Morgunblaðið - 21.04.1998, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998 45 “V-
+ Guðrún Ás-
mundsdóttir
fæddist í Fellsaxl-
arkoti í Skilmanna-
hreppi, Borgar-
fjarðarsýsiu, 1.
nóvember 1904.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Akraness 14.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Krist-
björg Þórðardóttir
frá Heggstöðum í
Andakíl og Ás-
mundur Þorláks-
son, bóndi, frá Ósi í
Skilmannahreppi. Systkini
hennar voru Sveinn, f. 1894,
Þorlákur, f. 1895, Magnús, f.
1896, Sigurbjöm, f. 1898,
Þórður, f. 1899, Ásbjörg Gróa,
f. 1900, Þorkell, f. 1902, Guð-
ríður, f. 1903, og Kristján, f.
1907. Þau em nú öll látin.
Fósturbróðir er Ásmundur
Guðmundsson, málarameistari
í Kópavogi, f. 1921.
Guðrún giftist Einari Ólafs-
syni, kaupmanni á Akranesi,
23. janúar 1937. Einar lést 27.
í —
Guðrún foðursystir mín hefur
kvatt þennan heim 93 ára að aldri,
síðust 10 systkina, sem kennd voru
við Lambhús á Akranesi. Mánuði
áður, 14. mars sl, lést Ásbjörg Gróa
systir hennar, tæplega 98 ára, en
þær systur áttu langa og giftu-
Idrjúga samleið gegnum lífið.
Fyrstu minningar mínar um
Gunnu föðursystur, eins og hún var
| nefnd í hópi okkar systkinanna, eru
' frá 1940 úr gömlu Einarsbúð á
Kirkjubraut 1, en þar ráku þau
hjónin, hún og Einar Ólafsson kaup-
maður, fyrst verslun. Þar afgreiddi
Gunna hveiti og kartöflur, kaffi og
sykur, sem allt var vigtað á gamalli
lóðavigt. Með gamanyrði á vörum
og kátínu f augum afhenti hún vör-
, umar yfir búðarborðið. Glettnar at-
hugasemdir fylgdu gjaman með.
Oft stakk hún sælgætismola í lófann
I á litlum dreng og var það vel þegið
á þeim ámm.
Þegar fjölskylda okkar kom sam-
an var Gunna hrókur alls fagnaðar.
Með léttleika og góðlátlegu gríni
hreif hún alla með sér og lyfti upp
úr grámóðu hversdagsleikans.
Árið 1946 byggðu þau hjónin,
íbúðar- og verslunarhúsnæði á
; Skagabraut 9 og fluttu verslunina
þangað. Einar Ólafsson andaðist 27.
nóv. 1957. Vegna veikinda Einars
| síðustu æviárin hafði Gunna nokkra
forastu um reksturinn þar til einka-
sonur þeirra, Einar Jón, tók við
honum 1958. Hann hefur síðan
byggt upp verslunina af miklum
myndarskap ásamt eiginkonu sinni
Emu Guðnadóttur og tveimur son-
um þeirra hjóna.
Gunna frænka starfaði í verslun-
I inni fram á níræðisaldur. Kankvís
og rösk afgreiddi hún viðskiptavini
verslunarinnar og ræddi við þá á
| léttum nótum eða alvarlegum þegar
það átti við og miðlaði samborgur-
unum af gleði sinni. Hún tók virkan
þátt í félagsstarfi kvenna á Akra-
nesi og starfi eldri borgara. Þar
naut hún sín vel í gáska og fjöri sem
viðstaddir kunnu vel að meta.
Seinni árin kom ég stundum til
hennar í fallegu íbúðina yfir versl-
i uninni á Skagabraut 9. Þar sat hún í
stólnum sínum umkringd myndum
af fjölskyldu sinni ættingjum og
| vinum. Hún fagnaði mér innilega,
spurði frétta af mínu fólki, sagði
mér nýjustu fréttir af ættingjunum,
en hún var alltaf í nánu sambandi
við systkini sín og fjölskyldur
þeirra. Síðan rifjaði hún upp liðna
daga og sagði mér skemmtilegar
sögur af Skaganum frá unglingsár-
um sínum þegar hún var að alast
| upp í Fellsædarkoti og Lambhúsum
með bræðram sínum og systram.
Hún sagði mér frá ömmu minni,
| Kristbjörgu, sem þurfti að sjá á eft-
ir bömunum til vandalausra þegar
nóvember 1957.
Dóttir hans er
Lydia Björnsson,
húsmóðir í Reykja-
vík. Þau Einar og
Guðrún eignuðust
einn son, Einar
Jón, f. 26. des.
1938, kaupmann á
Akranesi. Einar er
kvæntur Ernu Sig-
ríði Guðnadóttur
og eiga þau og
reka verslunina
Einar Ólafsson á
Akranesi. Synir
þeirra eru Einar
Gunnar, viðskiptafræðingur,
og Guðni Kristinn, nemi við
Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Guðrún tók virkan þátt í
félagsstarf! kvenna og eldri
borgara á Akranesi. Mestan
hluta starfsævi sinnar starf-
aði hún að rekstri verslunar-
innar Einar Ólafsson með
eiginmanni sínum og fjöl-
skyldu.
Útför Guðrúnar fer fram
frá Akraneskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
afi minn lést langt um aldur fram
aðeins 38 ára gamall, og hvernig
fjölskyldan sameinaðist í Lambhús-
um á fullorðinsáram.
Eftir andlát ömmu minnar 23.
maí 1943 hittust systkinin og fjöl-
skyldur þeirra oftast á heimili
Gunnu og Einars Ólafssonar, fyrst á
Kirkjubraut 11 (Kaupfélagshúsinu)
og síðar á Skagabraut 9.
Gunna frænka var hamingjusöm
lengst ævinnar og kunni að njóta
lífsins. Hún hafði í æsku kynnst
harðri lífsbaráttu og erfiðleikum og
kannski hefúr það kennt henni að
meta gæði h'fsins, þegar þau hlotn-
uðust henni. Hún kunni líka þá list
að miðla öðram af gleði sinni og
gæðum. Hún var mikil rausnarkona
sem margir nutu góðs af.
Síðustu árin naut hún einstakrar
umhyggju einkasonar síns Einars,
tengdadótturinnar Emu og sona
þeirra, Einars og Guðna.
Við andlát Gunnu föðursystur
minnar hafa öll Lambhúsasystkinin
kvatt þennan heim. Við það hafa
orðið kynslóðaskipti í fjölskyldunni.
Því langar mig með örfáum orðum
að minnast þeirra og afa míns og
ömmu, Ásmundar Þorlákssonar og
Kristbjargar Þórðardóttur. Systk-
inin voru: Sveinn Júlíus, Þorlákur,
Magnús, Sigurbjöm, Þórður, Ás-
björg Gróa, Þorkell, Guðríður, Guð-
rún og Kristján.
Þau ólust upp í þröngum húsa-
kynnum í Fellsaxlarkoti á fyrstu ár-
um aldarinnar. Vinnudagurinn var
langur við hirðingu búfjár og heim-
ilisstörf. Oft varð húsmóðirin að
vaka og vinna þegar bömin vora
sofnuð. Hún þurfti að sjá um fatnað
á fjölskylduna, prjóna, sauma,
stoppa og staga, búa til skó og föt á
barnahópinn sinn. Seinust allra
gekk hún til hvíldar og fyrst var
hún á fætur á morgnana til þess að
kveikja upp eldinn og ná upp hita
áður en bömin fóra á fætur. Þetta
gerði hún helga daga og virka árið
um kring. Aldrei heyrðist æðraorð
af vörum hennar. Glöð gekk hún til
allra verka þakklát skapara sínum
og treysti honum fyrir öllu. Bömin
kunnu vel að meta umhyggju henn-
ar, fómfysi og vinnusemi, sem varð
þeim sú fyrirmynd, sem markaði líf
þeirra.
Bústofninn var tvær kýr og nokkr-
ir tugir kinda, auk hrossa sem vora
nokkur. Leiðin úr uppsveitum Borg-
arfjarðar og af Hvalfjarðarströnd til
Akraness lá um bæjarhiaðið. Margir
komu þar við á leið í kaupstað og aft-
ur á heimleið. Einkum vora það ætt-
ingjar hjónanna úr uppsveitum
Borgarfjarðar og Andakíl og aðrir
vinir þeirra, en þau vora vinamörg.
Þágu þeir hressingu í Fellsaxlarkoti
hjá Kristbjörgu og Ásmundi sem oft
höfðu minna en fólk vissi.
Ásmundur átti við mikil veikindi
að stríða og andaðist 29. apríl 1909,
aðeins 38 ára gamall. Þá var heimil-
ið leyst upp, bömunum komið fyrir
hjá vandalausum, en Kristbjörg
flutti til Akraness með tvö yngstu
bömin. Hún vann hörðum höndum
alla vinnu sem fáanleg var. Á vorin
og framan af sumri vann hún í mó-
gröfum og síðan í kálgörðum.
Vinnudagurinn var langur. Oftast
var byrjað klukkan 5-6 að morgni
og unnið til klukkan 10 að kvöldi og
stundum til miðnættis. Aldrei
heyrðist hún kvarta, kvaðst aðeins
þakklát fyrir að fá að vinna. Hún
var eftirsótt til allrar vinnu sakir
dugnaðar og samviskusemi. Launin
vora afar lág og gáfu ekki tilefni til
neins nema brýnustu nauðsynja í
mat. Á vetram prjónaði hún fyrir
fólk sokka, sjóvettlinga og hvaðeina
sem til féll. Áldrei féll henni verk úr
hendi.
I öllu þessu annríki og miklu
vinnu átti hún draum og takmark
sem hún vann að af öllum lífs og
sálar kröftum og gaf henni þann
styrk sem til þess þurfti. Þessi
draumur hennar var að endur-
heimta börnin sín og heimilið sem
sundraðist við dauða Ásmundar
eiginmanns hennar. Þetta takmark
veitti henni þrek til þess að stand-
ast þá miklu fátækt sem hún átti
við að búa. Æðrulaus hélt hún sínu
striki og treysti Guði takmarka-
laust. Enda þótt draumurinn kynni
að virðast fjarlægur þá varð hann
nú samt að veruleika í fyllingu tím-
ans. Systkinin heimsóttu móður
sína út á Akranes ef færi gafst,
helst var það á haustin og stundum
á hátíðum. Þegar bræðumir höfðu
aldur til fluttu þeir til móður sinnar
einn af öðram. Ekki voru þeir fjáðir
þegar þangað kom en fljótlega tók
þó hagurinn að vænkast því þeir
vora eftirsóttir í vinnu. Þeir lögðu
allir sameiginlega til heimilisins.
Vora það mikil umskipti fyrir
Kristbjörgu. Var nú fljótlega farið
að vinna að því að kaupa eigið hús-
næði fyrir fjölskylduna. Þegar
Lambhús (Vesturgata 22), sem nú
er nýlega horfið af sínum stað, var
auglýst til sölu ákváðu bræðumir
að festa kaup á því. Vorið 1918, eft-
ir frostaveturinn mikla, fluttu þau
svo í sitt eigið hús. Var það mikil
hátíðastund og gleði. Má því segja
að draumur hennar hafi ræst að
nokkru leyti í þessu efni.
Bræðumir í Lambhúsum erfðu
hestamennskuna frá fóður sínum og
sinntu henni af alúð. Allir áttu þeir
góða reiðhesta og héldu uppi merki
föður síns á því sviði. Þegar stundir
gáfust frá vinnunni fóra þeir saman
í útreiðartúra og nutu í ríkum mæli
þeirrar ánægju sem felst í því að
rækta góða hesta.
Flest systkinin giftust og byggðu
sér myndarleg hús sem tekið var
eftir á Skaganum. Er ekki ólíklegt
að með því hafi þau viljað sýna fram
á hvers þau væra megnug þrátt fyr-
ir illa meðferð og fátækt í uppvext-
inum. Öll urðu þau mætir borgarar
sem ekki máttu vamm sitt vita í
einu eða neinu á hverju sem gekk.
Kristbjörg lét ekki baslið buga sig,
setti allt sitt traust á Guð sem ekki
brást henni. Bömum sínum inn-
rætti hún góða siði, heiðarleika og
sterka guðstrú. Megi það veganesti
verða okkur öllum að leiðarljósi.
Kristbjörg andaðist á heimili sínu
22. maí 1943, 73 ára að aldri, og var
jarðsett í Görðum eins og eiginmað-
ur hennar.
Við andlát Gunnu frænku þökk-
um við afkomendur Lambhúsa-
systkinanna þeim eljusemi þeirra,
heiðarleika og guðstrú, sem ein-
kenndi líf þeirra og er það veganesti
sem þau hafa látið okkur í té.
Fjölskylda okkar vottar Einari,
Emu og sonum þeirra, Einari og
Guðna, innilega samúð vegna and-
láts góðrar móður, tengdamóður og
ömmu, og þakkar allar góðar stund-
ir sem við höfum átt saman.
Bragi Þórðarson.
í dag kveðjum við kæra vinkonu
eftir 60 ára vináttu. Þau eru
ógleymanleg árin sem við bjuggum
í sama húsi og Einar Ólafsson og
Guðrún. Við höfum oft undrast
GUÐRÚN
ÁSMUNDSDÓTTIR
það, systurnar, hvílíkt umburðar-
lyndi þau hjón sýndu okkur. Við
vorum þá þrjú undir fermingar-
aldri og öragglega oft verið ónæði
í kringum okkur. En öll árin sem
við bjuggum á hlið við þau mætt-
um við aldrei nema einskærri
hlýju og góðvild. Guðrún var ein-
stök kona, hennar góða skap og
skemmtilega kímnigáfa gerðu það
að verkum, að hún laðaði að sér
eldri sem yngri. Hún hafði þann
eiginleika að láta öllum líða vel í
kringum sig. Það eru svo ótal-
margar minningar sem koma upp í
hugann við leiðarlok. Við gleymum
aldrei deginum, þegar einkasonur-
inn kom í heiminn. Það var mikill
hamingjudagur í lífi Guðrúnar og
Einars. Við systurnar vorum líka
hamingjusamar, því við nutum
þess, að fá að gæta hans og fylgj-
ast með honum fyrstu æviárin.
Okkur fannst alltaf að við ættum
svolítið í honum. Enda sambýli
fjölskyldnanna mjög náið. Vinátt-
an sem myndaðist á þessum áram
hefur enst allt til þessa dags. Sú
tryggð og vinátta sem þau sýndu
foreldrum okkar meðan þau lifðu
og allri okkar fjölskyldu er ein-
stök.
Allar þær góðu minningar sem
við eigum verða að litlu leyti tíund-
aðar hér heldur eiga þessar fátæk-
legu línur fyrst og fremst að tjá
þakklæti okkar fyrir órofa tryggð
og allt það góða sem við fengum að
njóta með Guðrúnu.
Guðrún var gæfukona í einkalífi
sínu. Hún átti góðan mann sem lát-
inn er fyrir mörgum áram. Einar og
Guðrún vora í orðsins fyllstu merk-
ingu hamingjusöm hjón. Það duldist
engum, sem þekkti þau. Eftir lát
Einars naut Guðrún í ríkum mæli
umhyggju sonar síns og síðar
tengdadóttur og sona þeirra tveggja.
Guðrún var alla ævi glöð og sátt
við lífið en umfram allt þakklát fyrir
allt það góða sem skaparinn hafði
látið henni í té. Hún fór ekki var-
hluta af ýmsum heilsufarslegum
óþægindum sem fylgja háum aldri.
Hún tók þeim með reisn, það var
hennar háttur.
Það er bjart yfir minningu þess-
arar góðu konu. Við þökkum fyrir
öll gæðin í okkar garð.
Kæra vinir, Einar, Ema, Einar
Gunnar og Guðni Kristinn. Við
sendum ykkur innilegar samúðar-
kveðjur og blessum minningu Guð-
rúnar Ásmundsdóttur.
Jófríður, Jóhanna, Sveinbjörg,
Amfríður og fiölskyldur.
Nú er hún Gunna mín softiuð
svefninum langa. Með henni er geng-
in góð og ástrík kona. Það er mikil
eftirsjá að Gunnu en það er nú einu
sinni svo að einhvem tíma verðum
við öll að fara. Hennar tími var kom-
inn eftir langa og viðburðaríka ævi.
Mín fyrstu kynni af Gunnu vora
þegar ég, þá tæplega tíu ára gamall,
kom með Guðna vini mínum í mat til
hennar og var ég heimagangur hjá
henni alla tíð eftir það. Ég naut þess
í ríkum mæli, einkum vegna þess að
hún sagði okkur gjaman sögur af
því hvemig lífið var í „gamla daga“,
því að hún Gunna mundi svo sann-
arlega tímana tvenna.
Eftir að ég fór að vinna hjá fjöl-
skyldu Gunnu í Einarsbúð kynntist t
ég henni svo enn betur. Hún var
vön að koma niður í kaffitímana til f
okkar og spjalla við okkur hin. Hún
tók yfirleitt virkan þátt í þeim um-
ræðum sem þar fóra fram og var
áhugasöm um hvemig okkur starfs-
fólkinu vegnaði.
Hin seinni ár hafði heilsu Gunnu
hrakað mjög þannig að oft þurfti að
fylgja henni úr íbúðinni sinni og nið- ' -
ur í kaffítímana, en af þeim vildi
hún helst ekki missa. Þá daga sem
ég var að vinna tók ég gjaman að
mér hlutverk fylgdarmannsins, og á
þessum ferðum okkar var oft mikið
masað, okkur báðum tíl ómældrar
ánægju. |
Eftir öll þessi ár sem ég þekkti !
Gunnu hafði þróast á milli okkar -
mikil vinátta sem ég mun búa lengi |
að i framtíðinni. Ég tel að samband t
okkar hafi verið óvenju náið, ekki l
síst með það í huga að á milli okkar *
var sjötíu og fimm ára aldursmun-
ur, hvorki meira né minna. Þótt við 5,
væram alls óskyld fannst mér því '
líkast að hún væri mín þriðja amma.
Ég er glaður yfir því að hafa verið
svo heppinn að fá að kynnast henni
Gunnu minni. Með henni er farin
einstök kona og góður vinur. Ég vil
votta fjölskyldu hennar á Skaga-
brautinni og öðram aðstandendum \
samúð mína. Guð blessi minningu j
hennar.
Gauti.
!
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund. <;*,
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna,
Guð þerri tregatárin strið.
Far þú í friði,
ffiðurGuðsþigblessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi
hans dýrðarhnoss þú hþota skalt
(V.Briem) ^
Elsku Gunna mín, þá er komið að
kveðjustundinni. Ég vil þakka þér
fyrir allar þær yndislegu samvera-
stundir sem við höfum átt og allt
það sem þú hefur kennt mér og gef-
ið mér með nærvera þinni.
Vertu sæl, kæra vinkona.
Ester S. Helgadóttir.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and-
lát og jarðarför ástkærs bróður okkar og
mágs,
GRÍMS JÓNSSONAR
stýrimanns.
Guð blessi ykkur öll.
Högni Jónsson, Ámý Guðmundsdóttir,
Ragnhildur Jónsdóttir, Sigurjón Stefánsson.
Lokað
Lokað vegna jarðarfarar HAUKS HELGASONAR, þriðjudaginn
21. apríl milii kl. 12.00-16.00.
Gásar ehf. — Hér og nú innréttingar,
Borgartúni 29,
Reykjavík.
<
4