Morgunblaðið - 18.04.1998, Page 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Haraldur Þór Stefánsson
SENDLINGAR í HVALFIRÐI
SENDLINGARNIR flugu í þéttum hóp yfír sjáv- Veðrið var stillt og gott og óneitanlega vorlegt til, og þegar lágsjávað er dreifast þeir um leirur
arflötinn í Hvalfirðinum í gærmorgun þegar um að litast. Mikill fjöldi sendlinga safnast sam- í ætisleit eða huga að því sem sjórinn skolar upp
þessi mynd var tekin skammt frá Brynjudalsá. an í fjöi-um, einkanlega suðvestanlands, að vetri á ströndina og kann að vera ætilegt.
Rússnesk
sendinefnd
kynnir sér
útveg á
Islandi
RÚSSNESK sendinefnd er nú stödd
hér á landi til að kynna sér íslenskan
sjávarútveg og er Vayacheslav K.
Zilanov, sem áður var einn af vara-
sjávarútvegsráðherrum Rússlands
og formaður sendinefndar Rússlands
í Norðaustur-Atlantshafsfiskveiði-
nefndinni, einn nefndarmannanna.
Rússamir komu til landsins síðast-
liðinn þriðjudag og dvelja þeir hér á
landi næstu 3-4 vikurnar og annast
sjávarútvegsráðuneytið skipulagn-
ingu kynnisferðarinnar.
I þessari viku hafa Rússamir
kynnt sér stjómsýslu í íslenskum
sjávarútvegi og hafa þeir m.a. heim-
sótt sjávarútvegsráðuneytið, Haf-
rannsóknastofnun og Fiskistofu.
Næstkomandi mánudag halda þeir
til Akureyrar þar sem þeir heim-
sækja Útgerðarfélagið, Samherja og
Slippstöðina, og síðan fara þeir í
heimsókn til Þormóðs ramma á
Siglufirði og í heimsókn til Fiskiðj-
unnar á Sauðárkróki. Á fimmtudag-
inn fer sendinefndin til Þórshaftiar
og verður hún þar fram á laugardag,
enþá heldur nefndin til Reykjavíkur.
I næstu viku mun hún einnig m.a.
kynna sér bankastarfsemi, útflutn-
ingsmál og fiskvinnslu og heimsækja
tæknifyrirtæki.
Lítur vel út og virðist
afar vel þjálfaður
Verðlagsstofa skiptaverðs tekur til starfa 1. júní
Hugsanlega staðsett
utan Reykjavíkur
HALLDÓR Runólfsson yfirdýra-
læknir skoðaði háhyminginn
Keiko í Newport í Oregon í
Bandaríkjunum í gær. „Hann lítur
vel út,“ sagði yfirdýralæknir í
samtali við Morgunblaðið en vildi
C i#kki tjá sig um hvort hann mæti
dýrið hæft til innflutnings að svo
stöddu.
„Við óskuðum eftir meiri upp-
lýsingum um heilsufarið og það er
verið að vinna hér úr þeim fyrir
okkur. Við fáum þær á næstu dög-
um. Það eru, að ég held, 18 manns
í vinnu í kringum hann og það er
mjög vel fylgst með honum og
hann virðist afar vel þjálfaður."
Halldór er á staðnum ásamt
Gísia Jónssyni, dýraiækni fisksjúk-
dóma, og sagði að þeir hefðu talið
rétt að sjá dýrið með eigin augum
»g ræða við þá sem málið þekktu
gerst og ræða við þá sem unnið
hefðu skýrslur um málið. Meðal
annars hafa þeir hitt sérfræðing í
veirusjúkdómum í hvölum, rætt
við yfírdýralækni Keikos og fleiri
aðila.
Halldór sagðist hafa beðið
Bandarikjamennina um að gerðar
^ yrðu frekari prófanir á ákveðnum
þáttum varðandi heilsufar Keikos
og þar til lokaniðurstöður liggja
fyrir kvaðst hann engar yfirlýs-
ingar vilja gefa.
Irar gefa grænt ljós á Keiko
frar hafa nýlega lýst því yfir að
þeir séu reiðubúnir að taka á móti
háhyrningnum Keiko og hafa
hann í sjávarkví undan ströndum
írlands.
I bréfi frá Michael Canny, yfir-
manni þjóðgarða á Irlandi, er
formlega gerð grein fyrir því að
írsk stjómvöld séu í grundvallar-
atriðum reiðubúin að taka við
hvalnum að því gefnu að staðið
verði við fullyrðingar um heilsu
hans, umönnun og kostun.
Einnig segir að Dick McKeever
sjávarverkfræðingur hafi verið
skipaður til að aðstoða Frelsið
Willy Keiko-stofnunina við að
leggja mat á staði við strendur ír-
lands þar sem til greina komi að
hafa hvalinn. Komi engin vanda-
mál upp taki sex til átta vikur að
fá leyfi til að flylja Keiko í sjávar-
kví undan ströndinni.
Bréf þetta var sent í lok mars
og þar er vitnað til heimsóknar
fulltrúa Keiko-stofnunarinnar til
Dyflinnar 5. mars.
STAÐA forstöðumanns Verðlags-
stofu skiptaverðs, sem tekur til
starfa 1. júní næstkomandi sam-
kvæmt lögum sem Alþingi sam-
þykkti til að binda enda á sjó-
mannaverkfallið í lok mars síðast-
liðins, verður auglýst laus til um-
sóknar á næstu dögum. Að sögn
Kristjáns Skarphéðinssonar, deild-
arstjóra í sjávarútvegsráðuneyt-
inu, kemur til greina að verðlags-
stofan verði staðsett utan Reykja-
víkur.
Kristján sagði að starfsmenn
Verðlagsstofu skiptaverðs yrðu
væntanlega að minnsta kosti tveir,
en þeir yrðu hugsanlega fleiri til
að byrja með. Hann sagði að sjáv-
SAKSÓKNARI efnahagsbrotadeild-
ar embættis RQdslögreglustjóra hef-
ur gefið út ákæni á hendur rúmlega
fertugum karlmanni fyrir að hafa not-
fært sér ellihrumleika 82 ára gamall-
ar konu til að hafa af henni fé sem
nemur 30,8 milijónum króna.
Maðurinn er ákærður fyrir mis-
neytingu gagnvart konunni, með því
að hafa notfært sér bágindi hennar
sökum heilarýrnunar, einfeldni henn-
ar og að hún var ákærða háð, til að
arútvegsráðherra myndi væntan-
lega taka ákvörðun um hvar verð-
lagsstofan verður, en ekki væri
útilokað að hún yrði staðsett utan
Reykjavíkur.
„Það er þó ljóst að Verðlags-
stofa skiptaverðs þarf að hafa mik-
il samskipti við þá sem safna verð-
upplýsingum eins og t.d. Fiskifé-
lagið og einnig við úrskurðarnefnd
sjómanna og útvegsmanna sem
starfar áfram og hefur verið í
Reykjavík," sagði Kristján.
Ekki búið að skipa
stjórn kvótaþings
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hvenær skipuð verður stjórn
hafa af henni fé og áskilja sér hags-
muni er ekkert endurgjald skyldi
koma fyrir.
Meint brot eru framin á sex mán-
aða tímabili á árunum 1996 og 1997.
28,4 milljónir króna voru teknar út af
bankareikningum konunnar, en auk
þess er hann ákærður fyrir að hafa
notað skuldabréf að upphæð 2,4 millj-
ónir króna til greiðslu skulda sinna.
Samanlagt er upphæðin 30,8 milljónir
króna, en bótakrafa lögmanns kon-
kvótaþings, sem samkvæmt lögum
á að taka til starfa 1. september
næstkomandi, en á kvótaþinginu
eiga að fara fram viðskipti með
aflaheimildir. Að sögn Kristjáns
skipar sjávarútvegsráðherra
stjómina, en hún mun útfæra nánar
hvernig starfsemi kvótaþingsins
verður háttað og setja um það regl-
ur.
Sagðist Kristján ekki sjá fyrir
sér að kvótaþingið yrði neins konar
stofnun með sérstakt starfsfólk
heldur yrði það eining sem t.d. gaeti
orðið hluti af Verðbréfaþingi ís-
lands eða þá að samið yrði við verð-
bréfafyrirtæki um að annast rekst-
urinn.
unnar nemur um 38 milljónum króna.
Þá er maðurinn ákærður fyrir að hafa
fengið konuna til að gefa viðbótaryfir-
lýsingu við erfðaskrá sína þess efnis
að hún falh frá öllum kröfum á hend-
ur honum vegna skulda hans við hana
þegar hún falh frá.
Brotin eru talin varða við 253. gr.
almennra hegningarlagana og geta
brot á þeirri grein laganna varðað allt
að tveggja ára fangelsi. Málið er rek-
ið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Akærður fyrir að hafa
30 millj. af áttræðri konu