Morgunblaðið - 25.04.1998, Page 37

Morgunblaðið - 25.04.1998, Page 37
36 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 37 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. OGN VIÐ LÍFSAFKOMU ÍSLENDINGA UMHVERFISRÁÐHERRAR Norðurlanda lýstu þegar árið 1987 yfir áhyggjum sínum við brezk stjórnvöld vegna staðsetningar endurvinnslustöðvar fyrir geislavirkan kjarnorkuúrgang í Dounreay í Skotlandi. í ályktun ráðherranna var starfsemi af þessu tagi og á þessum stað talin ógna fiskimiðum Noregs, Islands og Færeyja. Islenzk stjórnvöld mót- mæltu og harðlega endui*vinnslu geislavirks úrgangs bæði við Sellafíeld í Englandi og Dounreay í Skotlandi. Það er ástæða til að rifja þessi samnor- rænu og íslenzku mótmæli upp vegna fyrirætlana brezkra stjórnvalda um að flytja auðugt úran frá Ge- orgíu [fyrrum hluta Sovétríkjanna] til eyðingar í Dounreay-kjarnorkuverinu í Skotlandi. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir í við- tali við Morgunblaðið sl. fimmtudag: „Það er að sjálf- sögðu mikilvægt að koma úrani frá óvissusvæðum eins og Georgíu einhvers staðar fyrir. Við getum hins vegar ekki sætt okkur við það að vandinn verði flutt- ur í næsta nágrenni við okkur. Lífríki hafsins er mjög viðkvæmt og það er þegar búið að taka of mikla áhættu í þessu sambandi. Þetta er mál sem varðar allar þjóðir sem land eiga að hafsvæðinu...“ Davíð Egilsson framkvæmdastjóri mengunarvarna Holl- ustuverndar ríkisins segir af sama tilefni að „Doun- reay sé mjög óheppilegur staður hvað okkur varðar vegna hafstrauma og nálægðar við hafsvæði okkar“. Fiskveiðiþjóðir við Norður-Atlantshaf hljóta að mótmæla af hörku fyrirætlunum brezkra stjórnvalda um að flytja auðugt úran frá Georgíu til eyðingar í Dounreay. Þjóð sem á allt sitt undir hreinu og ómenguðu hafsvæði, hreinum og ómenguðum fiski- miðum, eins og við íslendingar, hlýtur að standa fast gegn þessum áformum. Við getum aldrei sætt okkur við starfsemi sem eykur líkur á óhöppum, sem valdið gætu óbætanlegu tjóni á auðlindum hafsins, undir- stöðu afkomu okkar og efnalegs sjálfstæðis. AÐGÁT SKAL HÖFÐ ... FRÉTTIR fjölmiðla nú í vikunni um 2ja ára dreng, sem fannst klæðlítill og kaldur í einu af hverfum borgarinnar, hafa vakið athygli og viðbrögð fólks, sem sakað hefur suma fjölmiðla um að slá fréttinni upp í æsifréttastíl, þar sem grunur um kynferðisaf- brot var aðalatriði fréttarinnar. Svo reyndist ekki vera. Þessi viðbrögð sýna, að aldrei er nægilega varlega farið í fréttaflutningi af málum, sem varða börn og gerðir barna. Oþarfi og raunar algert tillitsleysi er að dreifa ótta á meðal fólks um glæpsamlegt athæfi áður en rannsókn þar til bærra aðila, í þessu nýlega tilfelli lögreglu, liggur fyrir. Óvarkárni í fréttamennsku getur haft víðtækar af- leiðingar. Hún getur sært og meitt börn, foreldra þeirra og aðstandendur, auk þess sem áhrifin geta einnig haft alvarleg áhrif í hverfinu, þar sem viðkom- andi atburður gerist. Því verður að gæta hófs í um- fjöllun og aðeins fara með staðreyndir, sem staðfest- ar eru af rannsóknaraðilum málsins. Hér á við hin sí- gilda viðvörun skáldsins: „Aðgát skal höfð í nærveru sálar.“ í siðareglum Blaðamannafélags íslands, sem allir íslenzkir blaðamenn hafa undirgengizt með aðild að félaginu, segir í 3. grein: „Blaðamaður vandar upp- lýsingaöflun sína, úrvinnslu og framsetningu svo sem kostur er og sýnir fyllstu tillitssemi í vandasömum málum. Hann forðast allt, sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sárs- auka eða vanvirðu.“ Svo einfalt er það. Auðnist frétta- og blaðamönnum að uppfylla þessa 3. grein siðareglna sinna, er engin hætta á því að svo hendi sem í vikunni, að tiltölulega saklaust mál endi í upphrópunum um grun um glæp- samlegt kynferðisathæfi. Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka íslands hyggst auka tekjur og lækka kostnað til að efla bankann og auka hagkvæmni Frekari vöxtur Landsbankans utan Islands? Halldór J. Kristjánsson settist í sæti -----------------:-7-------------- bankastjóra Landsbanka Islands hf. með litlum fyrirvara. Hann kveðst ætla að leggja áherslu á að nýta þá möguleika, sem skapast hafa með kaupum á Vátryggingafélagi ---7------------------------- Islands og telur rétt að horfa út fyrir landsteinana í leit að aukinni hagræðingu í rekstri bankans. Halldór greindi Karli Blöndal frá helstu áformum sínum í ____bankanum og mati sínu á stöðu_ handknattleiks kvenna á Islandi. Morgunblaðið/Kristinn HALLDÓR J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka íslands, á skrifstofu sinni. HALLDÓR J. Kristjánsson var ráðinn bankastjóri í Landsbanka íslands hf. 15. apríl, sama dag og ríkis- endurskoðandi sendi frá sér greinar- gerð til bankaráðs bankans um kostnað hans vegna laxveiðiferða og risnu. Þann dag kom hann fram á blaðamannafundi þar sem laxveiði- ferðir á vegum bankans voru í sviðs- ljósinu. Hann kvaðst hins vegar vera kominn til að skipuleggja framtíð bankans og í gær gat að líta fyrstu aðgerðir hans þegar kynnt var nýtt skipurit bankans þar sem meðal ann- ars kemur fram að framkvæmda- stjórum mun fækka úr fímm í fjóra. Halldór hefur reynslu af bankamál- um, bæði af alþjóðlegum vettvangi og úr starfi sínu sem ráðuneytisstjóri iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis, og hann hófst handa á að kynna hug- myndir sínar um samstarf við er- lenda fjármálastofnun og nauðsyn þess að ná sem mestum ávinningi úr fjárfestingu bankans í Vátrygginga- félagi íslands á fundi með bankaráði daginn eftir að hann tók til starfa. Sá Landsbankann í tölum og skýrslum Halldór sagði að hann hefði alltaf séð Landsbankann í tölum, skýrslum og greinargerðum, en hann kæmi til starfa með virðingu fyrir sögu bank- ans og því, sem þar hefði verið afrek- að. Hann sagði að umræðan um bankann undanfarið vegna laxveiði- ferða og risnumála hefði verið erfið og ósanngjörn þar sem bankinn hefði skilað ágætri afkomu á liðnu ári. I þeim efnum mætti ekki láta laxveiði- málin villa sýn. Breytingar hefðu ver- ið gerðar á stjórnsldpulagi bankans á ýmsum sviðum, bankinn nyti trausts og hjá lánshæfismatsfyrirtækjum hefði hann fengið góða umsögn. Hann sagði að eitt af því, sem þyrfti að breyta væri tölvu- og upp- lýsingakerfi bankans. Þessi kerfi stæðust þær kröfur, sem nú væru gerðar, en horfa þyrfti til framtíðar. Sérstaklega þyrfti að ti-yggja að vandamál tengd ártalinu 2000 yrðu leyst. Sagt er að við þau áramót muni hugbúnaður ruglast og tölvukerfi bresta verði ekkert að gert því að að- eins sé gert ráð fyrir tveggja stafa tölu í klukkum tölvukerfa og ski'án- ingu ártala í gögnum og færslum. Bankinn í góðri stöðu Halldór kvaðst ánægður með það bú, sem hann tæki nú við. „Bankinn hefur á að skipa góðu starfsliði og hefur sjálfsagt besta dreifikerfi allra íslenskra fjármála- stofnana,“ sagði Halldór. „Þetta er styrkur bankans í því hlutverki að verða forustuafl í viðskiptabanka- þjónustu og veita alhliða fjármála- þjónustu.“ Halldór kvaðst telja að dreifileiðir í fjármálaþjónustu væru vafalaust að breytast um þessar mundir og það gæti leitt til fækkunar útibúa. Þetta mætti meðal annars rekja til alnets- ins, símaþjónustu fyrir viðskiptavini og fleira. „Það mun vafalaust leiða til breyt- inga hjá öllum varðandi rekstur úti- búa,“ sagði hann. „Ég er þeirrar skoðunar að verið geti að breyta þurfi samsetningu dreifikerfisins þannig til dæmis að afgreiðslustaðir komi í stað útibúa og eitthvað þurfi að einfalda kerfið um leið og fleiri dreifiliðir geta komið til. Ég er sann- færður um það, sama er á hvaða sviði atvinnulífs, að kostnaður, aðhald og samkeppni munu leiða til þess að þjónustufyrirtæki verði að hafa boð- leiðir eins stuttar og hægt er bæði til að hraða þjónustu og minnka til- kostnað. Þessi mál hljóta að verða í athugun hjá öllum viðskiptabönkun- um og ekki síst hjá Landsbankanum. En þetta eru atriði, sem gerast á nokkrum árum. Ég er ekki að boða neinar breytingar hér og nú.“ Áhersla á VÍS Halldór hefur gert sér tíðrætt um að nýta þurfi þau tækifæri, sem skap- ast hafi við kaup bankans á helmingi í Vátryggingafélagi Islands. „Þetta er mikilvægt fyrir báða að- ila, VÍS og Landsbankann, og það hefur almenningur þegar séð,“ sagði hann. „Ég hef sett það í forgangsröð verkefna að halda þeirri þróun áfram." Fjármálaþjónusta fyrirtækja hefur tekið gagngerum breyting- um á undanfomum árum og Halldór sagði að það hlyti að hafa áhrif á útlána- stefnu bankans. „Islensk fyrirtæki geta nú leitað fjármagns án milligöngu fjármálastofnana með beinum útboðum," sagði hann. „Einnig vinna þau meira í sambandi við opin tilboð. Það er einfaldlega hlutverk Landsbankans að geta tekið þátt í þeirri samkeppni og uppsetn- ing á viðskiptastofu að Laugavegi 77 er svar bankans. Það má ekki gleyma því að Landsbankasamstæðan sem slík er sterk og benda má á að Lands- bréf hafa getað veitt öfluga þjónustu. Þetta tvennt er styrkur bankans." Landsbankinn hefur orðið fyrir áföllum vegna lána, sem banldnn veitti og fékk ekki endurgreidd nema að litlum hluta vegna gjaldþrota. Halldór sagði að þessi útlánavandi Landsbankans væri að miklu leyti að baki. „Eftir síðustu efnahagsniðursvéiflu komu upp nokkur vandamál," sagði hann. „Það voru ýmis lán til atvinnu- fyrirtækja, sem stóðu höllum fæti, og SÍS-málið þekkja allir. Það hefur ver- ið unnið vel úr því sem gerðist á árun- um 1990 og 1991 og var vandi Lands- bankans. Þetta er að baki að mestu leyti. Ég þarf reyndar að klára ýmsa þætti í því, en ég kem sem betur fer til starfa með samkomulag við banka- ráð um það að minn tími og kraftar fari í að byggja upp og horfa til fram- tíðar - efla samkeppnisstöðu bankans og treysta þá þætti, sem eru veikir." Halldór hefur ekki mikið látið uppi um framtíðaráform sín. Daginn, sem hann tók við sem bankastjóri, lýsti hann þó yfir því að hann hygðist koma Landsbankanum í fremstu röð í Norður-Evrópu. „Ég vil koma þeim boðskap til við- skiptavinanna að bankinn ætli sér að verða í fremstu röð,“ sagði hann. „Það er hins vegar best að láta verkin tala í þvi. Við þurfum að einbeita okk- ur að því að gera það sem vel er gert betur." Skýr markmið í rekstri Hann sagði að setja þyrfti skýr markmið í rekstri bankans, þar á meðal um arðsemi, rekstrarkostnað sem hlutfall af rekstrartekjum, eigin- fjárstöðu og öryggi í útlánum og starfsemi þannig að afskriftir væru vel innan við einn af hundraði. Hann kvaðst ekki vilja nefna neinar tölur í þessu sambandi þar sem enn væri verið að ræða þessi mál innan bank- ans. Hins vegar yrði miðað við það, sem tíðkaðist í bönkum í Norður- Evrópu. „Mín helsta fyrirmynd er sú endur- skipulagning, sem átt hefur sér stað á Norðurlöndum," sagði hann. „Banka- kerfin í Frakklandi og Þýskalandi eru ekki þau best reknu, en á Bret- landi er að finna sterk fyrirtæki. Af Evrópuríkjunum stendur Holland upp úr. Hollendingar hafa rekið sína bankastarfsemi vel. Þetta litla land hefur náð að gera tvo sína stærstu banka, ABN Amro og ING Barings, að framsæknustu bönkum í heimi. ING hefur komið við sögu hér á landi með lánum til Norðuráls og jarð- ganganna í Hvalfirði og ABN Ámro var á árum áður atkvæðamikill banki hér á landi.“ Nýi bankastjórinn sagði að þessum rekstrarmarkmiðum yrði ekki náð nema með því að auka tekjur og lækka kostnað og það væri stórt verkefni. I íslenska bankakerfínu væri hlutfall rekstrargjalda af rekstrar- tekjum rúmlega 70 af hundraði, en þar sem best léti erlendis væri það 50 til 55 af hundraði. „Það er langtímamarkmið að ná þessum hlutfóllum nær því, sem ger- ist í nágrannaríkjunum," sagði hann. „Þetta er hins vegar viðfangsefni, sem næst ekki nema á nokkrum ár- um. I kerfinu í heild á Islandi verður þessu markmiði ekki náð nema með frekari samruna á markaðnum." Halldór lítur svo á að til þess að nálgast þessi markmið þurfi bankinn að auka bæði þjónustu og ná auknum hlut í innlánum og annarri fjármála- þjónustu og frekari samvinna við VÍS og öflug vöruþróun ásamt aðhaldi í kostnaði og bættu skipulagi væru mikilvæg atriði. „Hvað varðar sameiningu í banka- kerfinu er ljóst að markmið eiganda bankans, ríkisins, eru skýr,“ sagði hann. „Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sagði á aðal- fundi bankans að hann vildi sjá breyt- ingar á markaði til að auka verðmæti hlutafjár ríkisins í þessum þremur hlutafélagabönkum, sem tóku til starfa um síðustu áramót. Hann vildi sjá aukna samkeppni, lækkun á heild- artilkostnaði samfara víðtækari og ódýrari þjónustu jafnframt því sem sköpuð yrðu skilyrði til að laða að kjölfestufjárfesta og alþjóðlega fjár- festingu. Það er erfitt að ná öllum þessum markmiðum í einu, en þau eru skýr og eðlileg. Spumingin er hvernig Landsbank- inn falli best inn í þetta. Tryggja verður það, sem þegar er hafið, og á ég þar við fjárfestinguna í öðru fjár- málafyrirtæki, VÍS, þannig að málið er ekki jafn knýjandi fyrir Lands- bankann á þessu stigi og fyrir hina viðskiptabankana. Ég útiloka ekkert en geng út frá því að samvinnan við VÍS hafi forgang og Landsbankinn verði sjálfstæð eining.“ Vill horfa út fyrir landsteinana Halldór kvaðst vera þeirrar hyggju að til að ná settum markmiðum væri óþarfí að einblína eingöngu á þau tækifæri, sem byðust innan lands. „Spurningin er hvort frekari vöxt- ur Landsbankans eigi ekki alveg eins að vera utan íslands," sagði hann. „Ætti Landsbankinn að leita eftir samstarfi við erlendan viðskipta- banka til að ná ofangreindum mark- miðum? Er það kannski stysta leiðin til að tryggja aðgang að nýjum vör- um og nýjustu tækni? Annar kostur við slíka alþjóðavæðingu væri að- gangur að viðskiptaneti annars banka og lausnum á tæknilegum vandamál- um auk þess, sem innleiða mætti nýj- ungar í rekstri. Þetta er hlutur, sem ég tel að eigi að vera ofarlega í for- gangsröðinni að kanna á næstu mán- uðum. Þar vil ég horfa til þessara sömu ríkja og ég nefndi áðan, en ann- ar aðili, sem hefði áhuga á samstarfi af þessu tagi, gæti verið vandfund- inn.“ Halldór sagði að þetta væri ná- kvæmlega það sama og stærstu at- vinnufýrirtækin á íslandi hefðu verið að gera. Þau hefðu styrkt stöðu sína með því að auka alþjóðlega starfsemi. Náið samstarf, en ekki samruni ,Á þessu stigi er ég fyrst og fremst að tala um náið samstarf,“ sagði hann. „Samruni yfir landamærin er ekki á dagskrá. Ég er viss um að ekki er í augsýn samstarfsaðili, sem gæfi tilefni til þess, ekki einu sinni á Norð- urlöndum, þar sem orðið hefur sam- runi yfir landamæri. Ástæðan er sú að samruni verður að vera milli jafn- ingja. Hitt væri yfirtaka og það er enginn áhugi fyi'ir því. En þess vegna segi ég að það eigi að vera ofarlega á forgangslistanum að efna til náinnar rekstrarsamvinnu við alþjóðlegan viðskiptabanka. Rökin eru skýr og ég er með ýmis nöfn í kollinum. Það er hárrétt að það yrðu mikil samlegðar- áhrif af samruna Landsbankans við aðra banka innan lands og sömuleiðis innbyrðis milli hinna bankanna. Ég tek enga afstöðu á þessu stigi, en bendi á að aðrir kostir eru nærtækari og VIS og alþjóðavæðing eru brýn forgangsverkefni. Landsbankinn verður að hafa sveigjanleika og styrk til að geta brugðist hratt og vel við, en fyrst er að bíða niðurstöðu eigand- ans og hvert hann vilji að þessar þrjár stofnanir fai'i. Síðan er það ein- stakra banka að spila úr þeim ákvörðunum, sem verða teknar." Hyggst skrá bankann á hluta- bréfamarkaði fyrir mitt ár Halldór sagði að það væri brýnt fyrir bankann að geta boðið út nýtt hlutafé og skráð bankann á markaði fyrir mitt árið. Styrkja þyrfti eigið fé bankans vegna áframhaldandi kaupa á eignarhlut í VÍS. Þessi kaup þrýstu á það að bankinn aflaði aukins hluta- fjár og taka yrði það mál fyrir á næstu vikum. Ekki hefði verið tekin ákvörðun um neinar upphæðir, en nafnvirði hlutafjár í bankanum væri 5,5 milljarðar. Á undirbúningsstigi hefði verið rætt um að bjóða út 12% nýtt hlutafé í því skyni einu að tryggja skráningu á verðbréfamark- aði og selja tiltekinn hlut til starfs- manna, sem ríkið hefði ákveðið að starfsmenn ættu að fá að kaupa á innra virði bankans, sem væri eigið fé yfir nafnvirði hlutafjár. Það yrði hins vegar matsatriði af hálfu bankans um hvaða tölur yrði að ræða þarna, en vafalaust yrði hlutfallið að vera hærra en 12 af hundraði. Að sögn Halldórs hefur nokkrum sinnum verið gert ófoi-mlegt mat á Landsbankanum og lægi fyrir að markaðsvirði gæti verið allt frá níu milljörðum upp í 13 milljarða. í gengi gæti það þýtt allt frá 1,8 upp í 2,5-falt nafnverð. Ég vil í raun ekkert segja um markaðsvirðið, en þetta hefur komið fram opinberlega. Á næstunni mun fara fram nákvæmt mat á Landsbankanum og eignum hans þannig að við munum fá mjög skýra mynd af stöðunni. Nú er verið að ræða við fjóra fremstu fjárfestingar- banka heims um að gera það mat.“ Halldór kemur í Landsbankann úr iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu þar sem hann hóf störf árið 1994. Hann varð ráðuneytisstjóri árið 1996 og stýrði meðal annars lokasamningum um stækkun Islenska álfélagsins, sem undirritaðir voru árið 1995, og viðræðum um stofnun Norðuráls, sem frá var gengið sumarið 1997. Hann stýrði einnig undirbúningi á formbreytingu ríkisviðskiptabank- anna í hlutafélög sem gekk í gildi um síðustu áramót. Halldór var því síður en svo ókunnugur málefnum Lands- bankans þegar hann settist í banka- stjórastólinn daginn eftir að banka- stjórarnir þrír, Björgvin Vilmundar- son, Halldór Guðbjarnason og Sverr- ir Hermannsson, sögðu af sér á öðr- um degi páska í kjölfar umræðna og gagnrýni vegna risnukostnaðar og laxveiðiferða á vegum bankans. Halldór hefur áður komið nálægt bankastarfi. Hann var aðstoðar- bankastjóri við Evrópu- bankann í London frá 1991 til 1994 og nú situr hann reyndar í bankaráði hans sem varamaður fyrir Is- lands hönd. Árið 1993 þurfti Jacques Attali, sem síðar gat sér orð fyrir að gefa út sam- töl Franeois Mitterrands Frakk- landsforseta við ýmsa leiðtoga undir nafninu „Verbatim" eða „Orðrétt", að segja af sér stöðu bankastjóra vegna ásakana um spillingu. Bankanum var ætlað að lána fé til uppbyggingar og þróunar í Austur-Evrópu, en þótti ganga treglega að gegna því hlut- verki. Hörð gagnrýni kom fram þeg- ar upplýst var að bankinn hafði varið helmingi meira fé í höfuðstöðvarnar í London, þar á meðal feiknlegan marmarmainngang, en lánað hafði verið. Of víðtæk markmið íEvrópubanka „Bankinn var stofnsettur vorið 1991 og ég átti sæti í fyrstu stjórn- inni,“ sagði Halldór. „Undir stjórn Attalis fór bankinn út í allt of mikið, fór út í að reyna að gera allt fyrir alla. Það varð til þess að hann náði ekki sérhæfingu. Síðan tókst sam- staða innan bankans, meðal annars fyrii' ötulan stuðning fulltrúa Norður- landa í bankanum, um að það bæri að einbeita sér að uppbyggingu fjár- málastarfsemi í þeim ríkjum þar sem bankinn væri starfandi. Það var ekk- ert síður þessi hugmyndafræðilegi ágreiningur milli stjómar og eigenda bankans og Attalis, sem kristallaðist í þessari kostnaðarvitund hans. Hann taldi að bankinn ætti að verða ein alls- herjarfjármálastofnun fy'ir uppbygg- ingu Austur-Evrópu meðan aðrir töldu að hann ætti bara að marka sér sérhæft hlutverk við að byggja upp einkastarfsemi í löndunum og aðrir aðilar á borð við Alþjóðabankann, Fjárfestingabanka Evrópu, Norræna fjárfestingabankann og aðra svæðis- banka í álfunni gætu sinnt öðrum hliðum. Að auki komu upp mál, sem vörðuðu eyðslu hans persónulega, sem ui-ðu til þess að hann sagði af sér. Það voru í sjálfu sér ekki alvarleg mál, en þau sköpuðu neikvæða um- ræðu um bankann, sem leiddi til þess að hann afréð að segja af sér.“ Halldór sagði að hin hugmynda- fræðilega deila hefði verið óleyst þeg- ar nýr maður, Jacques de Larosiére, fyrrverandi forstjóri Alþjóðagjald- eyrissjóðsins og seðlabankastjóri Frakka, kom inn í bankann, en hann hefði ákveðið að einbeita sér að þvi að setja bankanum forgangsverkefni, af- marka áherslusvið og það hefði haft bein jákvæð áhrif á afkomuna. Síðan hefði banldnn dafnað og eigendur verið það ánægðir að fyrir tveimur árum hefði verið ákveðið að tvöfalda hlutafé hans. Fylgist með efnahags- og atvinnulífí Víða hefur komið fram að Halldór hafi lítinn áhuga á laxveiðum og fari reglulega í sund, en hann hefur ýmis áhugamál önnur. Hann gefur sér- stakan gaum að öllu, sem varðar efnahagsh'fið og atvinnuuppbygg- ingu. „Ég tel að það sé afar brýnt fyrir íslenskt samfélag að atvinnulífið verði fjölþættara," sagði hann. „Fjöl- þætt atvinnu-, iðnaðar- og þjónustu- uppbygging getur skilað mikiu. Ég hef alltaf verið áhugamaður um al- þjóðavæðingu íslensks atvinnulífs og unnið mikið að þeim málum. Ég tel að gildi erlendrar fjárfestingar á ís- landi eigi eftir að aukast og þarf þar að leggja áherslu á fleiri svið. Áfram- haldandi fjárfesting er ekki aðeins mikilvæg vegna þess að þá kemur mikið fjármagn inn í landið heldur þess að með vilja erlends aðila til að taka áhættu með eigið fé kemur að hann setur alla sína reynslu af stjórn- un, markaðssetningu og tæknimálum inn í verkefnið. Því fer í raun fjan-i í dag að það sé skortur á fjármagni á íslandi, heldur er brýnt að auka er- lenda fjárfestingu á öllum sviðum vegna þess sem henni fylgir.“ Halldór kveðst vera mikill fjöl- skyldumaður og hafa yndi af að ferð- ast bæði innan lands og utan. Hann er kvæntur Karolínu Fabínu Söebech stjórnmálafræðingi og eiga þau tvö börn, Hönnu Guðrúnu og Kristján Guðmund. „I seinni tíð má segja að áhuginn verði meiri á ró- legum stöðum til að eyða frítímanum og það hefur kannski komið með börn- unum,“ sagði hann. „Við höfum farið til Bretlands og finnst Atlantshafsströnd Frakklands, suður af Nantes og norður af Bordeaux, mjög aðlaðandi. Einnig hef ég í starfi mínu kynnst Atlantshafsströnd Kanada og síðasta fríi eyddum við í Nova Scotia, sem líkist Islandi að mörgu leyti hvað vai'ðar viðmót fólks og atvinnu. Einnig vildi ég kynnast Nýfundnalandi og Prince Edward- eyjum. Mér finnst Kanadamenn sam- eina virkni bandarísks samfélags, sem ég þekki eftir að hafa verið þar við nám, og hlýleika og mannlega ^ þætti, sem við þekkjum frá Norður- Evrópu." Hlýjar taugar til Stokkseyrar og Eyrarbakka Hann sagði að heimahagar upp- vaxtarins ættu sterk ítök í sér og hann hefði hlýjar taugar til Stokks- eyrar og Eyrarbakka. „Ströndin þar er alveg einstök náttúruperla," sagði hann. „Ég á líka tengsl á Snæfellsnes og hef eytt tölu- verðum tíma í að kynnast betur Vest- fjörðum og Ströndum, en Karolína kona mín á ættir að rekja til Reykja- * fjarðar þar sem hún á enn jörðina Reykjafjörð ásamt systrum sínum.“ Hann kvaðst lesa mikið og taka ævisögur fram yfir skáldskap. Hann hefði sérstakan áhuga á að lesa um Bandaríkjaforseta og sögu Banda- ríkjanna. Þá læsi hann allar íslenskar ævisögur, sem kæmu út. „Ég les miklu minna af skáldsög- um en áður,“ sagði hann. „Ég les frekar íslenskar skáldsögur en er- lendar, en get þó sagt að ég hélt mik- ið upp á Somerset W. Maugham og hef eins og flestir gefið mér tíma til að lesa perlur bókmenntanna. Þegar ég var í menntaskóla í Noregi las ég til dæmis Knut Hamsun.“ Hann kvaðst hafa haft sérstaka ánægju af að lesa ævisögu banda- ríska stjórnmálamannsins Tips O’Neils, sem var þingmaður Massachusetts og forseti fulltrúa- deildar Bandaríkjaþings. Hans kennisetning var „All politics are Iocal“ (öll stjórnmál eru staðbundin) og sagði Halldór að O’Neil hefði gefið sér mikla innsýn í heim stjómmála hvar sem er. „Þá las ég nýverið ævisögu Bills Clintons Bandaríkjaforseta og Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands,“ sagði hann. „Við lestur ævisögu Bla- irs sést að þar fer stefnufastur og traustur einstaklingur frá byrjun. Hvað Clinton varðar læt ég nægja að segja að þar fer flóknari persónu- leiki.“ EIvis, Bítlarnir og ítalskar óperur Á tónlistarsviðinu kvaðst hann hafa sérstakt dálæti á Elvis Presley og Bítlunum. Þá hefði hann mikinn áhuga á óperum frá föður sínum, Kristjáni Friðbergssyni. „Pabbi átti mikið safn af ópemm og ég hlustaði á það,“ sagði hann. „Eg hef mjög gaman af ítölsku meist- urunum og hlusta oft á ópemr í bíln- um, þá helst eitthvað af léttara tag- inu.“ Halldór kvaðst hafa leikið fótbolta þegar hann var ungur. Mest fylgdist hann með enska boltanum og þar sem hann hefði búið í Wimbledon hefði hann sérstakt dálæti á Wimbledon-liðinu. „Ég játa að margir hlæja að því að Wimbledon spili grófan fótbolta, spymi fram og vinni úr því, en ég hef haft gaman af að fylgjast með ein- stökum leikmönnum og þá sérstak- lega Vinnie Jones, sem þykir grófur en þegar meira er lesið um hann kemur í ljós að hann er mikill fjöl- skyldumaður og prúður.“ Hann styður Stjörnuna í Garðabæ í knattspyrnu þótt gengið hafi verið slakt á liðnu sumri. Hann sagði að lið- ið hefði hins vegar leikið betur, en uppskeran bar vitni og ekki átt fall stólið. Kvennahandboltinn í sókn Halldór fylgist sérstaklega með gengi Stjömunnar í kvennahandbolt- anum. „Ragnheiður Stephensen, leikmað- ur Stjörnunnar, kennir Hönnu dóttur minni og við reynum að fara á flesta heimaleitó liðsins,“ sagði hann. „Kvennahandboltinn er í mitólli sókn um þessar mundir og leikir Stjörn- unnar og Hauka í úrslitum handbolt- ans sýna hvað hann er orðinn öflugur og skemmtilegur að horfa á.“ Eftir þessum orðum að dæma má búast við að Halldór J. Kristjánsson verði ekki með hugann við bankamál þegar Stjarnan og Haukai' leika til úrslita í oddaleik liðanna í dag. Miðað við það sem tíðkast í bönkum í N-Evrópu Brýnt að auka erlenda fjár- festingu á öll- um sviðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.