Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 30
3Ö LAÚóXÍltíAGtJR 25.' AÍ5RIL Í99S MÖR(ilJNBLADlT) Við erum öll ein heild ✓ I félagsskap sem kennir sig við CISV, Al- þjóðlegar sumarbúðir barna, er leitast við að efla umburðarlyndi og samvinnu milli barna og unglinga af ólíku þjóðerni á grundvelli friðarhugsjóna. Sveinn Guð- jónsson kynnti sér starfsemi samtakanna og ræddi við þrjú íslensk börn og farar- stjóra þeirra, sem fóru yfír hálfan hnöttinn til að taka þátt í þessari starfsemi. ÞAÐ var í lok júní í fyrra sem þau Jarþrúður Birgis- dóttir, Hans Róbert Hlyns- son og Haraldur Gunnars- son, sem þá voru öll ellefu ára, lögðu land undir fót og héldu alla leið til Filippseyja, til að taka þátt í alþjóðlegum sumarbúðum baraa, undir merkjum CISV, Childrens Intemational Summer Villages. Með í för var fararstjórinn þeirra, Áslaug Hulda Jónsdóttir, en þetta var frumraun hennar á því sviði. „Eg hefði byrjað á þessu miklu fyn- hefði ég vitað hvað þetta var gam- an,“ sagði hún aðspurð um hvemig til hefði tekist. Fyrst flugu þau til Amsterdam í Hollandi og héldu þaðan í þrettán klukkustunda flugferð yfir hálfan hnöttinn til Bangkok á Thailandi. í>ar fengu þau aðeins að teygja úr sér og flugu svo til Manila, höfuð- borgar Filippseyja þar sem þau gistu eina nótt hjá þarlendri CISV- fjölskyldu. Daginn eftir var svo haldið til eyjunnar Negro, sem er ein af 7.100 eyjum Filippseyja, þar sem sumarbúðimar voru haldnar. „Þetta var stórkostlegt ævintýri," sögðu ki-akkamir, enda var þeim allt framandi á þessum fjarlæga stað í suðurhöfum. í búðunum voru samankomnir krakkar frá hinum ýmsu þjóðlöndum, öll á sama aldri og var að vonum mikið líf í tuskun- um. En þótt mikið fjör hefði ríkt í búðunum þennan mánuð, sem þær störfuðu, voru íslensku fulltrúamir sammála um að ferðin hefði einnig verið mjög lærdómsrík og þrosk- andi. „Við kynntumst svo mörgum krökkum frá ólíkum stöðum á jörð- inni og komumst að raun um að við eram öll mjög lík í okkur,“ sögðu krakkamir. „Við eram í rauninni öll ein heild.“ Tilgangurinn með þessu er líka að efla samkennd með ólíkum þjóðum," bætti Áslaug farar- stjóri við. „Og þótt undirtónninn sé alvarlegur er reynt að gera þetta skemmtilegt með alls konar leikjum og þess háttar. Og hver þjóð hefur sitt þjóðarkvöld, þar sem menning og siðvenjur þjóðarinnar era kynnt- ar fyrir hinum.“ ,Á- íslenska þjóðarkvöldinu buð- um við til dæmis upp á harðfisk og flatbrauð með hangikjöti og bökuð- um íslenskar pönnukökur handa öll- um,“ sögðu krakkarnir ennfremur. „Svo fórum við í íslenska þjóðbún- ÍSLENSKI hópurinn í þjóðbúning og allt orðið klárt fyrir þjóðarkvöldið. 1. Ekki búast við að hlutirnir séuaiveg eins og þeir eru heima hjá þér því þú hefur farið langan veg að heiman til að uppgötva eitthvað nýtt. 2. Ekki taka hlutina of alvar- lega - því gáski og gleði eru upphaf að stórkostlegri reynslu innan CISV. 3. Mundu kjörorð okkar: Frið- ur fæst með skilningi - því að manneskja sem berst fyrir friði er sannanlega mann- eskja sem elskar heiminn. 4. Ekki gera þér áhyggjur af öllum sköpuðum, hlutum. Sá sem er uppfullur af áhyggj- um, hann er sér einskis að- njótandi. Oftast eru hlutirnir alls ekki eins slæmir og þú heldur - ef vel er að gáð. 5. Mundu að taka aðeins með þér helminginn af þeim fatn- aði sem þú heldur að þú þurflr að nota en hafðu hins vegar með í farteskinu tvö- faldan skammt af orku þinni og úthaldi. 6. Mundu af ef ætlast væri til þess að við dveldum að- eins á einum stað, þá hefðum við trúlega verið sköpuð með rætur. 7. Varastu að dæma lieila þjóð eftir manneskjunni sem þú hefur átt í deil- um við. 8. Ekki vera allt of mikill íslendingur í þér. Þegar þú ert í Kína kynntu þér þá siði Kínverja. 9. Mundu að þú ert gestur í viðkomandi landi og að hver sá sem sýnir gestgjafa sínum virðingu mun hljóta höfðinglegar viðtökur. 10. Mundu að öll erum við manneskjur og sem slíkum eru okkur takmörk sett og við gerum mis- tök. Fyrirgefðu okk- ur þennan breysk- JARÞRÚÐUR með indverska leika okkar allra. um Sanu og báðar klæddar í þjóðbúninga. Getur snerting haft læknandi áhrif? GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA Spurning: í óhefðbundnum lækningum er það algeng aðferð að fara höndum um sjúklinginn, snerta eða þreifa á líkamanum. Handayfirlagningar er oft getið í kraftaverkalækningum. Býr raun- veralega einhver áhrifamáttur í snertingu eða byggist sá máttur eingöngu á trúnni á snertinguna? Svar: Sálíræðin hefur ekld nein svör um kraftaverkalækningar, t.d. með snertingu eða handayfir- lagningu. Þar skiptir trúin á æðri mátt vafalaust mestu máli um reynslu sjúklinganna. Snerting getur hins vegar haft mikil áhrif á sálræna líðan fólks og tilfinninga- reynslu, einkum í mannlegum tengslum. Snerting er framstæð- asta skynjunin. Mörg framstæð dýr hafa aðeins snertiskyn. Það era þeirra einu tengsl við um- hverfið. Bamið í móðurkviði hefur í fyrstu aðeins snertiskyn og á fyrsta æviári þess er snertingin því ákaflega mikilvæg og leggur granninn að tengslum þess við annað fólk. Snertingin við móður- ina og síðar aðra nánustu skapar þau tilfinningatengsl sem era ein meginforsenda fyrir öryggiskennd bamsins, meðvitund þess um eig- in tilfinningar og þróun tilfinn- ingalífsins. Það er samdóma álit fræðimanna að fari bamið á mis við slík náin tengsl í frambemsku kunni það að hafa glatað mögu- leikanum á að öðlast þann tilfinn- ingaþroska, sem þarf til heil- brigðra samskipta við aðra síðar meir á ævinni. Oft hefur verið bent á mikilvægi þess að hafa barn á brjósti. Það er ekki aðeins vegna hollustu móðurmjólkurinn- ar, heldur ekld síður vegna þeirra nánu líkamlegu tengsla sem myndast á milli móður og bams við brjóstagjöf. Að hvíla í fangi móðurinnar veitir baminu ómælda öryggiskennd. Af sömu ástæðu er það einnig hollt fyrir bamið að foreldrarnir taki það í fangið þegar þau lesa fyrir það eða segja því sögu. Tilfinningar og snerting era þannig nátengd, og snerting og líkamleg nálægð verða tákn ástar og samkenndar í öllum samskiptum manna. Kossar, faðmlög og kynmök elskenda era besta dæmið um þetta. Snerting annarra en nánustu ástvina ber einnig vott um að þeir láta sér annt um þig og hafa sam- kennd með þér. Ekki síst á þetta við, þegar fólk verður fyrir áföll- um, ástvinamissi eða annarri sorg. Handa- yfirlagning Margir era í vandræðum með að finna orð til að votta syrgjendum samúð. Þótt orð geti verið hugg- andi og sefjandi er snertingin þó áhrifaríkari og orð jafnvel óþörf. Sá, sem líður illa, skynjar snert- inguna eins og barnið og fær við það öryggiskennd. Jafnvel ná- lægðin ein nægir. Að sitja með þeim sem líður illa án þess að hafa um það mörg orð getur verið besta huggunin á slíkum stundum. Snerting hefur þó, einkum á síðustu áram, fengið á sig nei- kvæða merkingu í umræðum um kynferðislega misnotkun. Öll snerting er þá túlkuð sem kyn- ferðislegt áreiti og jafnvel kyn- ferðisleg misbeiting valds hins sterka yfir hinum veikari. Hætta er á að ótti við að vera ásakaður um kynferðislega áreitni verði til þess að fólk hætti að sýna hvað öðra hlýju og samkennd með snertingu. Það er mismunandi hvað fólk kýs eða þarf mikla líkamlega ná- lægð við aðra. Sumir forðast of mikla nálægð og hræðast snert- ingu. Stundum má rekja það til ófullnægðra tilfinningatengsla í bernsku eða brostinna væntinga í nánum samskiptum á mótunarár- um einstaklingsins. Brennt barn forðast eldinn. Hjá öðram er það persónugerðin, því að fólk er mis- munandi að skapferli og persónu- gerð frá náttúrannar hendi. Sumir eru innhverfir og lokaðir, aðrir opnir og úthverfir. Það getur ver- ið forvitnilegt að skoða hvað fólki er tamt að hafa mikla nálægð við aðra, þegar það hittist og talar saman. Sumir halda sig alltaf í „hæfilegri" fjarlægð, aðrir hafa þann sið að standa þétt upp að viðmælanda sínum og jafnvel taka utan um axlir hans. Sumum finnst slík nálægð óþægileg og hrökkva frá, öðram finnst hún eðlileg og merki um hlýju og vináttu. Fólk er stundum í vandræðum með að finna þá nálægð sem er báðum þægileg, eins og sagan um broddgeltina tvo lýsir. Þeir hnipr- uðu sig saman í holu sinni og færðu sig nær hvor öðrum til að ylja sér, en hrukku alltaf frá þeg- ar broddarnir meiddu þá. Að lok- um fundu þeir hæfilegustu ná- lægðina, þar sem þeir nutu sæmi- legrar hlýju hvor af öðrum án þess að meiða sig. Mjög lokaðir einstaklingar sem forðast nána líkamlega snertingu komast stundum í mikla geðshræringu þegar farið er höndum um þá, bresta í grát eða missa stjórn á sér á annan hátt. Þess finnast dæmi t.d. í nuddi eða sjúkraþjálfun, sem eðli sínu samkvæmt felst í náinni lík- amlegri snertingu, en einnig eru mörg dæmi um þetta í sállækn- ingum, þegar hin tilfinningalega nálægð sjúklings og læknanda verður mjög sterk. Slík tengsl geta hins vegar rofið varnarmúr einstaklingsins og leitt til betri og nánari tengsla hans við annað fólk. Það má því vera ljóst af þessu að áhrifamáttur snertingar er mikill, annars vegar til að leggja granninn að tilfinningalegu heil- brigði og þroska og hins vegar til að veita öryggi, huggun og létta á þrúgandi vanlíðan. •Lesendur Morgunblaösins geta spurt sáifræðinginn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið er á móti spurningum á virkum dögum milli klukkan 10 og 17 i síma 569 1100 og bréfum eða símbréfum merkt: Vikulok, Fax 5691222.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.