Morgunblaðið - 18.04.1998, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 18.04.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 5Í I I i € i i Í i i i i i i i i i i i i i i I i i I i i i i i -í + Gísli Magnússon fæddist á Brekku Hvalfjarð- arströnd 16. mars 1905. Hann lést á Sjúkrahúsi Akra- ness. 2. apríl síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Magnús Gíslason, f. í Stóra- Botni í Hvalfirði 27. júlí 1871, d. 2. júní 1957, og Guðrún Bjarnadóttir, f.16. nóvember 1866, d. 4. desember 1950. Þau voru ábúendur á Brekku. Systkini Gísla eru: Bjarni Magnússon Brekkmann, f. 14. febrúar 1902, d. 24. mars 1970, Jórunn Magnúsdóttir, f. 25. ágúst 1903, d. 7. nóvember 1907, Jón Magnússon, f. 13. apríl 1906, bóndi á Hávarsstöð- um, Guðmundur Magnússon, f. 19. nóvember 1907, d. 28. febr- úar 1908, Jórunn Magnúsdóttir, f. 29. mars 1911, til heimilis á Brekku. Gísli Magnússon kvæntist 4. nóvember 1938 Guðmundu Gísladóttur, f. 26. nóvember 1900, d. 3. apríl 1986. Fóstur- Elsku langafi og góði vinur. Að fá að umgangast þig og kynn- ast tilveru þinni voru forréttindi sem við gleymum aldrei, að sumu leyti var það eins og að fá að dóttir þeirra er Ágústa Kristín Bass, maki Erlingur Einarsson og eru þau núverandi ábú- endur á Brekku. Dóttir Guðmundu frá fyrra hjóna- bandi og stjúpdóttir Gísla var Guðrún Ágústsdóttir, hús- freyja á Másstöðum, d. 20. október 1993, maki Gunnar Niku- lásson bóndi á Másstöðum. Börn þeirra eru: Guðmundur Ágúst, Guðbjörg og Gísli Rúnar Már. Eldri dætur Guðrúnar og stjúp- dætur Gunnars eru tvíburarnir Helga og Margrét Gísladætur og ólust þær upp á Brekku til unglingsára. Gísli Magnússon var bóndi á Brekku frá 1937 til dánardæg- urs. Hann vann mikið að félags- málum, var meðal annars í sveitarstjórn um tíma. Hann var söngmaður og einn af stofnend- um kirkjukórs Hallgrímskirkju í Saurbæ. Útför Gísla fer fram frá Hall- grímskirkju í Saurbæ í dag og hefst athöfnin klukkan 14. skyggnast yfir í gamla tíma sem nú eru horfnir. Þannig kenndir þú okk- ur að umgangast skepnur á þann hátt sem þér einum var lagið. Þú varst viskubrunnur og víða heima og kunnir ógrynnin öll af kveðskap sem þú dróst fram úr hugskoti þínu og fórst með þegar slíkt átti við og sem innlegg í um- ræðuna. Engan mann höfum við hitt jafn óeigingjarnan og þig. Alltaf varstu tilbúinn að gefa þér tíma fyrir okk- ur og margoft gaukaðir þú að okkur einhverju smáræði, eins og þú kall- aðir það. Þegar við lítum til baka og hugs- um til þín, afi, munum við fyrst eftir því hversu glaðlegur, hjartahlýr og yfirlætislaus þú varst. Fyrirmynd- armaður í alla staði, er einkunn sem við mundum vilja gefa þér. En nú er komið að kveðjustund elsku afi, við kveðjum þig með sökn- uði en einnig þakklæti fyrir allt hið góða sem við þáðum af gnægtaborði þínu. Guð blessi þig í nýjum heimkynn- um, við vitum að þar verður tekið vel á móti þér. Margs er aó minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hjjóta skalt. (V. Briem.) Jóu, Stínu, Ella og öðrum ná- komnum sendum við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Jón Gunnar, Guðrún Jóhanna, Eva Björk og fjölskyldur. GISLI MAGNÚSSON PALL ARI PÁLSSON + Páll Ari Pálsson fæddist í Reykjavík 24. febrúar 1963. Hann lést á heimili foreldra sinna 7. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Kópavogs- kirkju 16. apríl. Hann Palli okkar er dáinn. Fréttin um andlát hans kom eins og reiðar- slag yfir okkur vinnufélagana. Palli hafði verið hress og kátur með okkur í vinnunni undanfarið, þegar allt í einu barst okkur sú harmafregn að hann hefði veikst skyndilega og látist. Við vorum öll mjög slegin og það er undarlegt að hugsa til þess að Palli komi ekki til með að vinna með okkur meir, hann var með afbrigðum duglegur starfsmaður og góður og skemmtilegur vinnufélagi, sem við eigum öll eftir að sakna mikið. Það verður erfitt að fylla upp í það skarð sem myndast hefur meðal starfs- fólksins á stöðinni því við höfum bæði misst fyrirmyndar starfskraft og skemmtiiegan félaga. Við sendum foreldrum Palla og systkinum innilegustu samúðar- kveðjur. Starfsfólk OLÍS, Gullinbrú. Við félagarnir fylltumst sárum söknuði á skírdag þegar okkur bár- ust þau sorglegu tíðindi að Palli vin- ur okkar hefði látist eftir mjög bráð og óvænt veikindi. Það er ekki bara erfitt að sætta sig við að góður vinur sé farinn, heldur einnig að hann sé tekinn frá okkur í blóma lífsins að- eins 35 ára gamall. Kynni okkar af Palla ná alveg aft- ur til þess tíma þegar við vorum ung- lingar og ótal minningar streyma um hugann þegar við hugsum aftur til þess tíma þegar ekki leið sá dagur sem við vinirnir ekki hittumst og brölluðum eitthvað saman. Það er sárt að kveðja vin sem var miðpunkt- ur þess skemmtilega tímabils sem unglingsárin voni hjá okkur. „Dadd- amir“ hans Palla, sem vinahópurinn var kenndur við, voru oftar en ekki miðstöð ýmissa skemmtilegra uppá- tækja og ófáar voru næturnar semn rúntað var fram undir rauðan morg- un. Ferðalögin innanlands og utan þar sem Palli var hrókur alls fagnað- ar, svo ekki sé minnst á knatt- spymuleikina á „Litla Wembley", em einnig stundir sem við munum aldrei gleyma. Það var alltaf gaman að heim- sækja Palla, hann var ávallt hress og kátur þegar við sátum saman í litla herberginu hans, þar sem við rædd- um saman um heima og geima, hlustuðum á góða tónlist og nutum félagsskapar hver annars. Eins og svo oft vill verða þegar full- orðinsárin taka við lágu leiðir okkar í hinar ýmsu áttir og samverustundim- ar urðu færri, en þó var ávallt glatt á hjalla þegar við hittumst. Kæru Sólveig, Páll, Gunnar Steinn, Jóna, Þómnn og fjölskyldur, við vottum ykkur innilegustu samúð og biðjum Guð að styrkja ykkur í sorginni. Arnar, Hreiðar og Sighvatur. HEIÐBJORT GUÐLAUG PÉTURSDÓTTIR + Heiðbjört Guðlaug Péturs- dóttir fæddist á Gautastöð- um í Holtshreppi (nú Fljóta- hreppi) 12. mars 1910. Hún lést á Landspítalanum 24. mars síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Bústaðakirkju 3. apríl. Þegar ég sest niður nú eftir að amma Heiðbjört hefur lagst til hinstu hvílu er fjölmargt sem kemur upp í hugann. Mínar fyrstu minning- ar em frá þvi að ég var u.þ.b. sex ára pg þá vorum við stödd í Sædýrasafn- inu í Hafnarfirði. Það er merkilegt að það skyldi hafa verið á þeim stað því amma var ætíð mikill dýravinur. Við amma urðum strax góðir vinir og hélst sá vinskapur traustur fram að andláti hennar. Amma var mikill náttúrudýrkandi og vai' hún alsæl þegar hún var við veiðar eða tíndi fjallagrös í sveitinni. Aldrei mun ég gleyma þeim fjölmörgu veiðiferðum sem við fórum saman í. Þá var amma mikil íþróttakona og á sínum yngi-i árum æfði hún ýmsar greinar, s.s. sund, frjálsar íþróttir og fimleika. Þótt komin væri á efri ár þá minnkaði aldrei áhugi hennar á að vera úti í náttúunni, sama hvernig viðraði. Á heimili ömmu var alltaf gott að koma og var hún ætíð til staðar ef ég þurfti á vini að halda. Amma var mikil fjölskyldumann- eskja og leið henni aldrei betur en þegar synfr hennar og fjölskyldur þeirra komu í heimsókn. Þá var hún góð við barna- og barnabarnabörnin sín og er ég þakklátur fyrir það að dóttir mín, Katrín Isbjörg, skyldi fá að kynnast langömmu sinni, hlýju hennai- og glaðværð. Ég veit að ömmu líður núna vel hjá afa Ara og að það verða fagnaðarfundir þegar við hittumst öll síðar. Guð veri með þér, amma mín. I harmanna helgilundum hugur minn unir sér. Eg sit þar á hverju kvöldi í kyrrðinni og bíð eftir þér. (Tómas G.) Ari. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DAGBJÖRT HANNESDÓTTIR, Dalbraut 15, Bíldudal, sem lést á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar miðvikudaginn 8. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 20. apríl kl. 15.00. Aðstaiidendur hins látna. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JAMES E. CAHILL jr., 24 Buttonwood Lane, Cohassett, Mass., USA, andaðist þriðjudaginn 14. apríl síðastliðinn. Sonja María Jóhannsdóttir Cahill, James E. Cahill III, Gerða María Sullivan, Michael Sullivan, Kristín Murphy Bret Murphy, María Jórunn Cahill og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN ÁRNASON, Bala, Þykkvabæ, lést að morgni föstudagsins langa, 10. apríl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Svava Þuríður Árnadóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Bróðir okkar, SIGMAR JÓNSSON, Suðurbyggð 19, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 16. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Stefán Þór Jónsson, Arnheiður Jónsdóttir, Jón Eyþór Jónsson, Þorgerður Jónsdóttir, Þóra Hildur Jónsdóttir. + Minningarathöfn um eiginkonu mína, móður og systur, SVÖLU ÞÓRISDÓTTUR SALMAN listmálara, 4301 Mass Ave NW; Wash. DC 20016, fer fram í Neskirkju þriðjudaginn 21. apríl kl. 16.00. Melhem Salman, Daoud Salman, Hrafn Þórisson, Bera Þórisdóttir og fjölskyldur. + Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda- faðir og afi, HERMANN SAMÚELSSON, Hraunbæ 78, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 15. apríl. Sigrún Garðarsdóttir, Helga Magnúsdóttir, Helga Björg Hermannsdóttir, Guðmundur Þ. Guðmundsson, Páll Þórir Hermannsson, Ásta Mósesdóttir, Samúel Hermannsson og barnabörn. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, teng- damóðir og amma, RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR, Neðstaleiti 1, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfóiki Heimahlynningar Krabbameinsfélagsins og öðru hjúkrunarfólki, sem studdi hana í veikindum hennar. Jakob Tryggvason, Hallfríður Jakobsdóttir, Herbert Haraldsson, Birgir Jakobsson, Ásta Arnþórsdóttir, Valgerður Jakobsdóttir, Marinó Einarsson, og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.