Morgunblaðið - 21.04.1998, Síða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
'F
JYRIR FJORUTIU og fimm
áram skrifaði Mary Norton
fyrstu söguna sína um The
Borrrowers, litla putalinga sem eru
ekki nema 12 em á hæð og búa milli
þiija í hýbýlum manna. Putaiingarn-
ir lifa á því að fá „lánaðar" helstu
nauðsynjar hjá mannfólkinu.
Nú er búið að gera ævintýra-
mynd sem byggist á sögum Mary
Nortons, aðalhetjurnar eru Arrietty
og Iitli bróðir hennar, Peagreen.
Þau lenda í óti-úlegustu ævintýrum
þegar vondi lögfræðingurinn Ocius
P. Potter (John Goodman) ákveður
að láta rífa heimili þeirra til að
byggja þar íbúðarblokk.
John Goodman hefur spannað
mjög breitt svið á leiklistarferli sín-
um; hann gerði Shakespeare góð
skil í upphafi ferilsins, hann hefur
sýnt góð tilþrif í dramatískum hlut-
verkum í bíómyndum á borð við
Barton Fink og Sea of Love (með Ai
Pacino í aðalhlutverki), þó er hann
hvað þekktastur fyrir leik sinn í
grínmyndum og svo að sjálfsögðu
sem Dan Connor í þáttaröðinni Ros-
eanne.
Að hitta Goodman er eins og að
V ondi karlinn
í London
John Goodman er frægasti leikarinn í
bresku barnamyndinni The Borrowers.
John var viðstaddur frumsýningu myndar-
innar í London og hitti Dag Gunnarsson í
stuttu spjalli á Dorchester-hótelinu.
hitta fjöragan frænda sem maður
hefur ekki séð lengi, mér fínnst eins
og ég þekki undirhökurnar allar
með tölu og fas mannsins er allt
mjög kunnuglegt eftir þokkalega
viðsetu undirritaðs við sjónvarps-
skjáinn í gegnum árin.
-Hvað laðaði þig að hlutverki í
enskri bamamynd?
„Handritið var mjög vel skrifað
og ég dýrka London; ég hef áður
unnið í kvikmyndaveram hér á
Bretlandi (King Ralph) og kunni vel
við mig, ég gríp hvert tækifæri sem
ER SKIPTINEMAÁR A VEGUM
AFS EITTHVAÐ FYRIR ÞIG?
Vilt þú ...
... kynnast nýrri menningu
... læra nýtt tungumál
... upplifa öðruvísi skóla
... eignast nýja fjölskyldu og vini?
Ert þú...
... á aldrinum 15—18 ára?
Erum byrjuð að taka á móti
umsóknum til Ástralíu og
Suður-Ameríku með brott-
för í jan/feb. 1999.
Hafðu samband strax ef þú
hefur áhuga á brottför í júlí -
september 1998.
Andrés Jónsson, skiptinemi í
Indónesíu ‘94—’95 með hluta af
„stórfjölskyldu" sinni þar.
ÁFS Á ÍSL4NDI
Aiþjóðleg fræðsla og samskipti
Laugavegi 26. Sími 552 5450. Heimasíða: http://www.itn.is/afs
gefst til að heimsækja þessa borg.
Þegar ég sá að Hugh Laurie var í
myndinni ákvað ég endanlega að slá
til, mig langaði að vinna með hon-
um, ég hef verið mikill aðdáandi
hans síðan ég sá hann í þáttunum
um Jeeves og Wooster.
Síðan fannst mér eitthvað mjög
heillandi við hugmyndina um smá-
fólkið sem býr undir gólffjölunum
og lifir á því að fá hluti lánaða hjá
mannfólkinu, það hafa allir lent í því
að týna sokk eða einhverjum hlut
sem síðan kemur óskiljanlega í leit-
irnar.“
-Nú er áralöng hefð fyrir því
vestanhafs að láta vonda karlinn
vera útlending og þá gjarnan Breta,
heldurðu að Bretar séu að hefna sín
með því að setja þig í hlutverk ill-
mennisins?
John tekur ógurleg bakföll og
dettur síðan inn í eftirhermusyrpu
af tólf til fjórtán grettnum illmenn-
um í amerískum bíómyndum.
„Þetta er alveg rétt hjá þér, Bret-
ar leika alltaf þýska herforingja eða
brjálaða vísindamenn og úfna
meinafræðinga í hvítum sloppum í
Hollywood-myndum. Ég held samt
ekki að þetta hlutverk mitt í The
Borrowers hafi verið hluti af neinu
bresku samsæri til að rétta hlut
þeirra."
-Þú virðist hafa skemmt þér kon-
unglega við að leika vonda karlinn í
þessari mynd.
„Já, þetta var mjög gaman, jafn-
vel þó að Ocious P. Potter fái herfi-
Iega útreið í myndinni; hann er al-
varlega brenndur í framan, fær raf-
straum, er „ostaður", stunginn, fær
hamar í hausinn og er pakkað sam-
an með límbandi svo eitthvað sé
nefnt. Versta píningin fyrir mig
sjálfan var að byrja flesta daga á
því að sitja í marga tíma í fórðunar-
stólnum."
-Hvaða atriði fannst þér
skemmtilegast að taka þátt í?
John á erfitt með að koma orðun-
um út úr sér, þvi hann hristist allur
af hlátri, svarið kemur í smágusum.
„Það var atriði sem fékk ekki að
vera með í lokaútgáfu myndarinnar,
en þar er Hugh Laurie sem leikur
góðan lögregluþjón... hann er að
sekta mig fyrir að leggja bílnum
mínum vitlaust... í hvert skipti sem
við tókum það atriði skrifaði Hugh
einhvern fyndinn dónaskap á mið-
ann og rétti mér... ég átti að verða
öskureiður en sprakk yfirleitt úr
Sálfræðistöðin
Námskeið
Sjálfsþekking - Sjálfsöryggi
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja samskipti
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Leiðbeinendur
eru
sálfræðingarnir
Inr.ritun og nánari uppiýs-
ingar í simum Sálfræði-
stöðvarinnar: 562 3075 og
552 1110 kl. 11-12
Álfheiður
Steinþórsdóttir
Guðfinna
Eydal