Morgunblaðið - 18.04.1998, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.04.1998, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Forræktun nauð- synleg vegna stutts vaxtartíma „MARGAR tegundir sumarblóma og grænmetistegunda þarf að for- rækta vegna þess hve vaxtartíminn er stuttur. Þá er sáð til plantnanna inni og þær forræktaðar í 4-6 vikur við 12-15 gráðu hita á celsíus. Sán- ingartíminn ræðst af veðurfarsskil- yrðum á hverjum stað. En plönt- umar þurfa að vera tilbúnar til gróðursetningar úti þegar klaki er farinn úr jörðu og mold tekin að hlýna,“ segir Garðar. Hann segir einkum tvær aðferðir koma til greina þegar sáð er. Að sá gisið í bakka og dreifsetja plönturn- ar síðar í potta eða sá beint í upp- eldisílátið, til dæmis í hólfaða plast- bakka eða stærri potta og spara þannig dreifsetningu. „Þegar sáð er þá er ágætt að setja tvö fræ í hvert hólf eða pott. Þar sem bæði fræin spíra er önnur plantan, sú veiklulegri, fjarlægð. Hægt er að henda henni eða nota hana í göt þar sem hvorugt fræið hefur spírað. Hægt er að sá í hreinan vikur eða sand. En þá þarf að íylgjast betur með vökvun og ræktun en þegar sáð er í mold. Sáðmold er hægt að kaupa, einnig er unnt að útbúa hana sjálfur til dæmis úr innfluttri mold eða góðri mómold. Agætt er að blanda hana með fínum vikri eða sandi í hlutfóllunum fjórir af mó- mold á móti einum til tveimur af vikri eða sandi,“ segir Garðar og tekur fram að ekki eigi að setja áburð i sáðmoldina. „Ef moldin er súr, eins og til dæmis fersk mó- mold, þá þarf að bæta út í hana svolitlu af kalki.“ Garðar segir að innflutt mómold sé þuiT þegar hún komi til landsins, Nú er kominn tími til að huga að forsán- ingu sumarblóma og ýmissa grænmetisteg- unda. Garðar Arnason, garðyrkjuráðunautur hjá Bændasamtökum Islands, gaf Hildi Einarsdóttur góð ráð þar að lútandi. það þurfi því að bleyta hana upp fyrir notkun, þó ekki um of. „Miðað er við að sáðmoldin sé svo rök að hægt sé að hnoða úr henni bolta í höndunum án þess að vatn þrýstist út á milli fingranna. Ég vil taka það fram að ekki er skynsamlegt að sá í venjulega garð- mold því í henni getur verið mikið af fræjum, til dæmis af illgresi og garðblómum. Oft er ekki eins auð- velt og ætla mætti að sjá hvað eru aðskotaplöntur og hvað eru nytja- plöntur meðan plöntumar eru á kímblaðastiginu. Einnig er hætta á að garðmoldin sé smituð af ýmsum sveppasjúkdómum.“ Fræ nokkurra tegunda spíra best í birtu Garðar víkur að sáningunni: „I sáðkassana er sett gott lag af sáð- moldinni og hún er jöfnuð vel út. Gott er að þjappa henni lítillega niður með hentugri fjöl. Fræjunum er ýmist dreifsáð tiltölulega gisið í bakkana eða, ef um stórt fræ er að ræða eins og kálfræ, mætti sá einu og einu fræi með ákveðnu millibili. Að lokinni sáningu eru flest fræin hulin með þunnu sandlagi eða blöndu af sandi og mold sem er þjappað létt að fræinu. Hversu mikið fræið er hulið fer meðal annars eftir stærð þess. Al- geng þumalfíngursregla er að lagið skuli vera 2-3 sinnum meira en þvermál fræsins. Mjög smátt fræ er ekki hulið heldur er því þrýst varlega niður í jarðvegsyfírborðið og rök dagblöð eða plast lagt yfir. Fræ nokkurra tegunda spíra best í birtu og eru því ekki hulin; það á til dæmis við um salat og sellerí. Að sáningu lokinni er vökvað varlega með volgu vatni og pappír eða hvítt plast breitt yfir sáðkass- ana svo fræið þorni ekki. Ekki má gleyma að taka pappírinn eða plast- ið af um leið og plönturnai' koma upp.“ Spírunarhitinn í samræmi við birtuna „Fræ flestra grænmetistegunda og blómategunda spíra einna best við 18-20 gráðu hita á celsíus,“ seg- ir Garðar. „Einstaka tegundir eins og salat, blaðlaukur og sellerí spíra illa þegar hitinn fer yfir 22-25 gráð- ur. Hitakærar tegundir eins og tómatar, gúrkur og paprika kjósa hæiTi spírunarhita en útitegundim- ar eða 22-25 gráður." Garðar segir að mjög mikilvægt sé að hitinn sé ætíð í samræmi við birtuna meðan á forræktun stend- ur. Því verði að lækka hitann að lokinni spírun. „Fari saman lítil I daglegu lífi verður fólk fyrir ýmsum áreitum sem hafa skaðleg áhrif á heilsuna. Þetta eru þættir eins og vinnuálag, streita, mengun og svefn- leysi. Afleiðingarnar geta verið veikara ónæmiskerfi og ójafnvægi í meltingu. LGG+ er unnið úr fitulausri mjólk og inniheldur LGG-gerla. Plúsinn stendur fyrir aðra æskilega gerla, svo sem a- og b-gerla sem neytendur þekkja af góðri reynslu auk oligófrúktósa sem er trefjaefni sem m.a. örvar vöxt heilnæmra gerla í meltingarveginum. LGG-gerlar búa yfir einna mestu mótstöðuafli allra þekktra mjólkursýru- gerla og hafa fjölþætta varnarverkun, bæta meltinguna og stuðla að vellíðan. Ein flaska af LGG+ er styrkjandi dagskammtur fyrir heilbrigt fólk á öllum aldri, börn jafnt sem fullorðna. Einnig er mælt með drykknum fyrir fólk sem býr við ójafnvægi í meltingu af völdum ytri þátta eins og streitu, kaffidrykkju, inntöku fúkkalyfja, geislameðferða o.fl. Það tekur LGG+ einn mánuð að byggja gerlaflóruna upp á ný og til að viðhalda áhrifunum til fulls er æskilegt að neyta þess daglega. Fjölgun LGG-gerlanna í sjálfum meltingarveginum er fremur hæg og þvi tryggir stöðug neysla virkni þeirra best. Morgunblaðið/Þorkell NU ER runninn upp rétti tíminn til forsáningar sumarblóma og ýmissa grænmetistegunda. birta og hár hiti frá og með þeim tíma er kímstöngullinn gægist upp úr moldinni verða plönturnar grannar, teygðar og ljósar á litinn og veiklulegar. Ennfremur er hætta á að rótarkerfi plantnanna verði of veikbyggt ef hita er haldið of háum í forræktun. Hins vegar má hitinn ekki vera of lágur því slíkt getur valdið ótímabærri blómgun í mörgum tegundum. Þannig að hæfilegur hiti við for- ræktun flestra grænmetistegunda sem ætlaðar eru til gróðursetning- ar utan dyra er 10-15 gráður á celsíus. Þó þarf kínakál 18-20 gráðu hita rétt eins og hitakærar tegundir í gróðurhúsum." Síðar mun Garðar segja frá því hvernig best er að standa að því að dreifsetja plönturnar þegar þær hafa náð ákveðinni stærð. Nýtt Nýjar súkkulaði- bitakökur KEXVE RKSMIÐJAN Frón hefur hafið sölu og dreifingu á hollensku súkkulaðibitakökunum Chocolate Cookies. í fréttatilkynningu kemur fram að 37% af hverri köku séu súkkulaðibitar. Sælkerum ætti því að líka vel við kökumar. Hver pakki vegur 225 g og inni- heldur 12 stórar kökur. Chocolate Cookies verða til sölu í öllum helstu matvömverslunum á land- inu innan tíðar. veitir öllum sem CCBT Sf^eiða með VISA kreditkorti ^0 /O rafrænan afslátt Fjöldi annarra fyrirtækja veitir einnig afslátt FRÍÐINDAKLÚBBURINN www.fridindi.is • www.visa.is styrkjíaindii d.a<g sk.a mimt:uir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.