Morgunblaðið - 18.04.1998, Page 22
22 LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Miðstjórn UUP fundar um friðarsamkomulagið á N-Irlandi
Afdrif samningsins
gætu
Dublin, Belfast. Reuters.
ÖLL spjót stóðu á David Trimble,
leiðtoga Sambandsflokks Ulster
(UUP), á fundi sambandssinna í
gær þegar margir viðstaddra sök-
uðu hann um að hafa svikið N-ír-
land í hendur andstæðingsins. Á
meðan hvatti Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, almenning á N-
írlandi til að íhuga vel hvort ekki
væri rétt að veita friðarsamkomu-
laginu stuðning í þjóðaratkvæða-
greiðslunni 22. maí næstkomandi.
Jafnframt hældi hann Mo Mowlam,
N-írlandsmálaráðherra bresku
stjórnarinnar, mjög fyrir hennar
framlag undanfarna mánuði. „Mo
hefur staðið sig álveg eins og hetja.“
Framtíð friðarsamkomulagsins á
N-írlandi gæti ráðist í dag þegar
miðstjórn UUP, stærsta flokks
sambandssinna, mótar afstöðu sína.
Niðurstöður fundarins ættu að gefa
skýrari mynd af því hvort líklegt sé
að mótmælendur á N-Irlandi sam-
þykki samninginn í komandi þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
Hins vegar virðist sem flokksþing
Sinn Fein, sem einnig kemur saman
í dag, muni ekki móta endanlega af-
stöðu eins og talið var. Á blaða-
mannafundi í gær sagði Mitchel
ráðist
MeLaughlin, flokksformaður Sinn
Fein, að forystan hefði fengið mis-
jöfn viðbrögð frá meðlimum sam-
takanna og átti því von á líflegri
umræðu um helgina. Hann sagði
enga ákvörðun hafa verið tekna um
það hvenær afstaða ætti að liggja
fyrir.
Miðstjómarfundur UUP í dag
gæti ekki einungis grafíð undan frið-
arsamkomulaginu heldur einnig
markað endalokin fyrir David
Trimble, leiðtoga flokksins, ef illa
fer, enda hefur hann beitt sér mjög
fyrir samningnum og væri illfært að
sitja áfram í leiðtogasætinu ef mikilli
andstöðu væri lýst við stefnu hans.
Tony Blair hefur reynt að blása vindi
í segl Trimbles með því að lofa að
lögreglulið Ulsters (RUC) verði ekki
lagt niður í núverandi mynd, og jafn-
framt að engir hryðjuverkamenn
fengju lausn úr fangelsi fyrr en þeir
hefðu afsagt sig frá öllu ofbeldi.
Fáir sambandssinna eru beinlínis
ánægðir með samninginn. Spurn-
ingin er eiginlega frekar hvort
meirihluti þeirra ákveði að „um-
bera“ hann eða hvort þeir fylgja
frumkvæði Ians Paisley, og flokks
hans DUP, og hafna samningnum
í dag
algerlega. Skoðanakönnun The
Irish Times og The Guardian í
fyrradag, sem sýndi yfirgnæfandi
stuðning við samkomulagið meðal
almennings, eða 73%, styrkti stöðu
Trimbles nokkuð en áhyggjuefni er
að ungliðar innan UUP hafa hafnað
samningnum, rétt eins og forysta
Óraníureglunnar, sem tengd er
UUP tryggðaböndum. Stjórnmála-
skýrandi The Irísh Timessagði í
gær ómögulegt að spá fyrir um
hvernig atkvæði myndu falla á mið-
stjórnarfundinum en benti á að
Trimble hefði sjálfur sagst verða að
hljóta 70% stuðning flokksfélaga
sinna til að geta haldið baráttunni
áfram fyrir samþykkt samningsins.
Gert er ráð fyrir að um 700 mið-
stjómarmenn mæti til fundarins í
Belfast í dag og menn horfa vonar-
augum til þess að Trimble hefur
stuðning bæði Kens Maginnis,
þungaviktarmanns í flokknum, og
varaformannsins Johns Taylor, en
þeir Taylor og Trimble áttust við í
formannskjöri UUP árið 1995. Einn
heimildarmanna The Irish Times
sagði að spilið hefði örugglega verið
tapað ef Taylor hefði ekki ákveðið
að styðja samninginn.
Borgaði ekki
150 sinnum
London. Reuters.
BRETINN John Turner hefur ver-
ið hnepptur í tveggja mánaða
fangelsi fyrir að borga ekki reikn-
ing á veitingahúsi í 150. skipti.
Hann hefur farið víða um Bretland
og pantað mat en aldrei ætlað sér
að borga.
Hann átti jafnvel til að segja
vertum að hringja á lögregluna
svo að hann gæti fengið ókeypis
gistingu og snætt morgunverð á
kostnað skattborgaranna. Paul
Green, saksóknari í Exeter, sagði
að Turner, sem er 55 ára, hefði
verið látinn laus úr fangelsi í Hull
áður en hann kom til Exeter og
hafði þá verið dæmdur 149 sinnum
fyrir að hlaupast á brott frá
ógreiddum reikningi.
í Exeter fór hann inn á veitinga-
hús Mad Meg og pantaði reykta
ýsu, steik og bjór. Svo neitaði hann
að borga reikninginn, er hljóðaði
upp á 21 pund, og hefur játað það
á sig. Veijandi hans, Lucy Phillips,
sagði að Turner hefði vonast til að
geta hafið nýtt líf í Exeter og fá
vinnu þegar ferðamannatíminn
hæfist með sumrinu. Eigur hans
væru alls metnar á eitt pund.
Lækkar
verðið í
NEYSLA áfengis hefur lítið sem
ekkert breyst í Svíþjóð sl. tíu til
fímmtán ár en hins vegar hefur hlut-
ur heimabruggs og smyglaðs áfengis
aukist. Til að vinna gegn þessu hafa
meðal annars verið settar fram hug-
myndir um að lækka álögur á áfengi,
sem eru mjög miklar.
Þegar Svíar gengu í Evrópusam-
bandið, ESB, var talið, að áfengis-
drykkja myndi aukast en það hefur
ekki gerst. Opinbera salan hefur
hins vegar minnkað en viðskipti með
brugg og smygl aukist að sama
áfengis-
Svíþjóð?
skapi. Svara þessi viðskipti nú til
25% af neyslunni.
Sænsk yfírvöld hafa miklai'
áhyggjur af þessari þróun enda
þrífst alls konar glæpastarfsemi í
kringum bruggið og smyglið. Kaup-
endur að því eru líka yfirleitt ungt
fólk og unglingar. Hafa komið fram
hugmyndir um að lækka tolla á
áfenginu og til stendur að hefja áróð-
ursherferð gegn neyslu ólöglegs
áfengis í sjónvarpi. Bai’ sams konar
herferð í Noregi góðan árangur fyrir
nokkrum ái’um.
Sprunga
í suður-
skauts-
ísinn
VÍSINDAMENN á Suðurskauts-
landinu rannsaka mikla sprungu
sem komin er í Larson B-íshelI-
una á Weddenhafi. Fimm km
breið og 40 km löng ísspöng hef-
ur brotnað frá meginísnum og
vekur það ótta um að hellan, sem
er alls um 12 þúsund ferkíló-
metrar, muni öll brotna upp. Vís-
indamenn telja að hækkandi
hitastig í heiminum hafi þynnt
íshellur Suðurskautslandsins, en
meðalhiti er nú 2,5 gráðum
hærri en hann var á fimmta ára-
tugnum.
Reuters
Skýstrokkar valda dauða
og mikilli eyðilegg'ing’u
OFVIÐRI geisaði víða í Suðurríkj-
um Bandaríkjanna í gær en í
fyrradag fór skýstrokkur í gegn-
um miðborg Nashville í Tenn-
essee. Vitað var um 11 látna að
minnsta kosti í þremur ríkjum og
eyðileggingin var mikil að því er
fram kom í Keuters-fréttum. Sex
manns týndu lífí í Tennessee en þó
enginn í Nashville þar sem veðrið
olli verulegum skemmdum á bygg-
ingum. Á annað hundrað manna
slasaðist. Ásthildur Helgadóttir,
landsliðskona í knattspyrnu, sem
stundar verkfræðinám við Vander-
bilt-háskólann í Nashville, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að mikið
hefði gengið á þegar skýstrokkur-
inn fór yfír en háskólahverfið hefði
þó sloppið.
Þrír týndu lífí í Kentucky og þar
var lýst yfir neyðarástandi í þrem-
ur sýslum vegna flóða. Tvö börn
fórust í Arkansas í sama stormin-
um og gekk yfír Georgíu og Ala-
bama í gærmorgun og víða urðu
miklar skemmdir á hjólhýsahverf-
um. í þessum ríkjum var þó ekki
um að ræða eiginlega skýstrokka
eins og þá, sem ollu dauða meira
en 40 manna í sfðustu viku.
Ófært um götur
í Nashville var lýst yfir neyðar-
ástandi eftir að skýstrokkurinn fór
þar um í fyrrakvöld og fyrrinótt og
í miðborginni var varla fært um
götur fyrir brotnu gleri og slitnum
rafmagnslínum. Þar urðu þrjú
hundruð byggingar fyrir veruleg-
um skemmdum og er tjónið metið
á meira en sjö milljarða ísl. kr.
Þeir, sem slösuðust, urðu flestir
fyrir fljúgandi rúðugleri.
Skýstrokkurinn náði sér fyrst
niður í Centennial-garðinum vest-
ur af miðborginni þar sem hann
skemmdi heilsugæslustöð og fór
síðan yfir aðalverslunarhverfið.
Reif hann bui’t hluta af þaki þing-
húss Tennessee-ríkis og þök og
jafnvel efstu hlutar annarra bygg-
inga fuku út í veður og vind.
Miðborgin girt af
Rafmagn var komið á í miðborg-
inni að mestu í gær en skólar,
skrifstofur og verslanir voru lokuð.
Kom lögreglan fyrir vegatálmum
umhverfis miðborgina og var eng-
um hleypt þangað nema björgun-
armönnum og þeim, sem áttu
þangað löglegt erindi.
í Dyersburg í Tennessee fórust
ein hjón þegar skýstrokkurinn reif
þau út úr hjólhýsi og kastaði þeim
síðan til jarðar í 150 metra fjarlægð.
„Það var mjög hvasst og gekk á
með þrumum og eldingum þegar
ég var á leið á æfingu í skólanum
um klukkan 16.00 en klukkustund
síðar fór skýstrokkurinn yfir mið-
borgina. Þjálfarinn safnaði okkur
saman í einu herbergi en annars
urðum við ekki mikið varar við
veðurhaminn. Nokkur tré brotn-
uðu þó og einhverjir bflar
skemmdust en að öðru leyti slapp
háskólahverfið," sagði Ásthildur
Helgadóttir. Sagði hún, að þó væri
ekki nema kannski kortersgangur
frá skólanum niður í miðborgina.
Ásthildur sagði, að hún hefði ekki
gert sér grein fyrir skemmdunum,
sem skýstrokkurinn olli, fyrr en
hún hefði séð myndir af þeim í sjón-
varpinu. I gær var veðrið gengið
niður en miðborgin var enn lokuð.
Bálför Pol Pots
Ekkert
bendir til
óeðlilegs
dauðdaga
Phnom Penh, Sa-Ngaam-skarði
íKambódíu. Reuters.
ÁÆTLAÐ var að bálför Pol Pots,
fyrrverandi leiðtoga Rauðu khmer-
anna í Kambódíu, færi fram klukk-
an eitt síðastliðna nótt að íslenskum
tíma. Tælensk hermálayfirvöld
sögðu í gær að rannsókn á líki hans
hefði ekki leitt í ljós neitt sem benti
til að andlát hans hefði borið að með
óeðlilegum hætti.
Pol Pot lést á miðvikudag í norð-
urhluta Kambódíu af völdum hjarta-
bilunar, að því er liðsmenn háns
greindu frá. Hann var 73 ára. I
valdatíð hans frá 1975 til 1979, er
kennd hefur verið við blóðvelli létust
um 1,7 milljónir manna úr hungri,
þrælkun eða voru teknar af lífi.
Liðsmenn Rauðu khmeranna
sýndu fréttamönnum lík Pots á
fóstudag, og til sönnunar því að
þetta væri Pot bentu þeir á ör á
kvið hans eftir aðgerð sém hann
gekkst undir í Kína á miðjum síð-
asta áratug.
Fyrir skömmu tilkyrmtu banda-
rísk stjórnvöld að þau vildu hafa
frumkvæðið að alþjóðlegu átaki til
að Pot yrði dreginn fyrir dómstóla
sem einn versti harðstjóri sem uppi
hefur verið á öldinni.
Litaði á sér hárið
Kambódísk stjómvöld sögðu í gær
að myndirnar, sem birst hefðu og
væru sagðar af líki Pots, væru ekki
næg sönnun þess að hann væri lát-
inn. Nauðsynlegt væri að h'kið yrði
afhent stjómvöldum til kmfningar.
Tælensk stjómvöld hafa boðist til að
sjá um krufninguna fari Kambódíu-
menn fram á það. Eitt af því sem
vakti gmnsemdir var að hárið á lík-
inu var kolsvart, en vitað var að Pot
væri orðinn gráhærður. Frétta-
skýrendur segja hann hafa litað á
sér hárið daginn áður en hann dó til
þess að þekkjast síður ef ske kynni
að hann yrði að leggja á flótta.
I
I
1
I’
I
>
>