Morgunblaðið - 17.02.1998, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 17.02.1998, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 5f FÓLK í FRÉTTUM Að kynna sig o g sína hugmynd ÆGIR J. Guðmundsson kynnir íslenskum og erlendum dagskrárstjórum hugmynd sína. FYRIR stuttu var haldið námskeið fyrir íslenska heimildai-myndagerð- armenn undir yfirskriftinni „Ap- proaching the Doc“. Helstu aðstand- endur þess voru Kvikmyndasjóður Islands, íslenska útvarpsfélagið, Ríkisútvarpið-Sjónvarp og Film- kontakt Nord. Svipað námskeið vai- haldið fyrir ári og var þetta óbeint framhald af því. Fyrirlesarar voru erlendir handrits- höfundar og framleiðendur heimildar- mynda sem voru tílbúnir að miðla íslenskum starfsfélögunum af reynslu sinni, auk þess sem dag- skrárstjórum fjölmargra erlendra sjónvarpsstöðva var boðið til lands- ins. Þannig fengu íslensku kvik- myndagerðarmennimir tækifæri til að kynna þeim hugmyndh- sínar að nýjum heimildarmyndum og jaftiframt leita af fjáimagni til framleiðslu þeirra. Þátttakendur lýstu ánægju sinni með námskeiðið enda er bráðnauð- synlegt að kunna að kynna hug- myndir sínar auk þess sem persónu- leg kynni við erlenda dagskrárstjóra eru nauðsynlegur þáttur í mark- aðsvinnu kvikmyndagerðarmanna. íslendingar eru frumlegir Þorfinnur Guðnason, leikstjóri heimildarmyndanna Húsey og Haga- mús - með lífið í lúkunum, hefur sótt álíka fjármögnunarmessur bæði til Amsterdam og Norðurlanda og notið góðs af því. „Verkefnin sem er verið BJÖRN Arvas leggur áherslu á samstöðu Norðurlandabúa. NORÐMAÐURINN Tore Tomt- er gat ímyndað sér að íslensku hugmyndirnar yrðu að góðum heimildarmyndum. kynna núna eru einstaklega góð og ég finn að áhugi dagskrárstjóranna er mikill. Það er gott að vita að nýbylgj- unni hefur loksins skolað á land á Is- landi, þar sem mikill áhugi er lagður á persónulega heimildaimyndagerð. Yfir höfuð er mikill áhugi á íslenskum verkefnum og hér virðast vera mjög góðir kvikmyndagerðarmenn og mjög frumleg hugsun í gangi auk þess sem ísland er í tísku.“ Að læra á kerfíð Guðmundur Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri kvikmyndagerðarinn- ar Nýja-bíó, er öðru sinni á „Ap- proaching the Doc“. „Maður er héma jafht til að kynna sjálfan sig eins og verkefriin, því maður er að hugsa um markaðinn. Málið er að koma tvisvar til þrisvar á fjáimögnun- armessu og kynnast þannig fólkinu á alþjóðamarkaðinum. Eftir það fer maður beint til dagskrárstjóra viðkom- andi sjónvarpsstöðvar. Það er gott að læra á þetta kerfi hér heima, því þegar maður er með verkefni fyrir erlendan markað vefst ekkert fyrir manni að drífa sig til útlanda á messu þar.“ Frá NRK - Norska ríkissjónvarpinu var dagskrárstjórinn Tore Tomter mættur til leiks að nýju því hann var á námskeiðinu í fyrra og sagðist hafa haft mjög gaman af. Betri hugmyndir „Eg er mjög ánægður að sjá hve margar af þessum myndum væru upplagðar fyrir norska sjónvarpið. Af fjárhagslegum ástæðum get ég ekki keypt allt sem mér líst á.“ Bjöm Arvas kom frá Sænska ríkis- sjónvarpinu og honum fannst Islend- ingum hafa mikið farið fram frá því í fyrra. „Hugmyndirnar eru betri og betur framsettar á allan hátt, þannig að ég held að námskeiðið í fyrra sé að bera góðan árangur. Það er einstak- lega skemmtilegt að koma hingað þvi ég vil endilega kynnast öllum sjálf- stæðum heimildargerðarmönnum á Norðurlöndum því við verðum öll að styðja við bakið hvert á öðru.“ Morgunblaðið/Jón Svavarsson ÞORFINNUR Guðnason og Guðmundur Kristjánsson voru ánægðir með undirtektimar sem hugmyndir þeirra fengu. ATVINNUREKENPUR ATHUCIP: RAUTT EÐALGINSENG Skerpir athygli - eykur þol. TAKTU ÞÁTT ÍMR. BEAN HAPPAfRENNULEIKNUH Komdu í Snæland og lelgflu Bean -hrlkalegustu stðrslysamyndlna. og skllaflu Inn Happahrennu Vinningar í Happaþrennuleik UTANLANDSFERÐ FYRIR2TIL LUNDÚNA meö Samvinnuferðum-Landsýn. 50 MIÐAR FYRIR 2 Á MYNDINA BORROWERS sem sýnd veröur í Háskólabíó. 100GULIR M&M OG M&M BOLUR nammlð sem Bean elskaiu .itnC ★ ★ ★ SNÆLAND VIDEO ★ ★ ★ Furugrund • Laugavegi IhísÍí Hafnarfirði • Mosfellsbæ 30-80% AFSL. Katmundu kuldaúlpur á dömur kr. 4.900, Barnaúlpui' frá kr 2.900. ^ Katmandu herraúlpur kr. 5.900. fullorðinsúlpur frá kr skíðajallar, hanskar og húfur. RISAÚTSALA ÁIÞRÓTTASKÓM 30-70% AFSLÁTTUR! Adidas íþróttaskór frá kr. 2A50 frá kr. 1.500 L.A. Gear íþróttaskór frá kr. 990 RISAÚTSALA Á SUNDFATNAÐI Sundbolir 30-80% afsláttur, verð frá kr. 990 Nike, Adidas og Champion íþróttafatnaður 20-30% afsl. Skíða- og brettapakkar á ffrábæru verði! Verddæmi: Skíðapakkar (skíði, bindingar og skór), st. 80-110 cm, frá kr. 12.920 stgr. Skíðapakkar (skíði, bindingar, skór og stafir), st. 120-170 cm frá kr. 15.982 stgr. UTILIF NYTT KORTATIMABIL HEFST A MORGUN 18. FEBRUAR §j| Opið 9-18 virka daga, opið 10-16 laugardag vegna útsölunnar. Alfheimum 74, Glæsibæ ♦ Sími 581 2922
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.