Morgunblaðið - 18.04.1998, Side 16
16 LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Samstarfsverkefni um athafnaver fyrir unga fólkið í Vestmannaeyjum
Vinnubrögð verði
sjálfstæðari og
frumkvæði aukið
Vestmannaeyjum - Athafnaver unga
fólksins, öflugt tölvuver, var opnað í
Eyjum fyrir skömmu. Athafnaverið
er samstarfsverkefni Vestmanna-
eyjabæjar, Þróunarfélags Vest-
mannaeyja, Háskóla íslands og
Framhaldsskólans í Eyjum og er
markmið þess að efla og virkja sköp-
unargáfu og krafta ungs fólks í
Vestmannaeyjum.
Athafnaverinu er ætlað að stuðla
að eflingu eigin frumkvæðis og sjálf-
stæðum vinnubrögðum hjá ungu
fólki. Þá er stefnt að því að Athafna-
verið aðstoði við að koma á fót
vinnuhópum eða smærri fyrirtækj-
um til að vinna að ákveðnum verk-
efnum.
Athafnaverið er mjög vel búið
tölvubúnaði en leigusamningur var
gerður milli þess og Nýherja hf. um
tölvubúnað frá IBM og Tulip til
notkunar í Athafnaverinu. Þá var
gerður þjónustusamningur við Tölv-
un ehf. um Netið og þjónustu við At-
hafnaverið.
Páll Marvin Jónsson hefur verið
ráðinn umsjónannaður Athafna-
versins. Hann segir að Athafnaverið
sé einstakt framtak hérlendis og
engin hliðstæða þess finnist hér.
Með því sé í raun verið að gefa ungu
fólki í Eyjum tækifæri á að nýta nýj-
ustu tölvu- og hugbúnaðartækni við
framkvæmd minni verkefna og til
náms.
Verndarar Athafnaversins
Hóp, sem hlotið hefur nafnið
Verndarar Athafnaversins og skip-
aður er sex fulltrúum, er ætlað að
miðla því nýjasta sem er að gerast í
menningu, listum, tækni og uppeld-
ismálum til Athafnaversins til að
tryggja að viðfangsefni þess séu í
takt við það sem er að gerast annars
staðar á landinu og á alþjóða vett-
vangi. Ráðgert er að Verndararnir
komi saman einu sinni til tvisvar á
ári og fari yfir faglega hlið starfsemi
Athafnaversins, ræði nýjungar og
kynni hugmyndir að mögulegum
verkefnum.
Þeir sem þennan hóp skipa eru
Örn D. Jónsson frá Háskóla íslands,
Ástvaldur Jóhannsson frá Nýherja,
Þórður Víkingur Friðgeirsson frá
Tæknivali, Magnús Halldórsson frá
Háskóla íslands, Salvör Guðmunds-
dóttir frá Kennaraháskólanum og
Davíð Guðmundsson frá Tölvun.
Þróunarfélag Vestmannaeyja
keypti húsnæði á Skólavegi 1 í Eyj-
um og lagði það til undir starfsemi
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
ATHAFNAVER unga fólksins,
öflugt tölvuver, var opnað í Eyj-
um fyrir skömmu.
Athafnaversins. Ráðgert er að
rekstrarkostnaður á Athafnaverinu
verði fimm til sex milljónir á ári og
leggur Vestmannaeyjabær fram
tvær og hálfa milljón í reksturinn en
það sem upp á vantar á að fást með
sjálfsaflafé. Það fé á að fást með
styrkjum frá stofnunum og fyrir-
tækjum auk sölu á þjónustu. Páll
Mai-vin segh- að nú þegar sé farið að
vinna að verkefnum fyrir fyrirtæki í
Athafnaverinu og nefndi í því sam-
bandi uppsetninu á auglýsingabæk-
ling og heimasíðugerð.
Unglingar sjá um
daglegan rekstur
Hópur unglinga hefur tekið að sér
að sjá um daglegan rekstur At-
hafnaversins en ráðgert er að vinna
við Athafnaverið gefi einingu til
náms við Framhaldsskólann. At-
hafnaverið er opið daglega klukkan
16 til 22 og 13 til 17 á laugardögum.
Páll Marvin segir að markhópur
Athafnaversins sé fólk á aldrinum
15 til 25 ára en það sé þó opið fólki á
öllum aldri. Fólk geti komið og unn-
ið skólaverkefni eða að eigin verk-
efnum í Athafnaverinu en einnig
verði miðlað verkefnum til þeirra
sem þar verða að störfum. Páll segir
að fyrirtæki eins og Nýherji og
Tæknival sjái mikil tækifæri felast í
samstarfi við Athafnaverið. Þeir geti
látið það annast verkefni fyrir sig
sem þeir hafi hvorki tíma né mann-
skap til að sinna. Þar geti til að
mynda verið um að ræða hugmyndir
sem komið hafa inn á borð hjá þeim
og þarf að kanna nánar. Þarna geti
því verið um að ræða nokkurs konar
tilrauna- og þróunarstarfsemi sem
Athafnaverið annaðist fyrir fyrir-
tækin.
Fjölmenni var viðstatt opnun At-
hafnaversins. Þar flutti Guðjón
Hjörleifsson bæjarstjóri ávarp þar
sem hann rakti hugmyndina að At-
hafnaverinu og sagði frá undirbún-
ingi starfseminnar áður en hann
opnaði Athafnaverið formlega. Þá
fluttu ávörp Ástvaldur Jóhannsson
frá Nýherja og Salvör Gissurardótt-
ir, fullti’úi Verndaranna. Einnig
flutti fulltrúi nemenda Framhalds-
skólans í Vestmannaeyjum ávai’p.
Sigurður Einarsson, framkvæmda-
stjóri Isfélagsins, afhenti síðan At-
hafnaverinu stafræna myndavél að
gjöf frá fyrirtækinu en að því loknu
opnaði Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra heimasíðu Athafnaversins
formlega.
Kosin ljós-
myndafyrirsæta
Vestfjarða
Flateyri - Ung 18 ára yngismær frá
Flateyri, Fanney Sigurþórsdóttir,
var kosin ljósmyndafyrirsæta Vest-
fjarða í undanúrslitum Fegurðar-
samkeppni Islands sem haldin var á
veitingastaðnum Krúsimii á Isafirði
laugardaginn 4. aprfl sl.
Fanney, sem er nemandi við
Menntaskólann á Isafirði, segir að
þetta hafi verið bæði strangur og
skemmtilegur tími fram að undan-
úrslitunum og að hún væri ekki
ennþá komin með „fast land“ undir
fæturna eftir úrslitin. Það kæmi ör-
ugglega hægt og sígandi þegar
skólanámið tæki við. Hvað varðar
frekari fyrirsætuferil yrði það bara
að koma í ljós með tíð og tíma.
Lokafrá-
gangur við
íþróttahús
í Brúarási
Vaðbrekku, Jökuldal - Fram-
kvæmdir við nýtt íþróttahús í
Brúarási eru nú á lokastigi. Þegar
fréttaritara bar að garði var verið að
leggja gólfefni. Þorgeir Valdimars-
son og Hallgrímur Friðgeirsson
lögðu húðaðan gúmmídúk á gólfið og
unnu það verk á vegum umboðsaðila
gólfefnisins, Á. Oskarssonar í Mos-
fellsbæ. Nú þegar vinnu við gólfið er
lokið er hægt að ljúka alls konar
smáfrágangi og húsið verður síðan
vígt í framhaldi af því.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
FRÁ undirritun rekstrarsamninganna: Frá vinstri til hægri eru: Haraldur Valbergsson, Siglingafélaginu Knörr,
Gunnar Örn Guðmundsson, sunddeild UMFN, Leifur Gunnlaugsson, formaður knattspyrnudeildar UMFN, Krist-
bjöm Albertsson, formaður UMFN, Ragnar Örn Pétursson, formaður íþróttaráðs, Ellert Eiríksson bæjarstjóri,
Einar Haraldsson, formaður íþrótta- og ungmennafélags Keflavíkur, Sævar Pétursson frá knattspyrnudeild
Keflavíkur, Halldór Þórólfsson frá sunddeild Keflavfltur og Sæmundur Hinriksson frá Golfldúbbi Suðurnesja.
Milljóna samningar
við íþróttafelögin
Keflavík - Nýlega undirritaði
Reykjanesbær kaup- og rekstrar-
samninga við íþróttafélög og klúbba í
bænum fyrir liðlega 43 milljónir
króna. Rúmlega helmingur þessarar
upphæðar eða 28,9 milljónir eru
vegna kaupa bæjarins á hluta
íþrótta- og ungmennafélags Kefla-
víkur á svokölluðum B-sal. Þá voru
gerðir 11 aðrir rekstrarsamningar
upp á liðlega 14 milljónir króna.
Stærstu samningarnir eru við knatt-
spyrnudeild Keflavíkur um rekstur
íþróttasvæða og kjallara Sundmið-
stöðvarinnar að upphæð 7,9 milljónir
króna, við knattspyrnudeild UMFN
um rekstur íþróttasvæða í Njarðvík
að upphæð 2,6 milljónir. Einnig má
nefna samning við Siglingafélagið
Knörr um rekstur siglinganám-
skeiða en þetta er annað árið sem fé-
lagið stendur fyrir sumarnámskeið-
um og sagði Haraldur Valbergsson,
formaður félagsins, að mikill áhugi
væri fyrir þessum námskeiðum.
Það voru þeir Ellert Eiríksson
bæjarstóri og Ragnar Örn Péturs-
son, formaður íþróttaráðs, sem und-
irrituðu samningana fyrir hönd bæj-
arins. Ellert Eiríksson sagði við
þetta tækifæri að Reykjanesbær
hefði riðið á vaðið og orðið íyrstur til
að gera slíka rekstrarsamninga við
íþróttahreyfinguna. Þessi nýbreytni
hefði vakið athygli annarra bæja,
bæði hérlendis og erlendis. Hann
sagði að byrjaði hefði verið smátt, en
sú skiptu upphæðirnar tugum millj-
óna.
*
Listi Arborgar samþykktur
Á-LISTI Árborgar borinn fram undir
merkjum félagshyggju, jafnréttis og
kvenfrelsis, hefur verið samþykktur.
Listann skipa:
1. Sigríður Ólafsdóttir, skrifstofú-
maður og bæjarfullti-úi, Selfossi, 2.
Margrét Ingþórsdóttir, bankamaður
og varabæjarfulltrúi, Selfossi, 3.1’orii
Askelsson, verkstjóri og tónlistarmað-
ur, Selfossi, 4. Guðjón Sigutjónsson,
lögífæðingur, Selfossi, 5. Jóhann Páll
Helgason, fangavörður, Eyrai’bakka,
6. Guðrún Vignisdóttir, hjúkrunar-
fræðingur, Selfossi, 7. Guðmundur
Lárusson, bóndi, formaður Lands-
sambands kúabænda og varaþing-
maður, Sandvíkurhreppi, 8. Ásmund-
ur Sverrir Pálsson, atvinnuráðgjafi og
kennari, Selfossi, 9. Hansína Á. Stef-
ánsdóttir, formaður Verslunarmanna-
félags Ámessýslu, Selfossi, 10. Ragn-
heiður Þórarinsdóttir, vaktmaður,
Eyrarbakka, 11. Katrín Bjarnadóttir,
hái-greiðslukona og háskólanemi, Sel-
fossi, 12. Sigríðm- Matthíasdótdr,
kennai-i og bókavörðui-, Selfossi, 13.
Vignir Siggeirsson, tamningamaðui-
og heimsmeistari í tölti, Stokkseyri,
14. Eiríkur Már Rúnarsson, verka-
maður, Eyrarbakka, 15. Inga Lái'a
Baldvinsdóttir, sagnfræðingur og
hreppsstjóri, Eyrarbakka, 16. Grétar
Zóphaníasson, sveitai’stjóri, hrepps-
nefndaiTnaður og formaður Verka-
lýðs- og sjómannafélagsins BjaiTna,
Stokkseyri, 17. Steingrímur Ingvars-
son, verkffæðingur og bæjarfulltrúi
Selfossi, og 18. Sigríðui- Jensdóttir,
tryggingafulltrúi, bæjaríúlltrúi og for-
maður Héraðsnefndar Ámesinga.
Framboðslisti Framsóknar-
félagsins í Stykkishólmi
Á FÉLAGSFUNDI í Framsóknarfé-
lagi Stykkishólms nýlega var sam-
þykktur framboðslisti Framsóknai'-
flokks, B-listans, til bæjarstjómar-
kosninga þann 23. maí 1998. Einnig
vom Þórður S. Magnússon og Jón
Pétursson kosnir umboðsmenn
flokksins.
Frambjóðendur á lista Framsókn-
arflokksins í Stykkishólmi, B-listan-
um, til bæjarstjómarkosninga verða
þessir: 1. Aðalsteinn Þorsteinsson,
lögfræðingur, 2. Hilmar Hallvarðsson,
rafverktaki, 3. Guðbrandur Björgvins-
son, sjómaður, 4. Guðmundur Krist-
insson, skipasmíðameistari, 5. Laufey
V. Hjaltalín, sjúkraliði, 6. Þorgrímur
Vilbergsson, vélstjóri, 7. Gunnsteinn
Sigurðsson, þroskaþjálfi, 8. Halldóra
Ragnarsdóttir, leiðbeinandi, 9. Jó-
hannes H. Smárason, sjómaður, 10.
Ragna S. Eyjólfsdóttir, húsmóðir, 11.
Sigurþór Þórsson, nemi, 12. Kristín R.
Helgadóttir, húsmóðir, 13. Sigurður
Páll Jónsson, sjómaður og 14. Elín
Sigurðai'dsóttir, ljósmóðir.