sem sauð-
kindin hefur ekki náð til
þeirra.
Sauðkindum er ennþá
beitt á Skógarheiðina. Þær
eru fljótar til að næla sér í
nýgræðinginn og kippa þá
oft upp með rótum
minnstu plöntunum. Þær
éta síðan blóm og stöngul,
en skyrpa síðan út úr sér
rótinni. Þar með er sá
gróður eyðilagður.
Þetta flokkast undir það
sem kallast rányrkja, og
hefir því miður átt sér stað
á landinu frá upphafi land-
náms - og á sér enn stað.
Þær eru því margar
„Skógarheiðarnar" sem
sauðkindin hefur megnað
að breyta í gróðurlaus
uppblásturssvæði.
Friðun Skógaheiðar fyr-
ir ágangi búfjár, er að-
kallandi verkefni. Þegar
því verður komið í fram-
kvæmd, er auðvelt að hefja
þar skógrækt. Þarna er
land í tötrum, sem klæða
verður skógi.
Úlfhéðinn.
Tarotspil
í DAGSLJÓSI fimmtu-
daginn 12. febrúar kom
fram kona með tarotspil og
var henni ætlað að spá fyr-
ir hvemig fóstudagurinn
13. febrúar yrði. Þessi
kona lagði 13 spil en las
ekki úr þeim. Tarotspil eru
þess eðlis að hún hefði átt
að túlka hvert eitt spil fyr-
ir sig, og fá svo heildaryfir-
lit út frá því. Ur þvi að hún
var að þessu átti hún að
gera þetta almennilega,
t.d. tala um fjármál,
heppni o.s.frv. I hennar
spá kom ekkert annað
fram en að þetta yrði
sæmilegur föstudagur fyr-
ir fólk. En samkvæmt
kenningum á aldrei að
vera með tarotspil innan
um marga aðila því þau
eru svo næm að þau draga
neikvæða strauma til sín
og er ég hrædd um að
hennar spil séu henni ónýt
eftir þetta.
250627-7699.
Ekki góð
þjónusta
ÉG FÓR í verslunina
Völustein um daginn og
ætlaði að versla þar en
það sem ég ætlaði að fá
var ekki til í versluninni.
Spurði ég þá afgreiðslu-
stúlkuna hvort ekki væri
önnur föndurverslun í ná-
grenninu þar sem ég gæti
fengið þetta en hún sagði
að svo væri ekki. Síðan sá
ég í dag að það er önnur
föndurveslun þarna nærri
og finnst mér þetta ekki
góð þjónusta hjá þessari
verslun að geta ekki vísað
manni á aðra.
090870-2979.
Tapað/fundið
Rykfrakki í
óskilum
RYKFRAKKI, grágrænn,
með renndu fóðri í, var
tekinn í misgripum í Þor-
lákskirkju í Þorlákshöfn 7.
febrúar. Upplýsingar í
síma 487 8217.
Frakki týndist í
miðbænum
DRAPPLITAÐUR frakki
týndist í miðbæ Reykja-
víkur föstudaginn 6. febrú-
ar. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 562 5372.
Fundarlaun.
SKAK
Ilmsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á opna
mótinu í Ubeda á Spáni um
daginn. J. Cuartas (2.275),
Kólumbíu, var með hvítt og
átti leik, en Daninn K.
Pilgaard
(2.410) hafði
svart.
24. Hxe5! _
fxe5 25.
Bg6! _ Hf7
26. Bxf7?
(Rétt var 26.
Hxe6!
Dxe6 27.
Dh8+ _ Ke7
28. Bg5+
Hf6 29.
Dxg7+
Kd6 30. Bxf6
og hvítur
hefur
gjörunnið
tafl.
staðinn snýst leikurinn við)
26. _ Dxf7 27. Hxe6? _
Dxe6 28. Dh8+ _ Dg8 og
hvítur gafst upp. Það er
afar ergilegt vera kominn
með unnið tafl, en tapa
svona klaufalega. Lánið lék
heldur betur við Danann,
sem var hreinlega
þvingaður til að notfæra
sér mistök andstæðingsins.
Þurfti ekki mikla snilld til
þess.
HÖGNI HREKKVÍSI
nicð furunáJxUcjkt ■"
Víkverji skrifar...
HVAÐ á það að þýða að gera
Valentínusardag að ein-
hverju fyrirbæri á íslandi? Það er
amerískur siður að halda upp á
þennan dag, sem hefur aldrei átt
neitt erindi til Islands. I Morgun-
blaðinu á laugardag mátti sjá
hvorki meira né minna en þrjár
auglýsingar, þar sem Valentínus-
ardegi var hampað. Við áttum að
kaupa amerískar dýnur af því að
það var Valentínusardagur. Við
áttum að fara í Háskólabíó af
sömu ástæðu og loks áttum við að
kaupa pitsu í tilefni af Valent-
ínusardegi. Og Morgunblaðið
sjálft sá ástæðu til að fjalla um
Valentínusarsælgæti af þessu
merka tilefni.
Hvað á þetta að þýða? Skortir
seljendur vöru og þjónustu allt
hugmyndaflug? Geta þeir ekki
fundið upp aðrar söluaðferðir en
éta upp ameríska siði, sem eiga
ekkert erindi hingað? Hefur þetta
fólk enga sjálfsvirðingu? Er það
reiðubúið til að leggjast hundflatt
fyrir útlendum siðum, sem okkur
koma ekki við? Hvílík lágkúra!
xxx
ÍKVERJI hafði orð á því við
danskan mann, sem hann hitti
á fömum vegi, að unga kynslóðin í
Danmörku talaði slíkt hrognamál
og alla vega svo hratt, að ómögu-
legt væri fyrir útlendinga að skilja
það. Daninn huggaði Víkverja með
því að hann skildi unga fólkið ekki
heldur. Þeir sem eiga leið um Dan-
mörku ættu að veita þessu eftir-
tekt.
En Danir eru ekki einir um að
skilja ekki talinál sinnar ungu kyn-
slóðar. Fyrir einu ári heyrði Vík-
verji unga afgreiðslustúlku segja
við stöllu sína, að einhver hefði ver-
ið að „bögga“ sig út af einhverju.
Nú heyrir Víkverji þetta nýyrði í
hverri einustu viku. Allir eru að
„bögga“ alla.
Fyrir 100 árum talaði fína fólkið í
Reykjavík og á Akureyri einhvers
konar danska mállýzku. Nú talar
unga fólkið eitthvert engilsaxneskt
hrognamál. Er ekki tímabært að
íslenzkufræðingar fylki liði og hefji
sókn gegn þessum ósóma?
XXX
RÆÐA séra Gunnars Kristjáns-
sonar í útfór Halldórs Kiljans
Laxness var frábær. Hún mun
lengi í minnum höfð og sr. Gunnar
hefur áunnið sér sérstakan sess í
huga þjóðarinnar með því að orða
svo vel tilfinningar hennar á útfar-
ardegi eins merkasta íslendings
allra tíma.
Ræða kaþólska prestsins sr.
Jakobs Rollands var merkileg. Það
er sérstakt fagnaðarefni, að hinu
látna Nóbelsskáldi var sýnd sú
virðing að fjalla á opinskáan hátt
og af hreinskilni um afstöðu hans
til trúarlegra málefna. Það er alltof
sjaldgæft að talað sé með þessum
hætti í kirkjum landsins.