Morgunblaðið - 25.04.1998, Page 20

Morgunblaðið - 25.04.1998, Page 20
20 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 UR VERINU MORGUNBLAÐIÐ „SIF hefur rutt öðrum fyrir- tækjum brautina“ „HIN framsækna starfsemi SÍF sem felst í sókn fyrirtækisins á ný mið lýsir hugmyndaauðgi, fram- sýni og áræði stjómenda og eig- enda fyrirtækisins,“ sagði halldór Ásgrímsson, utanríksiráðhema í ræðu sinni á aðalfundi SIF. „Ég vil nota tækifærið og jiakka fyrir það fmmkvæði sem SIF hefur sýnt í þessum efnum. Með útrás sinni hefur SIF án efa ratt brautina fyr- ir önnur íslensk fyrirtæki sem sótt hafa á nýja markaði og ný mið og eflt kjark þeirra og sjálfstraust til að takast á við ný verkefni heima fyrir og erlendis." Halldór rakti síðan starfsemi ut- anríkisráðuneytisins á sviði sjávar- útvegs og fór yfír helstu viðfangs- efnin á sjávarútvegssviðinu. „Lítið hefur þokast í deilumálum okkar um fiskveiðar í Barentshafi upp á síðkastið, þó stöðugt sé unnið að lausn á þeim málum. Nú um mán- aðamótin bætist stjórnvöldum nýtt úrlausnarefni þegar samningur við Grænlendinga og Norðmenn um stjóm loðnuveiða gengur úr gildi. Undanfarið hafa viðræður átt sér stað milli aðila og þótt nokkuð virð- ist enn bera í milli er vonandi að löndin þrjú axli þá ábyrgð sem á herðum þeirra hvílir. Betur hefur gengið að ná saman varðandi stjóm síldveiða, en í októ- ber sl. var staðfestur samningur frá árinu áður um stjóm veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum, þar sem í hlut Islands komu liðlega 200 þús. lestir. Ekki er hægt að segja annað en að síldarsamning- amir hafi markað tímamót. Bæði er hér um að ræða stærsta fiski- stofn sem veiddur er í Norður-Atl- antshafi og jafnframt era líkur á að veiðiþjóðimar komi með þessu í veg fyrir að ofveiðisagan frá því fyrir 30 áram endurtaki sig. TVí- hliða samningur við Rússa um sjávarútvegsmál sem gerður var á síðasta ári, en bíður enn undirrit- unar ríkjanna, markar þáttaskil, og verður án efa báðum aðilum til hagsbóta. Samstarf við Færeyjar og Grænland Undanfarið hefur einnig verið unnið að styrkingu samstarfs við nágrannalöndin Færeyjar og Grænland og er vonast til að gengið verði frá tvíhliða sam- starfssamningi á sjávarútvegssviði milli Grænlands og Islands á næstunni. Einnig stendur fyrir dyrum að ganga frá þríhliða samningi þessara grannríkja um stjórn grálúðu- og karfaveiða úr sameiginlegum stofnum. Það er afar mikilvægt verkefni með tilliti til lélegs ástands stofnanna og brýnnar þarfar á sameiginlegri stjórn véiða og átaki í rannsókn- um. Eins og fram hefur komið tókst á síðasta ári að ganga til samn- inga um umdeild lögsögumörk milli Islands, Grænlands og Jan Mayens, en samningum um lög- sögumörk milli Færeyja og Is- lands er ekki lokið þó að nokkur skriður hafi komist á þau mál undanfarið. Mér er kunnugt um það að í kjöl- far fjárfestinga SIF í Kanada á síð- asta ári hafi fyrirtækið rekið sig á erfiðleika við að afla heimildar hjá kanadískum stjórnvöldum fyrir ís- lenska stjórnunarstarfsmenn til dvalar og til að stunda vinnu sína í landinu. EFTA-aðild Kanada? I næsta mánuði hefjast viðræð- ur milli EFTA-ríkjanna og Kanada um gerð fríverslunar- samnings. Við höfum tjáð Kanada- mönnum það að við viljum að þetta tiltekna vandamál varðandi atvinnu- og dvalarleyfi lykilstarfs- manna íslenskra fyrirtækja verði meðal þess sem rætt verði í við- ræðunum og að reynt verði semja um ákvæði í fríverslunarsamn- ingnum sem leysa þetta vandamál. Viðbrögð Kanadamanna hafa ver- ið jákvæð við þessari málaleitan Islands. LwaaaifeMiu- V t-L'C’Ui' L« amwrailiiwtimmm íí idlC íaiiiua>t Sumarbúðirnar Ævintýraland að Reykjum í Hrútafirði (Reykjaskóli) Skrifstofa á Laugavegi 3-101 Rvík. Skráning í símum 551 9160 ♦ 551 9170 kl. 12-19, og 462 4237 kl. 20-22. A l 4 bjóða upp á í tilefni að ári hafsins BÁTADAG BARNANNA í Reykjavíkurhöfn (gengt Kolaportinu) fyrsta sunnudag sumars, 26. apríl kl. 13-17 í samvinnu við Björgunarsveit Ingólfs. Dagskrá: Bátaferðir: Stuttar ferðir í gúmíbát m/gegnsæum botni Ijóskastarar lýsa undir yfirborðið. Leiksýning: Barnaleikritið Ferðin til Panama sýnt kl. 14.00 Hestar: Teymt undir Morgunblaðið/Ásdís SLEGIÐ á létta strengi í upphafi aðalfundar. Halldór Asgrímsson, utanrfkisráðherra, Sighvatur Bjarnason, formaður stjórnar SIF, Ari Þorsteinsson, framkvdmdastjóri Sans Souci, dótturfyrirtækis SÍF í Kanada og Ás- björn Björnsson, sölustjóri SIF. Áætluð velta SÍF í ár um 17 milljarðar GERT er ráð fyrir að velta sam- stæðunnar að frádreginni veltu fyrirtækjanna innbyrðis verði um 17 milljarðar á árinu 1998 saman- borið við 11,7 milljarða á liðnu ári. Um helmingur veltunnar mun koma frá erlendu dótturfyritækj- um SIF hf., starfsemin erlendis er orðin mjög veigamikill þáttur í rekstri samstæðunnar. Þessar upplýsingar komu fram hjá Sig- hvati Bjamasyni, formanni stjórn- ar SÍF hf. á aðalfundi félagsins í gær. Sighvatur fór þar meðal ann- ars yfir mjög öran vöxt félagsins, en SIF á nú dótturfélög í mörgum löndum. „Fimm ár era nú liðin frá því að SÍF var breytt í hlutafélag," sagði Sighvatur. „Þá átti SÍF hf. eitt dótturfélag, þ.e. Nord Norue s.s. í Frakklandi, en fyrirtækið hafði verið keypt árið 1990. Stjórn SÍF hf. markaði þá stefnu að renna frekari stoðum undir reksturinn og fjárfesta í fyrirtækjum í fram- leiðslu og dreifingu erlendis. Ákveðið var að ráðast ekki í fjár- festingar í framleiðslufyrirtækjum á íslandi, heldur tryggja aðgang að mörkuðum og þar með að tryggja að þeir framleiðendur sem starfa með SIF fái samkeppnishæft verð og góða þjónustu. Fjárfestingar á síðasta ári námu tæpum 670 millj- ónum króna í dag eru dótturfélög í meirihluta- eigu SÍF hf. orðin níu talsins. Þá á SIF hf. jafnan hlut í fjórum fyrir- tækjum í Noregi og Spáni, auk 40% hlutar í fyritæki í Bretlandi. Samtals tekur móðurfélagið SIF hf. í dag þátt í rekstri fjórtán dótt- ur- og hlutdeildarfélaga, auk sölu- skrifstofu á Italíu, og er starfsemin í níu löndum. Mikil umsvif á þessu ári Á árinu 1998 hefur verið haldið áfram að styrkja stöðu SÍF hf. er- lendis. í upphafi ársins stofnaði dótturfélag SÍF hf. í Frakklandi, Nord Morue s.a., fyrirtækið Nord Mar Distribuidora de Alimentos Ltda. með umboðsmanni SÍF hf. í Sao Paulo í Brasilíu. Fyrirtækið mun styrkja stöðu SÍF hf. á mark- aðnum í Brasilíu til muna, efla dreifikerfi fyrirtækisins, draga úr áhættu og auka stöðugleika í við- skiptum. Formlega var gengið frá stofnun Union-SIF Hellas s.a. í Grikklandi í byrjun febrúar. Union-SIF Hellas s.a. er í meirihlutaeign SIF hf., en þriðjungur hlutabréfa í fé- laginu er í eigu samstarfsaðila SÍF hf. til margra ára. Með stofnun fé- lagsins mun SÍF hf. fara lengra inn í dreifikerfið á markaðnum og stytta leiðina til endanlegs neyt- anda, en það hefur verið yfirlíst markmið stjórnar félagsins frá því að SIF var breytt í hlutafélag á ár- inu 1993. í marsmánuði keypti SÍF hf. öll hlutabréf í franska fyrirtækinu J.B. Delpierae s.a. Kaupverð hluta- bréfanna nam rétt um 60 milljón- um króna. Kaupin á Delpierre tryggja SIF hf. ný sóknarfæri á franska markaðinum, auk sóknar- færa á hefðbundnum saltfiskmörk- uðum í Evrópu. Eins og ég hef hér rakið var árið mjög viðburðaríkt og alls námu fjárfestingar ársins í samstæðunni 667 milljónum króna ef tekið er til- lit til söluverðmætis á seldum eign- um samanborið við 332 milljónir á fyrra ári. Stjóm félagsins telur að fjárfestingamar muni auka arð- semi þess umtalsvert á komandi árum og styrkja félagið í sam- keppninni á erlendum mörkuðum,“ sagði Sighvatur. Um 50% þorsksins í salt „NOKKUR undanfarin ár hefur umhverfi saltfiskvinnslunnar ein- kennst af samdrætti í úthlutun veiðiheimilda og var þorskkvótinn í sögulegu lágmarki árið 1995,“ sagði Gunnar Örn Kristjánsson, framkvæmdastjóri SÍF hf. á aðal- fundi félagsins í gær. „Þorskaíli á Islandsmiðum hafði þá minnkað um 230.000 tonn á átta áram. Farið úr tæpum 400.000 tonnum 1987 í 170.000 tonn 1995. Fiskveiðiárið 1997 til 1998 er annað fiskveiðiárið í röð, þar sem þorskkvótinn er auk- inn, nú úr 186.000 tonnum í 218.000 tonn. Smuguveiðar Islendinga á ár- inu 1997 stóðu engan veginn undir væntingum og gengu mjög illa, mun verr en 1996. Hlutdeild þorskafla af íslandsmiðum, sem ráðstafað er til söltunar hefur auk- izt undanfarin ár úr 30% 1995 í 51% 1996, en lækkaði lítillega 1997 eða í 48%,“ sagði Gunnar Örn. Gunnar fjallaði síðan um hlut- deild söltunar og sagði: „Á árinu 1997 hélt saltfiskvinnslan hlutdeild sinni gagnvart frystingunni þegar útflutningsverðmæti þorskafurða er skoðað. Útflutningsverðmæti saltaðra þorskafurða hefur aukizt undanfarin fimm ár meðan útflutn- ingsverðmæti frystra afurða hefur minnkað fyrir sama tímabil. Þegar hlutdeild einstakra af- urðaflokka í útflutningsverðmæti þorskafurða er skoðuð, kemur í ljós að hlutdeild saltaðra afurða lækkar um 3,8% milli áranna 1996 og 1997 úr rúmum 49% í tæp 46%. Það er athyglisvert að hlutdeild sjófrystingar hækkar um sama hundraðshlutann. Þá er vert að hafa í huga að stór hluti útflutn- ingsverðmæta sjófrystra þorskaf- urða á áranum 1994, 1995 og 1996 er tilkominn vegna afla utan ís- lenskrar landhelgi. Vegna samdráttar í úthafsveið- um hefur frystitogaraflotinn sótt í auknum mæli inn í íslenzka lög- sögu og framsal til bátaflotans minnkað. Það er áhyggjuefni fyrir bátaútgerð og þá sem byggja af- komu sína á söltun, ef hlutdeild frystitogara í afla af Islandsmiðum mun aukast verulega frá því sem nú er. Það er einnig rétt að velta fyrir sér hvort sú þróun hafi í fór með sér jákvæð þjóðfélagsleg áhrif flytjist vinnsla þorskafurða af ís- landsmiðum og sú verðmætasköp- un sem henni er samfara í auknum mæli út á sjó. Meira af ufsa í salt Ufsakvótinn hélt áfram að minnka eins og undanfarin ár og ekki hefur tekist að veiða allan út- hlutaðan ufsakvóta á síðustu tveim- ur fiskveiðiáram. Hlutdeild þess afla sem ráðstafað var til söltunar er um 52% á árinu 1997, en 46% ár- ið 1196, sem er töluverð hækkun á milli ára. Hlutdeild söltunar hefur aukizt frá árinu 1993, þegar um 27% af veiddum ufsa fóru í salt upp í 52% á síðasta ári. Heildarmagn af ufsa sem ráðstafað er til söltunar hefur hins vegar aukist frá árinu 1996 og var um 19.000 tonn árið 1997, sem er það sama og 1993, þegar aðeins 27% af veiddum ufsa fóru til söltunar."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.