Morgunblaðið - 18.04.1998, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
s
Utlit fyrir að bændur nái ekki að framleiða upp í mjólkurkvótann
Kvóti fyrir 400 milljón-
ir skiptir um hendur
NOKKURT jafnvægi virðist vera í
framboði og eftirspurn eftir mjólk-
urkvóta. Markaðsverðið er 125-130
krónur á lítrann, að sögn Guð-
björns Amasonar framkvæmda-
stjóra Landssambands kúabænda,
en á sama tíma í fyrra var verðið
145-150 krónur en fór hæst í 166
krónur. Utlit er fyrir svipuð kvóta-
viðskipti og í fyrra og að kvóti að
verðmæti um 400 milljónir kr.
skipti um hendur á verðlagsárinu.
Kvóti á 130 kr. lítrinn
Frestur til að tilkynna sölu á
greiðslumarki í mjólk rennur út 20.
apríl. Undanfarin ár hefur verðið
náð hámarki þegar liðið hefur að
lokum tímabilsins. Það virðist ekki
gerast nú og segir Guðbjöm að
hvorki sé mikið framboð af
greiðslumarki né mikil eftirspum
þessar vikumar. Þannig hefur
hann upplýsingar um að nokkuð
hafí verið selt af kvóta á Suður-
landi fyiir 130 kr. á lítrann en ekki
sé eftirspum eftir kvóta í Eyjafirði
á því verði. Þar hafí mest verið selt
fyrir 125 kr. á lítra. Þó telur Guð-
bjöm að á þessu verðlagsári, það
er að segja frá 1. september, hafi
verið álíka mikil tilfærsla á
greiðslumarki og undanfarin ár,
eða nálægt þrem milljónum lítra.
Nokkuð stór hluti tilfærslunnar
hafi orðið við sameiningu jarða og
einnig hafi nokkrir tiltölulega stór-
ir framleiðendur hætt rekstri og
selt greiðslumarkið. Ef reiknað er
með að meðalverð kvótans sé um
130 kr. er verðmæti þess kvóta
sem færður hefur verið á milli á
verðlagsárinu um 400 milljónir kr.
Guðbjöm segir að þeir mjólkur-
framleiðendur sem keypt hafa
greiðslumark hljóti fyrst og fremst
að vera að tryggja stöðu sína til
framtíðar því útlit sé fyrir að ekki
takist að framleiða upp í heildar-
kvótann á þessu verðlagsári og
þess því að vænta að bændur fái
töluvert greitt fyrir mjólk sem þeir
leggja inn umfram sinn eigin
kvóta.
Fyrstu sjö mánuði verðlagsárs-
ins, það er frá septemberbyrjun til
Þróun á verði greiðslu-
marks mjólkur frá 1995
Krónur lítrinn
200
Á verðlagi
hvers árs
s
S
Vor Haust
Vor Haust
Vor Haust
Vor
1995
1996
1997
'98
loka marsmánaðar, hefur mjólkur-
framleiðslan dregist saman um
hálfa milljón lítra frá árinu á und-
an. Samdrátturinn nemur tæpu
prósenti. Guðbjörn telur að bænd-
ur nái ekki að framleiða þær 102
milljónir lítra sem gert var ráð fyr-
ir við úthlutun greiðslumarks árs-
ins. Til þess að úr rætist með það
þurfi enn betra sumar en í fyrra.
Þá telur hann óvíst hvaða áhrif
hertar reglur um frumutölu í mjólk
hafi á mjólkurframleiðsluna í sum-
ar, hætt sé við að bændur selji ekki
mjólk úr kúm með háa frumutölu.
Hann telur óhætt að hvetja bænd-
ur til að framleiða eins mikið og
þeir mögulega geta þá mánuði sem
eftir eru af verðlagsárinu.
1,6% aukning mjólkursölu
Guðbjörn segir að það valdi sér
áhyggjum að bilið milli sölu mjólk-
ur umreiknað í prótein annars veg-
ar og fitu hins vegar sé að aukast.
Sala mjólkur síðustu tólf mánuði er
um 103 milljónir lítra og er það um
1,6% aukning frá sama tímabili á
síðasta ári. Ef hins vegar er miðað
við fitu nam sala mjólkur, umreikn-
uð á fitugrunni, 97,7 milljónum
lítra og er það um 1,9% samdráttur
frá fyrra ári. Stafar þetta væntan-
lega af því að neyslan er að breytast
úr fitumeiri afurðum í fituminni.
Sölu Hús-
næðisbréfa
í 2. áfanga
1998 lokið
SOLU Húsnæðisbréfa Byggingar-
sjóðs verkamanna í 2. áfanga 1998,
sem hófst hinn 1. apríl sl. hjá Kaup-
þingi hf. og Kaupþingi norðurlands
hf., er nú lokið. Alls voru seld
skuldabréf fyrir um 1.100 milljónir
króna að söluverðmæti í þessum
áfanga.
Seld voru skuldabréf til 24 ára fyr-
ir 550 milljónir ki-óna að söluverð-
mæti. Ávöxtunarki-afa bréfanna var
25 punktum undir ávöxtunarkröfu
húsbréfa í flokki 98/1. Á lokadegi
sölu var ávöxtunarki’afa bréfanna
því 4,70%. Þá voru seld skuldabréf til
42 ára fyrir 550 milljónir á 4,35%
ávöxtunarkröfu á lokadegi sölu, eða
60 punktum undir ávöxtunarkröfu
húsbréfa í fiokki 98/1.
Að sögn Jónasar Þorvaldssonar,
verðbréfamiðlara hjá Kaupþingi,
hefur til þessa verið horft til ávöxt-
unarkröfu húsnæðisbréfa hvað varð-
ar vaxtaþróun á næstu mánuðum.
„Það virðist því sem fjárfestar búist
við því að vaxtalækkanir undangeng-
inna mánaða hafi fest sig í sessi.
Þetta endurspeglaðist líka í ávöxtun-
arkröfu húsbréfa, sem lækkaði lítil-
lega á nýjan leik eftir að útboðinu
lauk, en krafan hafði farið hækkandi
á meðan á útboðinu stóð,“ segir
Jónas.
Alþj óðavæðingin
hefst á Islandi
Enn bankasam-
runi í Kanada
Toronto. Reuters.
Útboð ríkisins í
járnblendinu
Nálægt
3.000 ein-
staklingar
skráðu sig
RÚMLEGA 2.800 aðilar skráðu
sig fyrir hlutabréfum ríkisins í
Islenska járnblendifélaginu hf. í
útboði meðal almennings og
starfsmanna félagsins sem fram
fór 1.-8. apríl sl. Um var að ræða
bréf að nafnvirði 225 milljónir
króna í þessum hluta útboðsins og
mátti hver og einn skrá sig fyrir
hlut að hámarki 100 þúsund
krónur að nafnvirði miðað við
gengið 2,5, eða fyrir 250 þúsund
krónur að söluvirði. Meðalfjárhæð
áskrifta í útboðinu var tæplega 92
þúsund krónur.
Vegna góðrar þátttöku
almennings í útboðinu þarf að
skerða hámarksupphæð um 20
þúsund krónur, eða niður í 80
þúsund krónur að nafnvirði, sem
svarar til 200 þúsund króna að
söluvirði.
Flestir kaupendur
suðvestanlands
Af heildarfjölda kaupenda voru
um 2.600 einstaklingar og 250 félög.
Rösklega helmingur kaupenda er í
Reykjavík og um 80% þeirra á
suðvesturhomi landsins.
Greiðsluseðlar verða sendir
kaupendum í næstu viku og þarf að
greiða þá í síðasta lagi 8. maí.
Eins og fram hefur komið voru
bréf að nafnvirði 150 milljónir seld
með tilboðsfyrirkomulagi til þriggja
aðila sem áttu hæstu tilboðin í
bréfin. Meðalgengi samþykktra
tilboða var 3,02.
Stjóm Verðbréfaþings Islands
hefur samþykkt að taka hlutabréf
íslenska jámblendifélagsins hf. á
skrá á þingi í kjölfar útboðsins,
enda muni þá félagið uppfylla öll
skilyrði skráningar. Þess er vænst
að skráningin verði um miðjan maí.
EDWARD Christian, forstjóri
Saga Communications, segir
kaupin í Fínum miðli ehf., vera
fyrsta skrefið í alþjóðavæðingu
fyrirtækisins og að það sé von
manna að sú reynsia sem Saga
Comm. hefur öðlast heimafyrir,
nýtist í uppbyggingu og rekstri
þeirra fimm útvarpsstöðva sem
Fínn miðill á og rekur hér á
landi. Fyrirtækið sem starfar að-
allega í miðvesturríkjum Banda-
ríkjanna, rekur 24 FM og 13 AM
útvarpsstöðvar auk einnar sjón-
varpsstöðvar. Heildarvelta þess á
síðasta ári nam rúmlega fjórum
og hálfum milljarði króna en
nettó hagnaður var um 315 millj-
ónir.
Eins og kunnugt er keypti tít-
varp FM hf. sem er í eigu
feðganna Árna Samúelssonar og
Björns Árnasonar, nýlega 50%
eignarhlut Alfvakans hf. í Fínum
miðli og framseldi hlutann sam-
stundins til Saga Commun-
ications.
Meðfylgjandi mynd sýnir Ed-
ward Christian sem er reyndar
ekki alveg ókunnur staðháttum
hér á landi. Hann á ættir að
rekja hingað til lands auk þess að
vera starfandi konsúll fyrir Is-
land í Michigan, Ohio og Indiana.
KANADISKU bankarnir Canadian
Imperial Bank of Commerce og
Toronto-Dominion Bank hafa
ákveðið að fara að dæmi annarra
banka í Norður-Ameríku með því að
sameinast og verður samruninn sá
annar mesti í sögu fyrirtækja í sögu
Kanada.
Hér er um að ræða annan banka-
samrunann í Kanada á nokkrum
vikum og talið er að hann muni
vekja reiði Kanadastjórnar. Stjórn-
in hefur neitað að samþykkja sam-
einingaráformin þar til þingið hefur
rannsakað þau.
CIBC segir að samruninn sé 45,8
milljarða (kanadískra) dollara virði.
Með samrunanum verðui' komið á
fót banka með eigið fé upp á 460
milljarða kanadadollara og verður
hann 10. stærsti banki Norður-Am-
eríku að markaðsverðgildi.
„Við teljum að þessi samningur
muni gera okkur kleift að keppa við
keppinauta okkar innanlands og
hvar sem er í heiminum," sagði að-
albankastjóri TD Bank, Charles
Baillie. Baillie verður aðalbanka-
ÁRNI Ólafur Lárusson, forstöðu-
maður fjármálasviðs Skeljungs hf.,
hefur látið af störfum hjá félaginu.
Gerist það með samkomulagi hans
og Skeljungs og er liður í breyt-
ingum á skipulagi rekstrarins, að
sögn Kristins Bjömssonar for-
stjóra.
Ámi Ólafur hefur starfað hjá
Skeljungi í 24 ár, fyrst sem for-
stöðumaður hagdeildar og síðan
framkvæmdastjóri og forstöðu-
maður fjármálasviðs.
„Starfslok Árna tengjast skipu-
lagsbreytingum sem undanfarið
hafa staðið yfir og sem taka til
margra þátta í starfsemi Skelj-
ungs hf. Þar sem fyrir lá ósk Árna
stjóri nýja bankans. CIBC er nú
annar stærsti banki Kanada að
markaðsverðgildi. TD Bank er sá
fimmti stærsti. Starfsmenn nýja
bankans verða 74.000 og viðskipta-
vinir hans í heiminum 10 milljónir.
Annar mesti
samruninn
Samruni CIBC og TD Bank kem-
ur í kjölfar risasamruna BankA-
merica Corp. og NationsBank og
Banc One Corp. og First Chicago
og NBD Corp.í Bandaríkjunum.
Hinn nýi banki verður sá næst-
stærsti í Kanada á eftir ónefndum
banka, sem verður komið á fót með
samruna Royal Bank of Canada og
Bank of Montreal sem stungið var
upp á í janúar.
Fyrirhugaður samruni BMO-
Royal verður sá mesti í sögu
kanadískra fyrirtækja og verður 50
milljarða (kanadískra) dollara virði.
Báðir samningamir eiga eftir að
fá samþykki Pauls Martis fjármála-
ráðherra, sem hefur síðasta orðið í
málum sem þessum.
um að skipta um starfsvettvang
varð að samkomulagi, að hann léti
af störfum nú, áður en þær breyt-
ingar yrðu til lykta leiddar," segir í
tilkynningu frá Skeljungi. Kristinn
Björnsson tekur fram að starfslok
Árna séu ákveðin í sátt og sam-
komulagi.
Fjármálasviði Skeljungs verður
nú skipt upp og taka Gunnar Karl
Guðmundsson, forstöðumaður inn-
kaupa og áhættustýringar, og Árni
Armann Árnason, forstöðumaður
eignaumsýslu, við stjórn þess.
Gunnar Karl hefur með höndum
stjórn hagdeildar en Arni Ármann
stjórnar innheimtu- og fjárreiðu-
deildum.
Skipulagsbreytingar hjá Skeljungi
Forstöðumaður
fjármálasviðs hættir