Morgunblaðið - 21.04.1998, Page 10

Morgunblaðið - 21.04.1998, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bankaráð Búnaðarbanka Islands Reglur um lax- veiðar settar 1995 STEFÁN Pálsson, bankastjóri Búnaðarbanka íslands, sagði í gær að bankaráð bankans hefði sett reglur um laxveiðai' árið 1995 og kvaðst ekki vilja segja hvort vænta mætti breytinga vegna risnu fyrr en Ríkisendurskoðun hefði skilað áliti. Hjá Búnaðarbankanum er um að ræða þrenns konar endurskoð- un. I fyrsta lagi er innri endur- skoðun, sem ráðin er af bankaráði, endurskoðunarfyrirtæki, sem einnig heyrir undir bankaráð, og síðan Ríkisendurskoðun. „Eg tel að þessi mál eigi að vera undir fullri stjórn," sagði Stefán Páls- son, bankastjóri Búnaðarbankans. Hann sagði að laxveiðar hefðu komið til umræðu í bankaráði Búnaðarbankans árið 1995. „Þar var tekið fyrir það að aðrai' lax- veiðar færu fram en með gestum og þá fyrst og fremst erlendum," sagði Stefán. Að hans sögn var þetta rætt á fundi bankaráðs að frumkvæði Pálma Jónssonar eftir að hann varð formaður þess árið 1995. Stefán sagði að þetta hefði ekki verið gert að gefnu tilefni heldur hefði verið um að ræða almenna umræðu um veiðarnar. Eftir þetta hefði verið farin ein ferð á ári með útlendinga. Að sögn Stefáns eru settar reglur um utanlandsferðir og dagpeninga. Hann sagði af og frá að yfirmenn bankans ættu rétt á ákveðnum ferðum erlendis. Ferðir bankastjóra væru yfirleitt á fundi erlendis. Litlar breytingar hefðu orðið við formbreytingu Búnaðarbankans í hlutafélag. Far- ið hefði verið yfir reglur við bank- ann af því tilefni, en þær hefðu að mestu haldist óbreyttar. Hann vildi ekki segja hvort breytinga væri að vænta varðandi risnu og laxveiðar á næstunni. Vill varast alhæfingar „Eigum við ekki að láta úttekt- ina fara fram fyrst,“ sagði hann. „Ég held að alhæfing um það að hlutirnir séu eins hér og í Lands- bankanum eða einhverjum öðrum fyrirtækjum sé of mikið. Ég held að þetta sé breytilegt og rétt að bíða þar til endurskoðun hefur farið fram.“ Pálmi Jónsson, formaður bankaráðs, sagði í gær að þar sem hafin væri rannsókn á vegum Rík- isendurskoðunar hygðist hann ekkert um segja fyrr en skýrsla um málið lægi fyrir. Ekkert ákveðið um lax- veiðar Seðlabankans EÍRÍKUR Guðnason, banka- stjóri Seðlabanka íslands, sagði í gær að ekki hefðu verið teknar hliðstæðar ákvarðanir í bankan- um við ákvörðun bankaráðs Landsbanka íslands í liðinni viku um að banna allar laxveiðiferðir á vegum bankans og dótturfyrir- tækja hans nema bankastjóri óskaði til þess heimilda. Þegar hann var spurður hvort slíkt kæmi til greina sagði hann að það væri eitt af því, sem rætt væri þessa dagana. „Sérstaklega myndum við ekki vilja valda gestum okkar leiðind- um,“ sagði hann. „En það liggja engar ákvarðanir fyrir um lax- veiðar eða bann við þeim.“ Eiríkur vildi ekki ræða risnu- mál bankans eða eftirlit með þeim frekar. Fj ár málar áðuneyt i Bíða athugasemda vegna Borgartúns 6 í FJÁRMÁLARÁÐUNEYTI er nú beðið upplýsinga um risnukostn- að vegna tveggja fyrrverandi bankastjóra Landsbanka íslands af áfengiskaupum í Borgartúni 6. Magnús Pétursson, ráðuneytis- stjóri í fjármálaráðuneytinu, kvaðst hafa rætt við ríkisendurskoðun eft- ir að greinargerðin birtist og sagði að hann ætti von á því að fá grein- argerð um þau atriði, sem lytu að Borgartúni 6, í hendur. „Eg tel að það sé formlega rétt að fá hana áður en meira verður sagt um málið,“ sagði hann. Greint var frá því í greinargerð ríkisendurskoðunar til bankaráðs Landsbankans um kostnað bank- ans vegna veiðiferða, risnu og fleira að af risnukostnaði vegna bankastjóranna Björgvins Vil- mundarsonar og Sverris Her- mannssonar væru 3.008.664 krón- ur vegna áfengiskaupa af tilteknu veitingafyrirtæki í Reykjavík. I greinargerðinni er bætt við að í aðeins einu tilfelli hafi komið fram skýring, sem talist geti fullnægj- andi, en þar hafi verið um útgjöld að fjárhæð 444.776 að ræða. Formaður veiðifélags Hrútafjarðarár og Síkár Veiðibækur sem Sjónvarpið vitnaði í frá 1982-1988 EYJÓLFUR Gunnarsson á Bálkastöðum, formaður veiðifé- lags Hrútafjarðarár og Síkár, kveðst undrandi á vinnubrögðum fréttastofu Sjónvarpsins hvað varðar umfjöllun um veiðibækur Hrútafjarðarár. „Kristín Þorsteinsdóttir frétta- maður ýjaði að því í Kastljósþætti sl. miðvikudagskvöld að hún hefði lesið veiðibækur frá ánni,“ segir hann og bætir við að í fréttum nokkrum dögum áður hafi einnig verið vitnað í umræddar bækur og þeim flett. „Þessar veiðibækur voru hins vegar frá því fyrir tíð Sveiris Hermannssonar í Lands- bankanum, sú yngsta frá árinu 1988 og sú elsta frá 1982, og hafa því ekkert með laxveiðimál hans að gera,“ segir Eyjólfur ennfrem- ur, en hann sneri sér til blaðsins vegna þessa máls. „Það kemur í ljós að bækumar eru svo gamlar að þær hafa ekkert fréttagildi," segir hann. Hann segir veiðibæk- ur árinnar eign veiðifélagsins og í vörslu þess en nokkrar þeirra hafi vantað og það séu þær sem eftir einhverjum leiðum, sem Kristín vildi ekki greina frá, komust inn á fréttastofu Sjónvarpsins. „Við höfðum ákveðinn aðila grunaðan en hann hefur ekki vilj- að gangast við því að hafa haft bækurnar undir höndum eða dreift þeim,“ segir hann. Eyjólfur segir hins vegar að veiðibækur frá bankastjóratíð Sverris Hermanns- sonar séu í vörslu veiðifélagsins. Morgunblaðið/Kristinn STÚLKNAKÓR Reykjavíkur söng fyrir gesti afmælishátíðar Borgarbókasafns Reykjavíkur sem haldin var um helgina í Tjarnarsal Ráðhússins. Hæfí varamanna til umræðu Borgar- bókasafn Reykjavík- ur 75 ára HALDIÐ var upp á 75 ára af- mæli Borgarbókasafns Reykja- víkur á sunnudaginn. I tilefni dagsins var boðið upp á fjöl- breytta dagskrá í Tjarnarsal Ráðhússins. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Anna Torfadóttir borgarbóka- vörður fiuttu ávörp, nokkrir rithöfundar lásu úr verkum sín- um og afhent voru verðlaun í smásagna- og ljóðasamkeppni barna og unglinga. Stúlknakór Reykjavíkur söng nokkur lög og Júlíkvartettinn lék fyrir gesti. I lok dagskrárinnar var hald- inn borgarafundur um hvernig bókasafn borgararnir vilja, en þar sátu börn og unglingar auk starfsmanna bókasafnsins fyrir svörum. Bókasafnsskírteini voru endurgjaldslaus á afmæl- isdaginn og dagurinn var sá fyrsti í sektarlausri viku. Einnig hækkaði aldurstakmark barna- og unglingaskírteina frá og með afmælisdeginum þannig að allir yngri en 18 ára fá skírteinin nú ókeypis. KÆRUNEFND jafnréttismála hef- ur fjallað um hæfi tveggja vara- manna í nefndinni til að fjalla um kæru Hjördísar Hákonardóttur hér- aðsdómara, sem óskað hefur eftir af- stöðu nefndarinnar til þess hvort ráðning í stöðu ríkislögreglustjóra brjóti gegn jafréttislögum. Hjördís gerir engar athugasemdir við skipan í nefndina en dómsmálaráðuneytið hyggst nýta sér frest til 6. maí til að svara. Að sögn Elsu Þorkelsdóttur, fram- kvæmdastjóra Jafnréttisráðs, breyt- ir það engu um að vinna er hafin og hefur verið óskað eftir gögnum frá dómsmálaráðuneytinu. Beðið um tilnefningu Hjördís á sæti í kærunefnd jafn- réttismála samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar og vék sæti tímabundið úr nefndinni þegar hún ákvað að kæra ráðninguna. Erla Árnadótth- varamaður hennar kom í hennar stað en þegar kæran barst nefndinni í byrjun mars þá viku tveh- nefndar- manna sæti þeir Sigurður Tómas Magnússon formaður nefndarinnar, vegna þess að hann er samnefndar- maður hennar og samstarfsmaður í héraðsdómi, og Gunnar Jónsson, þar sem hann er samnefndarmaður hennai’ og Erla vék einnig sæti, sem maki samstarfsmanns Hjördísar. Að sögn Elsu Þorkelsdóttur, fram- kvæmdastjóra jafnréttisráðs, voru þá eftir tveir varamenn og var sent bréf til félagsmálaráðuneytisins, sem síðan sendi bréf til Hæstaréttar, þar sem beðið var um eina tilnefningu og að tekinn yrði ákvörðun um hver af þessum þremur nefndarmönnum verði formaður nefndarinnar. Hæsti- réttur skipaði Andra Árnason for- mann og Davíð Þór Björgvinsson til að fjalla um þetta mál. Þriðji nefnd- armaður er Helga Jónsdóttir lög- maður, annai- tveggja fastra vara- manna í nefndinni, sem fram- kvæmdastjóri jafnréttisráðs segir að hafi ekki verið talin vanhæf. ,Á fundinum í morgun fjölluðu þeir um hæfi sitt, þeir Andri og Da- víð Þór og niðurstaðan varð sú að mér var falið munnlega að vekja at- hygli málsaðila á atriðum er valdið geta vanhæfi þeirra tveggja,“ sagði Elsa. „Annars vegar Davíðs Þórs, sem situr í stjórn ynannréttinda- stofnunar Háskóla Islands ásamt Hjördísi og snýr það að dómsmála- ráðuneytinu og Andri en hann hefur sem lögmaður sinnt verkefni íyi-ir Skráningarstofuna, þai- sem Harald- ur Johannessen situr í stjórn.“ Upplýsinga leitað Elsa sagði að Hjördís hefði ekki gert athugasemd við þessa skipan en dómsmálai-áðuneytið hefði ákveðið að nýta sér frest, sem gefinn er til 6. maí, til að svara. „Málið er loksins komið í gang,“ sagði Elsa. „Héðan fór bréf til dómsmálaráðherra í dag, þar sem leit- að er almennra upplýsinga um ráðn- inguna og kynjaskipti í stofnunum sem heyra undir ráðuneytið." Morgunblaðið/Jón Svavarsson DAY OLIN Mount, sendiherra Bandaríkjanna, afhend- ir dr. Jesse L. Byock Cobb-Partnership verðlaunin. Jesse L. Byock heiðraður COBB-PARTNERSHIP verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn nýlega. Dr. Jesse L. Byock, prófess- or í forn-íslenskum fræðum við Kaliforníuháskóla í Berkeley, hlaut verðlaunin, en hann dvelur á Islandi um þessar mundir til að vinna að endurútgáfu bókar sinnar „Medieval Iceland". Íslensk-Ameríska félagið og Fulbright-stofnunin efndu til kvöldverðar á Hótel Borg í tilefni verð- launaafhendingarinnar og 40 ára afmælis Fulbright- stofnunarinnar. Day Olin Mount, sendiherra Banda- ríkjanna, afhenti verðlaunin en aðalræðumaður kvöldsins var Björn Bjarnason menntamálaráðherra. Cobb-Partnership verðlaunin voru stofnuð af fyrr- verandi sendiherra Bandarfkjanna Charles E. Cobb og konu hans Sue M. Cobb með það markmið að veita viðurkenningu þeim Bandaríkjamanni er stuðl- að hefur hvað mest að samgangi íslands og Banda- ríkjanna á sviði tækni, vísinda, viðskipta, lista, menn- ingar eða góðgerðarstarfsemi. Verðlaunagripurinn er hannaður af Pétri Bjarnasyni myndhöggvara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.