Morgunblaðið - 25.04.1998, Side 44
* 44 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
Vorleikur í Fáksmönnum
Ingimar Sveinsson á leið í „úreldingu“
5. Rósa Valdimarsdóttir á Jónka frá
Álfhólum.
Ungmenni
1. Hrafnhildur Guðmundsdóttir á Ögra
frá Vindási.
2. Ragnheiður Kristjánsdóttir, Fáki, á
Snót frá Þverá.
3. Ásgeir Ö. Ásgeirsson á Kviku frá
Hamraborg.
4. Guðmar Þ. Pétursson, Herði, á Moz-
art frá Nýjabæ.
5. Bergþóra Snorradóttir, Fáki, á
Blóma frá Dalsmynni.
Unglingar
1. Sylvía Sigurbjörnsdóttir, Fáki, á
Fylki frá Armúla.
2. Benedikt Birgisson á Zon'ó frá
Þverholti.
3. Hrafnhildur Jóhannesdóttii-, Herði,
á Safron frá Hvíteyrum.
4. Þórunn Kristjánsdóttir,, Fáki, á
Nunnu frá Páfastöðum.
5. Aníta Aradóttir á Faxa frá Sogni.
Börn
1. Steinar T. Vilhjálmsson, Fáki, á
Hrafni frá Ríp.
2. Þóra Matthíasdóttir, Fáki, á Gosa
frá Auðsholtshjáleigu.
3. Sara Sigurbjörnsdóttir Fáki, á Tvist
frá Skarði.
4. Sólveig Pétursdóttir á Glaumi frá
Vindheimum.
5. Linda R. Pétursdóttir, Herði, á Ár-
vaki'i frá Ármóti.
• Nýhrossakeppni
fyrir nýgræðingana
Nýhrossakeppni er
nýjasta hugmyndin í
tegund hestamóta.
y* Fáksmenn héldu mót
um helgina undir þess-
um formerkjum en
buðu einnig upp á opna
töltkeppni svo og Vor-
leika Fáks. Valdimar
Kristinsson leit við á
Víðivöllum og fylgdist
Þ!
með því sem þar fór
fram.
AÐ SAUST margir glæsi-
k legir og gripamiklir hestar á
"ferðinni um Víðidalssvæðið
á laugardag þegar þessi þrí-
• þætta keppni fór fram og ljóst að
hestakostur fáksmanna er hreint
ótrúlega góður eins og svo oft áður. í
Nýrhossakeppnina voru einungis
gjaldgeng hross sem ekki höfðu náð
5. sæti eða ofar í keppni. Keppt var í
fjórgangi og fimmgangi og komu þar
fram margir ungir og efnilegir sem
vafalaust eiga eftir að gera garðinn
frægan í það minnsta sumir þeirra.
A fóstdagskvöld hófst keppnin
4»með forkeppni í opinni töltkeppni
þar sem voru þrír inni á velli í senn
og gefnar einkunnirj sem sagt hefð-
bundin töltkeppni. A laugardegi fór
nýhrossakeppnin fram fyrst for-
keppni með þremur á velli og ein-
kunngjöf en að henni lokinni tók við
Vorleikar Fáks sem var töltkeppni á
beinni braut. Allt fór þetta fram á
Hvammsvellinum. Fáksmenn voru
fjölmennastir þátttakenda.
Nýhrossakeppnin er afar góð hug-
mynd þar sem knöpum gefst kostur
á að koma með lítt reynda hesta til
keppni. Hverjum keppanda var
frjálst að skrá eins marga hesta í
- hverja grein og er þetta fyrirkomu-
lag því tilvalið fyrir knapa til að
prufukeyra keyra nýja hesta og sjá
hver staðan er hvað keppnisárangri
viðkemur og hvað þarf að bæta til að
skila betri árangri síðar á keppnis-
tímabilinu.
Urval knapa er mikið á höfuðborg-
arsvæðinu og ljóst að keppnisáhugi
er geysimikill þrátt fyrir úrtöluradd-
ir á þá leið að þeim fari stöðugt
fækkandi sem vilja eyða tíma sínum í
þjálfun hross með keppni í huga.
Mjög knýjandi er að koma skikk á
flokkun í styrkleikaflokka í keppni.
Þá verður fyrst gaman hjá þeim
skemmra eru á veg komnir í þjálfun
og sýningu keppnishesta. Af þeim
knöpum sem fram komu er ástæða
til að minnast á frammistöðu Ragn-
ars Hinrikssonar sem hefur verið
_ veinn af bestu knöpum landsins í
rúma tvo áratugi en heldur þó til
hlés seinni árin. Ragnar var nú í
toppbaráttunni á öllum vígstöðvum
og glímdi þar helst við Sigurbjöm
Bárðarson en þeir deildu efstu sæt-
unum í öllum greinum sem þeir tóku
þátt í. Minnir óneitanlega á gömlu
góðu dagana á áttunda áratugnum
þegar þessir tveir voru bestir á með-
al jafningja.
En úrslit á þessu athyglisverða
móti fáksmanna urðu sem hér segir:
Opin töltkeppni á hringvelli
— *■ Atvinnumannaflokkur
1. Ragnar Hinriksson, Fáki, á Blikari
frá Miðhjáleigu.
2. Ásgeir Herbertsson, Fáki, á Vissu
frá Björgum.
3. Sigurbjöm Bárðarson, Fáki, á
Djákna írá Dunhaga.
4. Sigurður Matthíasson, Fáki, á Funa
frá Reykjavik.
__>5. Jón Gíslason, Geysi, á Vigni frá
Þykkvabæ.
FARIÐ var á bak alla daga nema þegar Berlín var lieimsótt og sést hópurinn hér ásamt þýskum krökkum
og fararstjórunum Jóhönnu og Ágústu sem eru fremst fyrir miðju.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
SIGURBJÖRN og Ragnar börðust um sigursætin á móti Fáks um helg-
ina. Hér hafði Sigurbjörn á Fursta betur í ijórgangi eftir að Ragnar á
Bassa hafði haft yfirhöndina í forkeppni fjórgangs. Fara þeir hér mik-
inn ásamt öðrum verðlaunahöfum, Láru Grimm á Rökkva, SnorraDal
á Prins og Kjell Nattested á Færeyingi.
Opinn flokkur
1. Edda R. Ragnarsdóttir, Fáki, á Kol-
skeggi frá Barkastöðum.
2. Bjarni Karlsson, Fáki, á Væng frá
Skeggstöðum.
3. Guðrún E. Bragadóttir, Fáki, á
Freydísi frá Reykjavík.
4. Ingólfur Jónsson, Fáki, á Gusti frá
Garðsauka.
5. Rúnar Bragason, Fáki, á Hersi frá
Breiðabólstað.
18 ára og yngri
1. Sylvía Sigurbjörnsdóttir, Fáki, á
Hirti frá Hjarðarhaga.
2. Hinrik Þ. Sigurðsson, Sörla, á Val
frá Litla Bergi.
3. Bergþóra S. Snorradóttir, Fáki, á
Blóma frá Dalsmynni.
4. Rakel Róbertsdóttir, Gusti, á Hersi
frá Þverá.
5. Sigríður Pjetursdóttir, Sörla, á
Rómi frá Bakka.
Nýhrossakeppni
Fimmgangur
1. Ragnar Hinriksson, Fáki, á Bendli
frá Sauðafelli.
2. Auðunn Kristjánsson, Fáki, á Þyti
frá Traðarholti.
3. Sigurður Matthíasson, Fáki, á
Kveikju frá Árgerði.
4. Skorri Steingrímsson, Fáki, á
Jóreyki frá Beinakeldu.
5. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Byli
frá Skáney.
Fjórgangur
1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á
Fursta.
2. Ragnar Hinriksson, Fáki, á Bassa
frá Akureyri.
3. Lára Grimm, Fáki, á Rökkva frá
Akureyri.
4. Snoi-ri Dal, Fáki, á Prins frá Ketils-
stöðum.
5. Kjell Nattested, Fáki, á Færeyingi
frá Fjalli.
Vorleikar Fáks
Atvinnumenn
1. Ragnar Hinriksson, Fáki, á Blika
frá Miðhjáleigu.
2. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Hlyni
frá Efri-Múla.
3. Tómas 0. Snorrason, Fáki, á Kápu
frá Langholti II.
4. Gunnar M. Gunnarsson, á Þrúði frá
Hólum.
5. Axel Ómarsson, Herði, á Glæsi frá
Reykjavík.
Karlar
1. Sigurþór Jóhannesson, á Garpi frá
Arnarholti.
2. Þór G. Sigurbjörnsson, Fáki, á
Hrólfl frá Bakkakoti.
3. Þorgrímur Ólafsson, á Snúð frá
Hvoli.
4. Hilmar Magnússon, á Skugga frá
Hreiðurborg.
5. Ingólfur Jónsson Fáki, á Grímu frá
Krossi.
Konur
1. Þóra Þrastardóttir, Fáid, á Hlyni
frá Forsæti.
2. Alma OIse,n Fáki, á Von frá Hraun-
bæ.
3. Maríanna Gunnarsdóttir, Fáki, á
Hlyni frá Stóra Hofí.
4. Sara Ástþórsdóttir, á Sóldögg frá
Ádfhólum.
Engin slys eftir
þrettán ár
í tamningum
„ÉG SKIL mjög sáttur við þetta.
Það hefur verið mjög lærdóms-
ríkt og skemmtilegt að vinna
með nemendum öll þessi ár. Ég
hugsa að ég sjálfur hafi lært
langmest en nú er kominn tími á
mann, ég er að fara í úreldingu,“
segir Ingimar Sveinsson, kennari
í hestamennsku
við Bændaskól-
ann á Hvann-
eyri, glaður í
bragði að lokn-
um síðasta
skeifudeginum
undir hans
stjórn.
Ingimar inn-
leiddi aðferðina
sem hann kall-
ar „af frjálsum
vilja“ á Islandi
og hefur hann kennt nemendum
hana síðustu árin. Hann segir að
aðferðin hafi verið notuð á
Hvanneyri á hátt á sjötta hund-
rað hrossa og ekki eitt einasta
hafi ekki svarað. Þetta hafi auð-
veldað mjög tamninguna sérstak-
lega með erfið og stygg hross.
Ingimar og kona hans, Guðrún
Gunnarsdóttir, hafa fyrir all-
nokkru keypt sér hús á Hvann-
eyri og kveður hann þau ekki á
förum af staðnum að sinni. „Við
eigum hér íbúðarhús og hesthús
og góða kunningja og geri ég ráð
fyrir að við verðum hér eitthvað
áfram.
Þegar Ingimar lítur yfir farinn
veg, 13 ár í kennslu í tamningum
og hrossarækt, er hann sáttur
við viðskilnaðinn. Margir nem-
enda hans í tamningum hafa ver-
ið lítið vanir eða algjörir byrj-
endur. „Ég hef aldrei þurft að
láta nemanda hætta við hross.
Stundum hefur þetta tekið dálít-
inn tíma þegar erfið hross hafa
átt hlut að máli en þetta hefur
alltaf gengið upp að lokum.
Ánægðastur er ég með að það
skuli aldrei hafa slasast hjá mér
nemandi á þessum tíma, að vísu-
handleggsbrotnaði stúlka þegar
hún datt er hún var á leið út í
hesthús og það tel ég ekki slys
við hestamennsku,“ segir Ingi-
mar.
Hann segir að búið sé að biðja
hann um að vera áfram með
námskeið í áðurnefndri tamn-
ingaaðferð. Tvö námskeið voru
fyrirhuguð í mars en var aflýst
vegna hitasóttarinnar og nú eru
komnir fímmtíu
manns á lista
en þessi nám-
skeið verða
haldin næst í
haust. „Þá var
ég beðinn að
koma méð
svona námskeið
til Danmerkur
og fer ég á
næstu dögum.
Síðast þegar ég
vissi voru 150
búnir að skrá sig þar ytra. Ég
tek 8 í einu en það eru ekki allir
sem vilja koma með hross en ég
geri ráð fyrir að ég verði fram
að útskrift í vor við þessa
kennslu,“ segir Ingimar og bætir
við að það verði fróðlegt að sjá
hvernig danskfæddu trippin
muni bregðast við en þau séu alin
upp í nánu samneyti við mann-
inn. „Þannig hrcss eru oft erfið-
ust, þau eru hætt að bera virð-
ingu fyrir manninum og kunna
ekki leikreglurnar sem trippi
læra að öllu jöfnu í stóðlífi. Ef
þau eru gæludýr sem búið er að
dekra geta þau orðið hrekkjótt
þegar byrjað er að temja,“ segir
Ingimar og færist nú kapp í kinn
þegar umræðuefnið færist nær
hans hjartans máli, tamningun-
um, og að þeim orðum sögðum
býður hann blaðamanni í hest-
húsið að líta á hross sem hann er
að temja. Það er engan bilbug á
honum að finna þótt sjötugur sé
orðinn og ljóst að hann er enn
fullur starfs- og lífsorku. „Ég er
orðinn hálflatur að fara á bak á
kvöldin þegar ég er búinn að
vera að temja 20 nemendur og
jafnmörg trippi yfir daginn en ég
hef nógan tíma til þess þegar ég
verð kominn í úreldinguna,“ seg-
ir Ingimar að endingu og kímir.