Morgunblaðið - 01.03.1998, Side 10
10 B SUNNUDAGUR 1. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Þessa mynd tók Guðmundur Helgi Christja
við það li
F.V. GUY Lacalle og Manu Ibarra, báðir Fransmenn, þá franskur ónafngreindur
ljósmyndari og því næst Christophe Moulin og Jeff Lowe.
ISLENSKIR fjallamenn hafa lagt ísklif-
ur íyrir sig, enda aðstaðan til þess hér á
landi af besta tagi. íslenski alpaklúbbur-
inn hefur verið athvarf nútíma fjalla-
manna hér á landi og klúbburinn á tutt-
ugu ára afmæli um þessar mundir. Af
því tilefni voru nokkrir af fremstu
ísklifrurum veraldar staddir hér á landi fyrir
skömmu í boði Islenska alpaklúbbsins. Meðal
þeirra var Jeff Lowe, sem er sagður óumdeild-
ur guðfaðir ísklifurs í heiminum. Lowe er 48
ára gamall, en gefur ekkert eftir sér yngri
mönnum og sannast á honum að fátt kemur í
stað reynslunnar.
Að sögn Sigursteins Baldurssonar hjá Is-
lenska alpaklúbbnum, sem skipulagði för hinna
erlendu ísklifrara hingað á dögunum, er ísklifur
tvímælalaust nýr vaxtarbroddur í ferðaþjón-
ustu landsmanna. „Nýverið hafa augu erlendra
ísklifrara í auknum mæli beinst til Islands. Sem
dæmi má nefna, að í janúar/febrúarhefti tíma-
ritsins Rock and Ice, sem er virtasta klifur-
tímant Bandaríkjanna, er stór grein um ísklif-
ur á íslandi. Blaðið er rétt nýkomið í dreifmgu
en við höfum samt þegar orðið varir við aukinn
áhuga erlendra fjallamanna á íslandi. Þessi
grein í Rock and Ice mun enn fremur auka
áhuga erlendra fjallamanna á komu Jeffs Lowe
til Islands, áhuga sem við höfum fulla trú á að
muni skila sér í fjölgun heimsókna hingað til
lands utan hefðbundins ferðamannatíma," segir
Sigursteinn.
Dæmi um það sem þegar liggja fyrir nefnir
Sigursteinn: „Þegar er vitað um að minnsta
kosti nokkra mjög þekkta klifrara sem ætla að
leggja leið sína til landsins, en það eru
Kanadamaðurinn Guy Lacelle, bandaríski
klifrarinn Jay Smith, ofurkonan Kitty Cal-
houn sem kemur hér ásamt ljósmyndara frá
fataframleiðandanum The North Face. Einnig
má nefna Frakkann Christophe Moulin og
Manu Ibarra sem einnig kemur með ljós-
myndara, í þessu tilviki frá klifurfyrirtækinu
Grivel.“
Guðfaðir prflsins...
Sem fyrr segir er Jeff Lowe orðinn 48 ára
gamall sem sumum þætti líklega hár aldur á
þessu sviði. Menn sjá fyrir sér ofurþjálfaða ung-
kroppa. En hann er enn í fullu fjöri og er talinn
frumkvöðull í nútíma fjallamennsku og hefur
verið leiðandi í þróun nútíma ísklifurtækni síð-
ustu tuttugu árin. Klifurklúbbar um allan heim
keppast við að bjóða hann velkominn og gjaman
er hann fenginn til að flytja fyrirlestra í leiðinni.
Lowe sagði í samtali við blaðið á dögunum,
að ísklifur hefði ávallt verið hluti af alhliða
fjallamennsku. Alla tíð hefðu menn þurft að
ganga eða klifra yfir snjó og ís. Hins vegar væri
það sem menn þekktu sem ísklifur í dag nýrra
fyrirbæri sem varð til síðla á sjötta áratugnum
er tól og tæki tóku að þróast. „Skyndilega var
hægt að klifra upp meiri bratta, t.d. upp frosna
fossa. Við fórum þá nokkrir að æfa þetta nýja
klifur sérstaklega," segir Lowe.
En hvað skyldu menn fá út úr því að klifra
upp flughálar, snarbrattar íssúlur?
„Þetta er aðeins einn angi fjallamennsku. Ég
hef persónulega alveg jafn gaman af því að
ganga á auðvelt fjall til að skoða plöntur og
njóta útsýnis. Það er einnig gaman að fara á
fjöll í góðum félagsskap, t.d. með góðum vini.
Meira að segja í ísklifri geta menn notið þessa
þáttar, því þótt menn verði að einbeita sér að
klifrinu á meðan á því stendur, þarf þó að koma
sér á staðinn. En svo eru menn auðvitað að
leita að krefjandi verkefni. Sjá hvað hægt er að
komast langt, koma kannski sjálfum sér á
óvart. Það er þó ekkert aðalatriði fyrir mig,
a.m.k. í seinni tíð. Ég er alveg eins mikið fyrir
rólegheitafjallamennskuna."
Ertu oft að koma sjálfum þér á óvart?
„Nei, ekki oft,“ svarar Lowe og hlær að, en
heldur svo áfram: „Ég er nú búinn að klifra svo