Morgunblaðið - 21.04.1998, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Formaður endurskoðenda um
útboð á endurskoðun bankanna
Ekki viss um
að kostnaður-
inn minnki
Búr ehf. fékk
EDI-verðlaunin
SAMIÐ hefur verið við ný endur-
skoðunarfyrirtæki um endurskoðun
á reikningsskilum ríkisbankanna.
Fór valið fram á grundvelli útboðs
sem Ríkiskaup gerðu fyrir Ríkis-
endurskoðun. Lægstu tilboð voru
um þriðjungur af endurskoðunar-
kostnaði bankanna til þessa, en for-
maður Félags löggiltra endurskoð-
enda segist ekki viss um að kostn-
aðurinn minnki þegar upp verður
staðið.
Ríkisendurskoðun ber að endur-
skoða ársreikninga félaga sem ríkið
á að hálfu eða meira en hún getur þó
falið sjálfstætt starfandi endurskoð-
endum að annast einstök verkefni. A
þessum grundvelli og með hliðsjón
af lögum um opinber innkaup fól
Ríkisendurskoðun Ríkiskaupum að
bjóða út endurskoðun ársreikninga
bankanna þriggja sem tóku form-
lega til starfa sem hlutafélög í byrj-
un ársins. Um er að ræða Lands-
banka íslands hf., Búnaðarbanka ís-
lands hf. og Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins hf. í fréttatilkynningu
frá Ríkiskaupum kemur fram að um
er að ræða þrjú sjálfstæð og aðskilin
endurskoðunarverkefni. Hvert er til
fímm ára og lýtur að endurskoðun
ársreikninga bankanna fyrir árin
1998 til og með 2002.
í framhaldi af forvali gáfu Ríkis-
kaup tíu endurskoðunarfyrirtækj-
um kost á að taka þátt í lokuðu út-
boði. Að loknu mati á tilboðum var
ákveðið að taka tilboði Coopers &
Lybrand Hagvangs hf. að fjárhæð
tæplega 6,1 milljón kr. á ári fyrir
endurskoðun Landsbanka Islands
hf. Áður hafði Ami Tómasson hjá
Löggiltum endurskoðendum hf.
annast endurskoðun Landsbankans.
Löggiltir endurskoðendur hf. fengu
hins vegar samning um endurskoð-
un Búnaðarbanka Islands hf. fyrir
tæplega 3,7 milljónir kr. á ári en
Tryggvi Jónsson hjá KPMG Endur-
skoðun hf. hafði haft það verkefni
með höndum um langt árabil. Ríkis-
kaup sömdu svo við KPMG Endur-
skoðun hf. um endurskoðun á Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins hf.
fyrir liðlega 1,6 milljón á ári.
Nýju endurskoðendumir vora
kosnir á stofnfundum bankanna og
fyrir helgi var síðan skrifað undir
verksamninga þar að lútandi.
„Þjónustuútboð af þessu tagi era
nýjung hér á landi. Að mati að-
standenda þess tókst útboðið vel og
telja þeir árangur af því góðan,“
segir í fréttatilkynningu frá Ríkis-
kaupum.
Misjöfn skilgreining
Þorvarður Gunnarsson, formaður
Félags löggiltra endurskoðenda,
segist ekki viss um að kostnaður við
endurskoðun bankanna muni lækka
þegar upp verður staðið, þótt til-
boðsupphæðir hafí verið þriðjungur
af heiídarkostnaði bankanna við
störf endurskoðenda. Bendir hann á
að afar erfitt sé að bjóða út þjónustu
sem þessa. Það hafi mikið tíðkast er-
lendis en farið minnkandi. „Tilboðin
sjálf era afar misjöfn sem að mínu
mati bendir til þess að menn hafí
skilgreint verkefnin misvel og út-
boðslýsing hafí því verið ófullnægj-
andi,“ segir Þorvarður. Segir hann
að með því að skilgreina verkefnið
þröngt virðist menn líta á allt um-
fram það sem aukaverk. Nefnir sem
dæmi ráðgjafarþjónustu sem ekki sé
innifalin í tilboðunum. Því sé ekki
ljóst að kostnaður bankanna lækki
þegar upp verður staðið.
Aðspurður tekur Þorvarður undir
það að varhugavert kunni að vera
að bjóða út endurskoðunarþjónustu,
í ljósi umræðunnar að undanfömu,
ef það leiði til þess að slegið verði af
kröfum.
BÚR ehf., innkaupafyrirtæki
kaupfélaganna og Nóatúns-
verslananna, hlaut EDI verð-
launin sem veitt voru á aðal-
fundi félagsins nýlega. EDI-fé-
lagið eru samtök fyrirtækja
og einstaklinga um stöðluð
rafræn viðskipti, svokölluð
EDI-viðskipti. Verðlaunin eru
35 MILLJÓNA króna tap varð af
rekstri Vaxtarsjóðsins hf. í fyrra
eftir gjaldfærða lækkun á mats-
verði hlutabréfa að fjárhæð 39
milljónir. Hlutafé félagsins var
363,5 milljónir í árslok 1997, þar af
eigin bréf 34,5 milljónir. Eigið fé
nam samtals um 344 milljónum
króna, samanborið við 137 milljónir
króna í lok ársins á undan.
Tilgangur Vaxtarsjóðsins er að
fjárfesta í hlutafé skráðra og
óskráðra fyrirtækja, sem talin era
eiga verulega vaxtar- eða hagnað-
armöguleika innan lands eða utan,
eða eru álitin vanmetin á hluta-
bréfamörkuðum.
Um síðustu áramót átti sjóðurinn
hlutabréf í 29 hlutafélögum að því
er segir í frétt frá Verðbréfamark-
veitt þeim sem þykja hafa
unnið vel að að því að auka
veg rafrænna viðskipta á ís-
landi.
Á myndinni sést Sigurður Á.
Sigurðsson framkvæmdastjóri
t.h., taka við verðlaununum úr
hendi Vilhjálms Egilssonar, for-
manns EDI-félagsins.
aði íslandsbanka hf. sem sér um
daglegan rekstur sjóðsins. Þeirra
stærstir voru eignarhlutar sjóðsins í
Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hf. að
verðmæti 37 milljónir króna, 33
milljónir í Marel hf., 23 milljónir í
Flugleiðum hf., 23 milljónir í Har-
aldi Böðvarssyni hf. og 12 milljónir í
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. Hlut-
höfum Vaxtarsjóðsins hf. fjölgaði
verulega á árinu eða úr 263 í árslok
1996 í 688 um síðustu áramót.
Nafnávöxtun sjóðsins var 4% á
síðasta ári og umsjónarlaun félags-
ins eru 0,5%.
Aðalfundur Vaxtarsjóðsins hf.
verður haldinn 22. apríl næstkom-
andi. Stjóm félagsins gerir tillögu
um að ekki verði greiddur arður til
hluthafa.
Könnun á
regluhyrði
atvinnulífs
REGLUBYRÐI og eftirlitsiðnaður
hins opinbera verður til skoðunar í
nýrri viðhorfskönnun sem Vinnu-
veitendasamband íslands og Versl-
unarráð íslands hafa ákveðið að láta
gera hjá atvinnurekendum.
Könnunin, sem er alþjóðleg, er sú
fyrsta sinnar tegundar og er fram-
kvæmd á sama tíma hjá flestum
OECD-ríkjum. Alls hafa 1.700 fyrir-
tæki verið valin til þátttöku. „Niður-
staðan ætti að gefa góða mynd af
viðhorfum atvinnulífsins og verða
þannig mikilvægur grunnur fyrir
betra starfsumhverfi fyrirtækja,"
segir í fréttabréfi frá Vinnuveit-
endasambandi Islands.
Þar segir einnig að reglu- og eft-
irlitsbyrði fyrirtækja sé kostnaðar-
söm en fyrirtæki bera kostnað af
því að fylgja æ flóknari skattaregl-
um auk þess að sinna opinberri upp-
lýsingaskyldu. Þetta getur valdið
óþarfa kostnaði og dregið úr ný-
sköpun og samkeppnishæfni fyrir-
tækja. Jafnframt er bent á að lykill-
inn að sterkari samkeppnisstöðu
fyrirtækja sé sá að rekstraram-
hverfi þeirra sé af besta tagi og þar
hefur reglubyrði atvinnulífsins mik-
ið að segja.
Upplýsingar sem aflað verður
mun OECD nota til að þróa mæli-
kvarða sem nýtast munu við saman-
burð á því reglugerða- og stjómun-
aramhverfi sem fyrirtæki búa við.
Stjómvöld í því landi þar sem við-
komandi fyrirtæki starfa munu síð-
an styðjast við þessa mælikvarða til
að bæta viðskiptaumhverfið.
Könnuninni sem gerð verður er
sldpt í þrennt. Þrír mismunandi
spurningalistar verða lagðir í fyrir-
tækin. I þeim fyrsta verður gerð
könnun á kostnaði fyrirtækja við að
framfylgja lögum og reglum um
starfsmannahald. I öðram þeirra
verður gerð könnun á kostnaði fyr-
irtækja við að framfylgja lögum og
reglum um umhverfismál og í þeim
þriðja verður kannað hver kostnað-
ur fyrirtækja við að framfylgja lög-
um og reglum um skatta er.
Vonast er til að niðurstöður könn-
unarinnar geti orðið grandvöllur að
samráði milli samtaka atvinnulífsins
og stjórnvalda um næstu skref.
35 milljóna tap
af Vaxtarsjóðnum
Með nýjasta Pentium®ll örgjörvann
allt að 400MHz
PowerEdge™
með Intel Pent'um®ll örgjörvum
Dell, Dell merkiö og PowerEdge™ eru skrásett
vörumerki Dell Computer Corporation.
Intel inside merkiö og Intel Pentium® eru skrásett
vörumerki Intel Corporation.
PowerEdge
MIMAJL
setja hugmyndir þínar um
afköst, öryggi og sveigjanleika
í nýtt samhengi
e g u r 10 * Sími 563 3050 * Bréfasími 568 7115 * http://www.ejs.is • sala@ejs.is