Morgunblaðið - 18.04.1998, Side 55

Morgunblaðið - 18.04.1998, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 55 S Glæsileg verðlaun á barnaskákmóti í dag SKAK Reykjavík SKÁK í HREINU LOFTI i Forseti Islands, herra Olafur j Ragnar Grímsson, setur í dag eitt glæsilegasta barnaskákmót sem haldið hefur verið hér á landi. Mótið hefst í dag klukkan 12.45.1 verðlaun eru m.a. utan- landsferðir. Hemmi Gunn verður kynnir á mótinu. Þátttaka er ókeypis. 18. apríl 1998. ALLT að 300 börnum og ung- lingum verður gefínn kostur á að j taka þátt í skákmóti sem fram fer í dag, laugardaginn 18. apríl. Þátttaka er ókeypis. Þátttökurétt eiga drengii' og stúlkur fædd 1982-1988. Mótið er haldið í Hell- isheimilinu, Þönglabakka 1 í Mjódd, en þar eru einnig Bridgesamband ísland og Keila í Mjódd til húsa. Hellisheimilið er vel staðsett með tilliti til strætis- vagnaferða, en það er rétt hjá skiptistöðinni í Mjódd. | Keppt verður í sex verðlauna- flokkum og verðlaun í mótinu eru afar glæsileg, þar á meðal munu fjórir þátttakendur vinna ferð til Disneylands í París og keppa á heimsmeistaramóti þar í nóvem- ber. í elstu flokkunum eru far- seðlar (á leiðum Flugleiða) á skákmót erlendis í verðlaun. Auk j þessa verður fjöldi aukaverð- launa. Þá verður einnig efnt til ' happdrættis á milli umferða þar I sem margvíslegir vinningar verða í boði. Það sama gildir um happ- drættið og mótið sjálft, að þátt- taka er ókeypis. Allir þátttakend- ur fá séi-merkta boli frá tóbaks- varnanefnd, SAM bíóin gefa þátt- takendum bíómiða og Vaka- Helgafell leggur til blöð og bæk- ur. | Mótið hefst klukkan 12:45 eins og áður segir. Tefldar verða 9 umferðir með 10 mínútna um- I hugsunartíma og áætlað er að mótinu ljúki klukkan 18. Góð að- staða er fyrir foreldra og aðra sem vilja fylgjast með „sínum mönnum" meðan mótið stendur yfír. Þátttakendur þurfa að mæta tímanlega til að skrá sig á mótið, en fjöldi keppenda takmarkast við 300. Það er Skákskóli Islands sem j stendur fyrir mótinu í samvinnu við tóbaksvarnanefnd, Vöku- Helgafell, VISA ísland og SAM bíóin. Skáksamband Islands, Tafl- félagið Hellir og fleiri aðilar að- stoða við framkvæmd mótsins. Hermann Gunnarsson verður kynnir á mótinu. Haraldur Baldursson, alþjóð- legur skákdómari, fær það erfiða hlutverk að vera aðaldómari á mótinu. Skákþing Norðlendinga: Yngri flokkar heíjast, í dag Skákþing Norðlendinga í yngri flokkum verður haldið í Skák- heimilinu Þingvallastræti 18, Akureyri, dagana 18. og 19. apríl 1998 og er dagskráin sem hér segir: Laugardagur 18.4 kl. 13 Sunnudagur 19.4 kl. 10 Sunnudagur 19.4 kl. 14 hraðskák Tefldar verða skákir með 20 mínútna umhugsunartíma fyrir hvorn keppanda til að ljúka skák. Teflt verður í þessum flokkum: Kvennaflokkur Drengjafl. 10-12 ára Unglingafl. 13-16 ára Barnafl. 9 ára og yngri Stefnt er að 7 umferðum, en það getur þó breyst eftir þátttöku. Veitt verða vegleg verðlaun sem eru bikar og 3 verðlaunapeningar í hverjum flokki. Þátttökugjald kr. 400 en þó er ekkert þátttökugjald fyrir hraðskákmótið. Stig ráða ef keppendur verða jafnir að vinn- ingum. Verðlaun verða afhent í mótslok. Tímasetningar umferða geta breyst. Ski'áningu skal lokið í síðasta lagi 10 mínútum fyrir mót. Skákþing Norðlendinga í eldri flokkum verður síðan haldið á sama stað 23.-26.apríl. Atkvöld hjá Helli á mánudag Taflfélagið Hellh- heldur atkvöld mánudaginn 20. apríl. Fyrst ei*u tefldar 3 hraðskákir þar sem hvor keppandi hefur 5 mínútur til að ljúka skákinni og síðan þrjár at- skákir með tuttugu mínútna um- hugsunartíma. Mótið hefst kl. 20. Atkvöldið er haldið í Hellis- heimilinu í Þönglabakka 1 í Mjódd, efstu hæð. Sami inngang- ur og hjá Bridgesambandinu og Keilu í Mjódd. Þátttökugjald er kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri), en kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri). Sigurvegarinn fær máltíð fyrir tvo hjá Pizzahúsinu. Þá verður annar keppandi dreginn út af handahófi, en hann fær einnig máltíð fyrii' tvo hjá Pizzahúsinu. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Síðasta atkvöld Hellis var hald- ið í mars og þá sigraði Andri Ass Grétarsson, en þátttakendur voru QO Klúbbakeppni Hellis Skákiðkun íslendinga er síður en svo bundin við opinber skák- mót, því mikill fjöldi skákmanna teflir einungis í heimahúsum. Fjöldinn allur af óformlegum skákklúbbum er starfræktur og menn hittast reglulega yflr vetr- artímann til að tefla. Klúbbakeppni Hellis var hleypt af stokkunum í þeim tilgangi að gefa þessum klúbbum tækifæri til að eiga saman skemmtilegt kvöld, tefla og ekki síður til að hittast og ræða málin. Klúbbakeppni Hellis verður nú haldin í annað sinn föstudaginn 24. apríl klukkan 20. Keppt verð- ur í fjögurra manna sveitum. Tefldar verða 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Klúbbakeppnin var haldin í fyrsta sinn í fyrra og fór þátttak- an þá fram úr björtustu vonum, en 23 klúbbar með yfir 100 manns innanborðs tóku þátt í keppninni. Var þetta fjölmenn- asta mót sem Hellir hefur haldið fyrir utan barna- og unglinga- mót. Tekið er á móti skráningum í mótið í símum 581-2552 (Gunnar) og 557-7805 (Daði). Einnig er hægt að skrá sig með tölvupósti: hellirEvks.is. Þátttökugjald er kr. 1.000 fyrir hverja sveit. Davíð Kjartansson sigraði á Páskaeggjamóti Davíð Kjartansson sigraði á fjölmennu Páskaeggjamóti Hell- is, sem fram fór fyrir páskana. Hann hlaut 6(4 vinning í 7 skák- um. I öðru sæti varð Birkir Orn Hreinsson með 6 v. og Guðni Stefán Pétursson varð í þriðja sæti með 5(4 v. Röð efstu manna varð þessi: 1. Davíð Kjartansson 6(4 v. 2. Birkir Orn Hreinsson 6 v. 3. Guðni Stefán Pétursson 5(4 v. 4. -8. Jóhannes Ingi Arnason, Guðmundur Kjartansson, Ólafur Kjartansson, Eiríkur Garðar Ein- arsson og Valtýr Njáll Birgisson 5 v. 9.-10. Hilmar Þorsteinsson og Kristján Freyr Kristjánsson 4(4 v. 11.-18. Sigurjón Kjærnested, Ómar Þór Ómarsson, Sævar Ólafsson, Ingibjörg Edda Birgis- dóttir, Gústaf Smári Björnsson, Hafliði Hafliðason, Stefán Ingi Arnarson og Gunnar Freyr Þóris- son 4 v. Þátttakendur voru töluvert fleiri en á síðasta ári, eða 40. Tefldar voru sjö umferðir og um- hugsunartíminn var sjö mínútur á skák. Vigfús Óðinn Vigfússon var skákstjóri á mótinu. Daði Örn Jónsson Margeir Pétursson Fjarðar- listinn frá- genginn ( ( STOFNFUNDUR Fjarðarlistans í | Valhöll á Eskifírði var haldinn 17. mars sl. og segir í fréttatilkynn- ingu að um sé að ræða samtök fé- lagshyggjufólks sem hyggst bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga í hinu nýja sveitarfélagi á Mið-Aust- urlandi. Að Fjarðarlistanum standa fé- lagar úr Alþýðubandalagi og Al- | þýðuflokki í Neskaupstað, Eski- firði og Reyðarfirði auk þess sem ' fjölmargt óiflokksbundið fólk hefur ( gengið til liðs við samtökin, segir ennfremur. Eftirtalin framboðslisti var sam- þykktur í vikunni á félagsfundi til sveitarstjórnarkosninga: 1. Smári Geirsson, framhaldsskólakennari, Neskaupstað, 2. Elísabet Bene- diktsdóttirj forstöðumaður, Reyð- arfirði, 3. Ásbjöm Guðjónsson, bif- vélavirki, Eskifirði, 4. Guðmundur R. Gíslason, veitingamaður, Nes- kaupstað, 5. Guðrún M. Óladóttir, deildarstjóri, Eskifirði, 6. Þorvald- ur Jónsson, verkstjóri, Reyðarfirði, 7. Petrún Bj. Jónsdóttir, íþrótta- kennari, Neskaupstað, 8. R. Ásta Einarsdóttir, sjúkraþjálfari, Reyð- arfirði, 9. Áðalsteinn Valdimars- son, fv. skipstjóri, Eskifirði, 10. Heiðrún Helga Snæbjörnsdóttir, sjúkraþjálfari, Neskaupstað, 11. Gísli Ái'nar Gíslason, afgreiðslu- maður, Eskifirði, 12. Guðjón B. Magnússon, blikksmiður, Nes- kaupstað, 13. Anna Jenný Vil- helmsdóttir, skrifstofumaður, Reyðarfirði, 14. Jóna Katrín Ara- dóttir, húsmóðir, Neskaupstað, 15. Grétar Rögnvarsson, skipstjóri, Eskifirði, 16. Jón Hilmar Kárason, tónlistarkennari, Neskaupstað, 17. Katrín Ingvadóttir, starfsstúlka, Neskaupstað, 18. Sindri Svavars- son, iðnnemi, Eskifirði, 19. Árni Ragnarsson, rafeindavirki, Reyð- arfirði, 20. Jóhanna Armanns, verkakona, Neskaupstað, 21. Steinn Jónsson fv. skipstjóri, Eski- firði, 22. Steinunn Lilja Áðalsteins- dóttir, sérkennari, Neskaupstað. Bæjarstjóraefni listans er Guð- mundur Bjarnason, bæjarstjóri í Neskaupstað. Grænlands- ferð Óháða safnaðarins HIN fyiárhugaða ferð Óháða safn- aðarins til Grænlands verður farin 23. apríl nk. Flogið verðm- til Kulusuk og gist í tvær nætur. Farastjóri verður Jóhann Brandsson og mun hann kynna menningu og siði innfæddra. Nán- ari upplýsingar um ferðina veitir safnaðarstjóri. KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Æðruleysis- messa í Dóm- kirkjunni ÆÐRULEYSISMESSA tileinkuð fólki í leit að bata eftir tólfspora- kerfinu verður í Dómkirkjunni sunnudaginn 19. apríl kl. 21. Kirkj- an opnuð kl. 20 fyrir spjall og kaffi- tár. Guðsþjónustan verður með frjáls- legu formi, léttur söngur við hljóð- færaleik Sigurðar Ingimarssonar, Harðar og Birgis Bragasona. Fólk segir af reynslu sinni og sr. Anna Sigríður Pálsdóttir leiðir fyrirbæn. Sr. Jakob Hjálmarsson flytur hugleiðingu og sr. Karl V. Matthías- son leiðir samkomuna. Margir sem feta sporin tólf sjá þann æðri mátt sem megnar að breyta sorg í von birtast í Jesú Kristi og þeim til trúarstyrkingar og eflingar í baráttunni er þessi guðsþjónusta haldin. Kvennakirkjan á Selfossi KVENNAKIRKJAN heldur messu í Selfosskirkju sunnudaginn 19. aprfl kl. 20. Séra Auður Eir Vilhjálmsdótt- ir prédikar. Kór Kvennakirkjunnar leiðir almennan söng við undirleik Önnu Magnúsdóttur. Kl. 16 flytur Hildur Hákonai'dóttir vefari erindi um kristna miðaldakonu, Hildegaard von Bingen, í Listasafni Árnesinga, Ti-yggvagötu 23. Konur af Suður- landi eru velkomnar. Einnig geta konur úr Reykjavík tekið þátt í vorferð Kvennakirkjunnar en lagt verður af stað frá Umferðarmiðstöð- inni kl. 10. Námskeið í Krossinum NÁMSKEIÐ um Ljóðaljóð Biblí- unnar verður í Krossinum, Hlíðar- smára 5-7 í Kópavogi. Námskeiðið stendur yfir í sex vik- ur og hefst í dag, laugardaginn 18. aprfl, kl. 14. Kennt verður í tvær kennslustundir með kaffihléi á milli. Ljóðaljóðin flytja mönnum boð- skap sem allir þurfa að kunna ski) á. Námskeiðið er öllum opið. Aprílvaka KFUM & K KFUM og KFUM í Reykjavík halda aprflvöku, samveru með lof- gjörð, hugleiðingu og fyrirbæn, sunnudaginn 19. aprfl kl. 20. Þor- valdur Halldórsson leiðir söng og lofgjörð. Boðið er upp á fyrirbæn fyrir þá sem þess óska í loka samkomunnar. Allir eru hjartanlega velkomnir í hús KFUM og K á sunnudagskvöld- ið kl. 20. Seljakirkja. Vorferð barnastarfsins kl. 11. Barnaguðsþjónusta verður í Bessastaðakirkju. KEFAS, Dalvegi 24. Almenn sam- koma í dag kl. 14. Gestaprédikari Helena Leifsdóttir. Allir velkomnir. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF iffó SAMBAND ISŒNZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Háaleitisbraut 58. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Gunnar Hamnöy talar. Hörður Geirlaugsson syngur ein- söng. Allir velkomnir. KRISTIÐ SAMFÉLAG Dalvegi 24, Kópavogi Almenn samkoma í dag kl. 14. Gestapredikari Helena Leifsdóttir. Allir hjartanlega velkomnir. Dagsferðir: Sunnudaginn 19. aprfl Grón- ar götur. Fyrsti áfangi í þriggja áfanga göngu frá Rauðamel í Kapelluhauni og suður í Krýsu- vík. Fyrsti áfangi er frá Rauðamel að Höskuldarvöllum. Komið við í Óttarstaðaseli. Verð 1.000/1.200. Brottför frá BSÍ kl. 10.30. Næstu ferðir: 30.—3. maí Esjufjöll. Gengið upp Breiðamerkurjökul í Esju- fjöll. Gengið verður m.a. í Foss- dal og að Snók. Skíðagönguferð. Fararstjóri verður Sylvía Kristj- ánsdóttir. Gist í skálum. 8.—10. maí Fimmvörðuháls — Eyjafjallajökull — Seljavalla- laug. Gengið á skíðum á Fimm- vörðuháls og farið yfir Eyjafjalla- jökul i Seljavallalaug. Ferðin end- ar í Básum. 8.—10. maí. Básar Ferð fyrir alla. Gönguferðir og kvöldvökur. Spennandi jeppaferðir: 25. apríl Dagsferð með jeppa- deildum Reykjaness. Þátttaka til- kynnist á skrifstofu. 1.—3. maí Langjökull — Hvera- vellir. Ekið yfir Langjökul og endað á Hveravöllum og gist þar. Fararstjóri verður Kristján Helga- son. Sjáumst. Heimasíða: centrum.is/utivist FERÐAFELAG % ÍSLANDS MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533 Sunnudagur 19. apríl kl. 13.00 Stórhöfðastígur, gömul þjóð- leið, nágrenni Straumvíkur- svæðisins. Ferðafélagið og Umhverfis- og útivistarfélag Hafnarfjarðar kynna nágrenni Straumsvíkur- svæðisins í nokkrum ferðum í vor og sumar og er önnur ferðin um hluta Stórhöfðastígs, sem er gömul og skemmtileg þjóðleið upp frá Hafnarfirði. Gengið verð- ur frá Ási við Ástjörn yfir að nýja Bláfjailaveginum. Um 2—3 klst. létt ganga undir leiðsögn. Tilvalin fjölskylduganga. Brottför með rútu frá BSÍ, austanmegin og Mörkinni 6 kl. 13.00, verð 500 kr. Hægt að koma á eigin vegum á bíla- stæðið við Ástjörn við Hafn- arfjörð kl. 13.20, verð 200 kr. Frítt f. börn 15 ára og yngri með fullorðnum. Engin skíðaganga. Eignist nýútkomna árbók Ferðafélagsins: Fjallajarðir og Framafréttur Biskupstungna. Innifalin í árgjaldi 1998. KENNSLA Lestrarkennsla ungbarna Námskeið fyrir for- eldra í Norræna húsinu iaugardaga kl. 15.00. Aðeins 2 námskeið eftir. Leiðbenandi Kol- brún Sveinsdóttir. Upplýsingar í síma 561 6076. — Leiklistarstúdíó — Eddu Björgvins og Gisla Rúnars. Vornámskeið fyrir fullorðna. Skráningar i sima 581 2535.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.