Morgunblaðið - 25.04.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 25
Karamanl-
is látinn
KONSTANTÍN Karamanlis,
fyrrverandi forseti Grikk-
lands, lézt úr hjartaslagi á
sjúkrahúsi í
Aþenu í
fyrradag 91
árs að aldri.
Ríkisstjómin
lýsti yfir
þriggja daga
þjóðarsorg
vegna frá-
falls Karam-
anlis, sem þakkað er meðal
annars að hafa átt afgerandi
þátt í að binda enda á stjórnar-
tíð herforingjastjórnarinnar
1974 og í þvi að koma Grikk-
landi inn í Evrópubandalagið.
Viðræður
hafnar á ný
FULLTRÚAR Kína og
Tævans hafa komið sér saman
um að taka aftur upp pólitísk-
ar viðræður sín í milli, eftir
nær þriggja ára hlé. Síðar á
þessu ári hyggst aðalsamn-
ingamaður tævanskra stjóm-
valda, Koo Chen Fu, leggja
leið sína til Peking. Þetta til-
kynnti formaður sendinefndar
Tævans, Jan Jyh Hong, eftir
þreifingarviðræður í Peking á
fimmtudag. Kínverjar slitu
fyrir 33 mánuðum þeim við-
ræðum sem höfðu verið í gangi
milli stjórnvalda í Peking og í
Taipei, í mótmælaskyni við
heimsókn forseta Tævans, Lee
Teng Hui, til Bandaríkjanna.
Woo gerður
afturreka
KÍNVERSK stjómvöld vísuðu
í gær úr landi Frank Woo, kín-
versk-bandaríska baráttu-
manninum fyrir lýðræði í
Kína, og sendu hann til baka
til Bandaríkjanna eftir að
hann hafði reynt að komast
inn í Kína.
Meciar tapar
STUÐNINGUR almennings í
Slóvakíu við flokk forsætisráð-
herrans Vladimirs Meciars fer
hríðminnkandi, ef marka má
niðurstöður nýjustu skoðana-
kannana í landinu. Núverandi
stjórnarflokkar myndu tapa
meirihluta sínum á þingi til
stjómarandstöðunnar, ef kosið
yrði nú.
Kíríjenko reyndist
vera baráttujaxl
Moskvu. Reuters.
SERGEI Kíríjenko, sem í gær
hlaut samþykki Dúmunnar í emb-
ætti forsætisráðherra Rússlands,
hefur reynst vera baráttujaxl sem
ekki var tilbúinn til að gefa upp á
bátinn umbótahugmyndir sínar til
þess að vinna sér velvild þingheims
sem afneitaði honum tvisvar. En í
þriðju tilraun hlaut hann 251 at-
kvæði, 25 atkvæðum meira en nauð-
synlegt var til þess að hafa stuðning
meirihluta þinmanna.
Hefði meirihluti þingmanna hafn-
að Kíríjenko í gær líkt og í fyrri at-
kvæðagreiðslunum tveim hefði Bor-
ís Jeltsín orðið að leysa upp þingið
og boða til kosninga svo sem stjóm-
arskráin kveður á um. Það hefði
skapað mikla óvissu, bæði fyrir
Jeltsín sjálfan og einnig einstaka
þingmenn, sem hefðu átt á hættu að
missa þingsæti sín og þau hlunnindi
sem þeim fylgja.
„Atkvæðagreiðslan í dag sýndi
svo ekki verður um villst að hvorki
við né þið viljið koma af stað miklu
umróti, heldur þurfum við öll á því
að halda að Rússland sé stórkost-
legt,“ sagði Kíríjenko er hann
ávarpaði neðri deildina er úrslit
lágu fyrir, og þakkaði hann þing-
mönnum stuðninginn.
Kíríjenko er 35 ára bankamaður
sem stundar líkamsrækt heima hjá
Reuters
KÍRÍJENKO þakkar þingmönn-
um stuðninginn.
sér, þar sem hann setur upp box-
hanska og lætur höggin dynja á æf-
ingapúðanum. Sem forsætisráð-
herra gengur hann næst forsetan-
um að völdum, og Jeltsín, sem orð-
inn er 67 ára, á við veikt hjarta og
ýmsa aðra kvilla að etja.
Kíríjenko hefur aldrei falast bein-
línis eftir stuðningi þingfulltrúa. Við
umræður áður en atkvæðagreiðslan
fór fram í gær bað hann þá að
gleyma ekki þeirri ábyrgð sem þeir
bæru á efnahag landsins, og það var
það næsta sem hann hefur komist
því að biðja þingmenn um stuðning.
I fyrstu töldu flestir þingmenn að
ekki kæmi til greina að Kíríjenko,
sem Jeltsín tilnefndi í embættið,
hlyti samþykki Dúmunnar því hann
væri of ungur að árum og skorti alla
reynslu til þess að geta sinnt skyld-
um er þvi fylgdu. Smám saman
ávann hann sér jafnvel nokkurt
traust pólitískra andstæðinga sinna.
„Við höfum hitt Kíríjenko, hann
er viðkunnanlegur, kemur vel fyrir
sig orði og er skarpgreindur," sagði
Nikolaí Rízjkov, leiðtogi Flokks al-
þýðuvaldsins, sem er vinstriflokkur.
„Þessi maður hefur nýstárlegar
hugmyndir og viðhorf," sagði Júrí
Lúsjkov, borgarstjóri í Moskvu, um
Kíríjenko.
I síðustu ríkisstjóm, undir for-
sæti Viktors Tsjernomyrdíns,
gegndi Kíríjenko embætti orku-
málaráðherra í fjóra mánuði, og var
útnefningu hans í gær vel tekið af
þeim sem starfa í orkuiðnaði. „Hann
skilur þau vandamál sem iðnaður-
inn á við að etja einmitt núna og
hefur skilning á því að nauðsyn er á
breytingum á skattakerfinu,“ sagði
Jim Henderson hjá MFK Rena-
issance fjárfestingabankanum í
Moskvu.
VÖKVAHAMRAR
FYRIR VINNUVÉLAR
STÆRÐIR FRÁ 100 KG - 2 T
fViarkaðsþjónustan
Fax: 565 4101
Upplýsingar í síma veitir
Björn Baldvinsson
896 6391 og 566 6391
Nýsköpun í
MYND
Sýning í GKS 25. 4 - 2. 5. 1998
Verið velkomin í GKS, Smiðjuvegi 2 Kópavogi, þar sem ykkur
gefst kostur á að skoða hönnun og vöruþróun á nýju herðatré
fyrir börn og fatiaða, hugmyndir hönnuða frá Nýsköpunar-
keppni grunnskólanna og kynnast starfsemi GKS.
Gestum býðst að taka þátt í léttum gestaleik.
(verðlaun eru: Tölvuborð frá GKS, skrifborðsstóll
frá GKS og litaprentari frá Nýherja.
aks
<Ö>
NÝHERJI
SYNINGIN ER OPIN:
Laugardaginn 25. april kl. 10-16
Sunnudaginn 26. april kl. 13-16
Virkadagakl. 9-18
Laugardaginn 2. maí kl. 10-16
gks
Húsgagnagerð
| Smiðjuvegi 2
^ 200 Kópavogur
Simi 567 2110
Fax 567 1688
WÐ KYNNUM
GLÆSILEGAN
FIAT BRAVO
ABARTH
SMIÐSBÚÐ 2
GARÐABÆ
SÍMI: 565 6580
ABARTH-9
r SPORT