Morgunblaðið - 08.04.1998, Síða 1

Morgunblaðið - 08.04.1998, Síða 1
80 SÍÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 82. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Vilja bætur vegna heila- uppskurðar Stokkhólmi. Reuters. ÞÚSUNDIR Svía, sem gengust nauðugir undir hvítuskurð, aðgerð á heilablaði, á árunum 1943 til 1963, hyggjast fara í mál við sænska ríkið og krefjast skaðabóta. Þessi ákvörð- un er tekin í kjölfar sýningar sjón- varpsmyndar þar sem fullyrt var að böm niður í sjö ára hefðu gengist undh’ aðgerðina. Um 4.500 manns gengust undir hvítuskurð á tveimur áratugum, flestir geðsjúkir. Með hvítuskurði eru tengsl ennisblaðs við aðra hluta heilans rofin og lamar það tilfinn- ingalíf sjúklinga. Hvítuskurður var aðallega gerður á fólki sem þjáðist af kvíðaköstum eða var flogaveikt. Flekkuð ímynd heilbrigðiskerfísins Á síðasta ári gerði sænska Þjóð- arheilbrigðisstofnunin tilraun til þess að fá þingið til að taka málið upp en þeirri beiðni var hafnað. Verður málið lagt fyrir þingið að nýju á næstu dögum. Málið er enn einn bletturinn sem fellur á ímynd sænska heilbrigðis- kerfísins. I ágúst sl. var upplýst að yfir 60.000 Svíar hefðu nauðugir gengist undir ófrjósemisaðgerðir og skömmu seinna kom í ljós að á fímmta áratugnum vora tæplega 500 treggáfaðir menn, látnir borða sæt- ustu efni sem til voru á þeim tíma til að kanna tannskemmdir. Tony Blair reynir að bjarga friðarviðræðum á N-írlandi „Finn hönd sög- unnar á öxl okkar“ Reuters Á leið til helgigöngu MUNKUR úr reglu heilagrar Mörtu gengur framhjá mynd af meynni helgu frá Guadalupe. I gær fór fram árleg helgiganga reglubræðra um götur Sevilla en í kaþólskum löndum eru gengin hundruð slíkra gangna fyrir og yfir páskahátíðina. Belfast. Reuters. BRESKI forsætisráðherrann, Tony Blair, kom til Belfast í gærkvöldi til að reyna að blása nýju lífi í friðarum- leitanir á Norður-írlandi sem eru í uppnámi eftir að Sambandsflokkur Ulster (UUP) hafnaði samnings- drögum þeim er Bandaríkjamaður- inn George Mitchell lagði fram í íyrrinótt. Lýstu flokksmenn tillög- unum sem „óskalista Sinn Féin“. Blair hvatti alla hlutaðeigandi til að gera sitt ýtrasta til að binda með samkomulagi enda á þrjátíu ára ógn- aröld á Norður-írlandi. „Eg finn hvemig hönd sögunnar er á öxl okk- ar og mér finnst að við verðum að taka mark á henni.“ Blair ítrekaði að samkomulag þyrfti að byggjast á tveimur atriðum: að Norður-írland yrði áfram hluti af Bretlandi á meðan meii'ihluti íbúanna óskaði þess og að borin yrði virðing fyrir réttindum og sjálfsmynd írskra þjóðemissinna sem búa norðan landamæranna. „Ef til vill er okkur ómögulegt að finna leið út úr ógöngunum, jafnvel þótt hinn besti vilji sé þar að baki. En mér finnst rétt að láta reyna á það og hingað er ég kominn, tii að reyna til þrautar.“ Sinn Féin lýsir vonbrigðum Sambandsflokkur Ulster haíhaði í gær samningsdrögum Mitchells, hálf- um sólarhring eftir að þau voru lögð fram. Sakaði flokkurinn Bertie Ahem, forsætisráðherra Irlands, jafnframt um að vilja ekki láta af sínum ýtrustu kröfum. Fulltrúar Sinn Féin og hófsamra kaþólikka (SDLP) lýstu vonbrigðum sínum með afstöðu sambandssinna á Reuters. TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, kom til Belfast í gærkvöldi og kvaðst kominn til að reyna til þrautar að komast að samkomulagi. sama tíma og Ahern hafnaði því að hann hefði sýnt óbilgirni í afstöðu, en hann sagðist í síðustu viku ekki geta gefið frekar eftir í samkomu- lagsátt. Talið er að Sambandsflokkur Ulst- er hafi átt erfitt með að sætta sig við hugmyndir í samningsdrögunum sem lúta að samstarfsráði Norður- írlands og lýðveldisins íriands en þar er deilt um hvort írsk stjórnvöld eigi að fá meira en umsagnarrétt. ■ Samningsdrögum/32 Vill skoðun á Boeing-747 JIM Hall, forstöðumaður Öryggis- stofnunar samgöngumála í Banda- ríkjunum, hvatti til þess í gærkvöldi, að raflagnir í mælitækjum elds- neytistanka Boeing-747-breiðþotna yrðu rannsakaðar sérstaklega. Hall leggur til að Flugmálastjórn Bandaríkjanna krefjist skoðunar á mælitækjum í tönkum 747-flugvéla af undirtegundunum -100, -200 og -300. Gerir Hall þessa tillögu í framhaldi af því að skemmdir hafa fundist í braki Boeing-747-breiðþotu bandaríska flugfélagsins TWA, sem splundraðist skömmu eftir flugtak í New York í júlí 1996. Hringborðsumræður um skipan rússnesku stjórnarinnar „Enginn sagði nei“ Moskvu. Reuters. ENGIN niðurstaða varð af hring- borðsumræðum sem Borís Jeltsín Rússlandsforseti hélt með um tutt- ugu fulltrúum rússneska þingsins og verkalýðsfélaga um myndun nýrrar ríkisstjórnar. ítrekaði Jeltsín andstöðu sína við myndun samsteypustjómar um leið og hann lagði áherslu á að stjómarkreppan, sem staðið hefur í hálfan mánuð, yrði leyst. Andstæðingar hans á þingi virðast hins vegar ekkert hafa slakað á andstöðu sinni við skipaðan forsætisráðherra, Sergej Kírijenko. Nafni hans Jastrzhembskí, talsmað- ur Jeltsíns, var hóflega bjartsýnn að viðræðum loknum, „enginn sagði nei opinberlega," sagði hann. Kíríjenko mun ávarpa dúmuna, neðri deild þingsins, á föstudag og kynna henni stefnuskrá sína. í gær sýndi embættismaður í þinginu skjal sem hann sagði vera uppkast að væntanlegri ræðu Kíríjenkos. í ræðunni er komið til móts við stjómarandstöðuna, þinginu boðinn tillöguréttur um stjórnarstefnuna auk þess sem Kíríjenko játar að for- veri hans hafi gert „mistök", þar á meðal lagt fram „óraunhæf fjárlög og dregið launagreiðslur til opin- berra starfsmanna. Við upphaf umræðnanna kvaðst Jeltsín vilja „árekstralaust ár - ég beiti ekki neitunarvaldi, þið hafnið ekki,“ sagði hann. Að þeim loknum sögðu Grígorí Javlinskí, leiðtogi Ja- bloko, fiokks frjálslyndra, og Gennadí Zjúganov, leiðtogi komm- únista, að flokksmenn þeirra myndu greiða atkvæði gegn Kírijenko. Engu að síður hafa þingmenn stjórn- arandstöðunnar gefið til kynna að þeim kunni að snúast hugur. Berezovskí styður Tsjernomyrdín Viktor Tsjemomyrdln, fyrrver- andi forsætisráðherra, sem lýst hef- ur yfir frámboði sínu í forsetakosn- ingunum árið 2000, bættist í gær óvæntur liðsauki. Lýsti auðkýfing- urinn Borís Berezovskí, sem talinn er hafa mikil áhrif á bak við tjöldin í Rússlandi, yfir stuðningi við Tsjernomyrdín og hvatti kaupsýslu- menn til að gera slíkt hið sama. Ástarþrí- hyrningur fremur en einkvæni? London. The Daily Telegraph. GIFTAR konur ættu að gæta þess að vera aðlaðandi í aug- um annarra karla en eigin- mannsins vilji þær treysta sambandið við hann, segir í rannsókn sem dýrafræðing- ar við Stokkhólmsháskóla birtu í Proceedings of The Royal Society. Segja fræð- ingarnir að niðurstaða rann- sóknarinnar veki efasemdir um hversu algengt það sé að fólk sé trútt maka sínum. I niðurstöðum rannsókn- arinnar kemur fram að gift- ar konur hafi sig til og daðri jafnvel stöku sinnum við karla til að koma í veg fyrir að eiginmennirnir missi áhugann á þeim. Þetta eigi ekki aðeins við um mannfólkið, heldur flestar dýrategundir. Hafi dýrafræðingamir rétt fyrir sér, bendir niður- staða þeirra til þess að „ást- arþríhyrningur" sé mörgum tegundum eðlilegri en ein- kvæni. Leggja dýrafræðing- arnir ennfremur áherslu á að ekki sé nóg fyrir konuna að daðra, hún verði stöku sinnum að gera alvöru úr hótun sinni um framhjáhald, annars telji eiginmaðurinn sér ekki ógnað. Eiginkonan megi þó ekki ganga of langt, því þá hreki hún eig- inmanninn frá sér, sem sé þveröfugt við það sem hún ætli sér.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.