Morgunblaðið - 18.04.1998, Qupperneq 66
66 LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
1 LYFjAVERSLUN ÍSLANDS H F.
Hefur þú
flösu
og ert á milli
16 og 70 ára?
Lyfjaverslun íslands hf. óskar eftir þátttakendum í rannsókn á
hársápu sem notast á við flösu í hári. Þátttakendur verða að
hafa töluverða flösu sem veróur að sjást vel í hársverði þegar
þeir eru skoóaóir í upphafi rannsóknarinnar. Þátttakendur
mega ekki hafa húðsjúkdóminn psoriasis. Þungaðar konur
mega ekki taka þátt í rannsókninni. Rannsóknin fer þannig
fram að mismunandi hársápur (sjampó) eru notaðar í 8 vikur,
tvisvar í viku. Hárió verður þvegið á rannsóknarstaðnum.
Húðsjúkdómalæknar munu meta árangurinn vikulega. Ekki má
nota aðrar hársnyrtivörur á meðan á rannsókninni stendur.
20.000 kr. eru greiddar fyrir fulla þátttöku í rannsókninni.
Þeir, sem hafa áhuga, vinsamlega hringið í síma 540 8073 eða
540 8042 á milli kl. 8 og 16 í dag, laugardaginn 18. apríl.
i_Z__
www.mbl.is
________________________FÓLK í FRÉTTUM__________________________________
Dæmdir fyrir morðið á
leikaranum Haing Ngor
ÞRIR meðlimir götugengis voru sakfelldir
fyrir morð á Oskarsverðlaunahafanum
Haing Ngor sem lék meðal annars í kvik-
myndinni „The Killing Fields" árið 1984.
Ngor lifði sjálfur af ógnartíðina í Kambó-
díu en var svo skotinn til bana fyrir utan
heimili sitt í Los Angeles eftir að hafa ver-
ið rændur. Atburðurinn átti sér stað í
febrúar 1996.
Það voru þeir Tak Tan, 21 árs, Jason
Chan, tvítugur, og Indra Lim, 21 árs, sem
voru dæmdir fyrir morð af ásetningi og
rán en réttað var yfir mönnunum hverjum
í sínu lagi.
Haing Ngor, sem var kvensjúkdóma-
læknir að mennt, lifði af hrottalegar pynt-
ingar Rauðu kmeranna áður en honum
tókst að flýja til Bandaríkjanna árið 1980.
I kjölfarið fékk hann hlutverk í myndinni
„The Killing Fields“ þar sem hann lék
blaðaljósmyndara en myndin fjallar um þá
hryllilegu atburði sem áttu sér stað í
heimalandi hans. Hann fékk Óskarsverð-
laun fyrir leik sinn í myndinni.
Ngor var 55 ára þegar hann lést og
hafði eytt miklum tíma í að aðstoða inn-
flytjendur frá Kambódíu í Los Angeles.
Við réttarhöldin kom fram að morðingj-
arnir rændu Ngor af handahófi og tóku
400 þúsund króna Rolex-úr af honum áður
en þeir skutu leikarann þegar hann neit-
aði að afhenda þeim gullnisti með mynd af
eiginkonu sinni sem lést í Kambódíu.
„Þegar Upp er staðið var myndin mikil-
vægari Ngor en sjálft lífið,“ sagði sak-
sóknari málsins við kviðdómendur. Sak-
borningarnir voru í krakkvímu og voru að
útvega sér fjármuni til að kaupa eiturlyf.
HAING Ngor lék meðal annars í „The Killing Fields“ og „Hea-
ven and Earth.“
opnum aftur
eftir breytingai
aís|. Laugardag frá kl. 10-16 1q
Sunnudag frá kl. 13—17
Laugavegi 6
c ímí CZOOO1 7
d!zj//Tffr / §
Þar sem úrvalið er mest
www.nikebudin.is