Morgunblaðið - 01.03.1998, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 01.03.1998, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. MARZ 1998 B 7 1973 þegar hann tróð upp með sveit- inni The Palpitations, sem meðal annars var skipuð obbanum úr Traffíc auk þeirra Claptons og Townsends. Um líkt leyti sigraðist Clapton á heróínfíkninni en drakk þeim mun meira. Fyrsta breiðskífan eftir hreinsunina var 461 Ocean Bou- levard, kom út 1974 og sló rækilega í gegn með lag Bobs Marleys I Shot the Sheriff fremst í flokki. Vinsældir plötunnar komu mönnum reyndar nokkuð á óvart og næsta skífa á eft- ir, There’s One in Every Crowd þótti hálfgerð hrákasmíð þó hún hafi selst bráðvel. Liðsmenn Claptons á þeirri skífu áttu eftir að vinna með honum meira og minna út áratuginn, en eftir Bandaríkjatúr fimm árum síðar rak hann þá alla á einu bretti til að breyta til og eftir það voru ýmis til- brigði með mannaskipan, menn reknir óforvarandis og ráðnir aftur jafnskjótt. Næsta skífa var No Reason to Cry sem Clapton tók upp með The Band 1976 og ári síðar komst hann efst á vinsældalista með Slowhand, meðal annars fyrir lög eins og Cocaine og Wonderful Tonight. Backless kom út 1977 og sama ár giftist Clapton Patti Harrison. Drykkjan tók að setja strik í reikn- inginn og breiðskífu sem hann tók upp 1981, Another Ticket,var hafnað af útgáfu hans sem krafðist þess að hann tæki skífuna upp aftur með nýjum upptökustjóra. Tónleikaferðin til að fylgja skífunni eftir var matröð sem náði hámarki þegar Clapton hné niður á tónleikum í Winsconsin nán- ast dauður úr ofdrykkju. Skífan náði þó góðri sölu og Clapton lét áfallið í Wisconsin sér að kenningu verða, náði tökum á drykkjunni og hefur verið þurr upp frá því, meðal annars með því að mæta reglulega á AA fundi, en að sögn mætir hann á fundi í hverri þeirri borg sem hann heim- sækir til tónleikahalds. Næstu ár lék Clapton með hinum og þessum, þar á meðal í sveit Ronnie Lanes á styrktartónleikum og með sveit Rogers Waters um tíma, á breiðskífu og á tónleikferð, og síðan setti hann saman sveit 1983 til að taka upp nýja breiðskífu, sem hann kallaði Behind The Sun og vitnaði þar í gamlan Muddy Waters- blús. Útgáfan var ekki ánægð með skífuna og þrýsti á Clapton um að taka upp lög sem hentuðu fyrir smá- skífur sem hann og gerði, tók upp lögin Forever Man, See What Love Can Do, Something’s Happening og Loving Your Lovin’ í Los Angeles, en síðasttalda lagið kom reyndar ekki út fyrr en iöngu síðar. Þessi af- skipti útgáfunnar urðu ekki til að bæta skífuna, því hún seldist ekki nema miðlungi vel og í kjölfar tón- leikaferðar til að fylgja skífunni eftir sneri Clapton sér að kvikmyndatón- list, gaf meðal annars út plötuna Ed- ge Of Darkness. Ferillinn á hægri, öruggri niðurleið í upphafi níunda áratugarins skildi Clapton við Patti og tók saman við ítalska fyrirsætu, Lori Del Santos, en skildi við hana skömmu eftir að þau eignuðust son saman. 1986 var enn haldið í hljóðver að taka upp breiðskífu, og að þessu sinni voru gestasöngvarar á skífunni, Phil Collins og Tina Tumer. Allt kom fyrir ekki og ekki bai- á öðru en að ferill Claptons væri á hægri ör- uggri niðurleið. Safnkassinn Cross- roads, sem kom út 1988 sneri þeirri þróun þó við að hluta og blússkífan Journeyman fékk góðar viðtökur þegar hún kom út ári síðar. Áður en fullreynt var með viðtökur við þeirri skifu gerðist sá hörmulegi atburður að sonur Claptons, Conor, féll út um glugga á 53. hæð í háhýsi í New York. Lengi vel heyrðist ekkert frá Clapton i kjölfar þessa hörmulega slyss, en í viðtali sem birtist löngu síðar segir hann að tónlist hafi hjálp- að sér að ná áttum og lag sem Clapton samdi til að vinna á sorginni fyrir kvikmyndina Rush, Tears in Heaven, varð gríðarlega vinsælt um heim allan. í framhaldi af því tróð Clapton upp með órafmagnaðan blús og nokkur lög úr eigin smiðju í sjón- varpsþætti á MTV-stöðinni, svo- nefndum Unplugged-þætti, og breið- skífa sem gefin var út með upptök- um úr þættinum seldist í á annan tug milljóna eintaka, aukinheldur sem Clapton hlaut sex Grammy-verðlaun fyrir skífuna. Næsta plata á eftir, from the Cradle, var enn meiri blús, lög eftir Leroy Cair, Eddie Boyd, Lowell Fulson, Freddy King og Muddy Waters, svo fáein nöfn séu tínd til, og enn var hann verðlaunað- ur, fékk fern Grammy-verðlaun að þessu sinni. Þriðji verðlauna- skammtur kom svo fyrir flutning hans á lagi eftir Babyface í kvimynd- inni Phenomenon. Clapton er í þeirri stöðu að geta gert það sem honum helst sýnist og þannig var næsta skífa sem hann kom að triphop-platan Retail Ther- apy sem hann gerði með upptöku- stjóranum Simon Climie undir nafninu T.D.F., en á skífunni kall- ast Clapton „X-Sample“. Eric Clapton hefur sent frá sér á fimmta tug breiðskífna frá því í desember 1964 og getur varla talist til tíðinda að hann sendi frá sér breiðskifu. Þó er plötu hans að þessu sinni beðið með meiri eftir- væntingu en nokkurrar skífu hans síðustu ár. Tryggðu þér afsláttinn Benidorm í tvær vikur ira 39.932 með Heimsferðum i sumar kr. atsláttui et áákaa ivrir 10. 1 vatdar brottlarir Undirtektir við Benidormferðum Heimsferða hafa verið ótrúlegar í sumar og nú þegar eru fyrstu ferð- irnar uppseldar og hafa viðskipta- vinir okkar greinilega kunnað að meta lága verðið. Heimsferðir bjóða nú frábæra gistivalkosti á Benidorm í sumar, góð íbúðarhótel við strönd- ina þar sem þú nýtur góðs aðbúnaðar, frábærrar staðsetningar og að sjálfsögðu nýtur þú rómaðrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Verð frá kr, 39.932 M.v. hjón með 2 börn í 2 vikur, Vina del Mar. íbúð á Acuarium með 6.000 kr. afslætti. Verð frá kr, 53.360 M.v 2 í studio, Aquarium II íbúðarhótelið 15. júlí, 2 vikur með 6.000 kr. afslætti. Verð frá kr. 4l .460 Flug og hótel í Barcelona í eina viku, 15. júlí. Með 4.000 kr. afslætti. arcelona - beint leiguflug í sumar Heimsferðir bjóða hagstæðasta verðið til Barcelona í sumar. Nú getur þú kynnst þessari einstöku borg og strandbæjunum í kring og notið þeirrar stemmningar sem þar er að finna. Tryggðu þér sæti meðan enn er laust. Beint flug alla miðvikudag í júlí og ágúst. Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.