Morgunblaðið - 18.04.1998, Síða 58

Morgunblaðið - 18.04.1998, Síða 58
■rf 58 LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens ''jSérr m þéR, HANN Sí ngSSSSvÖ?* Servfc®8’lnc' MÐ EVRONHEMNARMÖfWM^ l---------—----SjNNflK VA, þú £ftr9s£imK.{ oz£>/n Geöyt/H Grettir Ferdinand Smáfólk (UJOUJj U)HAt\ 4a projectu^ ll C0L0R THE5E PICTURE5! CUT ANP PA5TE! DRAW TH05E TREE5! MORÉ CUTTINS! MORE PASTIN6/ jyl I íf§t kT A LEARNIN6 iRIENCEÍ YE5, AM,YOUVE E IT A6AIN í CUHEN 5ME'5 HAPPY, lue're happy.. Vá! Hvflíkt verkefni! Lita þessar myndir! Klippa og Hvflík lærdóms- Þegar hún er ánægð erum líma! Teikna þessi tré! Meira reynsla! Já, kennari, við ánægð ... að klippa! Meira að líma! þér tókst það einu sinni enn! BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Bréf úr Mývatnssveit Frá Kristjáni Þórhallssyni og Þorláki Jónassyni: í OKTÓBER 1997 sendu 17 landeig- endur og ábúendur í Vogum við Mý- vatn ósk um að umhverfisráðuneytið gæfí fyrirmæli um að Kísiliðjan dældi úr botni Vogaflóa sunnan línu frá Vogum í Dauðanes. Þaðan að Kransi og Auðnavík. Síðan segir: „Ljóst er að framangreint svæði er orðið víða svo grunnt að silungur er að hverfa. Við teljum þessa dælingu mjög brýna og vonum að málið fái já- kvæðar undirtektir. Auk þess mun Kísiliðjan væntanlega fá þar hrá- efni.“ Ráðuneytið sendi þessa óks okkar til stjómar Náttúruverndar ríkisins og Náttúruverndarráðs til umsagnar. Þann 26. nóvember 1997 barst okkur bréf frá Árna Einars- syni forstöðumanni Náttúrurann- sóknastöðvarinnar við Mývatn. Þar segir: „Náttúrurannsóknastöðin hef- ur fengið til umsagnar erindi land- eigenda í Vogum um kísilgúrdælingu úr botni Vogaflóa og Kálfstjöm. Að- ur en umsögn er veitt viljum við kynna okkur þær forsendur sem gefnar em fyrir beiðninni. Þess vegna þætti okkur vænt um að fá svar við nokkram spurningum." Svar við þeim sendum við ásamt greinargerð 8. desember 1997. Þar segir m.a. „Eins og kunnugt er var silungur nánast horfinn víða úr Ytra- Flóa Mývatns áður en dæling hófst, enda var hann svo grannur að botngróðurinn var kominn upp úr vatninu. Ekki batnaði ástandið við 60-70 sm landris í Kröflueldum. Á árunum milli 1980-90 fór veiði vera- lega að glæðast þar sem búið var að dæla, og hefur haldist síðan. Sér- staklega urriðaveiði síðustu ár og raunar bleikjuveiði iíka. Sannað er að dýpkun Ytri-Flóa hefur skilað mjög góðum árangri. Þvi teljum við brýnt að hefja dælingu úr Vogaflóa þar sem hægt er innan tíðar. Þar hefur veiði mjög þorrið undanfarin ár. Ekki er sýnileg önnur leið til bjargar en dæling úr botni flóans. Á fundi sem haldinn var í Kísiliðj- unni 25. október 1991 var lögð fram yfirlýsing undirrituð af 23 félögum í veiðifélagi Mývatns, eða 2/3 hluta fé- lagsmanna. Þar segir: „Kísiliðjan hefur nú dælt hráefni af.botni Ytri- Flóa Mývatns í yfir 20 ár. Það er álit okkar að áhrif dælingar hafi verið af hinu góða fyrir vatnið. Undanfarin tvö ár höfum við orðið vitni að mik- illi uppsveiflu í lífríki Mývatns, sem greinilega hefur komið fram í miklu rykmýi og mergð fugla á vatninu. Við undirritaðir teljum ekkert því til fyrirstöðu að Kísiliðjan starfi áfram í Mývatnssveit í sátt og samlyndi við umhverfi sitt.“ Hinn 12. mars 1998 barst okkur bréf frá Náttúruvemd ríkisins. Þar er vitnað í samþykkt stjórnar Nátt- úrarannsóknastöðvarinnar við Mý- vatn. Þar er ósk okkar um dælingu úr Vogaflóa hafnað á þeim forsend- um að dæling úr Vogaflóa geti rask- að riðastöðvum ui’riðans. I öðru lagi sé óljóst að vinnanlegur gúr sé í fló- anum. Furðulegt er að stjórnin skuli hafna dælingu úr Vogaflóa, þrátt fyi-ir að lífríkið á þeim svæðum sem búið er að dæla í Ytri-Flóa sé orðið með því besta bæði fyrir fugl og fisk. Við höfum leitað til fiskifræðinga vegna riðastöðva í Vogaflóa. Það er samdóma álit þeirra að dæling úr flóanum muni á engan hátt raska riðastöðvum urriða, enda era þær allar á grannum næst landi. Mikið frekað hefði dæling og dýpkun flóans jákvæð áhrif að þeirra mati. Þá hef- ur vinnsluhæfur kísilgúr verið kann- aður í Vogaflóa með mælingum að hluta til og virðist hann vera vel vinnsluhæfur. Óskiljanleg er neitun stjórnar Náttúrurannsóknastöðvarinnar og Náttúravemdar rfkisins um dælinu úr Vogaflóa. Eins og að framan greinir er hún ekki studd neinum haldbærum rökum. Full ástæða er til að kanna lagalegan rétt okkar til að vemda og viðhalda hefðbundnum hlunnindum og eignarrétti áður en Vogaflói er orðinn ónýtanlegur með öllu. Við útilokum ekki skaðabóta- kröfúr ef stjóm Náttúrurannsókna- stöðvarinnar afturkallar ekki fyrri ákvörðun og óskar samkomulags við landeigendur. I þessu sambandi viijum við vitna í blaðagrein Dagbjarts Sigurðssonar í Alftagerði frá árinu 1992, til frekari rökstuðnings málaleitan okkar. Þar segir meðal annars: „Eins lengi og elstu menn muna og sjálfsagt lengur hafa verið sveifl- ur í lífríki Mývatns. Líffræðingar og alls konar vísindamenn hafa stundað hér rannsóknir, en ekki komist að neinni niðurstöðu. Hinn mikli gróður sem er í vatninu veldur því að vatnið grynnkai- mjög ört, svo að eftir fá- einar aldir, kannski styttri tíma, verður það ekki til sem stöðuvatn, aðeins lækjarsprænur frá uppsprett- um að Laxárósum. Með því að dæla botnleðjunni upp lengist sá tími sem Mývatn verður til, það tel ég hik- laust jákvæð áhrif frá Kísiliðjunni. Sumir telja að breyting til hins verra hafi orðið um 1970. Ég get ekki fall- ist á það að neitt hafi gerst sérstak- lega er snerti sveiflur í lífríkinu og veiðinni. Sveiflurnar fara vaxandi eftir því sem vatnið verður grynnra og gróðurinn meiri. Nú veiðist meiri og betri silungur á dælda svæðinu í Ytri-Flóa en áður þekktist, og kaf- endur virðast ekki í neinum vand- ræðum þar. Það er alveg furðulegt að nokkrir menn geti svo kæraleys- islega og með litlum rökum lagt það til að líf fjölda fólks, já heils sveitar- félags, skuli lagt í rúst. Og ennþá grynnkar vatnið sunnan Teigasunds - hvað er hægt að gera því til bjarg- ar sem fyrst? Ég sé engan annan möguleika en Kísiliðjuna. Það getur ekkert fyi-ii-tæki staðið undir þeim kostnaði nema Kísiliðjan, af því að hún getur breytt leðjunni í verð- mæti, auk þess að vera styrkasta stoðin undir atvinnu og efnahag Mý- vatnssveitar. Við viljum því skora á alla þá, sem unna velferð Mývatns og Mývatnssveitar, að snúa bökum saman og verjast þessum vanhugs- uðu og ástæðulausu árásum á Kísil- iðjuna, og þar með meginþorra Mý- vetninga." KRISTJÁN ÞÓRHALLSSON og ÞORLÁKUR JÓNASSON, landeig- endui' í Vogum. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt tii að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.