Morgunblaðið - 08.04.1998, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1998 23
AF SÝNINGU Rúríar á Kjarvalsstöðum.
í kjölfar stríðsins
MYMPLIST
Kjarvalsstaðir
INNSETNINGAR RÚRÍ
Opið 10 til 18 alla daga. Aðgangseyr-
ir 300 kr. Stendur til 12. aprfl.
Á NYRRI sýningu á Kjarvalsstöð-
um sýnir listakonan Rúrí á sér aðra
hlið en áhorfendur hennar eiga að
venjast. í stað ljóðrænna verka sem
oft hafa sterka náttúrutilvísun býður
Rúrí nú sýningu sem líkist meira upp-
lýsingastofu eða skjalasafni en lista-
verld. Viðfangsefni sýningarinnar er
hið stríðshrjáða fólk Bosníu-Her-
segóvínu og Rúrí hefur að nokkru
leyti unnið hana í samvinnu við Am-
nesty International.
Sýningin er gríðarlega fjölbreytt
og áhorfendur hafa tækifæri til að
nálgast viðfangsefnið eftir ýmsum
leiðum. Þarna er að finna ljósmyndir
af flóttamannabúðum og fórnarlömb-
um stríðsins, vídeómyndir sem sýna
hvemig fólk reynir að draga fram líf-
ið í rústunum eftir að stríðandi herir
hafa gert heimili þeirra óbyggileg,
eftirmyndir af fréttaumfjöllun, frá-
sagnir sem óma úr hátölurum og
gríðarlega spjaldskrá yfir þá sem
hafa horfið eða verið drepnir. I miðju
sýningarinnar stendur langt borð
með tölvum þar sem nálgast má ýms-
ar upplýsingar um efni sýningarinnar
eða efni því tengt. I sérstökum
myrkvuðum klefa getur áhorfandinn
staðið einn meðan varpað er á vegg
myndum af fórnarlömbum stríðsins;
þennan hluta sýningarinnar kallar
Rúrí „Augliti til auglitis".
Upplýsingasýningar af þessu tagi
eru nýlunda og hér má segja að lista-
maðurinn birtist okkur sem skrásetj-
ari og vitni, frekar en sem skapandi.
Rúrí hefur sjálf ferðast um þær slóðir
sem sýningin segir frá og séð eymd-
ina sem fylgir í kjölfar stríðsins, hitt
fólkið sem nú reynir að skrimta við
bág kjör og syrgir fallna og týnda ást-
vini. Engu að síður er sýningin furðu
ópersónuleg og þar er nær hvergi að
sjá tilfinningar listamannsins eða
beina persónulega afstöðu eða túlkun.
Líklegt er að Rúrí hafi fundist að efn-
ið sem hún þurfti að setja fram væri í
INNRA
ÖRYGGI
BMW 3 línan með 2 loftpúðum
# Q
B&L Suðurlandsbraut 14, simi 575 1210
sjálfu sér svo óhugnanlegt og áhrifa-
mikið að hennar eigin tilfinningum
væri ofaukið - að þær mundu aðeins
trufla beina upplifun áhorfandans.
Þessi afstaða getur orkað tvimælis
því þótt sýningin láti vissulega engan
ósnortinn saknar maður þess að finna
ekki beina nærveru Rúríar, hennar
eigin upplifun og tilfinningar. Þá er
jafnframt hætt við að áhorfandinn
fari að velta því fyiir sér hver þáttur
hennar sé í raun og veru: Er hún að-
eins óháður skrásetjari sem enga af-
stöðu tekur? Það er helst í tveimur
hlutum sýningarinnar að maður fínn-
ur nærveru listamannsins. Það er
annars vegar í eins konar dagbók þar
sem minnispunktar Rúríar frá undir-
búningi sýningarinnar eru birtir við
hlið frétta af óhugnaði stríðsins og
hins vegar í glerkassa sem stendur
nokkuð til hliðar á sýningunni. Þar
hefur Rúrí safnað nokkrum hlutum
sem hún hefur fundið á ferðum sín-
um: Brenndri dúkku og byssukúlum
sem fundust í sama húsi, hluta af
bænabók og fleiri byssukúlum ...
Þarna finnur maður jafnvel betur en í
öllum ljósmyndunum og vídeómynd-
unum óhugnað stríðsins þegar maður
reynir að ímynda sér söguna bakvið
þessa fátæklegu hluti og örlög fólkins
sem átti þá og notaði.
Jón Proppé
dansskóla íslands verður haldin í
Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20. Yfir
90 nemendur skólans, á aldrinum 9
til 18 ára, koma fram í sýningunni.
Fyrir hlé sýna nemendurnir nú-
tímalistdans og jassdans sem samd-
ir eru af kennurum skólans en eftir
hlé verða fluttir valdir kaflar úr
ballettinum Coppelíu. Gestadansari
verður Jóhannn Freyr Björgvins-
son, dansari í Islenska dansflokkn-
um.
Fyrsta vorsýning nýs
skólastjóra
Þessi sýning er fyrsta vorsýning
listdansskólans sem Öm Guð-
mundsson, nýr skólastjóri, stýrir,
en um jólin var haldin nemendasýn-
ing í Tjarnarbíói. Fastir kennarar
skólans em Nanna Ólafsdóttir,
Margrét Gísladóttir, Helena Jó-
hannsdóttir, Anna Sigríður Guðna-
dóttir, Helena Jónsdóttir, Ástrós
Gunnarsdóttir og Guðmundur
Helgason. Þá hafa Miehael Popper,
Stephen Sheriff og Leonie Leahy
verið gestakennarar skólans í vetur.
Aðeins verður ein sýning og er
miðasala í Borgarleikhúsinu. Miða-
verð er kr. 900.
--------------------
Sýningu lýkur
GLERLISTARSÝNINGU Jónasar
Braga í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg
sem hann nefnir „Gárar“ lýkur 14.
apríl. Opið er daglega kl. 14-18.
Listdansskóli Isiands 1
Nemenda-
sýning í
■ i p Borgarleik-
■ rrff-íi ^ húsinu í
# li kvöld HIN árleea nemendasvnina' List- ■HHHnykn
tónlist af ýmsum toga auk frumsaminnar tónlistar á Múlanum i kvöld.
Sögur um
snjó og lög
um vorið
LEIKIN verður djasstónlist af
ýmsum toga auk fraumsaminnar
tónlistar flyljendanna, m.a. við
ljóð íslensku og kanadísku skáld-
anna P.K. Page, Söndra Nichols,
Leonards Cohens, Gyrðis Elías-
sonar og Einars Más Guðmuns-
sonar á Múlanum í kvöld, mið-
vikudagskvöld 8. apríl, kl. 21.
Tónlistin var samin og hljóðrituð
síðastliðið sumar og kemur út á
geisladiski í haust.
Hilmar Jensson hefur undan-
farin ár verið í fremstu röð ís-
lenskra djassleikara og kynnt
fyrir löndum sínum nýja mögu-
leika rafgítarsins í hefðbundinni
sem og óhefðbundinni tónlist.
Tena Palmer hefur verið bú-
sett á íslandi sl. tvö ár og vakið
athygli fyrir óvenjulega víttt
söngsvið og breiða skírskotun í
tónlist.
Pétur Grétarsson hefúr sl.
finuntán ár komið að íslensku
tónlistarlífi á margan máta, í
Ieikhúsum, með sinfóníunni,
kammersveitum og fleiru.
numenn
áSpáni
Nú eru öll símanúmer á Spáni níu stafa.
Svæðis- og símanúmer hafa runnið saman
og tölustafnum verið bætt framan við.
Landsnúmer Spánar er 34 eins og verið hefur.
Dæmi um breytingar á símanúmerum á Spáni:
Hringt til Barcelona
ÁÐUH 00 34 3 1234567
númer fyrir val lands- svæðis- síma-
tilútlanda númer númer númer
Hringt til Torremolinos
ádur 00 34 52 123456
númer fyrir val lands- svæðis- síma-
tilútlanda númer númer númer
NU
00 34 931234567
00 34 952123456
númer fyrir val lands- símanúmer
til útlanda númer
NU
númer fyrir val lands- símanúmer
til útlanda númer
LANDS SÍMINN
Nánari upplýsingar um erlend síma- og faxnúmer
fást í 114 allan sólarhringinn.
Gunnlaugur
Stefán í
Hafnarborg
GUNNLAUGUR Stefán Gíslason
listmálari opnar sýningu á olíu- og
vatnslitaverkum í Hafnarborg,
Sverrissal, á skírdag, fimmtudaginn
9. apríl, klukkan 14.
Á sýningunni verða 15 olíumyndir
og 10 vatnslitaverk en Gunnlaugur
Stefán hefur ekki áður sýnt olíu-
myndir á einkasýningu. Sýningin í
Hafnarborg nú er 11. einkasýning
hans en auk þess hefur hann tekið
þátt í fjölda samsýninga.
Síðar í mánuðinum eða laugar-
daginn 18. apríl opnar Gunnlaugur
Stefán aðra einkasýningu í Gallerí
Fold og þar mun hann aðallega
sýna nokkuð eldri vatnslitaverk.
Þess má geta, að þennan sama dag,
18. apríl, verður opnuð sýning á
vegum Nordisk Akvarel Selskab í
Djursholm skammt frá Stokkhólmi
og þar verður Gunnlaugur Stefán á
meðal sýnenda.
Rétt er að nefna í sambandi við
sýninguna í Hafnarborg, að á annan
í páskum mun Tríó Andrésar Gunn-
laugs verða með jasstónleika í
Sverrissal.