Morgunblaðið - 08.04.1998, Page 57
f-
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1998 5 7,
tr
FOLK I FRETTUM
Kántrýsöngkonan
Tammy Wynette látin
KÁNTRÝSÖNGKONAN Tammy
Wynette lést í svefni á mánudaginn
55 ára gömul. Wynette, sem hafði
átt við veikindi að stríða síðustu ár,
er talin hafa látist af völdum blóð-
tappa.
Virginia Wynette Pugh fæddist 5.
maí 1942 í Red Bay í Alabama og
byrjaði að vinna á bómullarekrum
afa síns þegar hún var aðeins 7 ára
gömul. Hún giftist fyrsta eigin-
manni sínum, Euple Byrd, þegar
hún var 17 ára gömul og bjó við
mjög frumstæðar aðstæður. Eftir
fæðingu þriðja barnsins skildi Tam-
my við Byrd og flutti til Birming-
ham þar sem hún starfaði sem
snyrtifræðingur. Hún fór að syngja
1 morgunþætti í sjónvarpi og fór að
gera sér ferðir til Nashville. Að lok-
um tók hún sig til og flutti með fjöl-
skylduna til höfuðstöðva kantrýsins,
Nashville í Tennessee.
Það var svo árið 1966 að Tammy
Wynette söng inn á sína fyrstu
plötu og tveimur árum seinna sló
hún í gegn með laginu „Stand By
Your Man“. Þar með varð hún
fyrsta kántrýsöngkonan til að selja
meira en eina milljón eintaka af
smáskífu. I kjölfarið fékk hún
Grammy verðlaun og hlaut titilinn
„The First Lady of Country Music“.
TAMMY Wynette var lengi
drottning kántrýtónlistar en
hún sló í gegn með laginu
„St-and By Your Man“.
Önnur þekkt lög með Tammy
Wynette eru „Two-Story House“,
„D-I-V-0-R-C-E“ og „I Don’t
Wanna Play House“. Hún hljóðrit-
aði meira en fimmtíu plötur sem
selst hafa í rúmlega 30 milljónum
eintaka.
Tammy Wynette, sem giftist alls
fimm sinnum, sagði eitt sinn í blaða-
viðtali að hún hefði ekki verið alin
upp til að giftast og sldlja en miklu
máli hefði skipt að hún var söngkona
en eiginmenn hennar hefðu haft ann-
að hlutverk í huga fyrir hana. Hún
upplifði ýmis áföll í lífinu, þar á með-
al gjaldþrot, dularfulla eldsvoða við
heimili sitt auk þess sem henni var
rænt árið 1978. Gímuklæddur maður
nam hana á brott frá verslunarmið-
stöð í Nashville, reyndi að kyrkja^
hana með sokkabuxum og ýtti henni'"
loks út úr bíl á 120 kflómetra hraða.
Það mál var aldrei Ieyst.
„Þetta er mjög sorglegur atburð-
ur og hún var stórkostleg kona,“
sagði Kenny Rogers sem fór í tón-
leikaferðalag með Tammy Wynette
um England á síðasta ári. „Eg tal-
aði við hana fyrir stuttu og þá sagð-
ist hún vera að hressast en svo ger-
ist þetta.“
Arið 1992 söng Tammy Wynette
lagið „Justified and Ancient“ með
bresku danssveitinni KLF en lagið
fór ofarlega á vinsældalista um all-
an heim. Arið 1993 söng hún inn á
plötuna „Honkey Tonk Angels“ með
söngkonunum Dolly Parton og Lor-r
ettu Lynn.
Tammy Wynette lætur eftir sig
eiginmanninn George Richie, fjórar
dætur, tvö stjúpbörn og nokkur
barnabörn.
IXUS
24.900 kr.
IXUS L-1
17.900 kr.
IXUS L-1
17.900 kr.
F F 25
7.790 kr.
IXUS Z9 0
34.900 kr.
TAKTU
MYNDIR
Með hverri Ixus myndavél
fylgir Ijósmyndanámskeið.
Frábært nýtt kerfi sem getur meira
3 myndform:
10x25cm, 10xl7cm og 10xl5cm.
Yfirlitsmynd fylgir framköllun.
Filman smellur - engin þræðing.
Alsjálfvirk vél.
FERMINGARTILBOÐ
ÁCANON MYNDAVÉLUM
Þ V í ENGIR DAGAR ERU EINS-