Morgunblaðið - 25.04.1998, Side 22
22 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Úranið til
Dounreay
FIMM kílóum af geislavirkum úr-
gangi var komið fyrir í Dounreay-
kjarnorkuverinu í Skotlandi í býtið
í gærmorgun. Efnið var flutt með
bandarískum herflugvélum frá
Tblisi í Georgíu og ekið í vöru-
flutningabíl og lögreglufylgd síð-
ustu 100 km að kjarnorkuverinu.
Hart hefur verið deilt á bresk
stjórnvöld fyrir að taka við efninu,
auðguðu úrani, en þau gerðu
leynilegan samning við Banda-
ríkjamenn um það. Komst upp um
fyrirætlanirnar er The New York
Times sagði frá þeim á þriðjudag.
Uranið var í tilraunastöð ríkisins í
Georgíu og varði Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, leyndina
með því að talin hefði verið hætta
á því að skæruliðar í Georgíu
myndu reyna að komast yfir úran-
ið ef þeir fréttu af því að til stæði
að flytja það.
Reuters
Færeying-
ar sekta
Frakka
IJTGERÐ franska netabáts-
ins Bruix hefur fallist á að
greiða eina milljón danskra
kr., um 10,4 milljónir ísl. kr., í
sekt fyrir ólölegar veiðar á
Ytribanka suðvestur af
Færeyjum. Sektin nemur um
100.000 dkr. en auk þess varð
útgerðin að greiða um 900.000
dkr. fyrir að halda afla og
veiðarfærum. Margir Færey-
ingar hafa gagnrýnt yfírvöld
fyrir linkind og segja verð-
mæti aflans hafa verið fjórum
sinnum meira.
Dauði Lindu McCartney
Villti um fyrir
fjölmiðlunum
Klofningur innan
þingflokks UUP
Belfast. Reuters. The Daily Telegraph.
DEILUR innan þingflokks Sambandsflokks Ulster (UUP) urðu opin-
berar í gær þegar 6 af 10 fulltrúum flokksins á breska þinginu komu
fram með fulltrúum sambandsflokks Ians Paisley (DUP) og lýstu
andstöðu sinni við friðarsamkomulagið á N-írlandi. David Trimble,
leiðtogi UUP, hefur beitt sér af alefli fyrir samþykkt þess í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni 22. maí næstkomandi.
Aftökudómum
framfylgt
KígaJi', Rúanda. Reuters.
AFTÖKUR 22 manna, sem fundnir
voru sekir um þjóðarmorðin í Rú-
anda árið 1994, fóru fram samkvæmt
áætlun í gær þrátt fyrir að Jóhannes
Páll páfi hefði beðið hinum dæmdu
vægðar á fimmtudag. Á knatt-
spymuvellinum í Kigali, höfuðborg
Rúanda, mættu 30.000 manns til að
fylgjast með er fjórir hinna dæmdu
voru teknir af lífi.
Talið er að 800.000 manns, flestir
af ættbálki Tútsímanna, hafi verið
myrtir á þriggja mánaða tímabili ár-
ið 1994 af öfgasinnuðum Hútúmönn-
um. Rúanda er nú stjórnað af Tút-
símönnum og hafa íbúar landsins lát-
ið í Ijós óánægju sína með hversu
seint erlend ríki reyndu að koma í
veg fyrir fjöidamorðin.
Staða Trimbles er því erfið gagn-
vart kollegum sínum og Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, hefur
reynt að aðstoða Trimble sem best
hann getur. Blair stöðvaði fyrir
helgina birtingu tillagna óháðrar
nefndar um fyrirkomulag göngutíð-
ar Óraníureglunnar í sumar og var
fyrir vikið gagnrýndur mjög, bæði
af þjóðemissinnum sem sambands-
sinnum.
I tillögum nefndarinnar mun hafa
verið gert ráð fyrir að ganga Óran-
íureglunnar niður Garvaghy-veginn
í Portadown, þar sem búa kaþólikk-
ar, yrði bönnuð en þar hafa brotist
út miklar óeirðir undanfarin 3 sum-
ur enda íbúamir ósáttir við göng-
urnar. Trimble mun hins vegar hafa
talið stöðu sína sem leiðtoga UUP
óbærilega, og jafnframt að von væri
á frekari ódæðisverkum öfgasam-
taka LVF, ef þessar tillögur yrðu
lagðar fram.
Los Angeles. The Daily Telegraph.
GEOFF Baker, talsmaður Pauls
McCartneys, hefur hvatt fjölmiðlana
til að láta hann „í friði“ og gefa hon-
um næði til að syrgja eiginkonu sína,
Lindu, sem lést af völdum krabba-
meins fyrir viku. Baker viðurkenndi
að hafa villt um fyrir fjölmiðlunum af
ásettu ráði með því að segja að
Linda McCartney hafi dáið í Santa
Barbara í Kalifomíu.
Nú er talið að Linda hafi dáið á
búgarði hjónanna í Arizona, sem
Paul McCartney hefur reynt að
verja fyrir ágangi fjölmiðlamanna.
McCartney gaf út stutta yfirlýs-
ingu á fimmtudag og kvaðst hafa
fengið „margar fallegar samúðar-
kveðjur frá venjulegu fólki út um all-
an heim“. „Þegar við lesum þessar
kveðjur vitum við að þetta fólk vill að
ósk okkar um næði verði virt. Þetta
er persónuleg beiðni frá mér.“
Baker kvaðst hafa veitt rangar
upplýsingar um dánarstaðinn til að
vemda fjölskylduna. „Siðferðilega og
lagalega hef ég ekki gert neitt rangt.
Ég er aðeins að reyna að halda fjöl-
skyldunni saman.“ Baker vildi ekki
staðfesta að Linda hefði dáið í
Arizona. Bandarískir fjölmiðlar
sögðu þó að þar hefði dánarvottorðið
verið gefið út og bálfór hennar farið
fram. Helmingi öskunnar hefði verið
dreift í búgarðinum og hinum helm-
ingnum á landareign McCartneys í
Sussex.
„Hnýsni fjölmiðla hefur gengið of
langt,“ sagði Baker. „Vissir fjölmiðl-
ar hafa vísvitandi skaðað fjölskyld-
una. Látið hana í friði.“
Bandarískir fjölmiðlar hafa verið
með vangaveltur um að læknar hafi
með einhverjum hætti aðstoðað við
að flýta dauða Lindu en Baker lýsti
þeim fréttum sem „heimskulegum
og fáránlegum".
Gefin var út yfirlýsing frá krabba-
meinssérfræðingi Lindu að bpiðni
fjölskyldunnar. „Dr. Larry Norton,
yfirmaður æxlafræðideildarinnar,
var helsti æxlafræðisérfræðingur
Lindu McCartney. Hans mat er að
hún hafi dáið með eðlilegum hætti af
völdum brjóstakrabbameins."
Havel á
batavegi
VACLAV Havel, forseti Tékk-
lands, er á batavegi og var í
gær fluttur af gjörgæslu yfir á
almenna deild á sjúkrahúsi í
Austurríki. Havel fékk heiftar-
lega iðrasýkingu um páskana
er hann var í fríi. Hann getur
nú andað hjálparlaust og átti
að taka hann úr öndunarvél í
gær.
Verkfalli
á hótelum
aflýst
SAMNINGAR tókust á síð-
ustu stundu í gærmorgun í
launadeilu starfsfólks á hótel-
um og veitingahúsum í Noregi
og vinnuveitenda þeirra. Hefði
verkfall skollið á í gærmorgun
hefðu gestir á um 50 hótelum
lent á götunni. Samið var um
120.000 ísl. kr. hækkun á árs-
launum hinna lægstlaunuðu.
McDougal ber
ekki vitni
SUSAN McDougal, sem lauk
fyrir skemmstu afplánun 18
mánaða dóms fyrir aðild sína
að Whitewater-málinu, neitar
að bera vitni í rannsókn Kenn-
eths Starr, óháðs saksóknara,
á fjárreiðum Bills Clintons
Bandaríkjaforseta, sem m.a.
tengjast Whitewater.
McDougal á yfir höfði sér
ákæru fyrir að sýna réttinum
vanvirðingu mæti hún ekki til
yfirheyrslu hjá Starr.
Fórnarlömb-
um Pandys
fjölgar
LEIFAR tanna sem fundust á
heimili ungverska prestsins,
sem sakaður er um að hafa
myrt fimm ættingja sína á
heimili sínu í Belgíu, gefa til
kynna að alls hafi 8 manns ver-
ið grafin þar. Engar tannanna
reyndust tilheyra ættmennum
Andras Pandys og því gerir
belgíska lögreglan nú ráð fyrir
að fómarlömb Pandys hafi
verið að minnsta kosti 13.
Dollý
fjölgar sér
EINRÆKTAÐA ærin Dollý
bar fyrr í vikunni og hefur
gimbrinni verið gefið nafnið
Bonný. Þar með er ljóst að
Dollý getur fjölgað sér á eðli-
legan hátt þótt sjálf hafi hún
orðið til við einræktun. Bonný
er undan velskum hrúti, Davíð.