Morgunblaðið - 21.04.1998, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998 27
LISTIR
PHILIPS Aloris
PHILIPS
- hvergi ódýrara
• 900 Mhz.
• Þyngd símtóls 170 g.
• Dregur allt að 100 metra innanhúss.
• Dregur allt að 300 metra utanhúss.
• (slenskur leiðarvísir.
Staðgreitt:
14.900,-
PHILIPS Xalio
Þrjár gerðir:
Xalio 6200
• Stafrænn sími
• Þyngd símtóls 170 g.
• Dregur 100 metra innanhúss.
• Dregur 300 metra utanhúss.
• Ekkert suð, kristaltær hljómur.
• íslenskur leiðarvísir.
Staðgreitt: 19.900,-
Xalio 6400
• Eins og 6200 + handfrjálst
símtól.
Staðgreitt: 24.900,-
ennt gæðaginseng
23,50
Rautt „Eöal“ Ginseng
47,00
Vortónleik-
ar Samkórs
Kópavogs
SAMKÓR Kópavogs heldur vortón-
leika sína í Digraneskirkju í kvöld,
þriðjudagskvöld, kl. 20.30. Þetta
verða fyrstu tónleikar kórsins und-
ir stjórn Dagrúnar Hjartardóttur,
en hún tók við stjórnendastarfinu
sl. haust.
Efnisskráin er fjölbreytt. Sungin
verða erlend lög úr ýmsum áttum,
m.a. lög úr West Side Story og
Carmina Burana. Einnig mun kór-
inn syngja Iög eftir íslenska höf-
unda, t.d. Jón Ásgeirsson. Flutt
verður lag hans við texta Halldórs
Laxness „Vor hinsti dagur“, í nýrri
kórútsetningu, sem Jón gerði fyrir
kórinn.
Einsöngvari með kórnum verður
Auður Gunnarsdóttir sópran, sem
starfar í Stuttgart í Þýskalandi.
Hún mun syngja aríuna Casta Diva
úr óperunni Normu.
Píanóleikari á tónleikunum verð-
ur Claudio Rizzi.
Morgunblaðið/Kristinn
Við skálum, við
skálum ...
afKóreskum yfirvöldum
Heimskringlan - Rvík
Póllinn - ísafirði
TÖJVLIST
Hafnarborg
KÓRTÓNLEIKAR
Verk eftir ýmsa innlenda og erlenda
höfunda. Karlakórinn Stefnir undir
stjórn Lárusar Sveinssonar. Sigurður
Marteinsson, pfanó. Hafnarborg,
sunnudaginn 19. aprfl kl. 20:30.
KARLAKÓRINN Stefnir úr Kjós-
arsýslu er einn af þessum dæmigerðu
kraftmiklu íslenzku karlakórum sem
manni fínnst stundum mættu stefna
hærra.
Vissulega ber ekki að vanmeta
gleðskap og góðan félagsanda, og ef-
laust er varla hægt að hugsa sér
skemmtilegri ferðafélaga heima og
heiman en karlakór, sbr. kvikmynd
Guðnýjar Halldórsdóttur sællar
minningar, en eftir dagskrá eins og
þessa í menningarmiðstöðinni Hafn-
arborg á sunnudagskvöldið var, er
manni óneitanlega spum: á svona efni
ekki betur heima á þorrablóti en í
tónleikasal?
Til sanns vegar má færa, að innan
um voru nokkur ágæt lög og m.a.s.
ekki öll laus við depurð, eins og Sjá
þann mikla flokk (Grieg) og íslenskt
vögguljóð á hörpu (Jón Þórarinsson),
en að mestu leyti einkenndist efn-
isvalið af lögum sem ónærgætnir
yngri hlustendur myndu ekki hika við
að kalla „gamlar lummur" - að ekki
sé minnzt á drykkjusöngva - og, líkt
og til að hnykkja enn frekar á hinu
síðartalda, var klykkt út með syrpu af
þýzkum stúdentabjórsálmum.
Tekið skal fram, að undirritaður er
hvorki í stúku né sérstaklega uppsig-
að við þessa tilteknu tóngrein. En -
hvert á sinn stað, eins og kellingin
sagði.
Það var synd að horfa upp á þetta
metnaðarleysi, því kórinn skipa
margir ágætir söngmenn, og er hann
á sinn hátt öfundsverður af þeim
krafti og þeirri sönggleði sem flæddi
um velhljómandi Hafnarborgarsal-
inn, ekki sízt eftir hlé. Og ekki má
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
www.ht.is
Umboðsmenn um land allt
Xalio 6600
með stafrænum símsvara
• Stafrænn sími.
• Handfrjálst símtól.
• 20 númeranafnavalsminni.
• Möguleiki á 5 aukasímtólum
• íslenskur leiðarvísir.
Staðgreitt: 26.900,-
Xalio 6850
handfrjálst aukasímtól
• Hleðslutæki fylgir með.
Staðgreitt: 14.900,-
heldur gleyma ljósasta punktinum,
einsöng Stefáns Jónssonar í Drykkju-
söng Falstaffs eftir Nicolai og öðru
léttu lagi eftir Verdi, sem afhjúpaði
sannkallaðan boldangs-bassabarýton,
þótt lítt skólaður væri og vantaði ögn
fyllingu á neðstu og hæstu tónum. En
í breidd og lengd var megnið af dag-
krárefninu þess eðlis að höfða fremur
til áheyrenda á gleðistund í góðra
vina hópi en á almennum tónleikum.
Mætti manni hér með leyfast að
skála íyrir vonandi forvitnilegri dag-
skrá við næsta tækifæri.
Ríkarður Ö. Pálsson
Dreifing: Logaland ehf.
♦Verðsamanburðurinn var geröur í Nóatúni 27.01.98. Borin
voru saman verö á 500mg af ginsengi í 50 hylkja pakkningum
ofangreindra vörutegunda.
Hljómsýn - Akranesi
Tölvutæki - Akureyri
Heimilistæki hf
í Kóreu er þaö ginseng eðalvara, sem hlotið hefur sérstakt gæðainnsig li yfirvalda.
Að öðru leiti er óþarfi að taka fram að varan sé „eðal“. Það segir sig sjálft.
Það er ekki að ástæðulausu að 11 Hwa er stærsti framleiðandi ginsengs í Kóreu.
Gæði ræktunar og framleiðslu uþþfylla
ýtrustu kröfur yfirvalda.
Líttu eftir gœöainnsiglinu nœst þegar
þú kauþir ginseng.
Verðsamanbur&ur á 500mg af
IL HWA ginsengi og Rauðu „Eðal“ Ginsengi
Vörutegund VerO á 500 mg*
Vorvaka
Emblu
HIN árlega Vorvaka Emblu-
kvenna verður haldin í Stykkis-
hólmskirkju miðvikudaginn 22.
apríl, síðasta vetrardag kl.
20.30. Vökunni verður fylgt eft-
ir með listsýningum í Norska
húsinu 23. apríl, sumardaginn
fyrsta kl. 16-18 og verður hún
opin dagana 23.-26. aprfl.
Dagskrá
Á miðvikudag syngur Auður
Gunnarsdóttir sópransöngkona
við undirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar í Stykkishólms-
kirkju kl. 20.30.
Anna Dís Rudólfsdóttir fé-
lagsfræðingur flytur erindi sem
byggir á rannsóknum hennar á
því hvernig fjallað er með ólík-
um hætti um konur og karla í
minningargreinum.
Nemendur Tónlistarskóla
Stykkishólms leika á hljóðfæri.
Tískusýning verður á vegum
módelsamtakanna Ismódel og
sýna stúlkur fatahönnun frá
Spakmannsspjörum.
Á fímmtudag kl. 16 í Norska
húsinu sýna átta listakonur frá
Kirsuberjatrénu listmuni unna
úr margvíslegu efni, s.s. grísa-
blöðrum, hrosshári, kopar, fisk-
roði, ullarflóka o.fl.
Ingibjörg H. Ágústsdóttir
fatahönnuður sýnir brúðarkjóla
sem hún hefur hannað og
saumað.
Bernt H. Sigurðsson sýnir
listgripi sína, stein- og smíða-
járnsskúlptúra.