Morgunblaðið - 18.04.1998, Page 46

Morgunblaðið - 18.04.1998, Page 46
LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ ARNI ÞORKELSSON + Árni Þorkelsson fæddist á Pat- reksfírði 26. maí 1965. Hann lést í bílslysi undir Olafs- víkurenni 13. apríl síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Kolbrún Guðjónsdóttir og Þor- kell Árnason sjómað- ur. Árni ólst upp á Patreksfirði fram til fermingaraldurs en fluttist eftir |>að til Sandgerðis. Árni á eina eldri systur sem er Eygló Anna Þor- kelsdóttir, hennar maður er Krist- mundur Einarsson sjómaður. Þau búa á Hellissandi. Auk þess á hann hálfbróður, Pavel, samfeðra, sem dvelur í Póllandi. Árni hóf sambúð með Lilju Báru Guðbjartsdóttur, f. 24. ágúst Kveðja frá mömmu. Elsku sonur minn, á þessari óvæntu og ótímabæru kveðjustund langar mig til að kveðja þig með litlu ljóði. ^ Legg þinn ungan sleit ' nöpur næðingskylja nísti’ en enginn veit enn úr hvaóa áttum örlagaveðrið dundi. Sit nú heilum sáttum sæll, í skýlla lundi. Græt ég og greiði gjaldið eina er má læt ég á leiði laufln bleik og fá. Sígræn blöð þér breiði björk í fegra heimi ^•mildur blær í meiði minning þína geymi. (Sigurður Sigurðsson frá Amarholti.) Á þessari stundu, Árni minn, er mér tregt tungu að hræra og því vil ég með þessum orðum skáldsins kveðja þig og biðja algóðan Guð að 1966, sama ár og hann fluttist vestur og eignuðust þau saman drengina Þor- kel, f. 17. desember 1986, og Gunnar Þór, f. l.júlí 1988. Ámi fór kornung- ur að vinna fyrir sér og stunda sjó sem hann gerði til dánar- dægurs. Hann settist að á Hellissandi 1985 og fór að stunda sjó- róðra úr Rifi. Varð það hans ævistarf ásamt landstörfum tengdum sjávarútvegi. Árni var áhugamaður um hesta og vann til fjölmargra verðlauna í hesta- íþróttum. títför Áraa verður gerð frá Ingjaldshólskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. blessa þig í nýjum heimkynnum og þakka fyrir að hafa átt þig að syni. Mamma og Valdimar. Að leiðarlokum, þegar ég minnist sonar míns Ama, bærast í mér til- finningar sem erfitt er að koma orð- um að. Enginn bjóst heldur við að hann færi svona fljótt. Kannski hefðum við getað með tímanum sagt hvor öðrum hversu vænt okkur þótti hvorum um annan. Við vorum líka byrjaðir á því og vildum rækta samband okkar. Nú verður það ekki gert nema á annan veginn og þess vegna hripa ég þessar línur til þín, sonur minn, í kveðjuskyni. Þú varst góður drengur og minn- ingar mínar um þig sem lítinn dreng að alast upp á Patreksfirði eru mér kærar og verða alltaf. Það var gott að hafa þig með sér. Seinna þegar þú stækkaðir og varðst full- tíða maður varð ég stoltur af því hversu duglegur þú varst til vinnu og skaust mér ref fyrir rass í þeim SIGURÐUR KRISTJÁN GISS URARSON + Sigurður Krist- ján Gissurarson fæddist á Byggðar- horai í Sandvíkur- - hreppi 21. nóvember 1918. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 4. apríl síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Ingibjörg Sigurðardóttir frá Langholti í Hruna- mannahreppi f. 30. maí 1876, d. 10. ágúst 1959, og Giss- ur Gunnarsson frá Byggðarhorni, f. 6. nóv. 1872, d. 11. aprfl 1941. Sig- urður var yngsta bara þeirra hjóna, en alls urðu bömin 16. Eft- irlifandi systkini hans eru: Ágúst, Þórný, Ólafur, Bjarnheiður og * Geir. Látin eru: Margrét Ingi- björg, Gunnar, Sigurður, Jón, Oskar, Margrét, Stefanía, Helga, Kjartan og Vigdís. Hinn 23. júm 1944 kvæntist Sig- urður Önnu Sigrid Magnúsdóttur í Vestmannaeyjum, f. 24. febrúar 1913, d. 20. apríl 1991. Þeim varð tveggja baraa auðið. Þau eru: Þórarinn Sigurður, f. 14. des. 1945, maki Guðrún Rannveig Jóhanns- dóttir, sonur þeirra er Jóhann Sigurður. 3) Margrét, f. 10. apr- fl 1947, maki Sigurð- ur Sigurðsson, böra þeirra: Sigurður Krislján og Þórdís. Einnig ólu Sigurður og Anna upp syni Onnu frá fyrra hjónabandi, þá Pétur Lúðvik Marteinsson, f. 24. nóv. 1932, maki Áslaug Ámadóttir, böra þeirra: Margrét og Marteinn; og Karl Gunnar Marteinsson, f. 21. des. 1936, maki Svandís Unnur Sigurðardóttir, böra þeirra: Anna Sigrid, Sigurð- ur Friðrik og Rúnar Þór. Sigurður var alla tíð sjómaður og hætti hann til sjós 69 ára gam- all. títför Sigurðar Krisljáns fer fram frá Landakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. „Hann pabbi er dáinn.“ Það er undarlegt að standa í þessum spor- um og segja þessi orð án þess að geta nokkuð gert við þeirri stað- reynd að fastur liður í lífi okkar er enginn á vit eilífðarinnar, burt frá versdagsþrasinu. Og einhvem veginn eins og af sjálfu sér, þegar horft er til baka, þjóta fram ótelj- andi myndir af samvistum okkar við pabba, af umhverfi okkar, ævintýr- um, draumum og þrám. Það eru mikil hlunnindi í sporum sem þess- um að eiga svo ríkulegar minningar öllu því jákvæða, góða, heiðar- lega, öllu því sem fylgdi pabba í gegnum súrt og sætt. Og af því að pabbi var sjómaður alla tíð þá mót- aðist umhverfið í öllum leikjum og störfum hjá okkur í bemsku eftir því. Að komast heill í höfn er þekkt hugtak hjá öllum þeim sem lifa og hrærast í lífi sjávarplássins. Strax í bemsku gerðum við systkinin okk- ur grein fyrir því að í okkar tilvem var pabbi þessi heila höfn og alla tíð vom samvistir okkar við pabba samkvæmt því. Og í gamla daga var gott að geta stungið lítilli hendi í stóm höndina hans pabba með sigg- inu á, traustara hald var ekki hægt að hugsa sér. Það fór til dæmis ekk- MINNINGAR verkum sem við gengum til saman. Þú varst föðurbetrangur, Ámi minn, og af því var ég stoltur og glaður. Þú týndir aldrei góða drengnum úr sjálfum þér. Alltaf þegar ég þurfti á þér að halda og þarfnaðist þín brástu mér ekki, dæmdir ekki en gladdist yfir því þegar vel gekk. Það sýndi hvaða mann þú geymdir. Og nú ertu far- inn svona óvænt og enginn skilur hvers vegna í ósköpunum þú. Lífið var nánast allt fyrir framan þig. En við ráðum ekki okkar næturstað, það kennir reynslan. Fyrir bragðið missti ég af tækifærinu til að fá að nálgast þig eins og ég þráði eftir að við báðir fómm núna upp á síðkast- ið að opna okkur betur hvor fyrir öðrum. Það er synd að ekki skyldi verða framhald á því. En við gætum átt eftir að hittast síðar á öðmm stað og þá getum við tekið upp þráðinn að nýju. Eg vil að þú vitir það, elsku sonur minn, Árni, að ég er bæði stoltur og glaður yfir því að hafa átt þig að syni, vona að þínir góðu kostir muni lifa í sonum þín- um, Þorkeli og Gunnari Þór. Ég mun geyma minningu þína í hjarta mér það sem ég á ólifað. Pabbi. Elsku pabbi. Nú ertu horfinn frá okkur og við söknum þínum mikið. Þú varst alltaf góður pabbi og okkur þótti gott og skemmtilegt að koma til þín. Við gerðum margt saman en það var svo margt og mikið sem okkur langaði til að gera með þér og við áttum eftir að gera saman. Því Guð tók þig til sín og nú geymir hann þig. Við hefðum þurft að fá að hafa þig lengur. Við hugsum til þín og vitum að þú verður hjá okkur og með okkur hvar sem við verðum og líka þegar við verðum fullorðnir. Við ætlum aUtaf að muna eftir þér. Við biðjum Guð að blessa þig nú þegar þú ert farinn til hans og við ætlum að reyna að verða góðir og duglegir drengir og duglegir menn, eins og þú varst, elsku pabbi, og hugsa vel um mömmu. Við vitum að þú hefðir viljað það. Þorkell og Gunnar Þór. ert á milli mála þegar maður fékk að fara á sjó með pabba í einhvern vertíðarróðurinn, að einmitt þetta hlýja handtak varð þess valdandi að maður var öryggið uppmálað, jafn- vel þó að það eitt að fá að fara á sjó var í huga barnsins ferð á vit hins ókunna. I lífi okkar krakkanna sem alast upp í sjávarplássi eins og Vest- mannaeyjum snýst lífið og tilveran óneitanlega um sjómennsku og allt sem því tilheyrir. Ég man að ófáa dagana, þegar veður vom vond, þá beið maður austur á Skans eftir að báturinn hans pabba kæmi að, og svo að sjá bátinn ösla inn leiðina, hendast til á öldutoppunum, þá var maður stoltur af pabba, og iðulega í gleðinni sneri maður sér að næsta manni og sagði: „Hann pabbi er á þessum bát.“ Eitt af því sem var svo spennandi á þessum ámm var þeg- ar pabbi kom af sjónum, var að fara um borð til hans og komast í bita- kassann hans, því hann kom aldrei tómur að landi. I bitakassanum var ekki aðeins matur sem hún mamma hafði útbúið, heldur var um slíkt lostæti að ræða, að veisluborðin sem ég hefi kynnst síðar á lífsleið- inni jafnast ekki á við bitakassann hans pabba. Pabbi, Sigurður Gissurarson, var fæddur á Byggðarhorni í Flóa. Um tvítugt kom hann til Eyja á vertíð, þar kynntist hann mömmu, Önnu Magnúsdóttur. Mamma átti tvo peyja frá fyrra hjónabandi, Lúlla og Kalla, og tók pabbi að sér uppeldið á þeim og síðar bættumst við Mar- grét í hópinn. Það var ekki alltaf logn í kringum pabba, það gat hvesst hressilega hjá honum, jafn- vel rokið upp án nokkurs fyrirvara ef honum fannst eitthvað ósann- gjamt eða yfirgengilegt. Og alltaf var hann samkvæmur sjálfum sér, það var ekki gerður greinarmunur á Jóni og séra Jóni. Það var til að mynda eins ömggt og maður dreg- ur andann, að ef honum þótti maður ekki standa rétt að hlutunum, þá Það er erfitt að sætta sig við að Árni bróðir minn skuli vera dáinn. Fátt hefur slegið mig meira um æv- ina eins og þegar mér var tilkynnt um að hann hefði farist í bílslysi undir Ólafsvíkurenni. Um huga minn fara minningar frá því að við vorum börn að alast upp á Patreks- firði. Við vorum bara tvö systkinin, lékum okkur mikið saman og vor- um mjög samrýnd. Það var líka bara árið á milli okkar og þótt ég væri eldri systir þurfti hann stund- um að sýna að hann hefði nú alveg við mér. Væri skynsamari og betur til þess fallinn að hafa vit fyrir okk- ur. Árni bróðir hneigðist strax að skepnum og sveitastörfum og sótt- ist í að vera nærri Raknadalsbænd- um, þar kom bóndinn strax upp í honum, þótt sjómennska ætti eftir að verða hans ævistarf. Samt hefði hann sjálfsagt kosið sér að verða bóndi ef hann hefði átt kost á því. Áhugi hans á hestum og hesta- mennsku vitnuðu líka um þetta, án hestanna sinna gat hann ekki verið. Og hann var góður hestamaður, hafði tilfinningu fyrir hestum, þörf- um þeirra og líðan. Kunni með þá að fara. Hann náði líka árangri í hestaíþróttinni , um það vitna fjöl- margar viðurkenningar sem hann hlaut. Og það er gott til þess að hugsa að laugardaginn áður en hann dó, vann hann til gullverð- launa sem vom honum mjög kær- komin. Það var líka gaman að sjá hvemig hann reyndi að gera Þorkel litla son sinn að hestamanni og leyfa honum að njóta þessarar íþróttar með sér. Þann dag vann Þorkell litli líka til verðlauna. Það átti síðan fyrir Árna bróður mínum að liggja að stunda sjó og allir vita sem þekktu til hans að hann var harðduglegur sjómaður, ósérhlífinn og laginn. Héma um- hverfis Snæfellsnesið og á Breiða- firði var hann orðinn gjörkunnugur fiskimiðum og sjólagi. A það reyndi þegar hann réri einn, þá aflaði hann vel en fór samt alltaf með gát. Hann var eftirsóttur í skipsrúm enda vissu allir að þeir voru ekki sviknir af verkum hans. Fáir menn hafa sést sneggri við beitningu en Árni bróðir minn. Það var ýmislegt í ævi okkar sem tengdi okkur saman og okkur þótti báðum gott að vita af hinu í nálægð. Stundum dvaldi hann á heimilinu mínu og með mér kom hann vestur í Rif árið 1985. Ég held að það hafi orðið okkur báðum til stuðnings í lífinu, ekki síst þegar á móti blés. Ég leiði hugann að síð- ustu jólum sem við áttum saman og hann dvaldi hjá okkur Kristmundi og börnunum á aðfangadagskvöld. Það var yndisleg kvöldstund. Árni var afslappaður og virtist vera að finna sig á nýjan leik eftir nokkra erfiða undanfarandi mánuði. Þá fundum við að við höfðum þörf hvort fyrir annað og hann vildi fara að rækta öll sín fjölskyldutengsl og bönd. Og þannig vom síðustu mán- uðimir í lífi hans. Hann kom oft til mín eða hafði samband og við rædd- um mikið saman. Hann var að byggja upp áætlun um nýja og bjarta tilvera sem nú verður því miður ekki að veruleika vegna þessa sviplega og óvænta slyss, a.m.k. ekki í þessu jarðlífi. Ég á þá trú að Árni bróðir minn lifi á öðmm stað og þar muni honum líða vel. Nú þegar ég sjálf og öll fjöl- skylda mín horfumst í augu við þennan dapra veraleika af miklum trega og sársauka að Árni var frá okkur tekinn, biðjum við Guð að blessa hann og drengina hans, Þor- kel og Gunnar Þór. Þeim var hann góður faðir. Og ef ég get stutt þá eftir föðurmissinn og lagt þeim lið, þá skal ég ekki liggja á liði mínu. Svo minni ég á bænina sem hún amma okkar kenndi okkur og hún vil ég að fylgi þér að síðustu. Vertu Guð faðir faðir minn í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn svo allri synd ég hafni. (HP) Ég þakka svo þessum kæra bróð- ur mínum fyrir alla samfylgdina og það er alveg víst að minning hans mun alltaf lifa í huga mér og minnar fjölskyldu. Við söknum þín öll, Ámi minn. Eygló Anna. var maður tekinn í gegn, ekki að- eins í bernsku heldur alla tíð og staðreyndin er að þetta er sú eftir- litsstofnun sem mér hefur líkað hvað best við, og það er víst að ég á eftir að sakna þessa aðhalds og ráð- anna góðu þó maður hafi ekki alltaf haft vit á því að fara eftir þeim. I þeim söknuði sem nú stendur eftir er fyrst og fremst ástæða til að þakka hlýjuna, alúðina, hvatning- una, ástina, og hollráðin í lífsins leik. Megi góður Guð og gæfan ganga með honum áfram á vegum eilífðarinnar. „Nú er hann pabbi dá- inn, nú er hann kominn til mömmu.“ Þórarinn Sigurðsson. Langt er síðan leiðir mínar, ljúfi faðir, steftidu brautu þaðan, sem ég saklaus felldi sorgartár í gróðralautu. Horfnu árin - eg þó gráti - aldrei fram í tímann snúa, en ég skal til æviloka yndisvonum þínum trúa. Faðir, þó mér fjarlægð hylji friðargeislaaugnaþinna, ertu samt um allar stundir engill kærleiksdrauma minna. (Hulda) Hjailans þakkir fyrir allt, elsku pabbi minn. Guð geymi þig. Þín dóttir Margrét. Dagurinn kveður, mánans bjarta brá blikar í skýjasundi. Lokkar í blænum, leiftur augum frá, loforð um endurfúndi. Góða nótt, góða nótt, gamanið líður fljótt, brosin þín bíða mín er birtan úr austri skín. Dreymi þig sólslrin og sumarfrið, syngjandi fugla og lækjamið. Allt er hljótt, allt er hjótt, ástin mín góða nótt. (Ámi úr Eyjum og Ási í Bæ) Afi minn hefur lokið sinni jarð- vist, að mér finnst, alltof fljótt. Minningamar streyma fram, margs er að minnast og margt er að þakka. Ég var svo lánsamur að al- ast upp fyrstu árin í kjallaranum hjá ömmu og afa og var alla tíð mildð hjá þeim. Hann afi minn var yngstur 16 systkina, sem öll náðu fullorðins aldri. Alvara lífsins tók snemma við. Skólagangan varð ekki löng. Það þurfti að vinna og hjálpa til. Liðlega tvítugur kom afi til Vestmannaeyja á vertíð. Þar kynntist hann ömmu minni, henni Onnu sinni. Saman eignuðust þau tvö börn, Þórarin Sigurð og Margréti. Afi eyddi ekki tímanum í það að slappa af. Hann skdldi ekki það hugtak og vann alla tíð mikið. Afi var sjómaður til 69 ára aldurs. Áhugamál afa var aðeins eitt, knattspyrna, og átti hún hug hans allan. Auðvitað vom það liðsmenn IBV, sem vora bestir hvemig sem fór. Hann mætti alltaf á völlinn í Eyjum. Afi kom til dyranna eins og hann var klæddur, hvort sem mönnum líkaði það betur eða verr. Hann sagði hlutina umbúðalaust og átti það til að tvinna hressilega ef svo bar undir. Afi hafði stórt og gott hjarta, sem ég og mín fjölskylda fengum að kynnast. Afi minn, ég á svo margar góðar minningar um þig og hana ömmu. Þær geymi ég með sjálfum mér því þær tekur enginn frá mér. Það verður tómlegt að fá ekki þínar dag- legu hringingar og spjall um fót- boltann. Nú er komið að kveðju- stund. Ég og Dísa systir mín kveðj- um þig með söknuði og þökkum þér af alhug allt, sem að þú hefur fyrir okkur gert. Mamma og pabbi kveðja þig einnig og þakka þér fyrir allt. Afi minn, far þú í friði. Friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt. Þinn dóttursonur, Sigurður Kristján.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.