Morgunblaðið - 21.04.1998, Page 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
*
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og systir,
GUÐRÚN FRÍMANNSDÓTTIR,
Lálandi 22,
Reykjavík,
lést að morgni laugardagsins 18. apríl.
Ferdinand Alfreðsson,
Margrét Stefánsdóttir,
Frímann Ari Ferdinandsson, Sigurveig Ágústsdóttir,
Helga Margrét Ferdinandsdóttir,
Kristinn Alfreð Ferdinandsson,
Guðrún Ósk Frímannsdóttir,
Höskuldur Frímannsson,
Hanna Frímannsdóttir.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HULDA BENEDIKTSDÓTTIR LÖVDAHL,
Meistaravöllum 17,
Reykjavík,
andaðist á Landakotssþítala sunnudaginn
19. apríl.
Fyrir hönd aðstandenda.
Edvard Lövdahl,
Una Olga Lövdahl,
Jóhanna Lövdahl,
Benedikt Ragnar Lövdahl,
Marten Ingi Lövdahl,
Elsa Pálsdóttir,
Rafnar Karlsson,
Stefán Edelstein,
Lóa May Bjarnadóttir,
Elin Guðbjartsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SVERRIR GAUTI DIEGO,
Kleppsvegi 132,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum fimmtudagsmorguninn
16. apríl.
Kolbrún Haraldsdóttir Diego,
Valtýr Helgi Diego, Helena Hrafnkelsdóttir,
Svanhildur Auður Diego,
Eysteinn Vignir Diego, Alda Hanna Hauksdóttir,
Friðrik Agnar Diego,
og barnabörn.
+
Elsku litla dóttir okkar, systir, barnabarn og
barnabarnabarn,
RAGNHILDUR RÚN GUNNARSDÓTTIR,
Eyrarvegi 20,
Grundarfirði,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 16. apríl
síðastliðinn.
Útförin ffer fram frá Grundarfjarðarkirkju fimmtu-
daginn 23. apríl kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast
hennar, er bent á Landssamtökin Þroskahjálp.
Hrafnhildur Jóna Jónasdóttir, Gunnar Jóhann Elísson,
Jónas Elís Gunnarsson,
Ragnhildur Kristjana Gunnarsdóttir, Elís Gunnarsson,
Jónas Már Ragnarsson, Sigríður Pétursdóttir,
Guðrún Björnsdóttir, Sigurður G. Jóhannsson,
Hrafnhildur Jónasdóttir, Ragnar Þór Kjartansson,
Jóna Guðjónsdóttir, Ásgeir Bjarnason,
Björn Lfndal, Málfríður Pálsdóttir
og aðrir aðstandendur.
+
Elskuleg móðir okkar, amma og langamma,
KRISTJANA GÍSLADÓTTIR,
sfðast til heimilis
á Hrafnistu Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu mið-
vikudaginn 22. apríl kl. 13.30.
Hulda Gígja,
Björn Kr. Gígja,
Haukur Gígja,
Gylfi Gígja,
Sæbjörn H. Björnsson.
+Þórður Árelíus-
son var fæddur
í Reykjavík 4. sept-
ember 1940, en átti
lieiina til tveggja
ára aldurs á Stað í
Reykhólasveit þar
sem faðir hans var
prestur. Hann lést
13. apríl síðastlið-
inn. Foreldrar lians
voru séra Árelíus
Níelsson, f. 7. sept-
ember 1910, d. 7.
febrúar 1992, og
Ingibjörg Þórðar-
dóttir, f. 24. nóvem-
ber 1918, d. 13. nóvember 1978.
Tveggja ára flutti Þórður með
foreldrum sínum til Eyrarbakka
og ólst þar upp til tólf ára aldurs
en þá flutti fjölskyldan til
Reykjavíkur. Systkini Þórðar
eru: Ingvar Níels Bjarkar, f. 15.
ágúst 1942, d. 30 ágúst 1947.
María Ingibjörg Bjarkar, f. 5.
nóvember 1943, kennari, gift
Steinari Berg Björnssyni, við-
skiptafræðingi og starfsmanni
Sameinuðu þjóðanna. Rögnvald-
ur Bjarkar, f. 8. apríl 1945, tón-
listarmaður. Sæmundur Bjarkar,
f. 21. febrúar 1946, útgerðar-
maður, kvæntur Ásdísi Hildi
Jónsdóttur. Uppeldisbróðir
Kveðja til föður.
Elsku pabbi, okkur langar til að
senda þér stutta kveðju og þakka
þér fyrir allt það sem þú hefur fyrir
okkur gert. Þú varst ankeri okkar
en nú er sú stund komin sem við
áttum ekki von á svo fljótt, það að
við þurfum að kveðja þig með sökn-
uði. Þú varst skyndilega hrifsaður
frá okkur af æðri máttarvöldum án
þess að við náðum að kveðja þig.
Þetta hefur reynst okkur erfitt að
skilja en við trúum því að allt hafi
sinn tilgang og þín bíði nú önnur
verkefni handan við hafið. Við erum
þakklátir fyrir það að góði guð veitti
okkur það tækifæri og þá ánægju að
hafa fengið að vera með þér þennan
stutta en góða tíma sem við áttum
saman.
Þegar við fréttum um andlát þitt
þá var ekki bara aðeins að pabbi
okkar hefði verið tekinn frá okkur
heldur einnig okkar besti vinur sem
umgekkst okkur eins og jafningja.
Minningin um pabba er að hann var
alltaf glaður og hress tilbúin til að
hjálpa, ræða vandamál og hvað sem
er sem viðkom okkar lífi. Hann var
okkar viskubrunnur og miðlaði
gjarnan sinni þekkingu og reynslu
til okkar. Pabbi hafði mikið yndi af
lestri bóka, var víðlesinn og átti
stórt safn af bókum. Ættfræði hafði
hann mikinn áhuga á og var það
mjög gaman þegar hann fór með
okkur á ættarmót vestur á Firði og
hann sýndi okkur alla þá staði þar
sem forfeður okkar bjuggu og sagði
okkur sögur af þeim í leiðinni.
Hann átti auðvelt með að snúa
vandamálunum upp í grín og líta á
björtu hliðar okkar tilveru. Eitt
kenndi hann okkur og það var að
heiðarleikinn borgaði sig alltaf og
það er víst að þar var hann sönn
fyrirmynd því aldrei minnumst við
þess að hann segði styggðaryrði um
nokkurn mann eða segði ósatt.
Fljótlega vaknaði áhugi pabba á
að fara til sjós. Þegar hann var
drengur á Eyrabakka og horfði á
bátana koma að landi og hraust-
mennin bera fiskinn upp á bryggju
þá var það eitthvað óskiljanlegt sem
heillaði hann við þetta líf. Þarna var
tekin sú ákvörðun að helga sig sjó-
mannslífinu. Þegar hann var í
Verslunarskóla Islands var hugur
hans allur á sjónum og mætti hann
oft þegar skólinn var byrjaður því
þá hafði hann verið til sjós í skóla-
fríinu. Að námi loknu byrjaði hann
að vinna við skrifstofustörf en þoldi
þar ekki lengi við því sjórinn kallaði
á hann.
Við munum að þegar hann var til
sjós var spennan mikil þegar fréttir
voru um það að hann væri að koma
að landi og mikið var gaman að sjá
Þórðar er Ingvar
Heimir Bjarkar, f. 4.
apríl 1953, tónlistar-
maður búsettur í
London, kvæntur
Sheilu Bonnick söng-
konu.
Þórður kvæntist 20.
október 1962 Ásdísi
Sigrúnu Guðmunds-
dóttur, f. 23. febrúar
1943, d. 28. september
1991. Foreldrar henn-
ar voru Guðmundur
Sigurvin Hannesson, f.
15. júní 1906, d. 27.
apri'l 1989, og Ragn-
heiður Ólafsdóttir, f. 5. júní
1909, d. 1. nóvember 1985.
Börn Þórðar og Ásdísar eru:
1) Árelíus Örn f. 3. júlí 1962,
stýrimaður, starfsmaður í Álver-
inu í Straumsvík. Fyrri kona Ár-
elíusar var Eva Hrönn Hreins-
dóttir, f. 27. janúar 1965, d. 5.
febrúar 1986. Seinni kona Árelí-
usar er Sesselja Jörgensen, f. 6.
ágúst 1968, framreiðslunemi.
Börn þeirra eru: Eva Hrönn, f.
27. janúar 1989, Þórður Bjarkar,
f. 30. apríl 1991, og Lárus Geir,
f. 28. nóvember 1995. 2) Ragnar
Guðmundur, f. 15. febrúar 1964,
viðskiptafræðingur, starfar við
eigin atvinnurekstur. Sambýlis-
þegar skipið Iagðist að bryggju og
pabbi hoppaði í land. Hann hafði
yndi af því að fara í bíltúra og ófáir
voru þeir sem enduðu niður á höfn
til að skoða skipin. Einn var sá hlut-
ur sem aldrei brást í þessum ferðum
og það var að stoppað var í nálægri
sjoppu og þar keypt prins póló og
kók. Kókflaskan var venjulega
drukkin í einum teig.
í seinni tíð talaði hann oft um það
hvað honum fyndist vera lítið
spennandi að vera sjómaður í dag
og að ekki vildi hann vera ungur
maður í dag að byrja sjómennsku.
Hann minntist oft þeirra dýrðar-
daga þegar fraktskipin stoppuðu
lengur en einn dag í höfn. Þá kom
það fyrir að stoppið yrði vika til
tvær og kom það sér sérlega vel
þegar hann var í Ameríkusiglingun-
um því þá gafst tími til að þræða all-
ar djassbúllur New York borgar í
einum túr. Hann var nefnilega mik-
ill áhugamaður um alla tónlist en
djassinn var samt hans uppáhald.
Pabbi var mjög söngelskur og
hafði gaman af því að syngja og
söng þá oft hæst og munum við eftir
því þegar við fórum með honum á
mannamót, þá þurftum við oft að
hnippa í hann því okkur fannst hann
þá syngja full hátt. Hann var hrók-
ur alls fagnaðar á mannamótum og
var mikill dansmaður. En dans-
kunnáttuna erfðum við ekki frá hon-
um og er það leitt.
Góði guð, nú er pabbi kominn til
þín og það er okkur huggun harmi
gegn að vita af honum í þínum
höndum.
Þínir synir,
Hilmar, Árelíus, Ragnar
og Ingi Ólafur.
í dag kveð ég hinstu kveðju bróð-
ur minn og kæran vin, sem svo
snöggt og óvænt hefur kvatt okkur.
Þórður fæddist í Reykjavík, elstur
fimm systkina. Ungur flutti Þórður
með foreldrum okkar til Eyrar-
bakka, en þar var faðir okkar sókn-
arprestur. Örlögin höguðu því
þannig að við ólumst ekki upp sam-
an, en árið 1946 var móðir okkar
send á Vífilsstaði vegna berklaveiki
og dvaldi hún þar í um 3 ár. Voru
það erfíðir tímar sem fóru í hönd, en
föður okkar tókst með hjálp góðra
vina að bjargast áfram með hóp
ungra barna og fárveika konu. Það
hefur því snemma reynt á Þórð að
bjarga sér. Fjölskyldan flutti til
Reykjavíkur 1952, þegar faðir okkar
tók við Langholtssöfnuði. Þórður fór
að vinna ungur, og vann sem hafnar-
verkamður en fljótt fór hann að
kona hans er Birna Kemp, f. 27.
apríl 1966, þjónustufulltrúi hjá
Samskipum. Dóttir þeirra er Ás-
dís Rún, f. 21. júní 1995. 3) Ingi
Ólafur, f. 9. febrúar 1972, bú-
settur í Árósum í Danmörku,
starfsmaður hjá Terma el-
ektronik. Kona hans er Anja Li-
isa Perdomo, f. 11. ágúst 1970,
hjúkrunarfræðinemi. Dóttir
þeirra er Freyja Ósk, f. 7. nóv-
ember 1997. Fyrir átti Þórður
einn son, Hilmar, f. 9. apríl
1960, tónskáld, með Sigrúnu
Pálsdóttur, f. 18. júlí 1939. Hilm-
ar á eina dóttur, nefnd Ingi-
björg, f. 31. mars 1998. Barns-
móðir Hilmars er Guðbjörg Sig-
urgeirsdóttir læknir, f. 31. des-
ember 1960.
Eftirlifandi unnusta Þórðar er
Elsa Hildur Halldórsdóttir, f.
17.7. 1944, bankastarfsmaður.
Þórður lauk prófi frá Verslun-
arskóla Islands 1959 og far-
mannaprófi frá Stýrimannaskól-
anum í Reykjavík 1974. Hann var
sjómaður á skipum Eimskipafé-
lags íslands til 1962 og skrif-
stofumaður lengst af hjá Skelj-
ungi 1962-1968. Þórður var há-
seti, stýrimaður og skipstjóri á
flutninga- og flskiskipum
1968-1987. Þórður starfaði sem
veiðieftirlitsmaður hjá Fiskistofu
1987-1997. Frá 1997, og til þess
dags er hann lést, var hann hafn-
arsljóri hjá Sandgerðishöfn.
Utför Þórðar fer fram frá
Langholtskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
sigla með skipum Eimskips. Þórður
stundaði nám við Verslunarskóla Is-
lands og lauk þaðan prófi.
Árið 1962 giftist Þórður Ásdísi S.
Guðmundsdóttur en hún lést 1991.
Synir Þórðar eru 4 og barnabörnin
eru orðin 6. Þórður var stoltur og
glaður yfir velgengni og hamingju
sona sinna og fjölskyldum þeirra.
Þau hjónin byggðu sér einbýlishús
í Garðabæ, og bjó hann síðan alla tíð
í Garðabænum þar til fyrir tæplega
ári að hann flutti starfs síns vegna í
Sandgerði. Eftir að húsbyggingunni
lauk eirði hann illa við skrifstofustörf
og langaði að vinna við eitthvað sem
tengdist sjávarútvegi. En árið 1969
keyptum við bræður saman 80 tonna
bát, sá hann um útgerðarþáttinn og
stundaði jafnframt sjóinn. Þessi tími
var Þórði alltaf mjög minnisstæður
þó að hann stæði ekki lengi. Ekki gat
hann hugsað ser að snúa sér aftur að
skrifstofustörfum er þessari útgerð-
arsögu lauk. Þvi var það á fertugs-
aldri að hann tók þá ákvörðun að
fara í Stýrimannskólann og þaðan
lauk hann prófi með farmannarétt-
indum. Eftir það lá leiðin til Eim-
skips á ný og sigldi hann um nokkurt
árabil á skipum félagsins og á þaðan
farsælan feril. Einhvern veginn var
það svo að fiskveiðin átti hug hans
meira en farmennska og endaði
Þórður sjómannsferil sinn sem skip-
stjóri á togara.
Eftir að hann kom í land hóf hann
störf hjá sjávarútvegsráðuneyti og
siðar Fiskistofu. Var það erilsamt
starf og ferðaðist Þórður víða bæði
innalands og utan sem veiðieftirlits-
maður. Hann kunni þessu starfi vel
og hafði mjög gaman af að fylgjast
með allri tölvuvæðingunni og hvern-
ig hafnarvogir hringinn í kringum
landið komust í bein tengsl við
Fiskistofu. Vegna starfs sísn á
Fiskistofu tengdist Þórður fjölda
fólks allstaðar að af landinu.
Fyrir tæpu ári réðst hann sem
hafnarstjóri í Sandgerði. Hann var
fljótur að festa rætur á nýja staðn-
um og var starfið honum mjög mik-
ils virði. Hann vildi veg og vanda
Suðurnesja sem mestan og var bú-
inn að koma sér vel fyrir. Framtíðin
blasti við, unnusta hans, Elsa Hildur
Halldórsdóttir, ætlaði að flytja til
hans í lok mánaðarins. Þau höfðu
gert sér miklar væntingar um fram-
tíðina. En eigi má sköpum renna, á
svipstundu var honum kippt burt og
eftir stendur skarð sem aldrei verð-
ur fyllt.
Þórður vr ákaflega fróður og víð-
lesinn maður og mikill áhugamaður
um uppruna sinn. Ungur að árum
var hann í sveit vestur í Múlasveit í
Barðastrandarsýslu en það eru
bernskuslóðir foreldra okkar. Alla
ÞÓRÐUR
ÁRELÍUSSON