Morgunblaðið - 18.04.1998, Side 24
24 LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Lettar
hvetja
Rússa til
viðræðna
Paula Jones áfrýjar frávísun máls hennar á hendur Bandarik] aforseta
Setur réttindi kvenna ofar
álaginu á fjölskylduna
Faðir Monicu Lewinsky gagnrýnir
Starr og biður almenning að veita
dóttur sinni fjárstuðning
BERNARD Lew- PAULA Jones grét
insky biður um fjár- er hún las upp yfir-
stuðning. lýsingu sína.
Riga. Reuters.
GUNTAR Krasts, forsætisráð-
herra Lettlands, hvatti í gær
Rússa til að ræða deiluna um hlut-
skipti rússneska minnihlutans í
landinu, eftir að
Öryggis- og
samvinnustofn-
un Evrópu
(ÖSE) lýsti
stuðningi við
stefnu stjómar
hans í málinu.
Æðsti fulltrúi
ÖSE í málefnum
minnihlutahópa,
Hollendingurinn
Max van der Stoel, greindi frá því
í gær að tillögur lettlenskra
stjórnvalda, er miða að því að gera
Rússum í Lettlandi auðveldara
um vik að gerast lettneskir ríkis-
borgarar, nytu fulls stuðnings
stofnunarinnar.
Um 700 þúsund Rússar eru bú-
settir í Lettlandi og hafa lettnesk
stjómvöld sætt gagnrýni á al-
þjóðavettvangi fyrir afstöðu sína
til þeirra. Flestir fluttust til lands-
ins eftir að það var innlimað í Sov-
étríkin fyrrverandi 1940, margir
nauðugir viljugir. Lettar hafa sett
ströng skilyrði fyi'ir því að þeir fái
ríkisborgararétt og eru margir í
raun ríkisfangslausir.
Rússar hafa hótað að beita
Letta efnahagsþvingunum vegna
málsins. Krasts sagði við Reuters í
gær að Lettar teldu að eina leiðin
til þess að leysa deiluna væri að
aðilar mættu til viðræðna um
lausn.
Dallas, Washington. Reuters.
PAULA Jones sem sakar Bill
Clinton Bandaiikjaforseta um að
hafa áreitt sig kynferðislega er
hann var ríkisstjóri í Arkansas,
hefur ákveðið að áfrýja ákvörðun
dómara í ríkinu um að vísa máli
Jones á hendur forsetanum frá.
Jones barðist við grátinn er hún
lýsti því yfir að hún teldi málið svo
mikilvægt íyrir réttindi kvenna að
það væri mikilvægara en álagið
sem málsóknin væri sér og fjöl-
skyldu sinni.
Susan Wright, dómari í
Arkansas, vísaði máli Jones frá í
síðasta mánuði á þeim forsendum
að Jones hefði ekki tekist að leggja
fram gögn er sönnuðu að hún hefði
borið skaða af meintri kynferðis-
legri áreitni forsetans á hóteli í
Little Rock í maí 1991.
Saka dómarann um
rangtúlkun
Jones og lögmenn hennar munu
áfrýja til áttunda umdæmisáfrýjun-
ardómstólsins, sem hefur aðsetur í
St. Louis í Missouri og mun byggj-
ast á því að Wright hafi túlkað lög
um mannréttindi ranglega og að
hún hafi ekki tekið til greina að mál-
flutningur forsetans hafi byggst á
veikum grunni.
„Þrátt fyrir stöðugt álag á fjöl-
skyldu mína og sjálfa mig... hef ég
náð svona langt til þess eins að
horfa upp á lögin láta menn sem
hafa gert svona hluti komast hjá
ábyrgð. Þeir ættu ekki að geta mis-
notað valdastöðu sína á kostnað
kvenkyns starfsmanna," sagði Jo-
nes á blaðamanna-
fundi.
Donovan Campbell,
lögmaður hennar, seg-
ir að málið kunni að
koma íyrir rétt áður
en kjörtímabili Clint-
ons Ijúki, en engu máli
skipti, hvort forsetinn
sé í embætti eður ei.
Hins vegar komi
dómssátt til greina, ef
„skynsamlegt" tilboð
berist. Jones hafnaði
tilboði Clintons um
700.000 dala greiðslu,
um 50 milljónum ísl.
kr. þar sem afsökun-
arbeiðni íylgdi ekki
með.
Vissir um að áfrýjun
verði hafnað
Clinton hefur ekki tjáð sig um
ákvörðun Jones, en lögmaður
hans, Robert Bennett, sagðist þess
fullviss að áfrýjuninni yrði hafnað.
„Það er afar óheppilegt að dóms-
kerfi okkar geti engu að síður ver-
ið misnotað áfram af pólitískum og
fjárhagslegum stuðningsmönnum
fi-ú Jones, sem vilja skaða forset-
ann og sem hunsa hagsmuni
bandarísku þjóðarinnar vegna eig-
in hagsmuna," sagði Bennett.
Bemard, faðir Monicu Lewin-
sky, sem sögð hefur hafa átt í ást-
arsambandi við Clinton, kom í
fyrrakvöld fram í spjallþætti
Larry King á CNN-stöðinni, þar
sem hann sakaði Kenneth Starr,
óháðan saksóknara er rannsakar
meint misferli Clintons, um „órétt-
láta“ meðferð á dóttur sinni.
Hvatti hann almenning til að
leggja fram fé í sjóð til að greiða
fyrir lögfræðikostnað dóttur sinn-
ar.
Lewinsky sagði að Monica væri
sem fangi á heimili sínu í Was-
hington og að hún hefði ekki kom-
ist í heimsókn til hans í Los Angel-
es um páskana vegna umsáturs
fjölmiðla. Þá sagðist hann ekki
hafa getað rætt málið af alvöru við
dóttur sína þar sem hann væri
sannfærður um að yfirvöld létu
hlera símalínur beggja. „Mér þyk-
ir það brjálæði að fleygja ósköp
venjulegu fólki eins og okkur fyrir
fjölmiðla og láta þá gleypa okkur,“
sagði Lewinsky. „Líf okkar er
gjörbreytt. Nú er það svo óraun-
verulegt að ég verð annað slagið
að klípa sjálfan mig og spyrja;
hvað gengur hér á?“
„Fyrirlitlegt" að taka
upp samtöl
Þá fór Lewinsky hörðum orðum
um Lindu Tripp, sem tók upp sam-
töl sín við Monicu, þar sem sú síð-
arnefnda talar um samband sitt
við forsetann. Kvaðst Lewinsky
telja það „fyrirlitlegt“ að taka upp
samtöl við vini. „Mér finnst það
óeðlilegt að 48 ára gömul kona
skuli vingast við 24 ára konu, nema
henni gangi eitthvað til.“
Lewinsky sagði hins vegar að
sér hefði ekki komið á óvart að
jafn miklir áhrifamenn og vinur
Clintons, lögmaðurinn Vernon
Jordan, og Bill Richardson, sendi-
herra Bandaríkjanna hjá Samein-
uðu þjóðunum, hefðu aðstoðað
dóttur hans við að fá vinnu. „Þeir
sem þekkja Monicu vita að hún
verður mönnum hjartfólgin. Hún
er svo félagslynd."
Minnum á að auglýsingapantanir fyrir sérblaðið
Heimili/fasteignir, sem kemur út 28. apríl, þurfa að
berast fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 22. apríl.
pltrpmMíjMtí
AUGLÝSINGADEILD
Sími: 569 1111 » Bréfasími: 569 1110» Netfang: augl@mbl.is
Bók um Díönu
sögð sverta
minningu hennar
London. The Daily Telegraph.
STJÓRNMÁLAMENN og líknarfé-
lög sem tengd eru nafni Díönu
prinsessu hafa brugðist hart við
nýútkominni bók, sem þau segja
sverta minningu hennar. I bókinni
er prinsessunni lýst sem ruglaðri
konu og sjálfhverfri sem hafi skað-
að konungsdæmið og höfðað á lág-
kúrulegan hátt. til tilfinningasemi
almennings.
Bókin nefnist „Uppgerð - Til-
finningavæðing nútíma samfélags"
en höfundur hennar er Anthony
O’Hear, prófessor í heimspeki við
Bradfordháskóla. Segir hann
Díönu hafa verið dæmi um „gervi-
Bretland" þar sem skynsemi og
rök eru látin víkja fyrir „tilfinn-
ingalegri rétthugsun". Telur
O’Hear að jarðarför prinsessunnar
í september sl. hafi markað þátta-
skil í umbreytingu bresku þjóðar-
innar að þessu leyti.
O’Hear segir að Díana sé tákn
„upphafningar tilfinninga, ímynd-
ar og sjálfkrafa viðbragða yfir
skynsemi, raunveruleika og still-
ingu. I sögu Díönu er skyldutil-
fiuningin ekki fyrir hendi.“
„Fordómafull vitleysa"
Fullyrðingar O’Hears hafa fall-
ið í grýttan jarðveg og hafa stjórn-
málamenn og talsmenn líknarsam-
taka fordæmt bók hans. John af Fa
wsley lávarður og fyrrverandi ráð-
herra Verkamannaflokksins seg-
ir bókina „hrærigraut af fordóma-
fullri vitleysu" og Pet-
er Luff, þingmaður íhaldsflokks-
ins, telur að flest-
um muni þykja ummæli prófess-
orsins um prinsessuna ósmekk-
leg og óviðeigandi. „Rétt hefði ver
ið að ráðlegga hon-
um að halda þeim fyrir sjálf-
an sig svo skömmu eftir lát henn-
ar.“
Þá taka talsmenn líknarfé-
laga í sama streng, segja prinsess-
una hvorki hafa verið yfirborðs-
kennda né falska, fólk hafi heill-
ast af Díönu vegna þess að það haf
i fundið að henni hafi ekki stað-
ið á sama um það.
O’Hear ver bók sína og seg-
ist ekki hafa ætlað að gera lít-
ið úr minningu Díönu held-
ur að rannsaka „atburð sem er lík-
lega sá merkasti og óvænt-
asti sem ég hef upplifað. Tilgang-
ur minn var að reyna að skilja hva
ð var að gerast á þess-
um tíma. Ég er ekki að segja að til
finningar fólks vegna dauða Díönu
hafi ekki ver-
ið ekta en ég tel hins veg-
ar að það hafi upphafið tilfinning-
arnar á kostnað skynseminn-
ar og ég tel það vera hluta af al-
mennara fyrirbæri."
Annar útgefenda bókarinn-
ar, Peter Mullen hefur kom-
ið O’Hear til varnar og seg-
ist telja að prinsessan hafi ver-
ið sjálfþægin og barnaleg.
„Hvernig ber annars að útskýra
hegðun manneskju sem fer í
hungurverkfall og fleygir sér nið-
ur stiga? Ef hún [Dfana] hefði ver-
ið barnið þitt hefðir þú gefið
henni kinnhest.“