Morgunblaðið - 25.04.1998, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 31
Starfsemi
CISV
■Sumarbúðir: 11 ára böm.
Tveir drengir og tvær stúlk-
ur, ásamt fararstjóra, dvelj-
ast í fjórar vikur í sumarbúð-
um ásamt öðram börnum og
fararstjórum frá allt að 12
löndum.
■ Unglingaskipti: 12-15
ára. Fimm stúlkur og fímm
drengir ásamt fararstjóra.
Dvalið er hjá fjölskyldum,
með unglingum á sama aldri
og kyni, í tvær \dkur í hvora
landi. Auk þess er hægt að
fara í tveggja ára unglinga-
skipti og er þá dvalið í fjórar
vikur á hvorum stað sitt
hvort árið.
■Junior-Counsellors:
16-18 ára. Aðstoða farar-
stjóra í sumarbúðum og hafa
eigið verksvið.
■Vinnubúðir: 17-18 ára. Al-
þjóðlegar þriggja vikna búð-
ir þar sem unnið er að því að
auka þekkingu á starfsemi
og hugmyndum CISV.
■ Unglingadeild: 12-21 árs.
Opin öllum þeim sem áhuga
hafa á starfi CISV. Hefur
eigin stjórn og fjáröflun und-
ir handleiðslu aðalstjórnar.
■ Fararstjórn: 21 árs og
eldri. Sjálfboðaliðar innan
CISV sem sjá um allan und-
irbúning með bömum og for-
eldrum fyrir búðir eða ung-
lingaskipti og dvelja með
börnunum í búðum eða á
heimilum innanlands sem ut-
an.
inginn og dönsuðum íslenskan þjóð-
dans og sungum undir: „Ríðum, ríð-
um, rekum yfír sandinn . . .“ Síðan
kenndum við hinum krökkunum ís-
lenska útgáfu af „Hver stal kökunni
úr krúsinni í gær . . .“, en það voru
allir að syngja þetta á ensku. Svo
brugðum við okkur í látbragðsleik
þar sem við kynntum ísland. Rúsín-
an í pylsuendanum var svo nútíma
útgáfa af íslenskum þjóðdansi við
undirleik Páls Oskars. Við bjuggum
nefnilega til poppaða útgáfu af þjóð-
dansinum við lagið „Stanslaust
stuð“, og kenndum öllum og eftir
það var þetta vinsælasti dansinn í
búðunum og Páll Oskar hljómaði
þarna yfír allt.“
Þau sögðu að andinn í búðun-
um hefði verið mjög góður og
ósvikin sumarbúðastemmn-
ing, eins og maður sér í útlenskum
bíómyndum. Þarna borðuðu til
dæmis allir í einu í matsalnum og þá
voru gjarnan búin til lög, og það
borð sem bjó til besta lagið fékk að
byrja. „En yfír öllu fjörinu sveif þó
andi friðarhugsjónarinnar," sagði
Aslaug fararstjóri. „Og það mynd-
uðust þarna mjög sterk tengsl á
milli krakkanna og síðustu þrjá
dagana voru menn hálf grátandi út
af því að þurfa bráðum að skilja.“
Samtökin CISV eru alþjóðleg
friðarsamtök, óháð stjórnmálum og
trúarbrögðum. Bandaríski barna-
sálfræðingurinn Dr. Doris Allen
stofnaði þau árið 1951 og var hug-
mynd hennar sú, að börn frá ólíkum
löndum kæmu saman og lærðu að
lifa saman á grundvelli umburðar-
lyndis og jafnréttis, lærðu að hugsa
og draga ályktun í anda alþjóðavit-
undar og vinna þannig að friði í
heiminum. En það var einmitt eftir
seinni heimstyrjöldina sem hún fór
HARALDUR, lengst til vinstri, í fossaferð ásamt nokkrum vinum sinum.
FRÆGUR filippseyskur dansflokkur kom í heimsókn og er hér ásamt
hluta af fólkinu úr búðunum.
að hugleiða hvað hægt væri að gera,
eftir að sonur hennar ungur hafði
spurt: „Þarf ég að berjast sem her-
maður þegar ég verð stór?“
Fyrsti íslenski ClSV-hópurinn
fór til Svíþjóðar árið 1954 og þá fóru
þrjú ellefu ára börn út án farar-
stjóra. Síðan datt starfsemin hér á
landi niður, en þráðurinn var aftur
tekinn upp árið 1978 og íslands-
deild CISV var formlega stofnuð
1981. Síðan hafa íslensk börn fengið
tækifæri á hverju ári til að taka þátt
í sumarbúðum, unglingabúðum og
unglingaskiptum á vegum samtak-
anna.
Núverandi formaður íslands-
deildar CISV er Þórný Björk Jak-
obsdóttir. Hún sagði að spennandi
verkefni væri nú framundan þar
sem sumarbúðir yrðu haldnar á ís-
landi í júlí næstkomandi. Búðirnar
verða haldnar í Víðistaðaskóla í
Hafnarfirði og er búist við að hing-
að komi börn frá 11 þjóðum eða
tæplega fimmtíu börn í allt fyrir ut-
an fararstjóra og aðstoðarmenn.
Þórný sagði að síðustu íslensku
búðirnar hefðu tekist frábærlega
vel og mætti þakka það vaskri sveit
ClSV-félaga sem hefði lagt sig alla
fram til að svo mætti verða. „Nú
ætlum við að halda jafngóðar ef
ekki betri búðir,“ sagði hún. „Því
þui-fum við ClSV-félagar á íslandi
að hjálpast að nú í sumar og endur-
gjalda það sem fólk í öðrum löndum
hefur gert fyrir börnin okkar. Okk-
ur vantar sjálfboðaliða til ýmissa
starfa og vonast ég til að sem flestir
hlýði kallinu svo að dvöl hinna er-
lendu gesta okkar hér á landi verði
þeim ógleymanleg,“ sagði Þórný.
Eins og venjulega fara svo
hópar íslenskra 11 ára barna
í sumarbúðir erlendis og að
þessu sinni verður farið til Banda-
ríkjanna, Danmerkur, Noregs, Sví-
þjóðar og Brasilíu. Auk þess er boð-
ið upp á unglingaskipti við Lúxem-
borg nú í sumar. Ekki er fullskipað í
alla hópana og kannski er hér komið
tækifæri fyrir einhverja krakka og
unglinga, sem þetta lesa og eiga
heimangengt í sumar til að svala
ævintýraþránni?
1 í--i
Jjj
5ÉRSTAKT
TILBOÐ
í 50 DAGA
Nú eru 50 ár liöin frá því aö
fyrsti Land Roverinn var
framleiddur. Af því tilefni bjóðum
við nú í 50 daga, 50% afslátt af
Land Rover aukahlutum og
búnaöi þegar þú kaupir þér
nýjan Land Rover
Discovery eöa
Defender.
í j ii ij -i í
' —_í_j
1 I í I I f f |
—J -j ~.-j J