Morgunblaðið - 12.05.1998, Page 8
& ÖRKIN siaJs SI148
8 ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Brevting ákveðin á nafni framboðs R-lÍ8tans
KIKTU bara undir merina, Ámi, ég er kona einsömul, „ég á mig sjálf“.
Tónleikar í Háskólabíói
fimmtudaginn 14. maíkl. 20:00
Hljómsveitarstjóri: Einleikari:
Gerrit Schuil Bella Dawidovich
Ludwig van Beethoven: Egmont, forleikur
Ludwig van Beethoven: Píanókonsert nr. 3
Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 6
Sinfóníuhljómsveit íslands
Háskólabíói vib Hagatorg
Sími: 562 2255
Fax: 562 4475
Nánari upplýsingar á sinfóníu*
vefnum: www.sinfonia.is
Miöasala á skrifstofu liljómsveitarinnar og viö innganginn
„Osköp
aumt“ á síld-
arslóðum
„ÞETTA hefur verið ósköp aumt
og svipað og um líkt leyti í
fyrra. Sfldin hefur staðið djúpt,
en komið upp á kvöldin og þá
eru menn góðir ef þeir ná einu
til tveimur köstum. Þetta voru
900 tonn sem við lönduðum á
Eskifírði um helgina,“ sagði Jó-
hann Kristjánsson, skipstjóri á
Hólmaborginni, í samtali við
Morgunblaðið í gærdag, en skip-
ið var þá að leggja aftur af stað
til sfldveiða í færeysku lögsög-
unni.
Guðrún Þorkelsdóttir landaði
einnig sfld á Eskifirði um helg-
ina.
Að sögn Jóhanns er sfldin á
fremur litlu svæði og íslensku
og færeysku bátarnir mjög þétt
að veiðum, en danskir bátar eru
norðar að því er hann hélt. Jó-
hann sagði enn fremur, að
skoskum bátum með flottroll
hefði ekkert orðið meira ágengt.
„Þetta er sem ég segi, svipað
og í fyrra og miklu minna en ár-
in þar á undan. í fyrra rættist
þó úr upp úr þessu og því bfðum
við og sjáum til. Sfldin er af
blandaðri stærð og það er mun
minni áta í henni en í fyrra, en
það á eftir að aukast ef að líkum
lætur.“
Ráðstefna um fjölskyldustefnu ASI
Réttindakerfí
útivinnandi for-
eldra úrelt
Hansína Á. Stefánsdóttir
VINNAN, fjölskyld-
an og framtíðin er
yfirskrift ráðstefnu
sem Alþýðusambandið
gengst fyrir í dag, þriðju-
daginn 12. maí. Þar verða
kynntar tillögur Alþýðu-
sambandsins að heild-
stæðri fjölskyldustefnu.
Hansína A. Stefánsdótt-
ir er formaður Jafnréttis-
og fjölskyldunefndar ASÍ.
„Eins og yfirskrift ráð-
stefnunnar ber með sér
verða fjölskyldumálin í
brennidepli á ráðstefn-
unni. Það þarf að gjör-
breyta réttindakerfi for-
eldra á vinnumarkaði og
færa það til nútímalegra
horfs.
Það verður að taka mið
af þörfum fjölskyldunnar
og stuðla markvisst að því
að foreldrar geti verið
meira með börnum sínum en nú
er.“ Hansína segir að það rétt-
indakerfi sem foreldrar á vinnu-
markaði búi við sé gatslitið og
margstoppað og löngu kominn
tími á að það sé stokkað upp og
endurskoðað frá grunni.
Komið þið með tiliögur að breyt-
ingum?
„Við viljum gjarnan beina rétt-
indakerfi foreldra á vinnumarkaði
í svipaðan farveg og er á hinum
Norðurlöndum. I Noregi hljóðar
fæðingarorlof upp á eitt ár og síð-
an stendur foreldrum til boða að
fá annað ár í viðbót á fullum laun-
um. í Danmörku er greitt 28
vikna fæðingarorlof og allt að 52
vikna foreldraorlof að auki. I Sví-
þjóð er þessi sami réttur og í
Finnlandi 44 vikur. Á íslandi er
fæðingarorlof 26 vikur og því ljóst
að við erum langt á eftir nágrönn-
um okkar í þessu sambandi."
-Hvað með greiðslur til for-
eldra í fæðingarorlofi? Hvernig er
þeim háttað á hinum Norðurlönd-
unum?
„Þar gilda allt aðrar greiðslu-
reglur og þar er miðað við laun á
meðan við erum með fastar
greiðslur hér á landi.“
Hansína segir að hérlendis sé
foreldrum á vinnumarkaði mis-
munað eftir vinnustöðum. „Ríkis-
starfsmenn fá fæðingarorlof á
fullum launum fyrstu þrjá mánuð-
ina á meðan fólk á almennum
vinnumarkaði fær 64.000 krónur á
mánuði með fæðingarstyrk. Til að
fá þessar 64.000 krónur þarf móð-
irin að hafa skilað 1032 dagvinnu-
stundum síðustu 12 mánuðina.
Það má benda á að fæðingaror-
lofsgreiðslur hafa ekki fylgt
launaþróuninni og eru núna undir
lágmarkslaunum sem eru 70.000
krónur.“
Hansína bendir á að körlum sé
líka mismunað eftir vinnustöðum.
„Nú eiga ríkisstarfsmenn rétt á
hálfum mánuði á dagvinnulaunum
svo og helmingi af meðaltals yfir-
vinnu og vaktaálagi. Á almenna
vinnumarkaðnum fá
feður einungis 32.155
krónur íyrir hálfan
mánuð. Meðaltalslaun
karla hjá ríki og borg
voru á fyrri hluta síð-
asta árs 164.000 krónur
á mánuði svo það liggur í augum
uppi að mismunurinn er töluverð-
ur. Þetta er óþolandi mismunun."
- Þið ætlið líka að fjalla um for-
eldraorlof?
„Já. Evrópusamtök launafólks
og atvinnurekenda gerðu nýlega
með sér samning um rétt til for-
eldraorlofs. í honum felst að for-
eldrar eiga rétt á því að vera
►Hansína Á. Stefánsdóttir er
fædd árið 1949. Hún varð stúd-
ent frá öldungadeild MH árið
1982 og lauk námi í rekstrar-
og viðskiptafræði frá Endur-
menntunarstofnun Háskóla ís-
lands árið 1993.
Hún hefur unnið við verslun-
ar- og skrifstofustörf og verið
starfsmaður Verslunarmanna-
félags Árnessýslu frá árinu
1980 og formaður þess frá ár-
inu 1990.
Hún á sæti í miðstjórn ASI og
er formaður jafnréttis- og fjöl-
skyldunefndar ASÍ.
Eiginmaður Hansínu er Giss-
ur Jenssen mjólkurfræðingur
og eiga þau tvo syni.
heima hjá börnum sínum í allt að
3 mánuði fram að átta ára aldri.
Þessi réttur er ekki millifæran-
legur milli foreldra."
Hansína segir að samningurinn
sé þegar orðinn að tilskipun og nú
þurfi að vinna að því að gildistaka
hana hér á landi.
- Hvernig leggið þið til að það
sé gert?
„Annarsvegar með samningum
við atvinnurekendur varðandi or-
lofstökuna. Hinsvegar verður að
auka við réttindakerfi foreldra
þannig að orlofið verði greitt. Is-
lensk stjórnvöld báðu um árs
frest og fengu hann og sam-
kvæmt áætlun ríkisstjórnarinnar
tekur tilskipunin því gildi í síð-
asta lagi í júní árið 1999.“ Hans-
ína bendir á að búið sé að gera
samning um rétt þungaðra
kvenna til að fara í mæðraskoðun
án þess að það sé dregið af laun-
um þeirra og fleiri slíkum tilskip-
unum þurfi nú að fylgja eftir.
- Hverjir taka til máls á ráð-
stefnunni?
„Það eru ýmsir sem taka til
máls. Þeirra á meðal eru t.d.
Halldór Grönvold sem fjallar um
nýja strauma í jafnréttis- og fjöl-
skyldumálum og Elsa Þorkels-
dóttir framkvæmda-
stjóri Jafnréttisráðs
sem fjallar um mismun
á réttarstöðu launa-
fólks hér á landi og er-
lendis. Þá mun Lára V.
Júlíusdóttir lögmaður
fjalla um réttindakerfi og réttar-
stöðu foreldra hér á landi. Fjöl-
skyldustefna tveggja fyrirtækja,
Iðntæknistofnunar og Marels,
verður kynnt og Páll Pétursson
félagsmálaráðherra verður með
ávarp og situr fyrir svörum.
Ráðstefnan verður haldin í
Borgartúni 6 og hefst í dag
klukkan 13
Foreldraorlof í
allt að ári í
Danmörku