Morgunblaðið - 21.04.1998, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Gæðamat Rannsóknarstofnun Kennaraháskólans annar nú ekki beiðnum um úttekt á skólum víða um land. I
mati á skólastarfí felst ítarleg könnun á skólasamfélaginu. Gunnar Hersveinn spurði Ingvar Sigurgeirsson um
þessar viðamiklu rannsóknir sem geta leitt til gagngerrar endurskoðunar á innra og ytra starfi skóla.
UTTEKT
Á SKÓLUM
AFLGÆF
• Eftir 15 ár eru verulegar líkur á að
skólastjórinn kjósi annað starf
• Það er goðsögn að foreldrar séu nei-
kvæðir í garð skóla barna sinna
HVERNIG stendur skól-
inn? Hvert er viðhorf
foreldra til hans? En
nemenda? Er kennslan
góð? Er skólastjórinn góður?
Hvernig er skólabragurinn? Er
góður agi í skólanum? Hverju þarf
að breyta?
Þetta eru dæmi um spurningar
sem Ingvar Sigurgeirsson, dósent
við Kennaraháskóla íslands, og
samstarfsmenn hjá Rannsóknar-
stofnun skólans leitast við að svara
fyrir ýmsa skóla landsins. Hann
ieggur fyrir viðhorfskannanir, tekur
viðtöl og situr í tímum til að leggja
mat á skólastarfið eða með öðrum
orðum að gera úttekt á skólum.
Aðferðafræðina við mat á skóla-
staitl lærði Ingvar í doktorsnámi
sínu i uppeldis- og kennslufræði við
Sussex-háskólann á Suður-
Englandi. „Ég gerði fyrstu úttekt-
ina í grunnskólanum í Borgamesi
árið 1993 og hefur ásóknin í þær
aukist jafnt og þétt síðan. Núna höf-
um við ekki undan. Ég er um þessar
mundir viðriðinn úttektir á sex skól-
um í uppsveitum Árnessýslu, í
Grindavík, Hveragerði, Barnaskóla
Vestmannaeyja og á Hólmavík.
Samstarfsmenn mínir eru að vinna
að úttektum á öðrum skólum, m.a. á
öllum grunnskólunum í Hafnai'firði,
á Dalvík, Egilsstöðum og í Onund-
arfirði,11 segir Ingvar.
Astæða og
áhrif úttekta
Gæðamatið á skólunum getur
verið tilkomið vegna beiðni frá
sveitar- eða bæjarstjórnum, skólan-
um sjálfum eða foreldrum. Nýlega
hefur til dæmis verið lokið við mat
sem foreldrar í Grandaskóla kost-
uðu og réðu sérfræðing til að gera.
Misjafnt er hversu víðtæk úttektin
er og getur kostnaður við hana
numið allt frá 100 þúsundum til
einnar og hálfrar milljónar.
Ástæða úttektar er einnig af
margvíslegum toga spunnin en oft
liggja fyrirhugaðar breytingar að
baki og þýðingarmiklar ákvarðanir.
Ingvar segist ekki hafa fylgst mark-
visst með áhrifum úttekta en þau
geti verið allt frá því að matsskýrsl-
um er stungið ofan í skúffu til þess
að leggja skólann niður og sameina
öðrum.
Dæmi um áhrif úttekta er mat á
starfí Barnaskólans á Eyrarbakka
og Grunnskólans á Stokkseyri sem
voru tveir skólar í tveimur sveitar-
skólar/námskeið
ÝMISLEGT
■ Tréskurðarnámskeið
Fáein pláss laus í maí.
Sýning í ÍSPAN húsinu við Smiðjuveg í
Kópavogi 25. og 26. aprfl kl. 14—18.
Hannes Flosason, sími 554 0123.
félögum en eru núna einn. Á
Stokkseyri er núna barnaskóli og á
Eyrarbakka unglingadeild. Kennar-
ar eru samnýttir og börn og ung-
lingar keýrð á milli í skólabíl. „Skól-
arnir bæta hvor annan upp, því þeir
smullu mjög vel saman,“ segir Ingv-
ar, „þetta er dæmi um mjög vel
heppnað og farsælt samstarf."
Goðsögnin um
agaleysi nemenda
Ingvar segist hafa lært mikið á
þessu starfí sínu sem hann m.a.
leggur hluta af rannsóknarskyldu
sinni við KHÍ í. „Áhuginn á skólun-
um í þeim bæjarfélögum sem ég hef
unnið að úttektum hefur komið mér
á óvart,“ segir Ingvar og nefnir
dæmi, „það kom ósk um gæðamat
frá skólanum á Hólmavík. Mark-
miðið er að endurbæta skólastarfíð
og byggja hann upp eftir áfall í
samræmdu prófunum - stuðningur-
inn við skólann þar er nánast
áþreifanlegur. Og í Grindavík er
einnig feikilegur áhugi á að efla
skólastarfið með því að sigrast á
agavanda og bæta árangur í skóla-
starfinu."
Ingvar segist skynja metnað for-
eldra fyrir skóla barna sinna vel og
telur mjög brýnt að efla samstarf
foreldra og kennara. „Ég tel að for-
eldrar eigi að veita skólanum aðhald
og halda uppi sanngjarnri gagnrýni
á hann. Hinsvegar eiga þeir að gera
það við skólastjóra og kennara en
ekki við eldhúsborðið svo að börnin
heyi-i. Ég hef nefnilega orðið var í
viðtölum við nemendur og foreldra
að viðhorf þeirra til skólans eru lík.
Ég tel að sé foreldri neikvætt í garð
skólans sé bamið það líka.“
Ingvar tekur ekki undir þá skoð-
un að slæmur agi sé í íslenskum
skólum. „Sú skoðun á ekki við rök
að styðjast. Meginreglan er að það
ríkja þægileg samskipti milli kenn-
ara og nemenda í skólastofunni.
Agaleysið er undantekning sem
fínnst í fáum skólum og hjá fáum
kennurum.“ Honum fínnst umræð-
an um agaleysi orðin hættuleg, því
of margir trúi þessari klisju. „Ég
hef setið í tímum hjá kennurum víða
um land, metið kennsluna í heilu
skólunum og lagt viðhorfskannanir
fyrir nemendur um kennsluna,og
víðast hvar er andrúmsloftið hlýtt
og notalegt. Krakkar vilja góðan
aga og meta mest kennara sem hafa
góðan en sanngjarnan aga.“
Ingvar segir að það sé einnig goð-
sögn að foreldrar séu iðulega nei-
kvæðir gagnvart skólunum og sam-
kvæmt könnunum hans merkja þeir
oftast við „mjög jákvæðir" eða , já-
kvæðir" þegar spurt er um þetta
viðhorf.
I góðum skóla er
góður skólastjóri
Úttekt á skóla er viðamikil könn-
un og eru til að mynda tekin viðtöl
við alla starfsmenn skólanna;
stjórnendur, kennara, gangaverði
sem og aðra. Og einnig oft við full-
trúa nemenda, þá er rætt við full-
trúa foreldra, skólanefnd og sveit-
arstjórnarmenn. ítarleg við-
horfskönnun er gerð meðal nem-
enda og foreldra, farið er í vett-
vangskannanir, námsgögn skoðuð
og stundatöflur. Þá á greining sér
stað, umræða og áfangaskýrslur
lagðar fram með reglulegu millibili
og loks unnin lokaskýrsla sem lýsir
skólastarfinu vel, styrkleika þess og
veikleika og tillögur um úrbætur ef
beðið hefur verið um þær.
Þessar úttektir tengjast, að mati
Ingvars, á óbeinan hátt yfirfærslu
grunnskólans til sveitarfélaga, nýj-
um ákvæðum í lögum um sjálfsmat í
skólum og umræðu um gæðastjórn-
un.
„Eftirlit með skólastarfi er nauð-
synlegt, en það hefur lítið verið
stundað á fslandi hingað til. Bretar
hinsvegar hafa það fyrir sið að taka
út skóla á fjögurra ára fresti að
meðaltali. Skólar fá vitneskju um
væntanlega úttekt með viku fyrir-
vara og svo mætir eftirlitsfólkið á
staðinn," segir Ingvar og að þetta
kosti u.þ.b. 2 milljónir á skóla sem
gefur til kynna að Bretar telji þetta
nauðsynlegt.
Ingvar viðurkennir að taugatitr-
ing megi mæla hjá skólamönnum í
upphafí úttekta og sé það skiljan-
legt því þetta hafi ekki tíðkast hér
fyrr. Hinsvegar hefur hann ævin-
lega átt gott samstarf við skólana
BARNASKÓLINN á Eyrarbakka
var metinn skólaárið 1996-97. Hér
er lítið dæmi úr skýrslunni um skól-
ann, um veikar og sterkar hliðar.
Sterkar hliðar
►Kennarahópurinn er starfsamur
og samviskusamur. Að mati við-
mælenda eru flestir kennarar
hæfír starfsmenn og nokkrir
mjög góðir.
► Nýr skólastjóri hefur tekið vel á
málum og ánægja er með flest
störf hans. Skólastjóri og að-
stoðarskólastjóri vinna vel
saman. Vinnubrögð skóla-
stjórnenda virðast vel ígrund-
uð og einkennast af metnaði.
og nú séu sumir þeirra að biðja um
mat í annað sinn.
Ein af þeim skoðunum sem Ingv-
ar hefur myndað sér í þessum rann-
sóknum er um mikilvægi skólastjór-
ans. „í góðum skóla er góður skóla-
stjóri,“ segir hann, „og oftar en ekki
lélegur í lélegum skóla. Skólastjórn-
un er ábyrgðarmikið starf og krefst
mikils af einstaklingnum sem gegn-
ir starfinu. Gott væri að það viðhorf
ríkti að mati Ingvars að skólastjór-
ar gegndu starfi sínu í 12-15 ár í það
mesta og færu síðan á góðan starfs-
lokasamning þannig að þeir héldu
sömu launum en stunduðu önnur
störf eins og rannsóknir, kennslu
eða annað. „Því eftir 15 ár eru veru-
legar líkur á að skólastjórinn kjósi
ábyrgðarminna starf og gott sé fyr-
ir skólastarfið að annar hæfur ein-
staklingur taki við þessu krefjandi
og mikilvæga starfi."
Svörin og krafturinn
Þegar svör við spurningunum um
skóla liggja fyrir eftir úttekt Rann-
sóknarstofnunar KHÍ geta skóla-
menn, bæjar- og sveitastjórnar-
menn hafist handa um að gera skól-
ann enn betri og tekið ákvarðanir
sem hvíla á ítarlegri athugun.
„Þessi ásókn í mat á tilteknum skól-
um nú er bara eitt merki um gríðar-
legan kraft í skólamálum sem nú er
í samfélaginu,“ segir Ingvar, „þenn-
an kraft merki ég bæði hjá starfs-
fólki skólanna og almenningi.“
► Nokkrar áhugaverðar nýjungar
má sjá í skólastarfinu. Má þar
nefna svokallaða stöðvavinnu,
tölvukennslu og námskeið í
tæknimennt.
Veikar
hliðar
►Aðstaða til kennslu list- og verk-
greina er ófullnægjandi.
►Samstarf við foreldra hefur til
skamms tíma verið alltof lítið.
► Faglegt samstarf kennara er of
lítið.
►Almennir kennarar gætu nýtt
tölvur skólans betur og með
markvissari hætti.
ARNDÍS HARPA
EINARSDÓTTIR
Úttektin
vítamín-
sprauta
ÉG var að byrja sem skólastjóri
Barnaskólans á Eyrarbakka þegar
Ingvar Sigurgeirsson vann að mat-
inu á honum skólaárið 1996-97
m.t.t. þess að sameina hann skólan-
um á Stokkseyri," segir Arndís
Harpa Einarsdóttir skólastjóri en
árið áður hafði verið gerð úttekt á
Grunnskólanum á Stokkseyri.
„Hann skilaði ítarlegri og góðri
skýrslu og dró fram sterkar og
veikar hliðar skólastarfsins með
tillögum og ábendingum. Þetta
hefur reynst mér mjög notadrjúg
úttekt sem ég hef nýtt mér til leið-
beiningar."
Skólarnir voru síðan sameinaðir.
Unglingadeildin er á Eyrarbakka
og barnadeildin á Stokkseyri og er
Arndís Harpa skólastjóri þeirra
beggja en aðstoðarskólastjórar eru
tveir. „Úttektin hefur líka styrkt
okkur í starfi og við vitum hvar
skórinn kreppir að. Það er nauð-
synlegt að fara í svona mat,“ segir
hún, „það má segja að innra starf
skólanna liafi verið rannsakað ofan
í kjölinn."
Hún segir að mótun og þróun
skólastarfsins hafi tekið mið af
rannsókn Ingvars. „Sameiningin
hefur heppnast vel og eru nú þægi-
lega fjölmennar bekkjardeildir
bæði á Eyrarbakka og Stokkseyri,“
segir hún.
Foreldrar virðast vera ánægðir
með niðurstöðuna. Þeir voru f byrj-
un uggandi yfir því að senda yngri
krakkana frá Eyrarbakka á
Stokkseyri. „En hér var ráðinn
skólabílstjóri sem allir treysta og
stoppistöðvar eru fimm í bænum
og það er gæsla í rútunni, og ég
held að allir séu mjög sáttir,“ segir
hún.
títtekin hefur að hennar mati
bæði veitt aðhald og verið sem
vítamínsprauta á skólastarfið.
Núna er skólaskrifstofan á Suð-
urlandi í samstarfi við skólastjóra í
væntanlegri Árborg um námskeið í
mati á skólastarfi. „Það var bæði í
fyrra og verður aftur í vor. Þar er
verið að kenna okkur að gera
svona mat sjálf,“ segir Arndís
Harpa að lokum.
Sterkar hliðar
og veikar