Morgunblaðið - 08.04.1998, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 08.04.1998, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær faöir okkar og tengdafaðir, KARL ÁSGEIRSSON málarameistari frá Fróðá, Stýrimannastíg 10, Reykjavlk, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund mánu- daginn 6. apríl. Jarðarförin auglýst siðar. Ólafur R. Karlsson, Hrefna Einarsdóttir, Bergljót Ó. Karlsdóttir, Ásgeir Karlsson, Guðrún Skúladóttir, Sigrún Karlsdóttir, Ármann Ásmundsson, Stefán Karlsson, Karen Karlsson, Már Kartsson, Sigurður K. Karlsson, Soffía Árnadóttir. Hjartkær eiginmaður minn og stjúpfaðir okkar, BÖÐVAR STEFÁN DANÍELSSON fyrrverandi bóndi, Fossseli, Vestur-Húnavatnssýslu, síðast til heimilis að Hlíðarvegi 17, Hvammstanga, andaðist á Vífilsstaðaspítala fimmtudaginn 2. apríl. Útför hans fer fram frá Hvammstangakirkju laugardaginn 11. apríl kl. 13.30, en jarðsett verður í Staðarkirkjugarði. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Guðrún Helga Sigurðardóttir, Ragnheiður Elísabet Jónsdóttir, Þorvaldur Örn Ámason, Kristrún Ólöf Þorsteinsdóttir, Yngvi Harðarson og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, JÓNA GfSLÍNA SIGURÐARDÓTTIR, Bústaðavegi 85, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 6. apríl sl. Útför Jónu fer fram frá Áskirkju föstudaginn 17. apríl nk. kl. 13.30. Sigurður Brynjólfsson, Guðborg Olgeirsdóttir, Margrét Karlsdóttir, Herbert Svavarsson, Guðmundur Valur Sigurðsson, Ólafía Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN BJÖRGHEIÐUR ANDRÉSDÓTTIR frá Snotrunesi, lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum mánudaginn 6. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Hjalti Pétursson, börn, tengdaböm, barnaböm og langömmubarn. + Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ARNBJÖRG SVEINSDÓTTIR frá Dyrhól, Homafirði, sem lést laugardaginn 4. apríl síðastliðinn, verður jarðsungin frá Bjama- neskirkju, Homafirði, laugardaginn 11. apríl kl. 15.00. Guðrún Rafnkelsdóttir, Jón Benidikt Rafnkelsson, Sveinn Rafnkelsson, Rafn Arnar Rafnkelsson, Guttormur Rafnkelsson, Bima Helga Rafnkelsdóttir, Magni Þórlindsson, Elsa Þórarinsdóttir, Sigurbjörg Alfreðsdóttir, Svanhvít Kristjánsdóttir, Sigurður Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Lokað verður í dag, miðvikudaginn 8. apríl, vegna jarðarfarar HALLBJARGAR TEITSDÓTTUR. Gleraugnaverslun Benedikts, Hamraborg 7, Kópavogi. ELÍSE HUSTAD EIRÍKSSON + Elíse Hustad Eiríksson fæddist í Noregi 19. apríl 1911. Hún lést á Akureyri 30. mars síðastliðinn. Útför Elíse fer fram frá Möðruvallakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku amma mín er nú látin eftir erfið veikindi. Eg varð þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp hjá afa og ömmu, bjuggum við þá á Berghól, þar var oft líf og fjör enda stórt heimili sem hafði þó alltaf pláss fyrir fleiri. Amma var mikil blómakona og hlúði vel að öllu í kringum sig. Hún hafði ekki hátt en stjómaði öllu af hógværð. Eg þakka ömmu samfylgdina. Nú finn ég angan lðngu bleikra blóma, borgina hrundu sé við himin ljóma, + Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, ÞURÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja mánudaginn 6. apríl. Sigríður Karlsdóttir, Björgvin Magnússon, Halldóra Hallbergsdóttir, Jón Ingólfsson, Birgir Magnússon og aðrir aðstandendur. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGVAR G. ODDSSON, Kirkjuvegi 1, Keflavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 6. apríl sl. Soffía Axelsdóttir, synir, tengdadætur, barnaböm og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓLAFS INGA JÓNSSONAR, Álfheimum 68, Reykjavík. Súsanna Margrét Gunnarsdóttir, Helga Ólafsdóttir, Valgerður Guðrún Ólafsdóttir, Gestur Karl Jónsson, Hulda Ólafsdóttir, Þór Stefánsson, Jón Ólafsson, Magnea Jóhannsdóttir, Unnur María Ólafsdóttir, Birgir Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum ættingjum og vinum, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, fósturmóður, tengdamóður og ömmu, ÁSTU THORODDSEN MALMQUIST. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á umönnunar- og hjúkrunarheimilinu Skjóli, þriðju hæð. Guðmundur Malmquist, Sigríður J. Malmquist, Jóhann Pétur Malmquist, Svana Friðriksdóttir, Þórdís R. M. Ollig, Christian Ollig og barnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTRÚNAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Kleppsvegi 62. Kristján Tryggvason, Jóna Hafsteinsdóttir, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Halldór Guðmundsson, Anna S. Jóhannsdóttir, Knútur Bruun, barnabörn og barnabarnabörn. og heyri aftur fagra, foma hljóma, finn um mig yl úr bijósti þínu streyma. Eg man þig enn og mun þér aldrei gleyma. Minning þín opnar gamla töfiaheima. Blessað sé nafn þitt bæói á himni og jörðu. Brosin þín mig aá betra manni gjörðu. Brjóst þitt mér ennþá hvíld og gleði veldur. Þú varst mitt blóm, mín borg, mín harpa og eldur. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi) Guðný Elíse Jóhannsdóttir. Við viljum með örfáum orðum fá að minnast félaga okkar, Elísu Ei- ríksson, sem nú hefur kvatt þetta jarðneska líf og haldið á fund skap- ara síns. Orð Páls postula til Tímóteusar gætu allt eins verið orð Elísu: „Eg hef barist góðu barátt- unni, hef fullnað skeiðið, hef varð- veitt trúna. Og nú er mér geymdur sveigur réttlætisins ... „ Þessi orð lýsa svo vel hugarfari Elísu til sinnar heilögu trúar og þjónustu fyrir Guð og þess sem við tekur þegar þessu jarðneska lífi lýkur. Elísa var ung kona þegar hún kom frá heimalandi sínu, Noregi, til Akureyrar til að þjónusta sem foringi í Hjálpræðishemum. Síðari heimsstyrjöldin var þá nýhafin og starf Hersins umfangsmikið og öfl- ugt. Fljótlega kynntist Elísa Gísla Eiríkssyni, sem var stóra ástin í lífi hennar. Þau gengu að eiga hvort annað árið 1941 og eignuðust 8 böm. Þegar Elísa giftist hætti hún í starfi sem foringi I Hjálpræðis- hemum en var trúr hermaður hans allt til dauðadags. Hún gegndi ýmsum trúnaðarstörfum innan Hersins og var meðal annars for- maður Heimilasambandsins sem er kvennahreyfing innan Hjálpræðis- hersins, í 32 áir. Hún sótti samkom- ur af mikilli trúmennsku og það voru ekki síst Heimilasambands- fundimir sem áttu hug hennar. Þar sá hún kjörinn vettvang til að boða konum trú á Jesú Krist sem traust- an og góðan grandvöll til að byggja líf og heimili á. Þetta var hennar eigin reynsla og henni þráði hún að miðla öðrum. Eftir að Elísa var orðin veik reyndi hún samt að sækja Heimila- sambandsfundina. Það var áhrifa- mikið að sjá andlit hennar, sem var farið að láta á sjá vegna veikind- anna, ljóma af gleði og hrifhingu yfir því að geta átt samfélag við trúsystur sínar. Hún átti orðið erfitt með að tjá sig og að koma fyrir sig orðum, en þegar söngv- amir sem hún unni svo heitt vora sungnir, söng hún með af hjartans innlifun. Það er með miklum trega sem við kveðjum félaga okkar, Elísu Eiríksson, en um leið með miklu þakklæti. Þakklæti fyrir góðar minningar, fyrir það for- dæmi sem hún var okkur, fyrir trú- fasta þjónustu og fyrir ógleyman- legar samverastundir. Við vottum eiginmanni hennar, bömum og öllum ættingjum samúð okkar og biðjum þeim blessunar Guðs. Fyrir hönd félaga í Hjálpræðis- hemum á Akureyri, Erlingur Níelsson. Sérfræðingar i blómaskrevtinouni \ ió öll tækifæri Skolavöröustíg 12. á horni Bergstaöastrætis. simi 551 9090
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.